Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Blaðsíða 30
30 Helgarblað LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 I>V Immmsim Myrtur af mafíunni: Bankamaður páfa fannst hengdur Roberto Calvi var kallaður víxl- ari Herrans vegna f]ármálasam- bands síns við páfagarð. Sumarið 1982 fannst hann látinn undir einni brúa Thamesár í London. Kringum- stæðurnar þóttu dularfullar. Flestir voru þeirrar skoðunar að hinn valdamikli bankastjóri stærsta einkabanka Ítalíu, Banco Ambrosi- ano, hefði verið myrtur. Calvi var einn af stóru spútník- unum í alþjóðlega fjármálaheimin- um. Hann var bankastjóri Banco Ambrosiano og páfagarður stóð í milljónaviðskiptum við hann. Því miður reyndist Calvi ekki trausts- ins verður. Gífurlegar fjárhæðir hurfu úr bankanum og meö þeim hvarf einnig Calvi. Hann flýði frá Róm til London án þess að greina frá hvað hefði orðið af peningunum. Nú sat hann örvæntingarfullur og dauðhræddur í lítilli íbúð í London. Þetta var 17. júní 1982 og Calvi bjóst á hverri stundu við að barið yrði að dyrum eða aö síminn myndi hringja. Hann var ekki hræddur við lögregluna. Hún gæti í mesta lagi sett hann í fangelsi. Það voru aðrir á eftir honum. Þeir myndu drepa hann með köldu blóði til þess að koma i veg fyrir að hann greindi frá leyndarmálum. Fannst hengdur Klukksm 8 um morguninn daginn eftir sá vegfarandi mann hanga frá vinnupalli undir Blackfriarsbrúnni yfir Thamesá. Lögreglan tók mann- inn niður. I ljós kom aö hinn látni var Roberto Calvi. Dánarorsök var kyrking og hafði Calvi látist á milli klukkan 2 og 6 aðfaranótt 18. júní. í fyrstu var talið að Calvi hefði hengt sig en fljótlega vaknaði grun- ur um að hann hafði verið kyrktur Stórmeistarinn Licio Gelli var leiötogi leynireglunrtar P-2 á Ítalíu. Hann hlaut langan fangelsisdóm. því að hann virtist hafa verið bund- inn við verkpallinn. Calvi hafði verið félagi í hinni al- ræmdu P-2 frímúrarareglu sem síð- ar var bönnuð. Margir nánustu vina Calvis voru einnig í reglunni. Með- al þeirra var stórmeistari reglunn- ar, gamall fasisti og alkunnur glæpamaður, Licio Gelli. í reglunni var einnig guðfaðir Calvis frá Sikiley, Michele Sindona, sem var þekktur fyrir að hvítþvo peninga fyrir mafluna. Hann hafði fjárfest í eigin banka páfagarðs og hann hafði kynnt Calvi fyrir stjórnanda hans, Paul Marcinkus, sem var valdamik- ill kardínáli. Górillan í páfagaröi Marcinkus, sem gekk undir við- umefninu górillan vegna stærðar sinnar og starfs sem nokkurs konar lífvörður páfa, var frá Chicago, heimkynnum Als Capones. Hann var síðar ákærður fyrir banka- svindl en vegna stöðu sinnar í páfa- garði naut hann friðhelgi og þvi var ekki hægt að sækja hann til saka. Daginn áður en Calvi lést hrapaði ritari hans, Graziella Corrocher, til bana frá glugga í aðalstöðvum Banco Ambrosiano. Dauðsfóllin tvö urðu streix tilefni til vangaveltna. Féll ritarinn eða var henni hrint? Frímúrarareglan í London er með aðsetur í Blackfriarshverfinu. Menn veltu því fyrir sér hvort það væri einhver dulinn boðskapur í því að Calvi skyldi finnast undir Blackfri- arsbrúnni. Það þótti ekki útilokað. í gömlum refsiákvæðum frímúrara- reglunnar er gert ráð fyrir