Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 Fréttir Leikskólakennarar segja upp - leikskólastjóri óttast að margir mæti ekki eftir sumarfrí Sandkorn PV. SUÐURNESJUM: Leikskólakennarar hafa sagt upp störfum sínum á leikskólum Reykja- nesbæjar vegna óánægju með við- brögð bæjarstjórnar við kröfum þeirra um launauppbót vegna nýrr- ar námskrár. Voru kröfurnar lagðar fram í október síðastliðnum og hef- ur bæjarstjórn ekki enn komið til viðræðna við kennarana og eru all- ar horfur á því að um leið og fyrsti leikskólinn fer í sumarfrí núna í byrjun júní að hann verði ekki opn- aður aftur fyrr en búið er að ráða aðra kennara. Að sögn Ingibjargar Guðmunds- Geyslr Þessi nafntogaöi hver veröur nú settur undir smásjá vísindamanna Breyttur Geysir, gos í þágu vísinda PV. HAUKADAL: Það var ljölmennt á Geysissvæð- inu á fimmtudaginn. Margir notuðu góða veðrið og drifu sig upp í Haukadal til að sjá Geysi gjósa. Geysisgos eru orðin sjaldséð í seinni tíð. Áður fyrr gaus hann mun oftar, en í tímans rás hefur hegðan Geysis breyst og nú er ekki hægt að fá hann til að gjósa nema með því að setja í hann 40-50 kíló af sápu og láta renna ofan af honum vatn til að minnka yfírborðskælinguna. Sápa var sett í Geysi klukkan þrjú á fimmtudag, hann hóf síðan ekki upp raust sína fyrr en klukkan hálfníu um kvöldið. Þá voru margir orðnir leiðir á því að bíða eftir gos- inu og stór hluti þess fólks sem lagði leið sína að hvemum var farið til síns heima. Gosið á fostudag var framkallað í vísindalegum tilgangi. Helgi Torfa- son hjá Orkustofnun og samstarfs- menn hans mældu hverinn frá því um morguninn og allt fram að því að hann gaus. Eftir gosið var fylgst með því hve langan tima tæki að fylla skálina að nýju. Þá var fylgst með áhrifum Geysisgossins á aðra hveri á svæðinu. Niðurstöður rann- sóknanna eru væntanlegar eftir helgina. -NH 17. júní helgin í London frá 27.990 Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin til London helgina 15.-19. júní og haldið upp á 17. júní í heimsborginni. Beint flug Heimsferða kl. 18.30 á fimmudag og komið til baka á mánudagsmorgni. Þú velur um flugsæti eingöngu eða flug og hótel, en við bjóðum gott úrval hótela í 7C\í\r\ miðborg London. __________.yuu,- Flugsæti önnur leiðin til London. Verðkr. 27.990,- Flug ffam og til baka, gisting með morgunverðí 4 nætur í 2ja manna herbergi, skattar. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, 595 1000, www.heimsferdir.is dóttur, leikskólastjóra á Heiðarseli, hefur ekkert komið frá bæjarstjóm sem komið gæti tO móts við kröfur kennara en þær felast aðallega í þvi að fá greidda óunna yfuvinnu en það er býsna algengt og flest nágranna- sveitarfélögin eru með slík launakjör. Síðastliðið haust var lögð fram ný námskrá fyrir leikskóla og hefur það aukið álagið á kennara, auk þess sem skortur á fagmenntuðum kennurum og ör skipti á starfsfólki leikskólanna gera starfið mun erfiðara. Era þau laun sem samið hefur verið um í kjarasamningum ekki í samræmi við raunveruleikann, fyrir utan að vera allt of lág að mati leikskólakennara. Ellert Eiríksson bæjarstjóri sagði í samtali við blaðið að samninganefnd hefði lagt fram í apríl tillögu þess efn- is að nota samninga sem Kópavogs- bær hefði gert og teldust mjög góðir en þá hefðu uppsagnir farið að berast og ekkert orðið úr frekari viðræðum. Leikskólakennarar töldu þetta ekki viðunandi tillögu þar sem um alger- lega nýja samninga væri að ræða og þyrfti því að skipuleggja allt starf leikskólanna upp á nýtt. Hafði Ingi- björg alvarlegar áhyggjur af ástand- inu þar sem hún vissi til þess að nokkrir leikskólakennarar mundu ekki snúa aftur til starfa. Nú í vik- unni afhentu forsvarsmenn foreldra- félaga leikskóla Reykjanesbæjar und- irskriftalista um 300 foreldra þar sem skorað er á bæjarstjóm að semja hið fyrsta við leikskólakennara bæjarins. Á bæjarráðsfundi á miðvikudag var samþykkt að ganga til samninga við leikskólakennara bæjarins og kemur því fljótlega í ljós hvað margir kenn- arar draga uppsagnir sínar til baka. -ÞGK Krýsuvík: Samspil manns og náttúru - kallast árþúsundaverkefni Hafnarfjaröar I samvinnu við Reykjavík, menn- ingarborg Evrópu árið 2000, hefur Hafnarfjarðarbær hrundið af stað verkefni um Krýsuvík en með þvi vill hann auka þekkingu á