Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 5
Kvótinn Skref í átt að byggðakvóta Samkomulag í ríkisstjórnarflokkunum um kvótafrumvarpið. Tekið tillit til byggðasjónarmiða og vísir að kvótaleigu. Hagrœðingarsjóður tekur við af úreldingarsjóði. Eftirlits- og úrskurðarvald aðskilið Samkomulag hefur náðst í ríkisstjórnarflokkunum um kvótafrumvarpið og felur það í sér margvíslegar breytingar frá þeim frumvarpsdrögum sem fyrir lágu. Stærstu breytingarnar fel- ast í því að fyrstu skrefín eru tekin í átt að byggðakvóta, kvótaleiga er tekin upp í gegnum hagræðing- arsjóð og skilið á milli eftirlits- og úrskurðarvalds þegar upp koma deilur um framkvæmd físk- veiðistefnunnar. Þá er samkomu- lag um að lögin um stjórn físk- veiða verði endurskoðuð eftir þriggja ára gildistíma. Helstu breytingar sem gerðar verða á frumvarpsdrögunum eru að þjóðareignin á auðlindum hafsins er styrkt enn frekar með því að bæta við fyrstu grein lag- anna ákvæði um að afnot af kvóta myndi aldrei grundvöll til eignar fyrir útgerðarmenn. í öðru lagi ryðja byggðasjón- armið og byggðahagsmunir sér til rúms í frumvarpinu. Sveitarfélög fá forkaupsrétt að öllum skipum sem á að selja í héraðinu. Pá verður úreldingarsjóður lagður niður en hagræðingasjóð- ur sjávarútvegsins stofnaður og verður það frumvarp afgreitt samhliða frumvarpi um stjórn fiskveiðanna. Hagræðingarsjóð- urinn fær árlega úthlutað 12 þús- und tonna kvóta og rennur helm- ingurinn af þeim kvóta til byggð- arlaga sem þurfa sérstaklega á honum að halda, en með þeim skilmálum að aflanum sé landað og hann unninn í byggðarlaginu. Einnig eru tekin fyrstu skrefin í áttina að því að taka leigugjald fyrir kvótann og mun það renna í hagræðingarsjóðinn. Það leigu- gjald er tekið fyrir þau sex þús- und tonn sem eftir verða í umsjón sjóðsins og verða þau seld. Þá er samkomulag um að skilja á milli eftirlitsvalds og úrskurðar- valds í í deilumálum sem koma upp um framkvæmd fiskveiðist- efnunnar. Hefur verið ákveðið að setja upp sjálfstæðan úr- skurðaraðila til að skera úr um slík mál og mun sjávarútvegsráð- herra gefa yfirlýsingu um það á þingi. Frumvarpið verður afgreitt úr sjávarútvegsnefnd efri deildar í dag og er stefnt að því að umræðu um það ljúki í efri deild fyrir helgi og það verði svo afgreitt frá neðri deild í næstu viku. _Sáf SH Þeir stóru saman í eitt? Þegar byrjað að undirbúa jarðveginnfyrir samvinnu stóru útflutningsfyrirtœkjanna á sviði sjávarafurða Svo virðist sem þeirri hug- mynd, að steypa stóru útflutn- ingsfyrirtækjunum á sviði sjá- varafurða í eitt stórt fyrirtæki sé að vaxa fiskur um hrygg. Þegar virðist vera farið að undirbúa jarðveginn fyrir slikum samruna hjá SH því á aðalfundi þess í gær var lögð fram breyting á 20. grein samþykkta SH í þá veru að ekki þurfí samþykki allra félagsmanna við breytingum á stofnsamningi Sölusamtakanna. í ræðu sinni á aðalfundi Sölu- samtaka hraðfrystihúsanna í gær vék Friðrik Pálsson forstjóri SH að því að menn hafi endrum og eins velt því fyrir sér hvort íslend- ingar ættu ekíci að reyna enn frek- ara samstarf á sviði útflutnings- mála: „Við ættum að steypa öllum stóru fyrirtækjunum sam- an í eitt, fylkja okkur á bak við eitt „Icelandic" - vörumerki og freista þess að ná undirtökunum á öllum þeim mörkuðum, sem við sjáum ástæðu til að hasla okkur völl.“ Friðrik sagði ennfremur að á síðustu misserum hafi verið að skapast meiri skilningur á því að fyrirtæki „með lík starfsvið eigi að starfa saman, en ekki endilega að keppa við hvort annað“. Þá lýsti forstjórinn yfir áhyggjum sínum með það sem hann kallaði „flóttann undan taprekstrinum", þegar illa stæð fiskvinnslufyrir- tæki eru með beinum eða óbeinum hætti að fá inn í rekstur- inn erlent fjármagn í ljósi þess að viðkomandi fyrirtæki eiga með einum eða öðrum hætti forgang að þeirri auðlind sem fiskimiðin við landið eru. Við það geti skapast sú hætta hjá litlum fyrir- tækjum að ekki ríki það nauðsyn- lega jafnræði milli viðskiptaaðila þegar annar hefur yfir að ráða fjármagni en hinn aðgang að hrá- efni. grh Reykjavík Utrýmum hættusvæðum Guðrún Ágústsdóttir: Nauðsynlegtað útrýma öllum hœttusvœðum í borginni „Það er núna loksins, þegar slysin gerast, að borgarstjórnarmeiri- hlutinn rankar við sér og það er sérstaklega athyglisvert þar sem að formaður Almannavarna- nefndar Reykjavíkur er sjálfur borgarstjórinn,“ sagði Guðrún Ágústsdóttir fulltrúi Alþýðu- bandalagsins í skipulagsnefnd í samtali við Þjóðviljann um sam- þykkt borgarráðs um að þegar verði hafnar viðræður við Skelj- ung um