Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 2
SKAÐI SKRIFAR met kosningastandið Ég er maður æðrulaus en samt verð ég að viðurkenna að stundum finnst mér að örlögin hafi einhvernveginn gengið fram hjá mér. Af hverju varð ég til dæmis ekki svona mála- færslumaður eins og hann Jónatan Þór- mundsson, sem fær að tala í sex daga sam- fleytt um Hafskipsmálin, og allir hlusta með andagt og þjóðin er stolt af því að eiga svona mann sem greiðir úr öllum flækjum svo rétt- lætið blasir við, tignarlegt eins og Snæfells- jökull í sólskini? Ég var líka að segja þetta við hann Hró- bjart vin minn, en það hefði ég kannski ekki átt að gera, því hann er alltaf eins og snúið roð í hundskjaft. Heimskulegri sóun er ekki til á tíma og fé en þessi málflutningur um Hafskip, sagði hann. Þettatekursvona langan tíma af þvíað lögfræðingar eru svo lengi að koma orðum að því að maður sé þjófur án þess að segja það og fá svo borgað á hvert orð eins og símskeyti. Og sannaðu til: niðurstaðan verð- ur engin. Allir verða sýknaðir vegna minnis- leysis og allsherjar æruleysis í þjóðfélaginu eða sagði ekki Mogginn þinn, að enginn vissi lengur hvað væri rétt og hvað rangt í bisn- ess? Og upp standa nokkrir lögfræðingsbes- efar miljón krónum ríkari hver um sig. Og andskotinn hlær. Þú ert svo djöfull svartsýnn alltaf, Hrói minn, sagði ég, og nennti ekki þessu nei- kvæöi. Finnst þér ekki vera vor í lofti? Eru ekki að koma kosningar kannski með sprelli og skemmtun? Sú var nú tíð að þú fúlsaðir ekki við þeim. Ég skal segja þér eitt, Skaði minn, sagði Hróbjartur, þessar kosningar eru ómark bar- asta rétt eins og í Rússlandi áður en komm- únisminn dó. Hvaða rugl, sagði ég, allir þessir listar... Það er nú það, sagði Hrói, listar og ekki listar nema síður sé. Eg var nú að sjá merka athugasemd í Mogganum þínum. Þar er ver- ið að tíunda þetta: það er enginn A-listi krata í Reykjavík, þar sem Jón Baldvin býr, enginn B-listi í Garðabænum hans Steingríms, eng- inn G-listi eða S-listi á Seltjarnarnesi þar sem þeir Ólafur Ragnar og Júlli Sólnes búa. Hvurslags feluleikur er þetta eiginlega og svindl? Ja ég verð nú að segja það Hrói minn, sagði ég, að þótt ég sé á móti öllum þessum mönnum þá finnst mér þetta sniðugt hjá þeim. Það eru allir svo mikið á móti flokkum nú til dags að það er eins gott að vera ekkert að flíka slíku að óþörfu. Maður verður að vorkenna þessum greyjum - það eru ekki allir eins heppnir og við sem eigum Sjálf- stæðisflokkinn sem er flokkur allra flokka eða öllu heldur svona samnefnari skynse- minnar í þjóðfélaginu. Þetta er villukenning Skaði, sagði Hró- bjartur, örg og fúl villukenning. Þegar enginn er það sem hann heitir lengur heldur barasta einhver nýr pólitískur kóladrykkur sem eng- inn veit hvernig fer með tennurnar og mag- ann, ný vettlingatök eða hvað það nú er, þá er barasta verið að villa og trylla fólkið. Þessir foringjar, ef menn skyldi kalla, þeir eru á harðahlaupum með allt niðrum sig út í busk- ann undan fjárlagagötum, sem stækka eftir því sem meir er í þau rimpað, undan ábyrgð og skömm og ráðherrabílum á hvolfi. Fel- andisk á bak við einhverjar nýjar falsgrímur horfandi lymskir á grannann eins og skáldið sagði: ef sæmilega gengur þá ætla þeir að segja: þetta er mér að þakka. Ef illa fer, þá segja þeir: ég var ekki alveg með og hrossið á einhver annar. Heldurðu nú að þeir séu alveg svona slæmir? spurði ég. Getur það verið? Þeir eru verri, sagði Hróbjartur gallharður. Þetta eru aumingjar og stjórnin veik og mátt- laus eins og strá af vindi skekið. Já, sgði ég, en segir ekki spekingurinn Laótse: Farsælt er það land sem hefur veika stjórn? T RÓSA- GARÐINUM EIAVERVÆRUM ÞAR Svo mikill er barmur hennar að hún felur þar fjögur fálkaegg samtímis. Tíminn EKKIERHOLLT AÐ HAFA BÓL.. Tíminn hefur verið líkt og skurn- laust egg milli brjósta Sam- bandsins og framsóknarfélag- anna í Reykjavík. Alþýðublaðid ENN NÝRRI VETTVANGUR? Jafnframt sagði hann (Ásgeir Hannes Eiríksson) að vel kæmi til greina að hann stofnaði samtök með öðrum „kverúlöntum" á Si, til þess að þeir ættu hægar að ná fram rétti sínum. Tíminn VOND ER ÞEIRRA LETI, VERRI ER ÞEIRRA DUGNAÐ- UR Ef aðrir jaingmenn sinntu störfum sínum eins vel og Ásgeir Hannes Eiríksson væri rúmlega 2000 þingmálum ólokið. Tíminn SÆLIR ERU HÓGVÆRIR Greinin er einna athyglisverðust fyrir það að í henni tekur Guð- mundurundirsjónarmið Sigurðar Grétarssonar, fyrrv. bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins í Kópavogi, og kallar sjálfan sig og sam- starfsmenn sína hálfvita. DV HVAÐERU NOKK- URNÚLLMILLI VINA? Stofnendur Stöðvar 2 áunnu sér hylli landsmanna þegar þeir stofnuðu Stöðina með því að skrifa sig fyrir fimm miljón króna hlut og létu svo skrifa fimm hundruð miljónir eða hvað það • nú var hjá Verslunarbankanum. DV SAKLEYSIÐ BÝR Á VESTFJÖRÐUM Það sem kemur manni mest á óvart er hve margir eru orðnir þannig að það er ekki hægt að treysta því sem þeir segja. Bæjarins besta OG HVERÆTTIÞÁ AÐ VITA ÞAÐ? Hvort ísland og íslendingar skipta í reynd einhverju máli meðal þjóða er kannski ekki Ijóst af fréttum fjölmiðla og máli stjórnmálamanna. Morgunblaðið HVAÐ MUNDI BISKUP SEGJA? Ráðhúsið og Kringlan eru að taka á sig mynd, þessi tvö lýsandi mannvirki sem lifa þegar við erum dauð. Morgunblaðið 2 StÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 27. apríl

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.