Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 13
13 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001_________________________________________________________________________________________________ DV Útlönd Fögnuður og gagnrýni eftir aftöku McVeighs Fyrrverandi Argentíunforseti Carlos Menem situr nú í stofufangelsi í höll sinni. Hryðjuverkamaðurinn Timothy McVeigh var tekinn af lífi með eit- ursprautu í Indiana um hádegisbil- ið i gær. 30 manns voru viðstödd af- tökuna og þar af 10 fjölmiðlamenn. Þeir gáfu út yfirlýsingu að aftök- unni lokinni og lýstu því sem har fyrir augu. McVeigh heitinn var yf- irvegaður i ferlinu sem miðaði að lífláti hans og hann sýndi mikinn samstarfsvilja. Hann hafði áður lýst yfir vilja sínum til að vera tekinn af lífi og fylgdi honum í verki þegar hann kom sér sjálfur fyrir á bekkn- um þar sem hann var ólaður niður og sprautaður eitri. Aftakan frestað- ist um nokkrar mínútur vegna erf- iðleika við að koma á sjónvarpssam- bandi við 230 aðstandendur fórnar- lamba sem fylgdust með frá Okla- homa. McVeigh var þögull og gaf ekki út yfirlýsingu fyrir aftöku sína. Hins vegar veitti hann fjölmiðlum skrif- lega yfirlýsingu sem reyndist vera afritun af ljóðinu Invictus eftir Göran Persson Forsætisráöherra Svíþjóðar segir taf- ir kunna veröa á stækkun ESB. Nei á írlandi hindrar ekki stækkun ESB Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í gær að tafir kynnu að verða á stækkun Evrópu- sambandsins, ESB, í kjölfar höfnun- ar íra á Nice-sáttmálanum. Úrslitin myndu hins vegar ekki koma í veg fyrir stækkun. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar verður eitt aðaldagskrárefn- anna á leiðtogafundi ESB í Gauta- borg í vikunni. Utanríkisráðherrar ESB hétu því í gær að aðstoða írsku stjórnina við að finna leið til að staðfesta sáttmálann. Utanríkisráð- herra írlands, Brian Cowan, sagði að ekki mætti líta á niðurstöðuna sem svo að írar hefðu neitað stækk- un. Það væru önnur ákvæði í sátt- málgnum sem þeir væru andvígir. Prodi, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir nauðsynlegt að skil- greina betur innihald sáttmálans. Perónistar berj- ast gegn hand- töku Menems Perónistaflokkurinn í Argentínu, sem er í stjómarandstöðu, lýsti því yfir í gær að barist yrði af hörku gegn handtöku Carlos Menems, fyrrverandi forseta, sem hnepptur var í stofufangelsi í síðustu viku. Menem er grunaður um ólöglega vopnasölu til Ekvador og Króatíu. Perónistarnir saka rannsóknardóm- arann, Jorge Urso, um að ofsækja forsetann fyrrverandi. Stuðningsmenn forsetans söfnuð- ust saman um helgina fyrir utan höllina þar sem hann situr í stofu- fangelsi og sögðust vera í stríði. Báru þeir handtökuna og yfirvof- andi réttarhöld saman við örlög Ju- ans Perons, stofnanda flokks þeirra. Múrmanskbúar missa fiskinn sinn til Noregs Fyrir 10 árum höfðu um 6 þúsund manns störf við fiskvinnslu hjá Rybokombinat í Múrmansk. Nú starfa þar 148 og framtíðin er óljós. „Rússneskir togarar landa afla sínum í Noregi. Við höfum ekki fé til að kaupa hráefni," segir aðstoð- arforstjórinn, Khusein Maltsagov, í viðtali við norska blaðið Aftenpost- en. Rússamir reyna að kaupa þær fisktegundir sem minnst er greitt fyrir í Noregi, eins og loðnu, sild og ufsa. Þorsk, sem áður var aðalhrá- efnið, hafa þeir ekki séð í mörg ár. Þegar Sovétríkin leystust upp var Rybokombinat einkavætt og skipt í níu einingar. Flestar eru nú gjald- þrota. Barbara og Jenna Bush Útvarpsstöð í Kanada býöur þeim að koma til Alberta og detta í það þar. Boðið til Kanada til að drekka þar A flótta undan flóöum Hitabeltisstormurinn Allison hefur látið