Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 18
SKÁK HELGI ÓLAFSSON New York Open 1990 Sovéskir einoka bandarískt skáklíf Svo er nú komið á stóru opnu mótunum í Bandaríkjunum, New York Open, sem er viðfangsefni pistlahöfundar að þessu sinni og World Open, að algengasta tungum- álið sem maður heyrir þarf alls ekki að vera kúrekamálið vinsæla heldur miklu frekar rússneska og á stundum bjöguð enska með þunglyndislegum rússneskum áherslum. Sovéskir skák- menn flæða nú yfir heiminn helteknir af „dollaraveikinni“ svokölluðu. í fyrra komu 14 sovéskir skákmenn til að tefla á New York Open, en að þessu sinni voru þeir 18 talsins. Þegar við bættust 10 fyrrverandi Sovétmenn flestir búsettir í Bandaríkjunum var þetta orðinn ansi einlitur hópur, en keppendur alls 63. Ég er orðinn ansi hagvanur í New York og eins og á síðasta móti tókst mér að blanda mér í baráttuna um efsta sætið sem gaf 20 þús. bandaríkj- adali. Það var auðvitað við ramman reip að draga því margir af sterkustu stórmeisturum Sovétmanna voru þarna mættir: Rafael Vaganian So- vétmeistari, Michael Tal fyrrum heimsmeistarí, Andrei Sokolov, Jaan Ehlvest, Alexei Dreev, Vladimir og svo fjölmargir aðrir minna þekktir skákmenn sem gefa honum h'tið eða ekkert eftir. Það kom einnig á daginn að ekkert þessara þekktu nafna var á lista yfir efstu menn. Hinir ungu, Alexander Khalifman, Vladimir Episin, sem er þó fæddur gamall og Leonid Judason kvöddu sér nú hljóðs og voru í fararbroddi allan tímann. Tal og Vaganian áttu sína möguleika en í næst síðustu umferð mátti töframaðurinn frá Riga láta í minni pokann fyrir undrabarninu Kamsky og Vaganian tapaði fyrir Patrick Wolf einum efnilegasta skák- manni Bandaríkjanna um þessar mundir. Um töframanninn er það að segja að hann hefur náð sér allvel eftir alvarleg veikindi og var allt annað að sjá hann nú en í Moskvu fyrir ári en þá var hann nýkominn af sjúkrahúsi og leit hreint ekki vel út. Fyrir síðustu umferð var staðan þessi: 1.-4. Khalifman, Helgi Ólafs- son, Gata Kamsky og Epishin, allir með 6 vinninga af 8. Við Kamsky gerðum jafntefli eftir um þriggja klst. taflmennsku. Ég fékk ágæta stöðu en missti þráðinn á einum stað og í hníf- jafnri stöðu bauð drengurinn jafn- tefli. Epishin gerði jafntefli við Puti- an en Khalifman vann Hellers með svörtu. Svíinn ætlaði sér ekkert minna en sigur, fómaði peði í byrjun- inni fyrir engar bætur. Hann átti jafn- teflismöguleika í endatafli en lék af sér öðru peði og þá var öllu lokið. Sovétmaðurinn ungi hlaut því 7 vinn- inga og hreppti fyrstu verðlaun ósk- ipt. Hann er geysisterkur skákmaður en hefur dvalið í skugga meistara á borð við Ivantsjúk og Gelfand og fleiri. Vladimir Tukmakov tapaði al- veg blygðunarlaust fyrir Judasin á 2 klst. Mótshaldarinn José Cuchi var æfur. Þessi úrslit gerðu Judasin kleift að komast upp við hliðina á undirrit- uðum, Kamsky og Epishin í 2.