Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Blaðsíða 16
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 JLj"W 16 mðtal Kristinn Alexandersson, trommari hjá Steina spil, varð að hætta í tónlistinni vegna liðagigtar: Strekkti geitarskinn á kökuboxin hennar mömmu —segir gigtina ekki há sár því að heilinn sá í lagi þó að fingurnir séu krepptir „Ég byrjaði snemma að fikta við trommur en mig langaði alltaf að læra á píanó. Árið 1955 var ekki hægt að fá hljóðfæri með afborgun- um og maður keypti frekar bíl en pí- anóræfil. Ég átti ekki kost á því að læra á píanó af því að það var ekki til á heimilinu. Þá fór ég að fikta við að búa mér til frumstæð hljóðfæri. Ég stal öllum kökuboxunum frá mömmu og fór svo inn í skinna- verslun við Austurstræti og strekkti á þau geitarskinn. Þannig eignaðist ég fyrsta trommusettið,“ segir Kristinn Alexandersson hljóð- færaleikari, 57 ára. Kristinn er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann fékk snemma mik- inn áhuga á tónlist og kom sér upp sínu fyrsta trommusetti um 17 ára aldur. Nokkrum árum síðar var hann að vinna í skóverksmiðju og keypti sér þá sitt fyrsta sett, notað og á afborgunum, en kökuboxunum úr fyrsta settinu skilaði hann aldrei. Orðrómur um flinka tónlist- armenn var fljótur að berast um Reykjavík i þá daga og hann byrjaði fljótlega að spila í hljómsveitum, meðal annars á Vellinum. Meðal annars þannig sá hann sér og fjöl- skyldu sinni farborða í fjölda ára eða þar til hann varð að hætta í spilamennskunni vegna liðagigtar. Kristinn lék með mörgum hljóm- sveitum. Hann varð einna kunnast- ur fyrir leik sinn með hinni vin- sælu Hljómsveit Þorsteins Guð- mundssonar, Steina spil, en hann lék með þeirri hljómsveit 1963-1979. Kristinn var hrókur alls fagnaðar enda léttur í lundu þrátt fyrir veik- indin og segist hafa verið fenginn til að vera með alls kyns spaug í lögun- um. í tólf ár vann hann samhliða spilamennskunni í Sundlaugum Reykjavíkur en varð að lokum að velja á milli og valdi spilamennsk- una. Hann segist hafa haft vikulaun verkamanns fyrir kvöldið en auðvit- að var slítandi að vinna fulla dag- vinnu og spila svo á sveitaböUum um helgar. Fenginn í fíflaskap „Árið 1963 var liðagigtin farin að herja á mig. Ég gat ekki unnið bæði í sundlaugunum og verið í spila- mennskunni þar sem var spilað að meðaltali þrjú kvöld í viku, föstu- dags-, laugardags- og sunnudags- kvöld. Ég varð að segja upp í sund- laugunum 1974 og sneri mér alfarið að músíkinni. Auðvitað hefði verið tryggara að vera starfsmaður hjá Reykjavíkurborg en maður er alltaf svo gáfaður eftir á. Ég hefði getað fengið rólegra starf, orðið gæslu- maður eða baðvörður, en enginn er í hljóðfæraleik nema áhuginn sé mikill,“ segir hann. Á sjöunda og áttunda áratugnum ferðaðist Kristinn með hljómsveit Steina spil um allt land til að spila á sveitaböllum. Þá var spilað frá átta eða níu á kvöldin og fram yfir miðnætti og meðan á skemmtun- inni stóð segist Kristinn hafi verið fenginn í alls kyns fíflaskap. Þegar hljómsveitin mætti á staðinn var gjarnan biðröð við miðasöluna. Oft var nóg að hafa einn magnari, tvo gítara, einn trommara og míkrófón með í fór, „svipað og á gömlum bítlcunyndunum þar sem þeir eru að syngja saman í einn mikrófón, 10.000 kr. Risaafsláttur af vinsælu 28" ATV tækjunum frá AIWA umboðinu í Skandinavíu. 