brottflutning olíubirgð- astöðvar fyrirtækisins í Skerja- firði. Olíubirgðastöðin er við enda flugbrautar og samkvæmt aðal- skipulagi frá árinu 1962 er gert ráð fyrir útvistarsvæði á þessum stað. í bókun skipulagsnefndar segir að fram hafi komið hjá fram- kvæmdastjóra Almannavarna, í tengslum við umræðuna um áburðarverksmiðjuna í Gufu- nesi, að veruleg hætta stafi af stöðinni og vekur nefndin athygli á að samkvæmt skipulagi ætti hún að vera löngu farin úr Skerjafirði. Veruleg umhverfislýti séu að stöðinni, auk þess sem hún sé í vegi fyrir almennri gönguleið sem á að liggja meðfram ströndinni. „Ég fagna því að þetta fékkst samþykkt en þetta er ekki nóg. Það þarf að taka fyrir borgina í heild og útrýma öllum hættu- svæðum úr borginni áður en slys- in verða. Og það er rétt að benda á að þetta gerist í framhaldi af því að minnihlutinn í borgarráði óskaði eftir því að gerð yrði út- tekt á þeim stöðum í borginni sem skapa hættu,“ sagði Guðrún. „Þetta mál er greinilega á ein- kennilegum misskilningi byggt því að það eru fjögur ár síðan olíubirgðastöðin var flutt út í Ör- firisey. Þarna eru hins vegar geymslu- lager- og bílaverkstæði, olía í smurningsolíutunnum og gasbirgðastöð. Sú stöð er vand- amálið en það er út í hött að gera ályktanir um að flytja olíubirgða- stöð sem er löngu farin," sagði Indriði Pálsson forstjóri Skelj- ungs í samtali við blaðið. „Geymarnir standa þarna tómir og það er spurning um að rífa þá en það kostar allt peninga. Þú segir mér að skipulag frá 1962 geri ráð fyrir útivistarsvæði þama en borgin virðist ekkert hafa gert neitt í því allan þennan tíma og a.m.k. hefur ekkert verið rætt við okkur. Og í lok síðasta árs lét borgarskipulag fara frá sér skip- ulagsuppdrætti af þessu svæði þar sem teiknað er inn bæði olíu- geymar og bryggja. Þetta fólk kynnir sér ekíci einu sinni um hvað það er að álykta og meira hef ég ekki um þetta að segja.“ -vd. Fundaherferð Athugasemd Helga Gísladóttir, kosninga- stjóri Flokks mannsins í Reykja- vík, hafði samband við blaðið vegna athugasemdar frá Þóri Karli Jónssyni verkamanni í Þjóðviljanum á miðvikudag. Þar segist Þórir aldrei hafa gefið kost á sér á lista Flokks mannsins í Reykjavík. Helga segir þetta ekki rétt hjá Þóri því hann hafi samþykkt framboð sitt með undirskrift. Hinsvegar hafi hann haft samband og dregið framboð sitt til baka eftir að listinn birtist. „Það er því ekki rétt að hann hafi ekki gefið kost á sér,“ sagði Helga. Arangurínn - Framtíðin Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra á fundum um landið Olafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra mun funda víðsvegar um landið á næstu vik- um. Tilgangur fundanna er að veita upplýsingar um stöðuna í rflcisfjármálum og almennum efnahagsmálum, þcgar erfíðl- eikatímabil undanfarinna mis- sera er að baki. Einnig verður fjallað um ný viðhorf í íslenskum þjóðmálum og helstu verkefni næstu ára. Fyrstu fundirnir verða nú um helgina á Norðurlandi. Á morg- un, laugardaginn 28. apríl, verð- ur fundur í Safnaðarheimilinu á Sauðárkróki kl. 16. Á sunnudag er röðin komin að Dalvík og Ak- ureyri, kl. 14 í Víkurröst á Dalvík og kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu á Ak- ureyri. Mánudaginn 30. apríl verður Ólafur Ragnar svo með fund í Klifi í Ólafsvík kl. 20.30. í fréttatilkynningu frá fjár- málaráðuneytinu segir að eftir nokkurra ára samfellt góðæri hafi blasað við illskæð kreppa á síðari hluta árs 1988. Legið hafi við stöðvun helstu útflutningsatvinn- uvega landsmanna og fjöldaat- vinnuleysi hafi verið spáð. Til að bregðast við þessu ástandi þurfti ríkisstjórnin að taka í taumana og grípa til margvíslegra aðgerða og voru ýmsar þeirra erfiðar og sárs- aukafullar. „Á vordögum 1990, hálfu öðru ári síðar, er ljós verulegur árang- ur af þessum verkum. Þjóðin hef- ur þurft að leggja á sig margvís- lega erfiðleika til að koma ís- lensku samfélagi upp úr þessum öldudal. Fundaferð fjármálaráð- herra er ætlað að kynna sem flest- um landsmönnum árangurinn sem nú hefur náðst, og þær fram- tíðarhorfur sem blasa við ef áfram verður haldið á braut efna- hagslegs stöðugleika, nýsköpun- ar í atvinnulífi og skynsamlegrar hagstjórnar." Fjármálaráðherra mun kynna margvíslegar upplýsingar um þróun íslenskra efnahagsmála að undanförnu og um horfurnar á næstu misserum. Að loknu inngangserindi svarar Ólafur Ragnar fyrirspurnum frá fundar- mönnum. Fyrirhugað er að fund- irnir verði um tólf til fjórtán tals- ins. -Sáf Föstudagur 27. apríl NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.