-5. sæti. Við hlutum 6Vi vinnig. Með 6 vinninga komu Lputian, Benjamin og Wolf. Kannski er ein athyglisverðasta niðurstaða þessa móts frammistaða Gata Kamsky sem virðist stefna beint til stjarnanna. Hið spartanska uppeldi sem hann hefur hlotið hjá föður sínum, fyrrverandi hnefaleikakappa, virðist ætla að skila sér en drengurinn er að öðru leyti félagslega afskiptur og ekki beint í náðinni hjá kollegum sínum þar vestra. Hvað frammistöðu greinarhöfund- ar viðvíkur þá var taflmennskan nokkuð heilsteypt og ég lenti ekki í taphættu í mótinu en tvisvar í erfiðum stöðum gegn Vaganian og Alexander Ivanov. Undir lokin fór að gæta þreytu eftir stanslausa taflmennsku í meira en mánuð. Sem sýnishorn af taflmennskunni birtist hér skák úr 1. umferð við einn af sterkustu ungu bandarísku skákmönnunum. Á yftr- borðinu frekar róleg skák en er svart- ur náði frumkvæðinu mátti Fisbein þola óbærilegan þrýsting uns staðan hrundi. 1. umferð: Alexander Fisbein - Helgi Ólafsson Siklleyjarvörn 1. e4cS 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. a4 Rc6 7. Be2 e5 8. Rxc6 bxc6 9. f4 Da5 (Á úrtökumóti Stórmeistarasam- bandsins í Moskvu sl. vor lék ég 9. .. Rd7 gegn Westerinen en fékk vonda stöðu. Þessi skák hafði greinilega ekki farið fram hjá andstæðingi mín- um.) 10. 0-0 Be7 11. Dd3 0-0 12. Bd2 exf4 13. Hxf4Dc7 14. a5 (Að öðrum kosti leikur svartur - a5. Þetta peð þrengir að stöðu svarts en yfirráðin yfir e5-reitnum bæta það upp.) 14. ..Rd7 15. Dg3 Bf6 (15...Re5 er yfirborðskenndur leikur.) 16. Hf3 Be5 17. Dh4 Bd4+! 18. Khl Re5 19. Hffl Be6 (Svartur hefur náð aðeins betri stöðu út úr byrjuninni m.a. vegna staka peðsins á e4. Hótunin er nú 20... Bc4.) 20. Ha4 Da7 21. Rdl Rg6 22. Dh5 Hae8 23. c3 Be5 24. Be3c5 25. b4 Hc8 26. Ha3 Db7 27. bxc5 dxc5 28. Rf2 Hfd8 (Svartur hefur smáaukið yfirburði sína en hvíta staðan er enn mjög traust. Hér mátti t.d. svara 28... Db2 með 29. Bcl!) 29. Df3 c4 (Tekur d3-reitinn frá en gefur eftir b6-reitinn.) 30. Bb6 Hd2 31. Hdl Dd7 32. Haal Dd6 33. De3 (Eftir 33. g3 eða33. h3 kemur 33... Hxdl+ 34. Hxdl Da3 og hvíta staðan er afar erfið.) 33. .. Bf4! 34. Hxd2 Dxd2 35. Dxd2 Bxd2 36. Bd4 Hb8! 37. Hdl Hb2 (Biskupinn á d2 bindur niður hvítu stöðuna. Þó er vinningur enn langt undan því vamir hvíts eru all traustar.) 38. Bf3 f6 39. Rg4 Rh4 40. Re3 Kf7 41. Bh5+ g6 42. Bf3 h5 (Svartur viðheldur þrýstingnum. H-peðið á eftir að koma mikið við sögu í þessari skák.) 43. Hgl Rxf3 44. gxf3 Hb3 45. Rdl Ha3 46. Hg2 Bf4 47. Bb6 h4 48. Hgl h3 (Hvítur getur sig hvergi hrært eftir þennan leik.) 49. Hfl Ke8 50. Kgl Kd7 51. Bd4 (Ein af hugmyndum svarts var að leika - Be7. Eftir að hvítur missir a- peðið myndast öflugur frelsingi svarts sem gerir út um taflið.) 51. .. Hxa5 52. Bxf6 Ha2 53. Rf2 a5 54. Bh4 a4 55. Bg3 Bxg3 56. hxg3 a3 57. Hcl Hb2 58. Rdl Hg2+ 59. Kfl Hxg3 - og hvítur gafst upp. Ein þeirra skáka sem komu til greina þegar fegurðarverðlaun móts- ins voru annars vegar var viðureign Maxim Dlugy og Lev Alburt. Ár eftir ár geisar í Bandaríkjunum hatrömm fræðileg barátta í hinu svokallaða Benkö-bragði sem Alburt teflir flest- um betur eins og eftirfarandi skák ber með sér: 4. umferð: Maxim Dlugy - Lev Alburt Benkö-bragð 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6 5. f3 (Þessi undarlegi leikur hefur notið nokkurra vinsælda að undanfömu.) 5. .. g6 6. e4 Bg7 7. Ra3 e6 8. d6 0-0 9. Dc2 Db6 10. Be3 axb5 11. Rxb5 (11. Bxc5 hafði Alburt hugsað sér að svara með 11... Da5+ 12. Dd2 Dxd2+ 13. Kxd2 Rxe4+! 14. fxe4 Bxb2 15. Rc2 Bxal 16. Rxal Hxa2+ 17. Rc2 Ra6 og svartur á betri stöðu.) 