að svik- arar séu látnir drukkna við sjávar- föll. Vasar Calvis höfðu auk þess verið fylltir þungum steinum en það Ryk burstaö af kistunni Leone Calvi horfir á þegar kirkjugarösmenn bursta ryk af kistu bróöur hans, Robertos Calvis, I kirkjugaröinum í Drezzo á Ítalíu. Roberto Calvi Bankamaöurinn flúöi til London. Þar mættu honum grimmileg örlög. Blackfriarsbrúin Undir þessari brú fannst bankamaöur páfa hengdur. er einnig tákn frímúrara um svik. Kvöldið fyrir dauða sinn hafði Calvi hringt í Clöru eiginkonu sina og sagt að hann byggi yfir upplýs- ingum sem gætu leitt til þriðju heimsstyrjaldarinnar. Hann bætti því við að menn myndu örugglega reyna að stöðva hann. „Þeir kunna að drepa mig í því skyni,“ bætti hann við. Það voru ekki bara frímúraramir sem vissu að Roberto Calvi var í London. Nokkrir þeirra höfðu reyndar hitt hann í íbúðinni kvöld- „Hann var ekki hræddur við lögregluna. Það voru aðrir á eftir honum. Þeir myndu drepa hann með köldu blóði til þess að koma í veg fyrir að hann greindi frá leyndarmálum." inu áður. Mafian vissi einnig um dvalarstað Calvis og lögreglan vissi um hann. Alþjóðalögreglan hafði lýst eftir honum. Myrtur af mafiunni Haft er eftir heimildarmanni inn- an Scotland Yard að allt bendi til þess að Calvi hafi verið á flótta. Það er kenning lögreglunnar að hvorki P-2 reglan né aðrir frímúrarar hafi myrt Calvin heldur mafian. Hún hafi viljað koma í veg fyrir að hann greindi frá því hvar horfnu milljón- irnar væru faldar. Því næst hafi mafían sett á svið sjálfsmorð í stíl frímúrara til þess að leiða lögregl- una á villigötur. Þetta kemur heim og saman við það sem uppljóstrari innan mafi- unnar, Francesco Mannoia, tjáði bandarísku alríkislögreglunni í New York. Hann fullyrti að foringi fXSm Altafonteættarinnar á Sikiley hefði myrt Calvi með aðstoð þriggja ann- arra mafiósa frá Palermo. Samkvæmt Mannoia var vit- neskja hans um fjárfestingar mafí- unnar hættuleg. Mannoia greindi frá því að stórmeistari P-2 reglunn- ar, Licio Gelli, og gjaldkeri mafi- unnar hefðu haft samvinnu um að leggja inn milljónir dollara inn í banka Calvis. Árið 1992 mætti Gelli örlögum sínum. Dómstóll í Mílanó dæmdi hann í 18 ára fangelsi fyrir efnhags- brot í tengslum við hrun Banco Ambrosia skömmu eftir andlát Cal- vis. Tapið nam rúmlega 1 milljarði dollara. Margir aðrir þekktir fjár- málamenn, um 30 talsins, voru einnig dæmdir. Enginn af gjaldker- um mafíunnar kom fyrir rétt. Grafhvelfíng opnuö í desember 1998 fengu synir Cal- vis því framgengt aö kistan með jarðneskum leifum hans var flutt frá Drezzo í norðurhluta Italíu til stofnunar réttarlækna i Mílanó. Þar átti að rannsaka líkið á ný til að ganga úr skugga um dánarorsök. í ljós komu áverkar á líkinu sem bentu til að einhverjir hefðu átt við það, einkum þegar verið var að fylla vasa Calvis af steinum. Erfðaefni úr öörum en Calvi sjálfum fundust einnig á líkinu. Kaupsýslumaður frá Sardiníu og austurrísk ástkona hans, sem fóru með Calvi til London, og tveir mafiuforingjar voru ákærðir vegna morðsins. Kvennamorðingfarnir Skelfing ríkti í Los Angeles vegna fjölda morða á ungum komnn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.