Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Blaðsíða 22
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996 JJ^'V ★ 22 * W • fréttir Birna Willardsdóttir, Ford stúlkan 1993, hefur áhuga á dýrum svo líkist ástríðu: Langaði að eignast slöngu sem verður 7 metra löng „Þetta er mannskemmandi bransi. Auðvitað var þetta rosalega skemmtilegur tími því að ég fór til Afríku, ferðaðist mikið og hitti frægt fólk en maður fékk alltaf að heyra það slæma. Ég hélt að ég væri þokkalega sterk en maður var brot- inn niður hægt og sígandi á hverj- um einasta degi þannig að ég er al- veg til í að gera eitthvað allt annað í framtíðinni," segir Bima Willards- dóttir, Ford stúlkan 1993. Bima var aðeins 16 ára gömul þegar hún sigraði í Ford keppninni hér heima. Eftir sigurinn fór hún til frænda síns, Valgeirs Sigurðssonar veitingamanns í Lúxemborg, þar sem hún var að kynna nýjan vodka. Hún ferðaðist mikið um í starfinu og segir eftirminnilegast að koma til Birna Willardsdóttir starfaöi sem fyrirsæta f Parfs í sumar. Hér er hún í sam- kvæmi f Afrfku ásamt tfskukónginum fræga, Jean Paul Gaultier, og Árnýju Hlfn Hilmarsdóttur fyrirsætu. Rússlands. „Mér fannst hrikalegt hvað allt var grátt og drullugt. Gamalt fólk var í sitt hvorum skónum og engum jakka, að drepast úr kulda,“ segir hún. Kynntist Jean Paul Gaultier Seint á síðasta ári fór hún til Par- ísar til að kynna sér aöstæður og fór svo aftur utan snemma í janúar. Hún komst í kynni við mjög góða umboðsskrifstofti gegnum kunn- ingjakonu sína, Berglindi Ólafsdótt- ur, ungfrú Reykjavík, og segist hafa grætt mikið á því hvað eigendur skrifstofunnar hafi veriö duglegir að koma sér á framfæri. Hún hafi náttúrulega þurft að koma sér á framfæri sjálf en ekki eins mikið og hún hafi búist við því það hafi skap- að sér vinsældir að vera íslendingur og ný í bransanum. „Ég var rosalega mikið aö vinna út á hárið á mér enda var það klippt fram og til baka. Ég var að vinna mikið fyrir fræga hárgreiðslumenn, til dæmis Frank Provost, og fékk mest borgað fyrir það. Ég var bæði S I lífeyrissióáir sameign - sereign gerðu skýran greinarmun Missir þú starfsgetu, verðir háaldraður eða látir eftir þig fjölskyldu, færð þú og/eða fjölskylda þín mjög líklega meira úr sameignarsjóði en þú greiddir til hans. i ✓ Ar ■ rsjoíir ligri kostnaáur - eftirlaun til æviloka Rekstrarkostnaður á hvem sjóðfélaga árið 1995 var: A.937 kr. tTOkr. i sameigiui'sjóðum i sereignarsjóðmvi á „live“ sýningum og sat fyrir á myndum. Svo var maður klipptur of mikið eða hárið á manni litað fjólu- blátt,“ segir hún en í Túnis kynntist hún hinum víðfræga og „skemmti- lega“ tískukóngi Jean Paul Gaulti- er. Bima var með sítt hár þegar hún fór utan en kom heim aftur með mun styttra hár. í samkomulagi milli hennar og umboðsskrifstof- unnar kom fram að ekki mætti klippa hár hennar meira en tvo sentímetra en í sumum tilfellum var það klippt um allt að 20 cm og segir hún það alvarlegt mál fyrir fyrirsætu. Bima fór heim aftur í lok júlí því að hún var farin að sakna íslands og hafði áhyggjur af köttunum sínum tveimur. Hún segir að það hafi ver- ið notalegt að koma heim aftur eftir sjö mánaða dvöl erlendis. Mirra og Sebastian „Þegar ég fór út fyrir jólin var mér sagt að ég fengi frítt fæði og húsnæði, vasapening og allt yrði borgað fyrir mig. Mér fannst það náttúrulega frábært og fór aftur til þeirra eftir jól. Áður en ég fór heim aftur bað ég um stöðuna hjá þeim því að ég hélt að ég ætti kannski inni einhvem pening. Þá var ég með helling í skuld því að ég hafði verið rukkuð um allt sem átti að vera frítt, húsaleigu, síma, hita, raf- magn og fleira þannig að það er ekki hægt að treysta neinu eða nein- um í þessvun bransa. Maður þarf að passa sig rosalega vel,“ segir hún. Bima hætti 16 ára gömul í skóla vegna veikinda. Hún er óráðin með framtíðina og segist stefna að því að búa einhvers staðar annars staðar en á íslandi árið 2000 „en svo getur vel verið að maður skjóti rótum hér heima, fari að eignast böm og borga reikninga," segir hún. Bima hefur gífúrlegan áhuga á dýram, á persnesku kettina Mirra og Sebastian og hefúr áður átt svín, hænur, kanínur, naggrísa, hunda, mýs, hesta, fiska og páfagauka. Hún starfar í gæludýraverslun og segist vera orðin veik í hunda. í París var hún fastagestur í einni gæludýra- verslun og var þá næstum því búin að fá sér slöngu. Sem betur fer hætti hún viö þegar henni var sagt að slangan yrði sjö metrar að lengd á næstu sex árum enda ekki auðvelt að eiga slíkt gæludýr ef maður er mikið á faraldsfæti. -GHS Birna Willardsdóttlr, Ford stúlkan 1993, hefur mikinn áhuga á dýrum og var næstum því búin aö fá sér slöngu i sumar. Hún hætti þó viö þegar hún heyröi aö slangan yröi sjö metra löng á næstu sex árum. DV-mynd PÖK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.