11. .. Ra6 12. Kf2 Bb7 13. a4 Hfc8 14. Re2 (Hvítur á afar erfitt með að skipa liði sínu fram á eðlilegan hátt og það er varla hægt að skella skuldinni á þennan leik.) a b c d e f g h 14. .. Bxe4! (Frysta sprengjan fellur.) 15. fxe4 Rb4! 16. Dbl Rg4+ 17. Kf3 Rxe3 18. Kxe3 c4+ 19. Kf3 Bh6! 20. Ha3 (Þvingað vegna hótunarinnar 20... De3+) 20. .. c3!! (Enn einn snilldarleikurinn. Þetta er kallað línurof. Hvxtur getur tekið peðið á fjóra mismunandi vegu en velur þó annan möguleika.) 21. Rf4 Bxf4 22. Kxf4 Df2+ 23. Kg4 h5+ 24. Kh3g5! 25. g3 (Eða 25. g4 Df3 mát, 25. Be2 strandaði á 25. .. Dh4 mát.) 25. .. g4+ 26. Kh4 Df6+ 27. Kxh5Dg6+ 28. Kh4 Kg7 - og vegna hótunarinnar 29... Hh8 mát gafst Dlugy upp. Tímamót framundan Þá er íslandsmótið í sveitakeppni 1990 að baki. Sigursveitin Modem Iceland leidd af Magnúsi Ólafssyni, var vel að sigrinum komin. Það eitt, að sveit sem ekki er skipuð „stómm“ nöfnum, eða spilurum sem talist hafa áskrifendur að íslandsmeistaratitli fram að þessu (ef við undanskiljum Val Sigurðsson, meðlim í sveit MI), hlýtur að teljast „gott mál“, svo notuð séu klisjur úr fréttastofu landsmanna á Stöðinni. Það er mat mitt, að næstu misseri munu ungir eða aðeins eldri spilarar láta meir að sér kveða og kyn- slóðaskipti séu framundan. Miðað við þá litlu vinnu sem okkar bestu spilarar hafa látið hjá líða að inna af hendi, hefur hann verið hulinn fyrir mörgum sá árangur sem hinir sömu spilarar hafa náð. Vissulega má segja að náttúrulegir hæfileikar séu fyrir hendi hjá allflestum þessara stórspil- ara, og það í miklum mæli. En á hitt er að líta, að hópurinn sem telst vera í forystu Iiefur þjappað sér saman, myndað sveitir eða pör innbyrðis. Það er veiki hlekkurinn í okkar toppbridge. Eða hver myndi staðan vera í dag ef þessi sami hópur hefði „teygt“ sig niður og gripið einn og einn ungan, með það markmið í huga, að endumýjun verður að eiga sér stað. Það er sannarlega leiðinlegt að horfa upp á eldri heiðursmenn, sem hafa marga sigra að baki, vera að spila saman, þetta 25-35 árum síðar á góðum ferli, aðeins til Jxess eins að hafa gaman af þessu. Urslitakeppni íslandsmóts er ekki vettvangur fyrir slíka spilamennsku. Virðing mótsins er of mikil til þess. Og alvarleg keppni. Sú hugsjón að sjá þessa sömu spilara mynda ferskt samband við nýja félaga (helst yngri) virkar sem bætiefni fyrir þá og keppnina sjálfa. Hafi menn tieilsu til að vera með í eins strangri keppni og úrslitamót eru hverju sinni ættu okkar bestu spilarar (á breiðum grundvelli) að íhuga þennan möguleika. Þátttakan verður mun skemmtilegri og getur boðið upp á ýmsa möguleika í þeirri þröngu stöðu, sem bestu spilarar okkar í dag eru. Bridgesambandið okkar er sterkt fyrirbæri, sem við öll berum umhyggju fyrir. En sú stofnun verður aldrei sterkari en þeir menn sem starfa innan hennar. Og vissulega eru spilarar landsins hornsteinn þessa starfs. En frumkvæðið verður að Ólafur Lárusson 27. apríl 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAP koma frá þeim sjálfum. Umræðan er opin. Átaks er þörf í útbreiðslu og auglýsingamálum Bridgesambands- ins. Síðustu misseri hefur bridgestarf- ið liðið fyrir lina framgöngu í þessum málaflokki. Allir muna þátttökuna í síðustu Bikarkeppni, sem koma illa út. Ekki batnaði það í landstvímenn- ing BSÍ. Fyrir úrslitakeppni