Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 19
Harmsaga Systur Angeliku i Óperusmiðjan í samvinnu við leikhús Frú Emilíu frumsýnir óp- eruna Suor Angelica eftir Puccini í Skeifunni 3c í kvöld kl. 20 og 22. Ópera í tösku Óperusmiðjan er nýstofnaður áhugahópur um söngtónlist. Við erum hópur kvenna sem langaði til að starfa að óperu en slík tæki- færi gefast ekki oft hérlendis, segja viðmælendur Pjóðviljans, stúlkurnar í Óperusmiðjunni, sem eru í óða önn að klæðast nunnubúningum, og skjóta öðru hverju inn athugasemdum í samtal okkar Margrétar Jóhönnu Pálmadóttur. Stelpurnar eru með margt í deiglunni, þær ætla að reyna hin ýmsu form óperunnar, ekki bara hefðbundna uppsetningu eins og nú. Stundum ætla þær að ráða leikstjóra en enga hljómsveit og öfugt, stundum verður sett upp heil sýning, stundum sungin brot úr verkum. Þetta er tækifæri fyrir okkur að kynnast og túlka óperu- bókmenntirnar í meira mæli en við höfum gert í skólanum, segja þær. Óperusmiðjan kemur öllum eigum sínu í kistu eða tösku og getur þess vegna sett upp sýning- ar hvar og hvenær sem er. Það eykur á frjálsræði lærdómssmiðj- unnar og möguleikum á flutningi óperutónlistar af ýmsu tagi. Margrét Jóhanna Pálmadóttir: Lært í lifandi starfi Eitt aðalmarkmið Óperu- smiðjunnar er að skapa tækifæri og vettvang fyrir unga óperus- öngvara. í starfi Söngskólans er lítið lagt upp úr leikrænni tján- ingu og einungis með því að setja sjálf upp óperu getum við vitað hvað slíkt starf snýst um, segir Margrét. Fram að þessu hefur auk þess vantað vettvang fyrir unga söngv- ara til að sýna hvað í þeim býr. Einsöngstónleikar með undir- leik, sem til þessa hafa tíðkast, eru ekki nóg. Leikhús Frú Emilíu hefur ver- ið ómetanlegur kennari, segja Operusmiðjunni Óperusmiðjan, nýstofnað félag óperusöngvara, frumsýnir óperu- einþáttunginn, Systur Angeliku, í leikhúsi Frú Emilíu í kvöld Angelikurnar tvær, Esther Helga Guðmundsdóttir og Inga Backman. Mynd: Jim Smart. þær. Líklega eins og Nemenda- leikhúsið fyrir leiklistarnema og annað áhugafólk um leiklist, bæt- ir Margrét við. Óperusmiðjustúlkurnar langar samt að leggja áherslu á að þó hópurinn sé samsettur af kven- fólki eingöngu að þessu sinni er alls ekki um neinn lokaðan kvennahóp að ræða. Allir sem lært hafa söng eða eru í söngnámi eru velkomnir til að taka þátt í starfi smiðjunnar. Það er fremur tilviljun en annað að við erum eintómar kvensur að þessu sinni. Fleiri konur en karlar stunda Kammertónleikar Nýstárleg bandarísk kammer sveit á Kjarvalsstöðum Bandaríska kammersveitin the California E.A.R. Unit heldurtón- leika á Kjarvalsstöðum í kvöld kl. 20.30. Kammersveit þessi er helst þekkt fyrir flutning á nýrri tón- list. Þau hafa unnið náið með mörgum þekktum tónskáldum m.a. John Adams, Milton Bab- bit, John Cage, Elliot Carter og Morton Subotnick. Auk þess eru nokkrir meðlimir hópsins einnig kunn tónskáld sjálfir. Á efnisskránni í kvöld eru verk eftir Elliot Carter, Arthur Jarvin- en, Stephen Mosko, Steve Reich og Frederic Rzewsky, að aukí verður frumflutt verk eftir Hiim- ar Þórðarson. Hópurinn stendur sfðan fyrir námskeiði á morgun í sal Tón- skóla Sigursveins við Hraunberg í Breiðholti. Þau munu þar sýna aðferðir til að miðla nútímatón- list til barna og leikmanna og leyfa þáttakendum að reyna sjálf- um að skapa tónlist. BE eitthvað skrítið sem erfitt