Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1996, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1996
7
I>V
Fréttir
500 nemendur Holtaskóla voru á fíkniefnafræðslu í íþróttahúsinu.
DV-myndir ÆMK
Holtaskóli í Keflavíkurhverfi:
Nemendur fjölmenntu
á fund um fíkniefni
DV, Suðurnesjum:
„Fíkniefnafræðslan tókst alveg
meiri háttar vel. Krakkarnir fylgd-
ust mjög vel með og það var mikið
talað um þetta í skólanum á eftir,“
sagði Hildur Kristjánsdóttir, stjórn-
armaður íþrótta- og ungmennafé-
lagsins Keflavík, sem stóð fyrir
fikniefnafræðslu nemenda í Holta-
Hiidur Kristjánsdóttir, Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir, í stjórn nemendafélags-
ins, og Jóhann B. Magnússon, framkvæmdastjóri íþrótta- og ungmennafé-
lagins Keflavík og kennari Holtaskóla.
skóla í Keflavíkurhverfi Reykjanes-
bæjar.
Alls voru um 500 nemendur skól-
ans á aldrinum 13-16 ára boðaðir í
íþróttahúsið þar sem fræðslan fór
fram. Bjössi og Mummi, eins og þeir
vilja láta kalla sig, frá Mótorsmiðj-
unni, félagsmiðstöð í Reykjavík,
spjölluðu við krakkana um fikni-
efnavandann ásamt því að hljóm-
sveitin Þusl lék nokkur lög.
Það var nemendafélag skólans og
fulltrúar úr aðalstjórn íþrótta- og
ungmennafélagsins sem stóðu fyrir
undirbúningi fræðslunnar. Hengd-
ur var upp stór og mikill borði á
íþóttahúsið með merkjum þeirra
sem stóðu fyrir fræðslunni ásamt
slagorði gegn fikniefnanotkun. Gert
er ráð fyrir að borðinn verði síðan
strengdur yfir Hafnargötuna sem er
aðalverslunargata Kefiavíkurhverf-
is. íþrótta- og ungmennafélagið
ásamt Reykjanesbæ standa straum
af kostnaði við þessa herferð.
-ÆMK
ISPÓ - Góður og ódýr kostur!
r600 hús
klædd á síðast-
liðnum 14árum.
5 ára ábyrgð.
Gerum tilboð í efni
og vinnu, þér að
kostnaðarlausu.
Múrklæðning hf.
Smiðsbúð 3-210 Garðabæ - Sími 565 8826
Svæðameðferðog létt rafmagnsnudd
ásamt acupunchturmeðferð með lacer
Sérhæfing við bólgu í herðurn, baki og höf-
uðverk.
ELSA HALL
Langholtsvegi 160, sími 568-7702.
iBALENO
Geturðu gert beth bílakaup?
1.265.000,- kr.
Gerðu samanburð...
og taktu síðan dkvörðun.
86 hestafla 16 ventla vél • vökvastýri • veltistýri • samlæsingar •
rafdrifnar rúðuvindur • rafstýrðir útispeglar • útvarp/segulband
með 4 hátölurum • upphituð framsæti • öryggisloftpúðar fyrir
ökumann og farþega í framsæti • styrktarbitar í hurðum • samlitir
stuðarar.
Allt þetta og margt fleira í rúmgóðum og
vönduðum 4ra dyra fólksbíl fyrir aðeins:
SUZUKI
• Afl og öryggi •
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.