Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 4
Stefanía Traustadóttir er á beininu_ Minnisvarðapóli tíkin er lítilsvirð ing við fólk Stefanía T raustadóttir er starfsmaður Jaf nréttis- ráðs, formaður Alþýðubandalagsins í Reykjavík og er í 5. sæti á lista flokksins við borgarstjórnarkosn- ingarnar. Hún hefur blandast inn í ákafar umræður um framboðsmál í höfuðborginni, en hefur ákveðn- ar skoðanir á því hvernig landsmálapólitík tengist þeim málum Telur þú að öll þessi umræða um framboðsmál og deildar fylk- ingar vinstri manna í Reykjavík muni hafa áhrif á gengi G-listans og Alþýðubandalagsfólks úti um landið í sveitarstjórnarkosning- unum? Ég vona að Alþýðubandalagið og G-listar um land allt skili sínu og vel það í vor. Aðstæður eru að mörgu leyti erfiðar og það er skammur tími til stefnu. Tölur sýna, að fylgi Alþýðubandalags- ins hefur verið kringum 8% und- anfarin misseri og það verður erf- itt fyrir alla okkar sveitar- stjórnarmenn að rífa sig upp úr því. Orsökin fyrir litlu fylgi er ekki framboðsmál í Reykjavík. Orsökin er heldur ekki sú að Al- þýðubandalagið og stefna þess eigi ekki lengur hljómgrunn hjá fólkinu í landinu, heldur sú, að það hefur ekki verið haldið nógu vel á stefnu flokksins. Því miður er of mikið ósamræmi milli þess sem flokkurinn hefur samþykkt að berjast og beita sér fyrir og þess sem sett hefur verið í fram- kvæmd fyrir tilstuðlan hans. Ég vil nefna umhverfismálin sem dæmi, að þeim hefur verið unnið vel og gaumgæfilega innan flokksins um árabil. Þar ruddi Al- þýðubandalagið braut. Við erum svo heppin að eiga á því sviði frá- bært fólk með þekkingu og reynslu. Hins vegar hafa um- hverfismálin verið notuð sem skiptimynt, svo að eftir setu okk- ar flokks í ríkisstjórn er einn ráð- herra og einn beyglaður bíll. Þýða þessar málamiðlanir innan ríkisstjórnar að þú getir ekki fellt þig við neitt hjá henni? Störf okkar fólks í samgöngu- og landbúnaðarráðuneytinu 'hafa haft gífurlega þýðingu fyrir lands- byggðina og er ein ástæða þess að ég vænti þess að úrslit flokksins verði hagstæð úti á landi. Ýmsar hugmyndir og ákvarðanir sem unnið hefur verið að innan menntamálaráðuneytis varðandi skóla- og dagvistarmál, til dæmis nýtt frumvarp um leikskóla, munu færa okkur nær markmið- um Alþýðubandalagsins eins og einsetnum skóla og dagvistar- rými fyrir öll börn. Það sem ég gagnrýni er margt, til dæmis andvaraleysi gagnvart EB, kapphlaupið sem upp er komið um álver í hvern fjörð og hvað hægt gengur að nota skatta- kerfið sem jöfnunartæki, t.d. rneð tveim þrepum eftir tekjum. A Alþýðubandalagið eftir og þarf það að breytast? Auðvitað. Alþýðubandalagið er alltaf að breytast, þ.e.a.s. hvernig við útfærum leiðir að markmiðum okkar. Þær hljóta að breytast í takt við þróun samfé- lagsins og í takt við þann árangur sem við náum hverju sinni. Einu sinni börðumst við fyrir velferð- arkerfinu, núna þurfum við bæði að standa vörð um það og bæta það. . Miðað við andrúmsloftið und- anfarið spyrja margir hvern þú og G-listinn lítið á sem höfuðand- stæðing í kosningunum í Reykja- vík. Andstæðingurinn er Sjálfstæð- isflokkurinn. Ég hef ekki heyrt marga spyrja þessarar spurning- ar. Hann er það fyrst og fremst vegna þess hver eru forgangs- verkefni hans hér í borg. Minnis- varðapólitíkin er lítilsvirðing við fólk. Tökum sem dæmi gamla fólkið sem hefur búið hér og greitt sín gjöld til Hitaveitunnar og annarra stofnana borgarinnar, - það er hneisa að fjármunum Hitaveitunnar sé síðan eytt til að reisa Kúluna í Öskjuhlíð, meðan þetta aldraða fólk þarf að búa við Íiað öryggisleysi að geta ekki engið þá umönnun sem það þarf, ef það veikist eða