Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1995, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995
31
Fréttir
Þau mistök uröu við birtingu
myndar frá leikskólanum Kríla-
koti á Dalvík hér í blaðinu sl.
miðvikudag aö í myndatexta
sagði að hún væri frá Siglufirði.
Myndin var tekin á dögunum er
hinir árlegu „Vetrarleikar Kríla-
kots“ fóru fram en þá er jafnan
mikið um dýrðir í Krílakoti. Beð-
ist er velvirðingar á mistökunum.
Norðurland:
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
Nú í vikunni hefur mikill fjöldi
Norðlendinga lagt ieiö sína á þá
staði þar sem bægt er kjósa utan
kjörfundar og hefur tala þeirra
sem greitt hafa atkvæði í kosn-
ingunum td. tvöfaldast á Akur-
eyrí á 2-3 dögum.
Talsvert á sjötta hundrað hafði
i gær greitt atkvæöi hjá sýslu-
manninum á Akureyri, um 150 á
Húsavík og rúralega 80 á Ólafs-
firði, Á Norðurlandi vestra var;
utankjörfundaratkvæðagreiðsla
einnig góð, um 150 höfðu greitt
atkvæði á Sauðárkróki, 115 á
Siglufirði og yfir 80 á Ólafsfiröi.
Veðurstofan gerir ráð fyrir
ágætis veðri á Norðurlandi á
laugardag og ætti hvorki veöur
né færö að hamla þvi aö kjósend-
ur komi á kjörstað. Atkvæði í
Norðurlandskjördæmi eystra
verða talin í íþróttahöllinni á
Akureyri en í Norðurlandskjör-
dæmi vestra verður talið á Sauð-
árkróki.
fólkíheims-
Eyþór Eövarðsson, DV, HoHandi:
Níu fulltrúar frá íslandi tóku
þátt í alþjóðlegri hárskera- og
hárgreiðslukeppni um Gúllna
túlípanann sem haldin var í
Ufrecht í Hollandi um helgina.
i dömuílokki kepptu Þórdís
Hclgadóttir, Þuriður Halldórs-
dóttir, Birna Jónsdóttir og Sigríð-
ur Einarsdóttir og í herraflokki
kepptu Sigurkarl Aðalsteinsson,
' nar Diðriksson og Viktoría
Guðmundsdóttir. í flokki sveina
kepptu Gunnhildur Erlingsdóttir
og Hlynnr Stefánsson. Farar-
stjóri var Lovísa Jónsdóttir. Alls
tóku um 148 keppendur þátt, 78 í
dömuflokki og 70 í herraflokki.
Hollendingar unnu íýrsta sætið
í herraflokknum, Frakkar lentu
í öðru sæti og Þjóðverjar í því
iðja. í dömuflokki sigruðu
Rússar, Hollendingar urðu S öðru
sæti og þjóðverjar í þriðja. ís-
lensku keppendumir lentu um
miðjan hópinn.
Að sögn Sólveigar Leifsdóttur,
sem ásaml Vagni Boysen var
dómarí í keppninni, stóðu ís-
iensku keppendurnir sig mjög vel
að íslenskt fagi'ólk á þessu sviði
Athugasemd við
„leiðréttingu"
Blaðinu hefur borist eftirfarandi:
Vegna „leiðréttingar“ í DV í dag
5.4., vegna fréttar í DV 3.4. sl. um
málssókn mína og félaga míns á
hendur ríkissjóði vegna málefna sem
varða Þjóðminjasafn íslands, óska ég
eftir að eftirfarandi verði birt í blað-
inu sem fyrst.
í úrskurði stjómar Arkitektafélags
íslands, dags. 6.3. 1995, segir svo:
„Stjórn Arkitektafélags íslands telur
að ögmundur Skarphéðinsson hafi
gerst brotlegur við 8. grein siðareglna
A.I., en hún hljóðar svo:
„Árkitektum ber að rækja góðan
félagsanda í hvívetna. Arldtekt má
aldrei gerast til að troöa sér inn í
samningagerðir verkkaupa og ann-
ars arkitekts. Verði arkitekt þess vís-
ari eða þykist hafa ástæðu til aö ætla,
að verk, sem hann hyggst takast á
hendur, hafi áður verið fahð starfs-
bróður hans, skal hann grennslast
fyrir um það hjá honum, hvort hann
og verkkaupi hafi lokið viðskiptum
sínum á þann hátt, að heiðarlegt geti
talist gagnvart þessum starfsbróöur
að taka verkið að sér. Ef svo er ekki
og afráði hann samt að taka verkið
að sér, ber honum tafarlaust að skýra
starfsbróður sínum frá þeim ásetn-
ingi sínum."
