Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 Tilvera 59 Matgæðingur Rómantískur kvöldverður fyrir tvo: Að hætti piparsveinsins Það er Vilhjálmur H. Vilhjálms- son sem er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Vilhjálmur er lög- fræðingur, formaður Ungra jafnað- armanna og varaþingmaður fyrir Samfylkinguna. Einnig spilar hann fótbolta með Þrótti. Síðasta vika var annasöm hjá Vilhjálmi en þá má segja að knattspyrnan og lögfræðin hafi runnið saman í eina sæng því að hann sá um að gæta hagsmuna Þróttar í deilu félagsins við þá aðila sem stóðu að tónleikum Eltons John á Laugardalsvelli. DV lék forvitni á aö vita hvernig Vilhjálmi gengi að samræma þessa ólíku hluti sem hann er að fást við dags daglega. „Það gengur ágætlega. Það er gaman að hafa nóg fyrir stafni. Ann- ars er það þannig á íslandi að póli- tíkin leggst í hálfgerðan dvala yfir sumartímann. Það hentar mér ágæt- lega því þá get ég einbeitt mér að fótboltanum. Ég er hins vegar ekki nægilega duglegur að æfa yfir vetr- artímann því þá eiga stjórnmálin hug minn allan. Þannig tekur það mig nokkra leiki í byrjun hvers keppnistímabils að komast í form. Annars hefur okkur Þrótturunum ekki gengið nægilega vel svona í upphafi íslandsmótsins en það stendur vonandi til bóta. Hvað lög- fræðina varðar þá var ég bara að ljúka námi nú í vor og er ekki viss um til hvaða verka ég ætla að nýta menntunina. Það er heilmargt sem kemur til greina því lögfræðiprófið er góður grunnur fyrir hin ýmsu störf,“ sagði Vilhjálmur. Aðspurður sagðist hann ekki hafa mikla reynslu af matargerð. „Það kristallast ágætlega í tveimur hlut- um - annars vegar því að það liðu þrjú ár frá því að ég flutti i ibúðina sem ég bý í núna þangað til ég próf- aði í fyrsta skipti að kveikja á elda- vélarhellunum og hins vegar í upp- skriftinni að rómantískum kvöld- Uppskriftir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson er matgæðingur vikunnar. verði fyrir einn eða fleiri sem ég ætla að leyfa lesendum DV að njóta með mér.“ Það liggur í hlutarins eðli að maður sem kveikir ekki á eldavél- inni heima hjá sér í þrjú ár hefur ekki mikla reynslu af matargerð og er þ.a.l. ekki mikill viskubrunnur skemmtisagna af óvæntum uppá- komum sem tengjast mat. Engu að síður veltum við því upp við Vil- hjálm hvort hann hefði frá ein- mmm Pönnukökur Einföld uppskrift sem hæfir vel, bæði upprúllaðar með rjóma, ís og fleiru. 300 g hveiti 2 egg ca 6 dl mjólk 1 1/2 msk. smjör 1 tsk. lyftiduft 1 msk. sykur 1 tsk. vanilludropar Setjið hveiti í skál. Setjið eggin saman við ásamt lyftiduftinu. Hellið helmingi af mjólkinni saman við og þeytið þar til kekkjalaust. Ef of miklu af mjólkinni er hellt út í get- ur deigið farið í kekki. Blandið svo afganginum af mjólkinni ró- lega saman við deigið og þeytið rólega saman, að síð- ustu er bræddu smjör- inu blandað út í. Berið feiti á pönnuna ef þarf og hafið hana vel heita þegar deigið er bak- að. Ef deigið er of lengi að bakast verða pönnukökurnar seigar. Einnig er hægt að sleppa sykrinum en þá verða þær ljósari. hverju að segja sem tengdist mat með einum eða öðrum hætti og átti hann ekki í neinum vandkvæðum með það. „Það verður að segjast eins og er að þið setjið mig í töluverðan vanda með þessari spurningu. Það er ein- faldlega þannig að mér er margt bet- ur til lista lagt en að stússast í mat- argerð. Það er samt ein saga sem kemur upp í hugann og hún tengist uppskriftinni að hinum rómantíska kvöldverði fyrir einn eða fleiri sem ég ætla að leyfa lesendum að njóta með mér. Að sjálfsögðu er ég búinn að gefa réttinum nafn sem er „Þú opnar Ora-dós og gæðin koma í ljós“ og samanstendur af nokkrum vel völdum vörutegundum í niðursuðu- dósum frá Ora. Uppistaðan í réttin- um er Ora-saxbauti í dós og með réttinum er upplagt að bera fram grænar Ora-baunir