28" ATV á aðeins kr. 59.900 * ^uper planar black line lampi * Islenskt textavarp * Góðir hátalarar að framan * Stereo heyrnartólatengi * Fullkomin góð fjarstýring * Allar aðgerðir á skjá * Nicam stereo magnari a . xá * Sjálfvirk stöðvarleitun ®&p£ * S-VHS inngangur * 2 Euro skart tengi Komið og tryggið ykkur vandað 69.900 kr. tæki á aðeins 59.900 kr. K \/ * Ármúla 38 (Selmúlamegin), Sími 553 1133 • Fax 588 4099 KRINGLAN 8-12-SIMI 5681000 vælandi hvor upp í annan.“ Gigtin sigraði „Eg hélt áfram fram til 1979 en þá var gigtin að sigra. Þetta var ekkert snið- ugt líf lengur því að það lá við að ég þyrfti að liggja í bælinu mánudag, þriðjudag og miðvikudag til að vera búinn að jafna mig og geta spilað föstudag, laugardag og sunnudag,“ segir Krist- Málaði á náttunni Þegar Kristinn fór á ör- orkubætur í lok áttunda áratugarins sá hann sér leik á borði og fljótlega fóru að streyma til hans pantanir enda hafði hann alltaf málað átt- j \', . % ha«a’ Kristinn Alexandersson hætti í spilamennskunni árið 1979 og fór þá á ör- orkubætur. Hann hafði þó alltaf verið málandi og teiknandi og sneri sér að því af fullum krafti. Hann hefur nú málað átthagamyndir og selt í áraraðir. og hann útskýrir að trommur séu að mörgu leyti góðar fyrir gigtarsjúk- linga því að þeir megi ekki setjast niður því að þá fær gigtin tíma til að grassera. Hreyfmgin sé best fyrir þá. Þegar Kristinn er heimsóttur er greinilegt að þar er maður sem ekki lagði árar í bát þó að spilamenns- kunni hafi verið lokið því að á heim- ilinu prýða alla veggi teikningar, málverk og klippimyndir eftir hann. Þegar hann fór á spítala árið 1956 vegna ónýtra ökkaliða var hann si- Kristinn Alexandersson var trommari hjá Steina spil í um 15 ár og ferðast þá vítt og breitt um land- ið. Hann fékk sitt fyrsta trommusett þegar hann strekkti geitarskinn á gömul kökubox en keypti sér svo nokkur síðar gamalt sett með af- borgunum. teiknandi enda hafði teikning verið hans besta fag í skóla og þessu hefur hann haldið áfram allt fram á þenn- an dag. „Mér var oft hent út úr teiknitím- um þegar ég var krakki því að ég var oft að gera spaugmyndir af teikni- kennaranum og hann þoldi það ekki,“ segir hann. myndir jöfnum höndum meðfram spilamennskunni. Hann notaði þá sérstaklega tímann á nóttunni þeg- ar hann gat ekki sofið og fram und- ir morgun og nú hlær hann að því að í sumum myndunum séu litirnir ekki alveg réttir því að hann hafi orðið fyrir áhrifum af eldhúsljós- inu, neon ljósi, á nóttunni. „Ég fékk oft æði á nóttunni, kannski á mánudags- eða þriðju- dagsnótt, og rauk í að mála. Þegar ég var að koma heim á morgnana klukkan fimm og sex þá rauk ég í þetta því að það var enginn annar tími. Síðan kalla ég þessa liti alltaf neon litina. Þegar ég hætti í tónlist- inni gat ég eytt meiri tíma í þessi verkefni og þá fór ég að sinna þessu meira,“ segir hann. Erfitt vegna gigtar? Á síðustu árum hefur Kristinn teiknað myndir á jólakort, hannað plaköt með öllum skjaldamerkjum sveitarfélaganna í landinu, sem hann vann fyrir 50 ára afmæli lýð- veldisins 1994, og nú nýlega hefur hann sent frá sér plakat með merkjum allra hestamannafélag- anna í landinu auk þess sem hann hefur unnið nokkra mánuði á Múlalundi. En er ekkert erfitt fyr- ir mann sem er illa farinn í hönd- um og öðrum liðamótum vegna gigtar að mála og teikna fínlegar myndir? „Gigtin er bara hlutur sem ein- hvern veginn hefur þróast gegn- um árin alveg án tillits til þess hvað ég hef verið að fást við hverju sinni. Þó að puttarnir kreppist er heilinn í lagi. Meðan ég er með styrka hönd og get teiknað beina línu án reglustiku gengur þetta,“ segir hann og kveðst vinna í törnum og hvíla sig á milli ,-GHS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.