Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1995, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995
17
Frá sýningu Leikfélags Reyðarfjarðar á Óvitum Guðrúnar Helgadóttur.
Leikfélag Reyöaríjarðar:
Óvitar Guðrúnar
Helgadóttur
Helgi Seljan, DV, Reyðarfirði:
Leikfélag Reyðarfjarðar frumsýndi
nýlega barnaleikritið Óvita eftir
Guðrúnu Helgadóttur í leikstjórn
Jóns Júliussonar. Leikarar eru 20 og
var vel tekið í frumsýningarlok.
Áhugaleikfélögin eiga óskipta að-
dáun mína fyrir sitt ötula menning-
arstarf, sinn þýðingarmikla þátt í
leiklistarlífi þjóðarinnar. Því starfi
þyrfti vissulega að gefa meiri gaum,
gera betri og verðugri skil. Vart verð-
ur fátækleg umíjöllun mín um Óvit-
ana í heimabyggð minni merkilegt
lóð á þá vogarskál sem vert skyldi.
Hins vegar dreg ég enga dul á það
að ég dáist mjög að metnaöarfullu
framtaki sjö hundruð manna samfé-
lags, en á frumsýningu bar ég jafn-
framt ugg í brjósti hversu til mundi
takast.
Sá uggur reyndist með öllu ástæðu-
laus, svo undravel var öllu til skila
haidið af þeirri heilsteyptu sveit sem
þarna var að verki.
Auðvitað er vandalaust að tína til
hnökra, hik og þess háttar, en heild-
arsvipur, svo og frammistaða þessa
unga leikaraliðs var þeim öllum
sannarlega til sóma. Ljóst er að leik-
stjórinn hefur lagt mikla alúð að
vandasömu verki í framsögn sem
tjáningu. Hans hlutur hlýtur að telj-
ast hinn besti og á hann lof skilið.
Auðvitað eru hlutverkin misstór
og mæða misjafnlega á leikendum,
en sum viðamikil og vandmeðfarin.
Aðalhlutverkin tvö, strákana sem
allt snýst nú um, leika Vigdís Þor-
gerður og Pálína Árnadóttir af öryggi
góðu og með ágætum svipbrigðum,
strákslegar hið besta. Bóel Jóhann-
esdóttir hefði sómt sér vel í hvaða
fínfrúaveislu sem væri um leið og
skörungsskapurinn var sko ekkert
slor. Andri Sigurðsson var óborgan-
lega syfjaður og ekki síöur ölvaður
vel, Sylvia Halldórsdóttir hinn
dæmigerði táningur sem þráir þó
kærleik og hlýju á heimilinu. Svona
mætti áfram telja öll þau er þarna
komu fram með sönnum sóma.
Hvað sem vangaveltum líður voru
Óvitarnir hennar Guðrúnar í góðum,
hlýjum höndum eystra og eru það
enn og eiga vonandi eftir að ylja og
gleðja eystra þar. Þökk sé þeim öllum
er þar að koma.
Fréttir
Akranes:
Skýrsla um samfélag, bófc
Tómasar Gunnarssonar, er um
leyndarbréf Hæstaréttar, melnt
lögbrot æðstu embættlsmanna
og þögn kerfislns. Verö kr. 1.980.
Garðar Guðjónascm. DV, Akranesi:
Rúmlega 8% af áætluðum mann-
afla á Akranesi var án atvinnu í leysi á Akranesi nær 12%.
febrúar að sögn Brypju Þorbjörns-
dóttur, atvinnufulltrúa bæjarins.
Á sama tíma í fyrra nam atvinnu-
Aktu eins og þú vilt
aóaöriraki!
^ wÉUMFEROAR
Ohum cms og mcnn' UpAn
AIIAI
FULLKOMIN
SURROUND-HUÓMTAKI
MX-92
ALVÖRU HLJÓMUR!
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR:
Tvöfalt Dolby segulband
• Digital FM/MW/LW útvarp
með 19 minnum
• 100 watta magnari
• Forstilltur tónjafnari
með 5 stillingum
• Geislaspilari
• Innstunga fyrir heyrnartól
og htjóðnema
• Fullkomin fjarstýring
• Surround-hljóðkerfi
• 10Ow hátalarar
%ðmnVSMBSIÍÍBIN
SIÐUMULA 2 • SIMI 68 90 90
'lákjördag?
vimimn við sigur
Sjálfstæðisflokkuiinn í Reykjavík óskar eftir sjálfboðaliðum til margvislegra starfa á kjördag, laugardagirm 8. aprfl.
Allir sem eru reiðubúnir að
hjálpa til eru hvattir til að
hafa samband við hvcrfa-
skrifstofumar eða skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins
ísíma 682900.
^ordag-geturjní ^
BETRA
ÍSLAND