menn- ingu og náttúru svæðisins. Þrjá sunnudaga í sumar verður sérstök dagskrá í Krýsuvík, sunnudaginn 11. júní nk., 16. júlí og 20. ágúst. Meðal viðburða er opnun sýningar á verkum Sveins Björnssonar í Sveinshúsi, messa í Krýsuvíkur- kirkju, gönguferðir með leiðsögn og fræðsluerindi um Krýsuvíkurberg. En svæðið sjálft er i aðalhlutverki, m.a. er hægt að skoða leirhveri við Seltún, stórbrotið fuglalíf í Krýsu- víkurbergi og þá má skoða sprengi- gíginn Grænavatn. Gefið hefur ver- ið út kort af svæðinu um sögu og náttúru en einnig má fmna fomleif- ar í Krýsuvík. -HH Vegleg verðlaun íslensk slökkviliössveit á Keflavíkurflugvelli skarar fram úr í Bandaríkjaflota. Slökkvilið Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli: Sigraði í keppni Bandaríkjaflota - og hlaut æðstu verðlaun brunavama Slökkviliði Vamarliðsins á Kefla- vikurflugvelli voru í gær veitt æðstu verðlaun brunavama fyrir sigur í samkeppni milli allra slökkviliða Bandaríkjaflota. Einnig var slökkviliðinu afhent viðurkenning Brunamálastofnunar íslands fyrir frumherjastörf i bruna- málum hér á landi og var það Berg- sveinn Gizurarson brunamálastjóri sem sá um afhendinguna. Slökkviliðið á Keflavíkurflug- velli er skipað íslenskum starfs- mönnum og eru þeir samtals 128 að tölu. Auk þess að sjá um brunavarn- ir allra mannvirkja á svæði hersins og Flugstöövar Leifs Eiríkssonar, sjá starfsmenn slökkviliösins um hreinsun hættulegra efha, snjóruðn- ing á flugvellinum og þjónustu við herflugvélar sem leið eiga um flug- völlinn, svo eitthvað sé nefnt. -jtr BBwkisión: Reynir Traustason netfang: sandkom@ff.is Fljúgandi ferð Skjár einn er á fljúgandi ferð þessa dagana og er víst að óhugur er í samkeppnisaðilum. Árni Þór Vigfús- son, sjónvarps- stjóri og prestsson- ur úr Grafarvogi, þykir hafa haldið vel á spilunum og aflað stöð sinni hylli. Nú stefnir í að Skjár einn náist um allt land en eig- endurnir hafa sótt um að fá afnot af rás sem Ríkisútvarpið hefur haft fram að þessu. Stöðin unga nýtur velvilja útvarpsréttarnefndar og þá sérstaklega formannsins, Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, og er talið nær víst að rásin sé í hendi. Ekki skemmir fyrir ungu mönnunum að Stöð 2 er í skotlínu sjálfstæðis- manna eftir að dr. Hannes Hólm- steinn Gissurarson útnefndi Jón Ólafsson aðaleiganda Stöðvar 2 sem óvin númer eitt... Þrengsli Léttur fiðringur er farinn að gera vart við sig í væntanlegum stærri kjördæm- um. Meðal sjálf- stæðismanna á Vestfjörðum, Vesturlandi og Norðurlandi vestra er spurt hvaða þrír þingmenn muni lifa af kjördæmabreytinguna. Spádómar eru uppi um að það verði oddvitar flokkanna í gömlu kjördæmunum, þeir Einar K. Guðfinnsson, Hjálmar Jónsson og Sturla Böðvarsson. Hver um sig er fima- sterkur í sínu kjördæmi og spurn- ingin sú hver muni leiða listann. Þeir sem detta þá út eða finna sér annað kjördæmi eru þeir Einar Oddur Kristjánsson, Guðjón Guðmundsson og Vilhjálmur Egilsson sem þó er sýnu best sett- ur með skjól sem framkvæmda- stjóri Verslunarráðsins... Nýtt prestsmál? Það er fullyrt að næsta „prestsmál" sé í gerjun á Suð- urlandi, nánar tO- tekið á Selfossi. Fullyrt er að vax- andi óánægju gæti með störf séra Þóris Jökuls Þorsteinssonar og stöðugt fleiri leiti tO nágrannapresta hans um þjónustu. Einkum mun þetta auka umsvif séra Kristins Á. Friðfinns- sonar sem situr í Hraungerði rétt austan Selfoss. Séra Þórir hefur ver- ið í hópi svartstakka í prestastétt sem eru trúaðri og strangari en prestar almennt. Þegar séra Þórir var prestur á Grenjaðarstað í Aðal- dal var hann mjög óánægður með dræma kirkjusókn. Hann brá því á það ráð að ávíta harðlega þær fáu sálir sem þó mættu í hvert sinn. Þetta líkaði sóknarbömum afar Ola og mun í þá daga hafa fækkað enn meir á kirkjubekkjum á Grenjaðar- stað við umvandanir hans... Síöan í fyrra Prestar hafa r löngum verið þjóðsagnapersón- ur og ein slík, séra Baldur Vil- helmsson, situr á eftirlaunum vestur í Vatns- firði. Fyrir mörg- um árum vék Baldur sér að meðhjálpara sínmn eftir páska messu og spurði hvort hann hefð kannast nokkuð við prédikunins „Nei, átti ég að gera það?“ spurð meðhjálparí „Það gat aðeins verið, góði. Húi er nefnOega frá því á páskunum fyrra,“ svaraði Baldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.