Þjóðviljinn - 27.08.1974, Qupperneq 4
4 St»A — ÞJOÐVILJINN WIW«l»r »• *g*«t lt74.
DJOÐVIUINN \
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: tltgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb)
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaðaprent h.f.
LÝSANDI DÆMI
íslenska þjóðfélagið er stéttaþjóðfélag.
Þar takast á tvær meginstéttir, annars-
vegar launamenn, verkalýðurinn, hins
vegar peningafurstarnir. Þeir siðar-
nefndu ráða yfir fjármagni og áróðurs-
tækjum og tekst þannig að tryggja sér
veruleg áhrif á alþingi og i sveitastjórn-
um. Þeir eru að sjálfsögðu miklum mun
færri en launamennimir, en valdið i
þeirra höndum er hins vegar verulegt,
tryggt af fjármagninu. Þessa meginstað-
reynd verða islenskir launamenn að hafa i
huga.
Stjórnmálaflokkarnir eru spegilmynd
þessara stéttaandstæðna. Annars vegar er
um að ræða flokk launamanna, Alþýðu-
bandalagið, sem litur á sig sem hluta
verkalýðshreyfingarinnar. Hins vegar er
um að ræða forustu Sjálfstæðisflokksins
og hægri arm Framsóknarflokksins. Nú er
að fara frá völdum á íslandi rikisstjórn,
sem hafði sterkasta hluta hinnar pólitisku
og faglegu verkalýðshreyfingar innan
sinna vébanda, Alþýðubandalagið. Sem
aðili að rikisstjórn var Alþýðubandalagið
ekki aðeins með fimmtung kjósenda að
FYLLSTA HARKA
Siðustu daga hefur þvi verið lýst af tals-
mönnum Framsóknar og ihaldsins, að
baki sér og 10 alþingismenn: Alþýðu-
bandalagið talaði fyrir hönd allra launa-
manna. Af þessari ástæðu er styrkur Al-
þýðubandalagsins miklu meiri i rikis-
stjórn en nemur þingmannatölunni — og
þess vegna er styrkur Alþýðubandalags-
ins meiri i stjórnarandstöðu en nemur 11
þingmönnum flokksins.
Sú ihaldsstjórn sem er að komast á
laggirnar þegar þetta er skrifað mun þeg-
ar frá fyrsta degi verða i fullri andstöðu
við hagsmuni launafólks og þar með við
islenska verkalýðshreyfingu. Þó að
stjórnin sé ekki komin saman ennþá, er
þegar búið að sýna opinberlega einskonar
sýnishorn, af væntanlegri stjórnarstefnu.
Hér er átt við hækkanir landbúnaðaraf-
urða á dögunum um yfir 20% i sumum til-
fellum. Þessa hækkun samþykktu þrir
ráðherrar Framsóknar i fráfarandi rikis-
stjórn, en ráðherrar Alþýðubandalagsins
voru andvigir henni. Ástæðan til þess, að
Framsókn þorði samt fram með þessa að-
gerð, var stuðningur ihaldsins, sem samið
hafði verið um fyrirfram. Framsóknar-
menn hafa auðvitað margoft i fráfarandi
rikisstjórn viljað beita sér fyrir samskon-
ar skerðingum á kjörum almennings, en
þessir flokkar hafi náð samkomulagi um
öll helstu málefni. En þá er komið að við-
kvæmflismálunum: Hvemig á að skipta
bitunum? Þá hef jast deilur á deilur ofan —
það strandaði jafnan á styrk Alþýðu-
bandalagsins i stjórninni.
En á sama hátt og ihaldsstjórnin, sem
nú er að fæðast, verður vafalaust andstæð
hagsmunum verkalýðshreyfingarinnar
verður hún andstæð Alþýðubandalaginu.
Verkalýðshreyfingin og Alþýðubandalag-
ið eru eitt. En nú er hins vegar framundan
timabil þar sem atvinnurekendaöflin ráða
algerlega rikisvaldinu. Þess vegna munu
launamenn nú tygja sig til átaka — og það
mun flokkur þeirra — Alþýðubandalagið
— einnig gera.
Fyrir alþingiskosningarnar 30. júni sl.
var þvi margsinnis lýst yfir af Alþýðu-
bandalaginu— einu flokka-að það myndi
af öllu afli beita sér fyrir þvi að vernda
þann árangur, sem náðst hefur á umliðn-
um árum á timabili vinstristjómarinnar.
