Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 27.04.1990, Blaðsíða 13
Setbergsskófi var byggður á kjörtímabilinu. Auk þess verður Hvaleyrarskóli tekinn í gagnið í haust. Þá hefur verið byggt við tvo skóla að auki. Mynd Jim Smart. kvæmda ársins 1988 lægri á hvern íbúa Kópavogs en á íbúa á Sel- tjarnarnesi, í Keflavík og í Hafn- arfirði. Skuldasöfnun á hvern íbúa hjá okkur var svipuð og í Garðabæ, þar sem þjónustustigið er langt fyrir neðan það sem er hjá okkur. Svo við stöndumst fyllilega samanburð við önnur sveitarfé- lög. Og af því þú minntist á fjár- málastjórn, get ég sagt að við höf- um yfirlýsingar frá öllum okkar helstu viðskiptastofnunum, sem staðfesta að fjármálastjórnun sé með ágætum hjá okkur,“ segir Valþór. Reykjavík tekjuhæst Þegar minnst er á samanburð Magnús Jón við Suðurbæjar- sundlaugina: Höfum lagt áherslu á skóla, dagvist, íþróttir og æskulýðs- mál. Mynd Jim Smart. sem gjarna er gerður á Reykjavík og nágrannasveitarfélögum undir stjórn vinstri manna, bendir Val- þór á tölur frá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga sem sýna að Reykjavík ber höfuð og herðar yfir önnur sveitarfélög í tekjum. Þar munar mestu um aðstöðu- gjöldin. „Menn mega heldur ekki gleyma því að Reykjavík hefur þá sérstöðu að geta skrifað stór- fellda skuldasöfnun á fyrirtæki eins og hitaveitu og rafmagns- veitu. Þannig geta Sjálfstæðis- menn rekið borgarsjóð nánast skuldlausan. Auk þess hefur borgarsjóður gífurlegar tekjur af fyrirtækjum sínum,“ segir Val- þór. -gg Ráðhús og veitingastaður í Öskjuhlíð hafa verið kostnaðarsömustu framkvæmdir Sjálfstæðismanna í Reykjavík á kjörtímabiiinu. Myndir Jim Smart. Reykjavík Glæsi- byggingar í þágu fárra Sigurjón Pétursson: Munurinn á Reykjavík annars vegar og Kópavogi og Hafnarfirði hins vegar glöggt dæmi um hvað verið er að kjósa um. Það sem minnihlutinn í Reykjavík hefur lagt til, hafa Hafnfirðingar og Kópavogsbúar framkvæmt ið í Öskjuhlíð eru skýr dæmi um þetta. Ef fjármagninu hefði verið Munurinn á áherslum Sjálf- stæðismanna í Reykjavík annars vegar og félagshyggjumanna í Kópavogi og Hafnarfirði hins vegar er í raun það sem verið er að kjósa um. Kópavogsbúar og Hafnfirðingar hafa í raun verið að gera það sem við höfum lagt til við gerð fjárhagsáætlunar á ári hverju, segir Sigurjón Pétursson, borgarfulltrúi Alþýðubandalags- ins og oddviti G-listans í Reykja- vík. „Það er alveg augljóst að Kóp- avogsbúar og Hafnfirðingar hafa notað fjármagnið til þess að jafna og bæta aðstöðu bæjarbúa, sér- staklega þeirra verst settu. Sjálf- stæðismenn í Reykjavík hafa hins vegar lagt áherslu á glæsibygging- ar sem nálgast það að vera minnismerki en þjóna aðeins fáum. Ráðhúsið og snúningshús- veitt til félagslegrar þjónustu í stað glæsibygginga gæti Reykja- vík verið fyrirmyndarbær í þess- um efnum. Reykjavík hefur gífurlega fjármuni til ráðstöfunar og tekj- urnar hafa aukist gífurlega á síð- ustu árum. Árstekjur borgarinn- ar jukust um tvo miljarða þegar staðgreiðslan var tekin upp. Með þessum fjármunum væri hægt að leysa á örfáum árum nær öll okk- ar vandamál á félagslega sviðinu. Á þessu má sjá að það skiptir verulegu máli hverjir eru kosnir til þess að stjórna sveitarfé- lögum. Þar sem félagshyggju- menn eru kosnir til áhrifa er fjármununum beitt í þágu íbú- anna,“ segir Sigurjón Pétursson. -gg Föstudagur 27. apríl NYTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 13 Sannkallað SUMARHLBOD 20°/o afsláttur á ábætisostum til aprílloka! HNETUÖSTUR PAPRIKUOSTUR PIPAROSTUR REYKOSTUR ÁBÓTI M/SÍTRÓNUPIPAR MUNDU EFTIR OSTINUM Fagnaðu sumrinu með fínum ábætisostum! Þeir fást í næstu búð c **tio***‘v

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.