Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 29
37 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001_____________________ I>V Tilvera Bíofrettir Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum: John Travolta réttir úr kútnum Kvikmyndir með John Travolta hafa ekki átt upp á pall- borðið hjá biógest- um undanfarin misseri og út yfir allt tók svo þegar hann sendi frá sér framtíðarmyndina, Battlefield Earth, sem verður að telj- ast meðal mestu „floppum" kvik- myndasögunnar. Það eru samt margir sem hafa enn trú á Travolta og meðal þeirra er framleiðandinn Joel Silver sem lék hann fá aðalhlutverkið í Swor- dfish, rándýrri spennumynd sem frumsýnd var um síðustu helgi og þó dómar hafi ekki verið sérstakir þá hafa áhorfendur flykkst á mynd- ina og trónar hún í efsta sætinu þessa vikuna. Teiknimyndin Shrek heldur öðru sætinu og verður örugglega meðal vinsælustu kvik- mynda ársins. Pearl Harbor er aftur á móti að missa flugið og ljóst er að draumur Jerry Bruck- heimers um að hún muni ná Titan- ic að vinsældum rætist ekki. Hún er þó enn í ágætri aðsókn enda veitir ekki af ef á að ná upp í kostnaðinn. í fjórða sæti er svo ný kvikmynd, Evoloution, með David Duchovny i aðalhlutverki. Swordfish John Travolta leikur njósnara sem kallar ekki allt ömmu sína. HELGIN S. 10. junt ALLAR UPPHÆÐIR I ÞUSUNDUM BANDARIKJADOLLARA. SÆTI FYRRI VIKA TITILL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍOSALA O Swordfish 18.145 18.145 2678 o 2 Shrek 16.520 176.069 3715 o 1 Pearl Harbor 14.721 143.987 3255 o Evolution 13.408 13.408 2611 o 3 The Animal 9.607 35.651 2788 o 4 Moulln Rouge 7.649 27.569 2283 o 5 What the Worst That Could ? 5.476 22,397 2676 o 6 The Mummy Returns 4.700 188.749 2539 o 7 A Knight’s Tale 1.702 52.660 1850 © 8 Bridget Jones Diary 1.145 67.350 975 © 10 Memento 741 17.271 452 © 9 Angel Eyes 547 23.021 1003 © Atlantis: The Lost Empire 329 329 2 © 11 Along Came a Spider 301 72.414 526 0 15 O Brother, Where Art Thou? 240 44.639 336 © With a Friend Like Harry..... 183 2.059 99 © 19 Save the Last Dance 180 90.467 243 © 12 Spy Kids 172 106.262 467 © 18 Crouching Tiger, Hidden Dragon 164 127.440 229 © 16 Crocodile Dundee in Los Angeles 159 24.577 410 Vinsælustu myndböndin: Vestraútgáfa af grískri klassík FYRRI Hin ljúfa fjölskyldumynd The Family Man var ekki nema eina viku í efsta sæti listans. 0 Brother, Where Art Thou leysti hana af hólmi. Um er að ræða nýjustu kvik- mynd bræðranna Joels og Ethans Coen og hefur hún sem fyrri myndir þeirra vakið mikla athygli og fengið góða dóma hjá gagnrýnendum. í myndinni segir frá því þegar þrír samhlekkjaðir fangar strjúka úr fangavist með það fyrir augum að nálgast þýfi sem einn þeirra, Ulysses Everett McGill (George Clooney), hefur falið heima hjá sér. Handrit- ið er lauslega byggt á Ódysseifskviðu Hómers og Ódysseifur- inn Everett og félagar hans þurfa líkt og fyr- irmyndin að kljást við hinar ýmsu hindranir til þess að ná mark- miði sínu. Fangarnir þrír lenda í hverju æv- intýrinu á fætur öðru og þurfa meðal annars að eiga við þokkafullar stúlkur, eineygðan biblíusalakíklópa, of- urviðkvæman banka- ræningja og Ku Klux Klan hjörð. Tónlistin i 0 Brother, Where Art Thou hefúr hlotið miklar vinsældir og platan alls staðar selst vel, meðal annars hér á landi. 