Hér var um að ræða árangur Alþýðu-
bandalagsins i þeirri stjórn, árangur sem
var öllum launamönnum ákaflega mikils-
verður. Alþýðubandalagið mun starfa
samkvæmt þessari yfirlýsingu, sam-
kvæmt skyldum sinum við alþýðuífólkið i
landinu. Alþýðubandalagið mun mæta
hverskonar árásum ihaldsstjórnar á kjör
almennings með fyllstu hörku.
og karp milli flokkanna hefur staðið um
þetta eitt. Vissulega segir þessi deila milli
ihaldsins og Framsóknar meira um þessa
flokka en nokkuð annað.
af erlendum vettvangi
Mjólk Rockefellers
var drýgð með
5,000 lítrum á dag
Nelson Rockefeller, vœntanlegur varaforseti Bandarikjanna, er
einn af auðugustu mönnum heims —
jafnvel í Bandarikjunum þykja Rockefeller-auðœfin œvintýraleg
var leyst upp I 38 smærri fyrir-
tæki árið 1911. Hið stærsta af
þessum „smáu”, er olíuhringur-
inn EXXON, næst stærsta auðfé-
lag i heimi.
Nelson R. á 3 bræður á lffi og
eina systur, og sér sérstakt fyrir-
tæki um fjárreiður þeirra, hefur
bókhald og greiðir reikninga.
Þetta fjölskyldufélag hefur skrif-
stofur i svokölluðu „Rockefeller
Centre” í New York, en sú mið-
stöð er stærsta skrifstofusam-
steypa veraldarinnar, tekur yfir
nokkra skýjakljúfa á miðju Man-
hattan.
Rockefeller-systkinin eiga
„drjúgan hluta” i Chase Man-
hattan Bank, en bróðirinn Davíð
er stjórnarformaður hans. í sið-
ustu bankaskýrslunni kom fram
að árlegar tekjur þess bróður af
hlutabréfaeigninni — þ.e. úthlut-
uðum arði — námu 742 þúsundum
dollara.
Systkinin eiga nautgripabú á
7.20 hekturum i Venesúelu, og auk
þess aðrar landareignir þar upp á
43 þúsund hektara.
Þau eiga stærstu keðjuverslun
fyrir almennar nauðsynjar i Suð-
ur-Ameriku.
Meðal eignanna er fjármála-
legt ráðgjafarfyrirtæki á Spáni.
Þá er það talið gefið, að syst-
NEW YORK reuter —
Nelson Rockefeller, mað-
urinn sem Gerald Ford vill
fá sér við hlið í embætti
varaforseta, er einn af
auðugustu mönnum heims.
Ágiskanir um auðlegð hans
meta hana frá 200 að 750
miljónum dollara. En
þingið mun kynna sér ná-
kvæmlega allar fjárreiður
hans, áður en það staðfest-
ir útnefningu hans.
Auðlegð Rockefellers á rætur
sinar að rekja til ættarhöfðingj-
ans, John D.R., sem stofnaði
Standard Oil-félagið seint á 19.
öld, en það braut i bága við auð-
hringalöggjöf Bandarikjanna og
A ferftalagl um Suftur-Amerfku um árift reyndist Nelson R. best aft hafa
nógu mikift af stálhjálmum i kringum sig.
Nelson R. f hópi aftdáenda sinna f
Bandarikjunum
kinin eigi I mörgum oliufélögum,
ekki sist þeim sem sprottin eru af
gamla Standard Oil-félaginu.
Þá er vitað að Rockefeiler-
bræðurnir eiga 1.600 hektara bú-
garð fyrir norðan New York-borg.
Þar er til húsa hluti af safni nú-
timalistar sem Nelson á sjálfur,
en það er talið eitt hið fullkomn-
asta i heimi, og starfar við það
sérfræðingur i listasögu. A bú-
garðinum eru hesthús fyrir
marga gæðinga, „leikjahús” þar
sem hægt er „að stunda hreyfing-
ar” i tómstundum, og auðvitað er
golfvöllur við hendina, 9-hola.
Nelson Rockefeller á 32-ja her-
bergja ibúð við „5 tröft” á Man-
hattan.
Gefið til
guðsþakka
„Safn frumstæðrar listar” i
New York byggir svotil einvörð-
ungu á einkasafni Rockefellers
sem hann gaf til guðsþakka.
Þá má geta þess að Rockefell-
er-fjölskyldan gaf landið undir
aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna
i New York.
Þegar Nelson bauð sig fram I
fjórða skipti sem rikisstjóri i New
York, 1970, skýrði hann frá þvi að
hann eyddi 4.5; miljónum dollara I
þá kosningabaráttu, og hefði þá
samtals varið 27 miljónum doll-
ara til þess göfuga málefnis að
hjálpa samborgurum sinum til
þess að kjósa sig.
Davið Rockefeller ferðast milli
heimilis sins og bankans sins i
eigin þyrlu, en Nelson Rockefell-
er á einkaþotu til þess að trans-
porta sig um landið.
„Rockefeller foundation” eða
stofnun er upphaflega gefin til
eflingar visindum og menntun af
fjölskyldunni, og eru eignir þeirr-
ar stofnunar metnar á yfir 800
miljónir dollara. Næst stærsta
góðgerðarstofnun fjölskyldunnar,
Rockefeller Brothers Fund” á 238
Framhald á 11. siðu.