er að henda reiður á, segir Guðjón, þær syngja ekki bara, heldur leika líka. Leikstjórinn kveðst hafa haft mikið gaman af þessari uppsetningu og hefur ekkert á móti því að leikstýra smiðjunni aftur setji þær upp óperu á ný. Systir Angelika verður frum- sýnd tvisvar í kvöld, kl. 20 og aft- ur kl. 22. f fyrri sýningunni fer Esther Helga Guðmundsdóttir með hlutverk systur Angeliku en í þeirri seinni Inga Backman, þær munu síðan skiptast á að syngja aðalhlutverkið. Undirleik annast átján manna hljómsveit undir stjórn Hákonar Leifssonar, leik- mynd hannaði Helga Stefáns- dóttir og leikstjóri er Guðjón P. Pedersen. Þrjár systranna úr Óperusmiðju uppfærslunni á Systur Angeliku eftir Puccini. söngnám og oft eru færri kven- hlutverk í óperum en karlhlut- verk, þannig verða fleiri konur útundan, en við erum staðráðnar í að láta það ekki aftra okkur, segja þær. Séum við verkefna- lausar er ekki við neinn að sakast nema okkur sjálfar. Klausturdrama Óperan Systir Angelika eftir Giacomo Puccini er miðhluti þriggja óperueinþáttunga, II Trittico. Fyrsti þátturinn er II Ta- barro (skykkjan) og sá þriðji Gi- anni Schicchi. Þátturinn sem Óp- erusmiðjan flytur er hinn ljóð- ræni þáttur óperunnar. Systir Angelika fjallar um stúlku sem er nauðug flutt í klaustur eftir að hafa eignast son í lausaleik. Þegar óperan gerist hefur Angelika dvalist sjö ár í klaustrinu, hún fær þá heimsókn frá aldraðri föðursystur sinni, sem færir henni þau sorglegu tíð- indi að sonur hennar sé dáinn. Hún neyðir einnig Angeliku til að afsala sér öllum eigum sínum. Systir Angelika er harmi lostin og drekkur eitur til að binda enda á þjáningar sínar. Leikstjórinn Guðjón Pedersen segir þetta í fyrsta skipti sem hann leikstýri óperu. Það er allt annað en að leikstýra leikriti. Ópersöngvarar hafa eitthvað, Egilsbúð á Neskaup- stað Tvinnar lífsþráð í vefinn Ása Ólafsdóttir opnar sýningu á myndvefnaði í Egilsbúð á morgun Ása Ólafsdóttir opnar sýningu á myndvefnaði og „collage" í Eg- ilsbúð á Neskaupstað á morgun. Ása Ólafsdóttir hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum bæði hér heima og erlendis. Sýningin í Eg- ilsbúð er farandsýning og var áður sýnd á Kjarvalsstöðum, í Vestmannaeyjum og verður næst sett upp í Ólafsvík í júní næstkomandi. Ása hefur hlotið fjölda viður- kenninga fyrirverk sínm.a. hlaut hún listamannalaun frá sænska ríkinu 1981, sýningarstyrk frá Nordiska Konstförbundet 1981 og hún fékk 12 mánaða starfslaun árið 1989. Sýningin í Egilsbúð verður opnuð á laugardag kl. 16 og opin dagana 29. 4., 1. 5. og 6. maí. BE Bandaríska kammersveitin the California E.A.R. sérstæða sviðsframkomu og tónlistarflutning. Unit er þekkt fyrir Strendur Önnu S. Björnsdóttur Strendur kallast önnur Ijóða- bók Önnu S. Björnsdóttur sem nýlega kom út. Fyrri bók Önnu var ljóðabókin Örugglega ég, sem út kom fyrir tveimur árum. Bókin, sem nú kemur út, skiptist í þrjá kafla: Snjór, Dagarnir hlaupa og Norðurljós. Ljóðin eru 40 talsins og fjalla um samskipti fólks, lífs- baráttuna, gleði, sorg og von- brigði en ekki síst um ástina. Eitt ljóðanna kallast Vor: Meðan lömbin fœðast fæðast Ijóðin mín Þau þurfa ekki að láta lífið að hausti Höfundur gefur bókina sjálfur út, myndskreytingar við ljóðin og kápuskreytingu gerði Lis Johan- sen. Föstudagur 27. april NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.