Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 9
9 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 DV Fréttir Góður árangur í síld og loðnu gleymist þegar rætt er um ofmat á þorskstofni: Umhverfisbreytingar örlagavaldur þorsksins DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON Meirap rófsnámskeið • leigubifreið • vörubifreið • hópbifreið □KUSKÖLI SIMI 5811919 AUKIN OKURETTINDI LEICUBIFREID - VÖRUBIFREID - HÚPBIFREIÐ ð0t-ö HÁÞRÝSTI DÆLUR - fyrir heimilið 'cf RAFVER SKEIFUNNI 3E-F • SlMI 581 2333 ■ FAX 568 0215 rafver@simnet.is Heiðursfólk á hátíðisdegi Gestur Kristinsson, hreppstjórí í fyrr- um Suöureyrarhreppi, Hólmberg Ara- son heiöurssjómaöur og Anna María Guöjónsdóttir, barnabarn Hólm- bergs. Farsæll sjómaður heiðraður DV, SUÐUREYRI:_________ Gjarnan eru aldraðir sjómenn heiðraðir á sjómannadaginn. Við sjómannaguðsþjónustu í Suðureyr- arkirkju sæmdi Kristinn Gestsson Hólmberg Arason heiðursmerki sjómannadagsins á Suðureyri. Hólmberg stundaði lengi sjó frá Suðureyri, var vélstjóri en lengst af skipstjóri á fjölda skipa af margs konar gerðum. Hólmberg var lán- samur og farsæll á ferli sínum. Hann flutti til ísafjaröar fyrir all- nokkru og hefur búið þar síðan en honum þótti mikiö til um þann heiður er honum var sýndur af sín- um gömlu grönnum. Það setti hátíðlegan svip á at- höfnina að þegar henni lauk lék ungt barnabarn Hólmbergs, Anna María Guðjónsdóttir, á þverflautu lagið Kvöldsiglingu eftir Gísla Helgason. Lagið er nátengt sjó- mannadeginum, því það var samið undir hábungunni á Heimakletti daginn eftir sjómannadag árið 1980. -VH Siggi Sveins veiddi fyrsta laxinn „Laxinn negldi sig á fluguna og þetta var skemmtileg barátta, hanr. tók fluguna Snældu, “ sagöi Siguröur Valur Sveinsson en hann veiddi fyrsta laxinn í Laxá á Ásum þetta sumariö. Þrír laxar hafa veiöst i ánni og enginn þeirra er lúsugur. Jakob Jakobsson, fiskifræðing- ur og fyrrverandi forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, hefur aö undanförnu tek- ið þátt í síldar- rannsóknarleið- angri Árna Frið- rikssonar RE. Hann segist ekki geta metið skýrslu stofnun- arinnar um afla- jakob horfur á næsta Jakobsson. fiskveiðiári að verðleikum þar sem hcinn hefur verið fjarri rann- sóknunum á þorskinum sl. 2 ár. Jakob segir að ofmat megi hugsan- lega rekja til minna skarks og auk- innar sóknar í Barentshaf og straumaskil séu ekki jafn skörp og áöur sem valdi því að þorskurinn safnist ekki eins i torfur og áður. Afli hafi aukist í net fyrir nokkrum árum, stærri fiskur veiddist og möskvastærð var auk- in úr 7 tommum í 10 tommur og það hafi villt mönnum sýn að mik- ið af 7 til 8 ára fiski var að veiðast. Allt í einu hafl tekið fyrir þann afla, aftur hafi 3 til 5 ára fískur verið uppistaðan í aflanum. Það sé úti í hött að grisja stofn- inn eins og sumir vilja því það vanti í dag stóra fiskinn þar sem búið sé að veiða hann. Það sé hins vegar ábyrgðarleysi að geta sér þess til að fiskurinn haldi sig ein- hvers staðar annars staðar, t.d. við Grænland eða í Barentshafi. Stóri fiskurinn komi upp á grunnið til að hrygna og haldi sig síðan á dýpra vatni svo spurningin er hvort ekki þurfi þá að