0 Brother, Where Art Thou Fangarnir Pete Delmer og Ulysses á flótta. SÆTI VIKA TITILL (DREIFINGARAÐIU) áusta Q 2 0 Brother, Where Art Thou iháskólabíó) 3 i e 1 The Family Man isam myndbönd) 2 | e 3 Bedazzled (skífanj 4 o _ The 6th Day iskífan) 1 © 4 Little Nicky (myndform) 2 i © 5 Charlie's Angels iskífan) 6 & 6 Space Cowboys isam myndbönd) 3 & _ The Replacements isam myndbönd) 1 ‘ Q 7 Bring It On (sam myndbönd) 4 | © 9 Art of War imyndformí 8 I © 8 Dr. T and the Women (myndform) 4 12 Woman on Top (skífan) 3 : © 14 What Lies Beneath (skífan) 9 © 15 Gun Shy (am myndbönd) 6 1 O 13 Shriek If You Know... imyndform) 5 19 Loser (skífan) 10 | © 17 Blair Witch 2 isam myndbönd) 2 © 16 Shaft (sam myndbönd) 10 j 11 The Nutty Professor II iam myndbönd) 7 j 18 Autumn In New York (háskólabíó) 7 j DV-MYND EINAR J Faxhundur í góðum höndum Edda Fanney Ágústsdóttir með faxhundshvolp í fanginu en þeir tilheyra flokki smáhunda og eru að miklu leyti hárlausir. Hundakúnstir í Mosfellsbæ - fyrsta alþjóðlega sýning íshunda Iþróttahús Mosfellsbæjar var troðfullt af loðnum ferfætlingum af öllum stærðum og gerðum á laugar- daginn en þar héldu íshundar al- þjóðlega hundasýningu. Þetta er fyrsta sýning félagsins en það var stofnað i fyrra. Ljósmyndari DV kom við í Mosfellsbænum og smellti af nokkrum myndum af hundum og mönnum. Myndarlegur boxari Elvar Jóhannsson ásamt boxer- hundinum Skara sem ekki er nema rétt rúmlega eins árs þrátt fyrir að hann sé þegar orðinn all- stór og stæðilegur. Hundar og fólk Hundur á hund ofan Hundarnir sem sýndir voru í Mosfellsbænum voru af Nokkrir hundar af boxer-tegund leika sér undir vökulu ýmsum tegundum. auga eigenda sinna. < Dansað á götunni - dansleik slegið upp á Ingólfstorgi DV-MYNDIR EINAR J Danslnn dunar á Ingólfstorgi Samtökin Komið og dansiö slógu upp dansiballi á Ingólfstorgi á sjó- mannadaginn þar sem hresst fólk á öllum aldri skemmti sér og öðrum meö því aö stíga nokkur vel valin spor. Þeir sem áttu leið um Ingólfstorg á sunnudaginn gafst sjaldgæft tæki- færi til að stíga nokkur dansspor í sumarblíðunni. Boðiö var upp á dansa við allra hæfi, allt frá línu- dansi upp í polka. Þarna var á ferð- inni félagsskapurinn Komið og dansið en það eru samtök fólks sem vill auka almenna þátttöku og áhuga á dansíþróttinni. „Tilgangur- inn með þessari uppákomu er að fá svolítiö líf í miðbæinn og vekja at- hygli á dansíþróttinni," segir Bjami Rúnar Þórðarson, formaður Reykja- víkurdeildar Komið og dansið. Að sögn Bjama hefur félagið staðið fyr- ir sams konar danskynningu und- anfarin sumur og verður leikurinn endurtekinn 24. þessa mánaðar svo að þeir sem misstu af dansiballinu nú um helgina þurfa ekki að ör- vænta. Einnig hefur félagið staðið fyrir vikulegri danskennslu og æfingum í félagsheimili sínu en eitt af megin- markmiðum félagsins er að fá fólk, sem ekki dansar að öllu jöfnu, til að skella sér út á gólfið. Um 50 til 80 manns sækja æfmgamar hverju sinni og hefur yngra fólki fjölgaði, að sögn Bjarna. Þá hefur Komið og dansið staðið fyrir hvítasunnuferð í Galtalækjarskóg á hverju ári og annarri ferð á haustin. Haustferðin í ár verður einkar vegleg en þá er förinni heitið til Færeyja til að dansa og skemmta sér. Tilefnið er ærið en Komið og dansið á tíu ára afmæli í haust. Til að fagna afmæl- inu verður enn fremur slegið upp heljar dansleik á Broadway þar sem fólki gefst tækifæri til að dansa og djamma fram á rauðanótt. -eöj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.