getur af öðrum orsökum ekki séð um sig sjálft. Peningarnir sem hafa farið í Ráðhúsið og Kúluna á yfirstand- andi kjörtímabili hefðu dugað til að uppfylla alla þörf fyrir dagvist- ir eða tæma biðlistana fyrir þjón- ustuíbúðir aldraðra. Það er hægt að koma í veg fyrir að slíkt endur- taki sig. Hver er þá skýring þín á þeim vinsældum Sjálfstæðismanna í Reykjavík sem fram koma í skoð- anakönnunum? Sjálfstæðisflokkurinn heldur vel utan um sitt fylgi og sína flokksmenn. Honum tekst að telja fólki trú um allir séu á eitt sáttir og vinni saman innan hans. Þar að auki tekst flokknum í krafti áhrifa sinna gegnum fjöl- miðla að breiða yfir óþægilegar staðreyndir, segja ekki frá þeim, en leggja áherslu á návist Davíðs Oddssonar við öll framfaraskref. Davíð hefur verið í stöðugri kosningabaráttu sl. 4 ár, ekkert virðist gerast án þess að hann sé viðstaddur. Hér snýst allt um borgarstjórapersónuna í amer- ískum stfl. Mönnum finnst hann hafa gert allt. Öllu starfsmanna- og embætismannakerfi borgar- innar er stjórnað af Sjálfstæðis- flokknum. Svo má nefna, að Reykjavík er eitt stöndugasta fyrirtæki lands- manna vegna sérstöðu sinnar og hefur getað borist á, meðan frétt- ir um samdrátt og kreppu úti á landi hafa dunið á fólki, gjaldþrot og stöðnun. Reykjavík er svo stór, að minna er tekið eftir þvi hér, ef ýmis smærri fyrirtæki fara á hausinn, en atvinnuleysistölur hér í borg eru uggvænlegar um þessar mundir. Hópur þeirra sem lifir hreinlega við fátæktarmörk hefur sífellt stækkað, ekki bara vegna atvinnuleysis, heldur vegna þess að vinnutími hefur dregist saman. Þetta sést á stækk- andi hópi þeirra sem leita til Fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkur. Þetta sést ekki í auglýsingum Fé- lagsmálastofnunar, né heldur á baksíðu Morgunblaðsins. Það er meðal annars skýringin á fylgi S j álfstæðisflokksins. Hvert álítur þú sterkasta vopn Sjálfstæðismanna í kosningabar- áttunni? Það er auðvitað Bubbi kóngur, en Sjálfstæðismönnum hefur tek- ist vel að breiða yfir það hingað til að hann er á leiðinni inn á þing, sjálfsagt eftir eitt ár. Það er því í raun ekki verið að bjóða upp á hann sem borgarstjóra næstu 4 árin. Það væri spennandi að fá að heyra, hver er erfðaprinsinn, hvert er borgarastjóraefnið? Kannski Júlíus Hafstein? Reykvíkingar vilja að Sjálfstæð- ismenn geri grein fyrir því. Mörgum, bæði hér í borginni og úti á landi, hefur þótt keyra úr hófl viðbrögðin bæði hjá Alþýðu- bandalaginu og stuðnings- mönnum Nýs vettvangs vegna mismikilvægra ágreiningsmála. Ekki er ég hissa á því. En það er ekki hægt að búast við því að ég og aðrir félagar sitjum þegjandi undir ásökunum sem við teljum í öllum atriðum rangar, t.d. um jafn alvarlega hluti og lögmæti G- listans, ólýðræðisleg vinnubrögð, fortíðarhyggju osfrv. og það meira að segja frá formanni flokksins. Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum á innanflokks- deilurnar. Þessi átök byrjuðu löngu áður en Samtök um nýjan vettvang komu til sögunnar, þau hafa staðið yfir í langan tíma, en urðu mjög sýnileg fyrir rúmu ári þegar Birtingarfélagar klufu fé- lagið í Reykjavík, þótt enginn vildi viðurkenna þá staðreynd. Það er svo auðvelt að gleyma ef fólk vill það. Þeir sem halda því á lofti að ABR hafi ekki viljað sam- starf, samvinnu og samfylkingu með öðrum minnihlutaflokkum hér í borg eru vísvitandi að blekkja. Flesta félaga okkar lang- ar til að vera í stórri fylkingu og ná sem bestri samstöðu um mál- efni vinstri manna, hér í Reykja- vík sem annars staðar. En okkur er ekki sama hvert fylkingin stefnir, þegar hún er orðin stór. Ef það skipti engu máli, gætum við alveg eins gengið í