íslands- mótsins í sveitakeppni vissu ekki einu sinni spilarar í þeirri keppni um fyrir- komulag, fyrr en rétt fyrir mót. Og ekki var lagt mikið púður í mótið sjálft. Nú standa fyrir dyrum undan- rásir 1 íslandsmótinu í tvímenning. Útlitið er vægast sagt slæmt með þátt- tökuna (segir mér hugur um) og spái ég að neðar verði ekki komist í þess- um efnum í mótinu sem framundan er. Öll þessi mál skipta miklu fyrir bridgestarfið í landinu, því tekjur sambandsins af þátttöku og aðgang- seyri er undirstaðan fyrir blómlegt starf. Það má gera betur í þessum málaflokki. f raun er þetta einn af hornsteinum bridgelífsins: að hrífa með sér fjöldann, að skapa stemmningu fyrir ákveðnum hlut. Hugleiðum málið. Glæsileg þátttaka var hjá Skagfirð- ingum sl. þriðjudag. Tæplega 30 pör mættu til leiks á konfektkvöld félags- ins. Spilað var í 2 riðlum. Sigurvegar- ar kvöldins urðu Murat Serdar og Þröstur Ingimarsson. Konfektkvöld- um verður framhaldið næstu þriðiu- daga. Nýr landsmótakeppnisstjóri mun taka til starfa nú um helgina, er Jakob Kristinsson leysir Agnar Jörgensson af. Agnar baðst undan stjómun að þessu sinni. Umsjónarmaður býður Jakob hjartanlega velkominn til starfa. Honum til aðstoðar verður Kristján Hauksson. Hætt er við að erfitt verði fyrir Hjalta Elíasson að ganga framhjá þeim Val Sigurðssyni og Sigurði Kristjánssyni í vali landsliðs til þátt- töku á NM í sumar. Þeir félagar hafa sýnt það í ár, að þeir eru hættulegasta par okkar í dag. Liðið var valið sl. þriðjudag en það val hefur ekki verið birt enn. Þórarinn Andrewsson er nýlátinn. Hann og kona hans, Hulda Hjálmars- dóttir, hafa verið afar iðin við keppn- isbridge síðustu ár, nú sfðast á Akur- eyri í Islandsmótinu. Með Þórami er genginn góður maður. Umsjónar- maður vottar Huldu og fjölskyldu samúð sína. Þú heldur á: KG10973 - - 7 KG7532 og átt út gegn 6 hjörtum,eftir að sagnir hafa gengið: S V (þú) N A 1 lauf 1 spaði 1 grand Pass 2 hjörtu 3 lauf 3 hjörtu Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Og hverju spilar þú út? í sögunni okkar spilaði Vestur út laufi. Og allt spilið var: S.D86 H:942 T:ÁDG4 L.D108 S:KG10973 S:42 H:- - H:DG873 T:7 T: 10865 L:KG7532 L:64 S:Á5 H:ÁK1065 T:K932 L:Á9 Sagnhafi var ekkert of sæll á svip- inn er blindur birtist, þrátt fyrir yfir- máta bjartsýnismeldingar. En þá var að vera maður til að fylgja því eftir. Laufatían var látin upp, sem fékk að halda. Þá kom hjartanían, lítið frá Austri, sem bölvaði í hljóði þessari kjánalegu tölvugjöf. Og sagnhafi hleypti níunni. Meira hjarta, gosi frá Austri, tekið á kóng. Tígull upp á gosa, og meira hjarta. Lágt frá Austri og tían fékk að halda slag. Nú kom tígull upp á drottningu og þegar Vest- ur sýndi eyðu, var sviðið sett fyrir 12 slagi. Tígull Iieim á kóng, hjartaás tekinn, Iaufaás tekinn, spaðaás tek- inn, inn á tígulás (fjórir ásar í röð) og laufadrottningu spilað úr blindum. En passant (framhjáhlaup) staða var komin upp og 12. slagur sagnhafa kom á hjartasexuna. Glæsileg loka- staða, en vissulega með aðstoð vam- arinnar. Eða byggist íþróttin ekki á mistökum? Spilið kom fyrir hjá Bridgefélagi Reykjavíkur sl. miðvikudag og gaf hreinan topp (gulltopp eins og bridgemenn segja gjarnan).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.