I niðurlagi greinargerðar stjómar
A.í. segir ennfremur:
„Stjóm A.í. telur það ámælisvert
af Ögmundi Skarphéðinssyni að hafa
ekki með óyggjandi hætti rækt þann
félagsanda sem siðareglur A.í. ætla
mönnum að gera og tilkynnt Stefáni
Emi og Grétari formlega um áfomi
sín um frekari vinnu fyrir Þjóð-
minjasafnið, ekki síst í ijósi undan-
gengins kærumáls sömu aðila vegna
fyrri verkefna Ögmundar fyrir Þjóð-
minjasafnið."
Stefán örn Stefánsson
Vinni
imm
ngstöiur
mióvikudaqinn: 05.04.1995
ViNNiNGAR FJÖLDt UPPHÆÐ
VINNINGA A HVERN VINNiNG
B aate 2 22.422.500
n| 5 af 6 Lfl+bónus 0 612.431
3 5a.6 1 259.070
J 4 af 6 217 1.890
d 3 af 6 EJ3+bónus 837 210
Iffl uinningur fór til Noregs og Svíþjóðar
Aöaltölur:
Heildarupphæð þessa viku
46.302.401
á isi.r 1.457.401
1-6Ö1511
\ W10OQ- TEXTAVARP 451
$IBt mo FVBIAVABA U«
Umdæmi sýslumannsins í Reykjavík:
Á f immta þúsund haf a
kosið utan kjörf undar
Á fimmta þúsund manns hafa kos-
ið utan kjörfundar í umdæmi sýslu-
mannsins í Reykjavík, samkvæmt
upplýsingum Rúnars Guðjónssonar
sýslumanns í gær. Hér er um að
ræða Reykjavík, Seltjamames, Mos-
fellsbæ, Kjalames og Kjós. Rúnar
sagði að miðað við sama tíma fyrir
borgarstjórnarkosningamar á síð-
asta ári sé þátttakan nú um 70 pró-
sent - þá hefði hins vegar nánast
verið komið sumar og fólk meira á
faraldsfæti.
Á áttunda hundrað manns kusu
utan kjörstaðar að Engjateigi í fyrra-
dag en þar hafa nú rúmlega þrjú
þúsund manns kosið. Um 500 manns
hafa kosið á stofnunum og sjúkra-
húsum en 800 aðsend atkvæði hafa
borist, frá útlöndum og utan af landi.
Reiknaö er meö fjölda utankjör-
fundaratkvæöa í dag. Um 70 þúsund
manns eru á kjörskrá í Reykjavík.
-Ótt
500 páskaegg frá
SB8S3
í verðlaun
Taktu þátt í skemmtilegum leik meö Sparihefti heimilanna og þú getur átt
von á aö vinna gómsætt páskaegg frá
Nóa Síríusi. Allt sem þú þarft aö gera er aö hringja í 99-1750 og svara
fimm laufléttum spurningum um Sparihefti heimilanna sem
nú hefur veriö dreift í öll hús á höfuööorgarsvæöinu.
Þann 12. april næstkomandi veröur dregiö úr pottinum og hljóta hvorki
meira ná minna en 500 heppnir þátttakendur páskaegg frá Nóa Síriusi í
verðlaun.
Þú sem þátttakandi f leiknum getur kannaö hvort þú sért einn af þeim
heppnu meö því aö hringja í síma 99-1750 frá 12. april næstkomandi.
Páskaeggin -eröa afhent vinningshöfum laugardaginn 15. apríl.
HEIMILANIMA
..MMWMMMHHMW
MMMMMMMM llh^
Jibbí!
Dagar
ríkisst3órnarixmar
eru taldir!
X-B Samband ungra íramsóknarinanna