Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1997, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1997, Blaðsíða 28
Sviðsljós ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 Cindy verður að bíða aðeins Ofurfyrirsætan Cindy Craw- ford verður að sýna pínulitla þol- inmæði, ef hún getur það. Það verður nefnilega einhver bið á að hún geti flutt inn í nýja húsið þar sem hún ætlar að deila bæði borði og sæng með kærastanum Rande Gerber. Nokkur dráttur hefur orðið á framkvæmdum við endumýjun glæsivillu í spænsk- um stíl í einu úthverfa Los Ang- eles. Vonir standa til að þau geti flutt inn fyrir jól. Hagstœð kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama dag er 50% afsláttur af annarri auglýsingunni. aW milf/ himij fA)e Smáauglýsingar 550 5000 Bond-sonur í tugthúsið Pierce Brosnan, öðru nafni James Bond ofumjósnari, hefur um annað að hugsa en frumsýn- ingu nýjustu myndarinnar um útsendara hennar hátignar. Stjúpsonur hans hefur nefnUega verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur. Stráksi er sonur Cassöndru, eig- inkonu Brosnans, sem lést fyrir nokkmm árum úr krabbameini. HOLLAND hver mínúta eftir kl.ig:oo á kvöldin POSTUR OG SIMÍ S IJrval - í stuttu máli sagt Strandvarðagellan kann ráð við áhugaleysi: I klappstýruföt og bóndinn bráðnar StrandvarðageUan Gena Lee Nol- in deyr ekki ráðalaus. Að minnsta kosti ekki þegar hún þarf að reyna að kveikja í eiginmanninum og lokka hann frá pUukeppni í sjón- varpinu. Hún fer bara í gömlu klappstýrufotin sin. „Ég geymdi þau fyrir sérstök tækifæri og þau klikka aldrei,“ seg- ir Gena Lee. Karlinn hennar, hann Greg Fahlman, er brjálaður pUuaðdáandi og hangir fyrir framan imbann öU- rnn stundum tU að glápa á uppá- haldskastarann sinn. Það er annars helst að frétta af Genu Lee að hún er búin að jafna sig eftir bamsburðinn fyrir flmm mánuðum. Þá eignaðist hún dreng sem var gefið nafnið Spencer. Gena Lee er sem sé búin að endurheimta fyrri hasarkropp og er kynþokka- o % - Gena Lee Nolin er fríð og fönguleg. Svona líta þrjár fegurstu konur heims út. Fegurst er Dana Hayden frá Ind- landi, kjörin ungfrú heimur um helgina. Hinar eru Jessica Motaung frá Suð- ur-Afrfku og Lauralee Martinovich frá Nýja-Sjálandi. Keppnin fór fram á hin- um sólríku Seychelleseyjum. Símamynd Reuter Ný plata frá Celine Dion: Uppáhaldssöngkonan fékkst til að syngja með í síðustu viku kom út nýjasta plata Celine Dion, Let’s Talk about Love, á markaðinn og er þetta fimmta plata hennar á ensku, en Celine Dion er frönskumælandi Kanadabúi sem í fyrstu söng eingöngu á frönsku. Það verður að vera rífandi sala í nýju plötunni ef hún á að slá út Falling into You, síðustu plötu hennar sem seldist í 25 milljón eintökum í heiminum. Hér á landi seldist hún í ellefu þúsund eintökum sem er mjög góð sala. Let’s Talk about Love er stjömum prýdd plata. Dion hefúr fengið uppá- haldssöngkonu sína, Barbra Strei- sand, til að syngja með sér eitt lag, Tell Him, sem hefur hljómað á öld- um ljósvakans að undanfómu. En hefur Celine Dion ekki áhyggjur af því að Let’s Talk about Love muni ekki seljast jafn vel og Falling into You? „Ég veit að síðasta plata min seldist í 25 milljón eintökmn, en ég hugsa ekki í sölutölum, ég reyni bara að gera mitt besta hvem einasta dag. Þegar ég fer í rúmið á kvöldin er ekki mín síðasta hugsun hvað ég muni selja margar plötur á morgun. Ég er frekar að hugsa um hvað ég ætli að fá mér í morgunmat.” fyllri en hún hefur nokkum tíma verið. Þá segir hún í viðtali við breska æsiblaðið Heimsfréttir að móðurhlutverkið hafi haft skemmti- legar aukaverkanir. „Ég var alls ekki búin undir þetta,“ segir hún og andvarpar. „Ég vil ekkert annað en kynlíf og meira kynlíf. Ég er munaðarfyllri en nokkru sinni og kynlífið hefur aldrei verið betra,“ segir Gena Lee. Ekkert feimin að viðurkenna það, enda af sænskum ættum, eins og nafnið gefur tii kynna, og veit fátt skemmtiiegra en að þramma um nakin heima hjá sér. „Nágrannamir hafa aldrei kvart- að,“ segir stúlkan. Hún ætlar þó ekki að koma nakin fram í bili, segist kannski sitja fyrir hjá Playboy þegar hún fer að nálg- ast fertugsaldurinn. Carey gerir kvikmynd um erfiða æsku sína Söngkonan Mariah Carey er nú i leiklistartímum tii að búa sig undir leik í kvikmynd sem tökur hefjast á á næsta ári ef allt gengur að óskum. Carey er þegar búin að semja nokk- ur lög fyrir myndina og stendur nú í samningavið- ræðum við kvikmyndaverið Touchstone Pictures. Að sögn Carey gerist myndin á áttunda áratugnum og fjallar ekki bara um söngkonu. Carey telur að myndin eigi eftir að sjokkera fólk svolítiö. íhenni sé fjallað um hluti sem erfitt var að takast á við, atriði úr æskunni. Systir Carey, Allison Scott, hef- ur hótað að skrifa bók þar sem hún hyggst segja frá meintum svikum Mariuh við fjölskylduna. Carey hefur neitað að tjá sig um málið en aðeins sagt að það sé sorglegt hvemig græðgi getur leikið fólk. Carey er nú orðin 27 ára. Hún er skilin en segir þá staðreynd ekki hafa breytt trúnni á ástina. Hún vonast til aö einhvers staðar sé einhver sem hún eigi eftir að eiga samleið með. Foreldra Moore langar til að sjá bamabömin Samband leikkonunnar Demi Moore við foreldra sína hefur verið slæmt í mörg ár. Faðir Demi, Charles Harmon, sem hún vissi ekk- ert um fyrr en hún var orðin 15 ára gömul, er með krabba- mein og á bara nokkra mánuði eftir ólifaða, að því er erlend tímarit greina frá. Ekkert samband hefur verið á milli Demi og föðurins. Nú er það ein síðasta ósk hans að fá að kynnast dóttur sinni og sjá bömin hennar þrjú. Móðir Demi, Victoria Guynes, er einnig veik og á víst heldur ekki langt eftir. Victoria hefur verið áfengissjúklingur. Hún hefúr ekki séð yngsta bam dóttur sinnar og þau tvö elstu hefur hún ekki séð síöan þau vom ungböm. 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.