í dós og Ora- rauðkál í dós. Til að fyllsta sam- ræmis sé gætt er gott að skola rétt- inum niður með ísköldu Pepsí í dós,“ sagði Vilhjálmur og hélt svo áfram: „Það var fyrir rúmlega ári að mér var boðið i innflutningspartí hjá vinum mínum, Ásdísi og Auðuni. Ég varð töluvert seinn fyrir af því ég hafði verið að keppa fyrr um kvöldið, klukkan orðin tíu og allar blóma- og bókabúðir lokaðar. Þar sem ég kunni að sjálfsögðu ekki við að koma tómhentur í veisluna lagði ég hausinn i bleyti og innan skamms var lausnin á þessum vand- ræðum mínum fundin. Hvað gæti verið yndislegra fyrir par sem er nýflutt inn í sína fyrstu íbúð en að fá að gjöf rómantískan kvöldverð fyrir tvo sem það gæti notið í ró og næði í nýju híbýlunum? Það varð því úr að ég hraðaði mér í 10-11 og festi kaup á Ora-saxbauta í dós, grænum baunum í dós, rauðkáli í dós og Pepsí í dós. Að svo búnu hraðaði ég mér heim, límdi dósirn- ar á spegil með kennaratyggjói og pakkaði svo herlegheitunum inn í sellófan. Þið getið rétt imyndað ykk- ur gleðina hjá parinu þegar þau tóku á móti gjöfinni. Þetta var nokk- uð sem þau hafði alltaf dreymt um: rómantískur kvöldverður fyrir tvo og geymsluþolið allt að tvö ár.“ Rómantískur kvöldverður Fyrir einn eða fleiri: Ora-saxbauti í dós Grænar Ora-baunir í dós Ora-rauðkál í dós Pepsí í dós (Ef rómantíski kvöldverðurinn er bara fyrir einn þá ætti að nægja að fjárfesta í heildós af saxbauta, hálf- dós af baunum, hálfdós af rauðkáli og 33 cl Pepsídós. Ef eldað er fyrir fleiri þarf fleiri dósir.) Aðferð „Fyrst er auðvitað að festa kaup á hráefninu. En Ora-dósamatur er til í flestum betri matvöruverslunum þannig að ekki ætti að vera miklum vandkvæðum bundið að nálgast það. Það er heldur ekki vitlaust að kaupa mikið i einu því að eins og áður hefur komið fram er Ora-dósa- matur sérlega geymsluþolinn og því hentugt að eiga alltaf hráefni í nokkra málsverði í eldhússkápnum. Það skemmir heldur ekki fyrir að dósimar fara sérlega vel í skáp og geta jafnvel þjónað sem leikfóng fyr- ir börn. Þegar hráefnið liggur fyrir er hægt að hefjast handa við matseldina. Fyrst er að opna dósirn- ar og við það verk er heppilegast að nota dósaopnara en ef hann er ekki til staðar má notast við hníf (þess ber þó að geta að það kostar tölu- verð átök að opna dósirnar með þeim hætti). Þegar búið er að opna dósirnar er þeim einfaldlega skellt beint á eldavélarhellurnar (til að spara uppvask á potti) og kveikt undir. Það tekur innihaldið ca tíu mínútur að hitna, svo er rétturinn tilbúinn. Langhagkvæmast er að borða réttinn beint upp úr dósunum en með því móti sparast uppvask á mataráhöldum.“ „Ég ætla að skora á vin minn, Össur Skarphéðinsson, formann Samfylkingarinnar, sem ég er viss um að lumar á gómsætum grænmet- isrétti til að gleðja lesendur DV með,“ sagði þessi ungi piparsveinn að lokum. Kókosbollur Einfaldar og alltaf góðar á kaffiborðið 250 g sykur 200 g smjörlíki 3egg 450 g hveiti 1 msk. lyftiduft 1 dl mjólk 100 g kókosmjöl 100 g suðusúkkulaði börkur af einni appelsínu Nýkaup t’íir st’rn fvrskMkítin bvi' Uppskriftirnar eru frá Nýkaupi þar sem allt hráefni í þær fæst. Hrærið vel saman sykur og smjör, setjið egg út í eitt í einu og skafið vel niður á milli. Blandið þurrefnum saman, setjið mjólk út í og svo þurrefni. Saxið súkkulaðið og setjið út í ásamt kókos og berki. Setjið í sprautupoka og sprautið á plötu með bökunarpappír. Bakið við 180 gráður í 13-15 min. eftir stærð. Ko m d u Gódar SkyrtukjóllTIE spring sand. Skyrtukjóll með kvartermum og háum klaufum í hliðum, ædaður utanyfir buxur eða pils. Kr. 2.990. og skoðaðu tiibc rorur á góðu ver Soldier of Fortune Ofbeldisfullur hasaleikur. Þegar verkefnið er of sóðalegt fyrir herinn ert þú sendur til að leysa það. Kr. 3.984 n Netið visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.