Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1995, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1995, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 5 Heiða Stórglæsileg framhaldsmynd um ævintýri Heiðu og afa hennar byggð á hinni heimsþekktu sögu Jóhönnu Spyri. Helstu hlutverk eru m.a. i höndum Jason Robards, Jane Seymour og Patriciu Neal. Myndin er sýnd í tveim hlutum. Osíðlegt tilboð Milljónamæringurinn John Gage storkar hjónabandi Davids og Diönu Murphy. Hann gerir þeim tilboð sem þau geta ekki hafnað. Stórmynd með Robert Redford, Demi Moore og Woody Harrelson. 'V ''■/■V.? Töfraflautan Glæsileg teiknimynd gerð eftir óperunni frægu eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Sagan segir frá ungum prinsi sem fær töfrumgædda flautu gefins frá næturdrottningunni og lendir í ótrúlegustu ævintýrum. Myndin er talsett og verður sýnd í tveim hlutum. Kona klerksins Fórnfús eiginkona klerksins verður fyrir vonbrigðum þegar maðurinn hennar fær ekki þá stöðuhækkun sem þau höfðu vonast eftir. Hún ákveður að grípa til sinna eigin ráða. Dramatísk framhaldsmynd sem byggð er á metsölubók Joönnu Trollope, The Rector's Wife. Sommersby Mjög rómantísk mynd um týndan eiginmann sem snýr aftur eftir sjö ára fjarveru. En allt er breytt meðal annars hann sjálfur. í aðalhlutverkum eru Richard Gere og Jodie Foster. Stuttur frakki Bráðsmellin íslensk gamanmynd um Fransmann sem kemur til íslands og lendir í vandræðum. f aðalhlutverkum fara á kostum Jean-Phillippe Labadie, Hjálmar Hjálmarsson og Elva Ósk Ólafsdóttir. Leikstjóri er Gísli Snær Erlingsson og handritshöfundur Friðrik Erlingsson. Með vakandi auga Breskur sálfræðitryllir í þrem hlutum byggður á samnefndri sögu Barböru Vine (Ruth Rendell). Myndin gerist stutt.u eftir seinni heimsstyrjöldina og segir sögu Veru Hillyard sem er ein síðasta konan sem var hengd fyrir morð á Bretlandi. José Carreras-1 minningu Mario Lanza Einstakur þáttur þar sem José Carreras syngur ásamt kór og hljómsveit BBC sjónvarpsstöðvarinnar undir stjórn Enrique Ricci. Tónleikarnir fóru fram í Royal Albert Hall og voru í minningu stórsöngvarans Mario Lanza. Leynigarðurinn María litla er ellefu ára munaðarlaus stúlka. Hún er send til frænda síns upp í sveit á æfagamalt óðalssetur. Þar lendir hún í margskonar ævintýrum. Þessi fallega teiknimynd ertalsett og sýnd í þrem hlutum. Systragervi Þriggja stjörnu gamanmynd um söngkonu úr spilavíti sem gengur í klaustur og breytir jafnt lífi sínu sem og systranna í klaustrinu. Aðalhlutverk Whoopi Goldberg, Maggie Smith, Harvey Keitel og Bill Nunn. Ný mynd byggð á sögu Agöthu Christie um belgíska einkaspæjarann Hercule Poirot. Christie aðdáendur ættu ekki að láta þessa mynd fara fram hjá sér. Sagan endalausa Hér er á ferðinni sjálfstætt framhald myndarinnar um ævintýri Bastians Balthazar Bux í furðuheiminum Fantasíu. Hann leitar huggunar i heimi bókanna þegar bjátar á í raunveruleikanum og þar gerist sitt af hverju. Það er mjög einfalt að gerast áskrifandi að Stdð 2. ÞÚ HEFUR SAMBAND VIÐ STÖÐ 2 EÐA Þ JÓNUSTUFUL LT R Ú A Á ÞÍNU SVÆÐI OG FÆ RÐ AÐ LÁN I NÝJAN MYNDLYKIL GG ÞÁ DPNAST ÞER NYR S J Ó N V A R P S H EI M U R .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.