Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 10. JÚNl 2000 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV Alvarlega veikur Einhverjar sögusagnir hafa ver- ið í gangi að undanfomu um aö Matthew Perry úr Vinum sé alvar- lega veikur og var fyrst talað um að hann þyrfti að fá nýja lifur. Þeir sem betur þekkja til segja hins veg- ar að það sé ekki lifrin sem slík sem sé að plaga Perry, þó vissulega sé hún illa farin, held- ur bólga í briskirtli. Perry hef- ur vegna þessa verið meira og minna á spit- ala síðustu vikumar og mun lækn- irinn hafa sagt við Perry að hann hafi auk þess lifur á við áttræðan mann. Perry á sem kunnugt er langa sögu eiturlyfjaneyslu að baki og segja sérfræðingar i það minnsta að dagar víns og rósa séu á enda hjá karlinum fyrir fullt og allt. Enginn af hinum Vinunum hefur enn mátt koma í heimsókn til Perrys á spítalann og rikir mik- il leynd yfir öllu saman. Annars er það að frétta af Perry að hann og hinir Vinimir hafa skrifað undir samning um að leika áfram í þátt- unum til næstu tveggja ára. Þursarnlr voru geipivinsælir á sínum tíma og þóttu fara óheföbundnar leiöir í tónlistarsköpun. Meöal þess sem heyröi til nýjunga var fagottleikur Rúnars Vilbergssonar. Þursaflokkurinn spilar á tónlistarhátíðinni í Reykjavík: Pursarnir vakna úr híðinu Friðhelgi og náttúra „Ljósi er brugðið á undur náttúrunnar með töfrum tækninnar," sagði forseti vor við opnun Geysisstofu á laugardaginn var og voru þaö orð að sönnu. Af mörgu sem vel hefur verið gert í íslenskri ferðaþjón- ustu er þó vafalaust lofsverðast hið glæsi- lega framtak heimamanna við uppbygg- ingu Geysissvæðisins í Haukadal. Þangað koma um 250.000 manns árlega til aö berja þetta víðfræga náttúruundur augum en sú staðreynd látin liggja í þagn- argildi að Geysir hefur ekki gosið án hjálpar í hartnær öld. Og nú vaknar sú spurning hvort það geri nokkuð til. Aðrir hverir hafa tekið við af prímadonnunni og það eitt að koma á svæðið er óviðjafnanlegra en nokkru sinni fyrr. Nú eru að hefjast rannsókir á Geysi. Hann var - öllum tii óblandinnar ánægju - „látinn gjósa“ i fyrradag. Dæmalaus náttúrufegurð! Dæmalaus náttúrufegurð! hrópuðu viðstaddir einsog væru þeir staddir í ævintýri eftir H.C. Andersen. Ég er ekki alveg klár á því hvað er nátt- úrufegurð og þaðanafsíður er mér ljóst hvernig mikil náttúrufegurð lítur út eða lítil náttúrufegurð. Ég held þetta fari svo ótrúlega mikið eftir því í hvernig skapi maður er, hvort maður er saddur eða svangur, ríkur, blankur, skuldugur, vel eða illa ríðandi. Mér fmnst að á þessu dýrlega sumri blasi dægrin löng við mér meiri náttúru- fegurð en orð fá lýst og líklega vegna þess að ég er bæði saddur, ríkur og vel ríðandi. Núna er alltaf verið að reyna að mark- aðssetja náttúrufegurðina fyrir útlendinga og er víst gengið útfrá því sem vísu að þeir séu svangir, blankir og illa ríðandi því augljóslega þurfa þeir sterkari skammt af náttúrufegurð en ég. Þeir þurfa náttúruundur. Ekkert náttúruundur á íslandi hefur verið jafn rækilega auglýst einsog Geysir í Haukadal. Hvar sem íslenskan auglýsinga- bækling ber fyrir augu trónir þar fremst litmynd af Geysi í Haukadal að gjósa him- inháu gufugosi og er þessi gamli „gos- hver“ fyrir bragðiö kallaður eitt af nátt- úruundrum veraldar. Hins er ekki getið að Geysir hefur um langa hríð ekki gosið nema á honum hafi fyrst verið framin það sem í dag eru köll- uð náttúruspjöll og eru fólgin í því að létta vatnsfargi af hvernum og setja síðan í hann svolitla sápu. Ég fullyrði að aldrei Virkaði köld Whitney Houston og George Michael hafa loks náð sáttum eftir 11 ára langa fýlu Houston út í Michael. Sagan segir að árið 1989 hafi Michael hafn- að góðu boði Houston mn að þau syngju saman og gaf þá skýringu að rödd henn- ar „virkaði köld“ á hann. Nú er hins vegar allt gleymt og grafið og Whitney og George hafa hljóðritað saman lagið If I Told You That. Að vísu fóru hljóðritanimar fram sitt á hvorum staðnum og ekki á sama tíma en heimildamenn segja að vel hafi far- ið á með þeim er þau hittust til að kynna nýja lagið sem var nýlega gefið út á plötu. Myndbandið er svo væntanlegt innan tíöar. Á íslensku tónlistarhátíðinni, sem haldin er í Laugardalnum þessa helgi, kennir ýmissa grasa. Einn af þeim viðburðum sem vakið hafa hvað mesta athygli er endurvakning Þursa- flokksins eftir væran svefn síðan í ár- daga ‘81. Þursaflokkurinn mun halda þessa einu tónleika og síðan ekki sög- una meir „nema eitthvað sérstakt gerist", að því er Egill Ólafsson tjáði blaðamanni DV. Hér er því um ein- stæðan tónlistarviðburð að ræða og bætist Þursaflokkurinn þar með í hóp hljómsveita á borð við Utangarðs- menn og Stuðmenn sem báðar hafa gengið aftur og þanið hljóðfæri og barka sem aldrei fyrr. Er von manna að það sama verði uppi á teningnum þegar Þursar skemmta landsmönnum í Laugardalnum í kvöld. DV fór á stúfana og kannaði ástæður þessarar óvæntu endurvakingar. Stuðmenn og Þursar ekki sama tóbakið Að sögn Egils, söngvara og for- sprakka Þursaflokksins, réð tilviljun ein þvi að Þursaflokkurinn ákvað að koma saman að nýju. „Þetta eru allt flinkir hljóðfæraleikarar og hug- myndin var að leika eldra efni í bland við nýtt efni sem ég mun gefa út á plötu," segir Egill og líkir nýju tón- listinni við framhald af plötunni Tifa tifa sem hann gaf út á sínum tíma. En hver er munurinn á Stuðmönn- um og Þursaflokknum. Er ekki sama mannaskipan í báðum hljómsveitum? „Þetta er auðvitað tvennt ólíkt. Mannaskipan er sú sama að því leyti að Ásgeir, Tómas og Þórður og ég vorum allir í Stuðmönnum. Upplegg- ið er hins vegar af allt öðrum þræði,“ segir Egill líkir þessu við muninn á kammersveit og sinfóníuhljómsveit. Þursaflokkurinn var geipivinsæll meðan hann var og hét. Hljómsveitin varð ekki langlíf - stofnuð 1977 og hóf spilamennsku ‘78 og fram til ‘81. Hins vegar voru Þursarar mjög virkir og spiluðu landshoma á milli í hvaða veðri sem er. „Við spiluðum náttúr- hefur ein einasta mynd af Geysi í Hauka- dal verið birt í kynningarbæklingi um ís- land eða auglýsingapésa fyrr en búið var að fremja á honum framangreind spjöll. Goðsögnin um Geysi er þessvegna lygi og í hartnær öld hefur hann aðeins gosið fyrir atbeina atorkumanna einsog Jóns frá Laug, Sigurðar Greipssonar og síðast Hrafns Gunnlaugssonar. Þegar þessir menn fréttu að Geysir í Haukadal væri náttúruundur sögðu þeir sem svo: - Náttúruundur er ekki náttúruundur nema það sé náttúruundur. Geysir er ekki náttúruundur þegar hann gýs ekki heldur þegar hann gýs. Náttúruverndarráð virðist hins vegar á öðru máli því nú hefur veriö lagt blátt bann við náttúruspjöllum á við þau að láta Geysi gjósa með hefðbundnum hætti og einsog ferðamönnum hefur verið lofað i litríkum bæklingum. Það flokkast undir náttúruspjöll að létta vatnsfarginu af hvernum fyrir gos. Náttúruverndarráð verður að gera sér ljóst að mörg af undrum veraldar verða ekki lýðum ljós fyrr en spjöll hafa verið á þeim framin. Tökum til dæmis sardínu- dós. Einskis unaðar verður af sardínudós notið né skyggnst í leyndardóma hennar fyrr en friðhelgi hennar hefur verið rofin og hún spjölluð. Sama má raunar segja um konuna. Kona sem ekki má spjalla hef- ur lítið gildi eða tilgang í mannlegu sam- félagi. Eða sviðakjammi. Er hægt að hugsa sér nokkuð tilgangslausara eða hjákát- legra en friðhelgan sviðakjamma? Hann hefur í mesta lagi, líkt og friðhelg kona.ör- lítið fagurfræðilegt gildi og búið. Hann hefur hvorki notagildi né næringargildi. En um leið og friðhelgi sviðakjammans hefur verið rofin og hann spjallaður verð- ur hans notiö til þeirrar fullnustu sem að- eins sviðakjammi getur veitt. Sama má raunar segja um sardínudós- ina, konuna og Geysi. Flosi lega mjög stíft. Við gerðum einnig mikið af því að ferðast úr skóla í skóla og spila á skemmtunum," segir Egill hefur m.a. í hyggju að frum- flytja nýtt efni sem hann líkir viö eins konar framhald af plötu sinni Tifa tifa. Egill um spilaárin með Þursum. Fímmta þursaplatan á leíð- innl? Þursaflokkurinn var þó langt frá því að vera venjulegt dansband og var ein af fyrstu hljómsveitum lands- ins til að gera tónleikahald að aðals- merki sínu á meðan aðrar hljómsveit- ir spiluðu á böllum og héldu uppi sveitaballastemningu. Á þeim tima þótti það líka merkilegt þegar Þursa- flokkurinn fékk fyrst hljómsveita að halda tónleika i Þjóðleikhúsinu sem teknir voru upp og gefnir út á plötu. Alls gáfu Þursar út 4 plötur og sú fimmta var meira að segja í vinnslu þegar hljómsveitin hætti. En er von til þess að rykið verði dustað af gömlu ókláruðu efni og fimmta platan líti dagsins ljós? „Nei, ekki held ég það nú,“ segir Egill nokkuð viss í sinni sök og ítrek- ar að aðeins verði haldnir einir tón- leikar. -KGP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.