Sjálfstæð- isflokkinn, sem er stór. Það er mikil ábyrgð að vera formaður í félagi eins og ABR. Er það ólýðræðislegt og flokkast undir forræðishyggju að leggja fyrir fundi spurningar og biðja um afstöðu hans? Er það ekki frekar ófélagslegt að ganga fram hjá vilja meirihlutans? Eg óska engum þess að sitja undir þeim árásum sem á okkur hafa dunið að undanförnu. Skýringin á því að ég hef haldið því áfram er sú, að ég hef fundið stuðning félags- manna hér í Reykjavík og af landinu öllu. Sækja G-listinn og Nýr vett- vangur fylgi sitt í sömu raðir? Eða getur verið að þau dragi sam- eiginlega að sér nýtt fylgi? Það er ljóst að Nýr vettvangur reynir að höggva í raðir Alþýðu- bandalagsmanna, enda er einn borgarfulltrúi flokksins í fram- boði þar. Nýr vettvangur reynir líka að halda utan um fýlgi Al- þýðuflokksins og jafnvel Borgar- aflokksins í Reykjavík. Við eigum eftir að sjá hvernig þetta tekst. Alþýðubandalagið er vett- vangur vinstri manna og sterk- asta vígi þeirra sem vilja íhaldið burt úr stjórn Reykjavíkur. Nýr vettvangur segist byggja stefnu sína á málefnagrunni minnihlut- aflokkanna í Reykjavík síðasta kjörtímabil, stefnu sem borgarf- ulltrúar ABR hafa haft frum- kvæði í að móta og á hljómgrunn meðal stórs hóps borgarbúa. Við keppum vitaskuld við alla framboðslistana um atkvæði. Því er ekki að neita, að afskipti for- manns flokksins af framboðsmál- um hér í Reykj avík hafa gert okk- ur erfiðara fyrir. Ég trúi því samt að á næstu vikum munum víð vinna okkur upp úr þessum 2,9% sem við fáum skv. skoðanakönn- un Skáís og að það fólk sem er á listanum, nýtt og reyndara, geti sýnt með málflutningi sínum og vinnu að það er hægt að treysta því til að vinna fyrir góðan mál- stað. Hvað finnst þér sterkasta ein- kenni G-listans? Breidd hans, fjölbreytni og mikil reynsla og þekking fram- bjóðendanna. Ég tel það t.d. mikinn styrk fyrir listann að á honum skuli vera fólk úr verka- lýðshreyfingunni, eins og Guð- rún Sigurjónsdóttir, formaður Félags sjúkraþjálfara, Guðrún K. Óladóttir, varaformaður Sóknar, konur með mikla yfirsýn og reynslu. Einar Gunnarsson, formaður Félags blikksmiða hef- ur reyndar ekki aðeins verið ko- sinn til trúnaðarstarfa af sínum félögum í faginu, heldur líka á öðrum vettvangi félagsmála. Ég get víða borið niður, Ástráður Haraldsson var um árabil virkur í háskólapólitíkinni og Gunn- laugur Júlíusson hagfræðingur er í stjórn byggðahreyfingarinnar Útvarðar, hann gerþekkir lands- byggðamálin sem er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að höfuð- borgin er náttúrlega borg allra landsmanna og má ekki slitna úr tengslum við dreifbýlið. Það er óréttmætt að nefna bara þetta fólk, en ég verð þó líka að minn- ast á yngsta fulltrúann, Sigþrúði Gunnarsdóttur, nema í MH, sem sennilega er yngsti frambjóðand- inn við kosningarnar í vor og hef- ur verið kosin af sínum félögum til trúnaðarstarfa. Það hefur komið fram gagnrýni á þig og stjórn ABR fyrir að koma í veg fyrir að stofn- að yrði kjördæmisráð í Reykja- vík. Formaður flokksins telur m.a. að þið hafið gert mistök í þessu efni. Ég ætla ekki að halda áfram að skýra lög flokksins fyrir formanni flokksins, hann á að þekkja þau. Ég vísa á yfirlýsingar stjórnar fé- lagsins frá 23. apríl sem birtust í Þjóðviljanum 25. apríl og segi það eitt, að það verður stofnað kjördæmisráð skv. lögum flokks- ins á aðalfundi í maí. Skipta úrslitin I borgarstjórn- arkosningunum sköpum um framtíð Alþýðubandalagsins? Já. Ég tel svo vera. aht 4 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 27. apríl Al-i’ *f‘h*i íriö? !í<»»»»Xk»XV!4í»»»>»xV

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.