finna þann fisk á dýpra vatni, jafnvel fyrir utan landgrunnið, sé hann til. „Það hafa orðið umhverfisbreyt- ingar í hafinu sem hafa áhrif á þorskinn, meira flæði af Atlantssjó hingað, hann er hlýrri og saltari en það hefur áhrif á neðri þrepin í fæðukeðjunni. Aðstæður í lífríki sjávar eru hagstæðar sem ættu að valda því að þorskstofninn nái sér fljótt aftur. Ég er hins vegar hálf- aumur yfir því hvað lítið er sagt frá árangri í síld og loðnu því eng- inn viðsnúningur hefur verið þar undanfarin ár og kvótinn að aukast. Þegar síldin var friðuð árið 1970 var stofninn 12.000 tonn, eða tvær góðar torfur, en í dag er síldarstofninn 500 þúsund tonn. 65 til 70% sildaraflans í dag fara í bræðslu sem ég tel vera allt of hátt hlutfall. Norðmenn nýta mun hærra hlutfall af sínum síldarafla til manneldis en þrátt fyrir þá staðreynd hefur ekki tekst að hækka hlutfallið hérlendis. En með þverrandi þorskafla eykst kannski skilningur sjávarútvegs- ins á því að nýta meira af síld og loðnu til manneldis," segir Jakob Jakobsson. -GG Vegleg hátíðahöld í Ólafsvík á sjómannadaginn: Sjómannskonur sigursælar Höfum ákveðið að veita allt að 25% afslátt af næsta námskeiði! Missið ekki af þessu einstaka tilboði! Námskeiðið hefst föstudaginn 15. júní kl. 18. Aukin réttindi = auknir atvinnumöguleikar Skráningar í símum 581 1919, 892 4124 og 822 3810. Visa- og Euro-raðgreiðslur til allt að 36 mánaða. DV, ÓLAFSVÍK: Sjómannadagurinn í Ólafsvík fór fram í blíðskaparveðri á laugardag og sunnudag. Á laugardeginum var keppt í hefðbundnum greinum eins og kappróðri, trukkadrætti og hlaupum. Sjómannskonur sigruðu bæði í kappróðri og kassaralli. Skipshöfnin á Gunnari Bjarnasyni SH var einnig sigursæl. Hún tók svo fast á í kappróðrinum að ár brotnaði hjá henni en sigraði samt og einnig í trukkadrættinum. Á sunnudagsmorguninn var farið í skemmtisiglingu á Steinunni SH og Aðalvíkinni SH og fóru um 200 manns með. Eftir hádegið hófst dag- skráin í Sjómannagarðinum með ræðu Ásgeirs Jóhannessonar. Tveir sjómenn voru heiðraðir, þeir Leifur Halldórsson, skipstjóri og fram- kvæmdastjóri, og Kristján Helgason hafnarvörður. Þá fékk Torfi Sigurðs- son heiðursorðu sjómannadagsins fyrir björgun úr sjávarháska. Börn Alberts Jóhannessonar, sjómanns úr Ólafsvík, en hann lést fyrr á þessu Fjölmennt sjómannahóf var um kvöldið á Klifi með heimatilbúnum skemmtiatriðum. Sjómenn gleyma ekki konum sínum á sjómannadag- inn og þeim konum sem gera þeim vel en tvær sjómannskonur voru heiðraðar af þeim. Það voru þær systur Jenný og Metta Guðmunds- dætur og var þeim klappað lof í lófa vel og lengi. Dansað var fram undir morgun. -PSJ Sjómannkonur í Olafsvík tóku vel á /' trukkadrættinum og hérgetur aö líta sterklegt liö. ári, færðu sjómönnum í Ólafsvík veglega styttu úr gifsi sem hann gerði sjálfur og er hún af sjómanni. Unglingahljómsveitir léku á milli atriða í Sjómannagarðinum. Messa var í Ólafsvíkurkirkju og var hún mjög fjölmenn. Lilja Stefánsdóttir flutti frábæra stólræðu og Erla Höskuldsdóttir flutti frumsamið lag eftir Sigurð bróður sinn sem einnig lék undir ásamt Aðalsteini Kristó- ferssyni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.