að sér kveða í suðurríkjum Bandaríkjanna síðustu daga. Þúsundir þurftu að flýja heimili sín og óbætanlegt tjón varð þegar flóðin æddu yfir alþjóðlega miðstöð læknavísinda í Houston Gífurlegar rigningar í suðurríkjunum DV. TALLAHASSEE___________________ „Þetta er mesta úrkoma sem ég hef séð í 10 ár,“ sagði Hilmar Skag- field, aðalræðismaður íslands á Flórida i samtali við DV í gærkvöld. Látlaust hefur rignt í suðurríkj- um Bandaríkjanna undanfarna daga. í Texas hafa á annan tug manns farist í rigningunum, sem fylgja hitabeltisstorminum Allison. í gær færðist veðurofsinn austur á bóginn yfir Mississippi-ána yfir til Alabama og Flórída. Hilmar ræðismaður stóð i ströngu á heimili sínu í Tallahassee í gær þegar allt fór á flot og sund- laug hans flæddi yfir bakka sína. Kalla varð til aðstoð til að vatn flæddi ekki inn í hús hans og Krist- ínar konu hans. Úrkoman reyndist vera um 30 sentímetrar á einum og hálfum tíma og gekk á með þrumum og elding- um. „Hér hafa verið þurrkar um langt skeið svo við vorum farin að hafa áhyggjur. Vart hefur komið dropi úr lofti í tvo mánuði en síðan opn- uðust flóðgáttir himins. Öllu má nú ofgera," sagði Hilmar eftir að stytti upp seint í gærkvöld. Afleiðingar flóðanna hafa tekið á sig ýmsar myndir en skaðinn af þeirra völdum nemur hundruðum milljarða króna. í Houston varð óbætanlegt tjón þegar um 32 þúsund tilraunadýr drukknuðu og verð- mætar rannsóknarskýrslur og sýni töpuðust í Texas Medical Center. Þetta er áfall fyrir læknávísindin í heiminum og er talið geta frestað því að ákveðin lyf komi á markað um mörg ár. Þá þurfti að flytja burt sjúklinga frá sjúkrahúsum í borg- inni sem fræg eru fyrir meðhöndlun sína á krabbameini og hjartasjúk- dómum. -rt Kanadísk útvarpsstöð hefur boðið tvíburadætrum Georges W. Bush Bandaríkjaforseta, Jennu og Bar- böru, til Kanada um helgi til að drekka þar. Tvíburasysturnar, sem eru 19 ára, hafa verið ákærðar fyrir brot á áfengislöggjöfinni í Texas þar sem áfengisdrykkja undir 21 árs er ólögleg. i Alberta, þar sem útvarps- stöðin er, er þeim sem eru 18 ára og eldri heimilt að hafa áfengi um hönd. Plötusnúðurinn á útvarpsstöð- inni sagði að reyndar yrði ekki send forsetaþota eftir systrunum heldur myndi stöðin borga farmiðana fyrir þær. Tvíburamir gætu fengið gist- ingu í forsetasvítu á hóteli sem reiðubúið er að taka á móti þeim. Tekið var fram að leyniþjónustu- menn, sem gæta systranna, yrðu að sjálfir að greiða sína miða. ^RAFVER SKEIFUNNI3E-F - SÍMI 58t 2333 FAX 568 0215 rafvengsimneLís Aftökunni fagnaö Aðstandendur fórnarlamba hryðjuverkamannsins Timothys McVeighs töldu niður að fyrirhuguðum aftökutíma hans og fögnuðu, líkt og á áramótum. breska 19. aldar skáldið William Emest Henley. Þar segist hann vera „meistari örlaga sinna“ og „höfð- ingi sálar sinnar". Hann horfði i augun á viðstöddu gölmiðlafólki, hverju af öðru. Fréttamaður Sky- sjónvarpsstöðvarinnar orðaði það sem svo, að ekki væri annað hægt en að dást að því hvernig hryðju- verkamaðurinn tæki dauða sínum, óháð illvirkjum hans. McVeigh hitti kaþólskan prest fyrir aftökuna en hann hafði lýst sig efasemdarmann í trúmálum. Ekki er vitað hvað fór í millum þeirra. Aðstandendur fórnarlamba McVeighs fögnuðu flestir aftökunni og sumir þeirra brugðu á það ráð að telja niður og fagna atburðinum, líkt og í áramótafagnaði. George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði aftök- una ekki vera verknað hefndar heldur réttlætisins. Hörð gagnrýni á aftökuna heyrðist frá Evrópu og er talið að hún muni skyggja á fundi Bush með fulltrúum ESB í vikunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.