Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 32
HF&var Helgason hf. FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Seðlabankinn: Líkur á að við förum yfir verðbólguþol- mörkin Már Guðmundsson, aðalhagfræð- ingur Seðlabankans, segist telja þó nokkrar líkur á að „við munum fara yfir þolmörkin" svokölluð hvað varðar verðbólgu á næstunni - jafnvel í júní, þó sé ekkert öruggt í þeim efn- um. Efri þolmörk- in í ár eru miðuð við 6 prósent verð- bólgu en langtíma- stefna Seðlabank- ans er að verð- bólga verði sem næst 2,5 prósent. Már segir að hér sé í raun um „verðbólgu- kúf ‘ að ræða vegna lækkunar gengis krónunnar. Hann kveðst telja að á næstu misserum muni verðbólgan síðan hjaðna og fara jafnvel niður að mörkum langtímastefnunnar, í kring- um 2,5 prósent verðbólgu árið 2003. Ástæðurnar fyrir aukinni verð- bólgu að undanfórnu segbr Már liggja í lækkun gengis krónunnar á síðustu mánuðum. Þegar skyggnst sé betur á bak við tjöldin eigi hún einnig rætur að rekja til launahækkana sem á und- anförnum árum hafi verið verulegar umfram framleiðniaukningu. -Ótt Bíll í skurði Tvennt slasaðist lítils háttar þeg- ar bíll lenti utan vegar og hafnaði í djúpum skurði. Óhappið átti sér stað á Biskupstungnavegi undir Ing- ólfsfjalli skömmu fyrir klukkan sjö í gærkvöld. Fólkið var flutt á Heilsu- gæslustöðina á Selfossi en fékk að fara heim að skoðun lokinni. Bill- inn er mikið skemmdur og þurfti kranabíl til að fjarlægja hann. Að sögn lögreglu liggur ekki fyrir hvað olli þvi að ökumaður missti stjórn á bíl sínum með fyrrgreindum afleið- ingum. -aþ Suðurlandsbraut: Tveir slasast í árekstri Harður árekstur fjögurra bíla varð á gatnamótum Suðurlands- brautar og Reykjavegar um kvöld- matarleytið í gær. Lögregla og tækjabíÚ slökkviliðs komu á vett- vang. Ekki þurfti að nota tækjabíl- inn en tveir voru fluttir með sjúkrabifreið á slysadeild. Meiðsl þeirra voru talin minni háttar. Bíl- arnir eru allir mikið skemmdir eft- ir áreksturinn. Lögregla rannsakar tildrög slyssins en talið er aö einn bílanna hafi farið yfir á rauðu ljósi. -aþ Hátíðardagurinn undirbúinn Ungir íslendingar eru í óöaönn aö skreyta borg og bæi fyrir fyrsta þjóöhátíöardag íslendinga á nýrri öld. Moldarbeöin í miðborg Reykjavíkur eru að breyta um svip, fólki til yndisauka. Vinsældakönnun DV: Kemur ekki á óvart - segir ráðherra Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra nýtur nú þess vafasama heiðurs kjósenda að vera þriðji óvinsælasti stjórn- málamaðurinn, næst á eftir Össuri Skarphéðinssyni og Davíð Odds- syni, í skoðana- könnun DV. „Þetta kemur mér ekkert á óvart,“ sagði Árni f morgun. „Það má eiginlega segja að ég hafi átt von á þessu. Menn eru greini- lega ekki á eitt sáttir um sjávarútvegs- málin.“ Ráðherrann var mjög gagn- rýndur fyrir að fresta ekki gildistöku laga um afnám veiðifrelsis smábáta á ýsu, ufsa og steinbít. Nú hefur hann heimilað frjálsar veiðar á steinbít og nýtur síst minni gagnrýni fyrir það. „Ég geri mér grein fyrir því að sú ákvörðun er opin fyrir gagnrýni. Þetta var engin uppáhaldsstaða sem maður var í og ekki margt hægt að gera en mér fannst þetta réttast." -HKr. Nýjustu niðurstöður rannsóknar á campylobacter: Mengun í kjúklingum hefur snarminnkað - búin hrein sl. þrjá mánuði - örlar á mengun við slátrun Campylobactermengun 1 kjúkling- um hefur snarminnkað frá síðasta ári samkvæmt nýjum niðurstöðum rann- sóknar sem staðið hefur yfir frá því í febrúar á sl. ári. Að sögn Jarle Reier- sen, dýralæknis alifuglasjúkdóma, ber að þakka þennan árangur virku eftir- litskerfi en ekki síður kjúklingabænd- um sem hafi lagt sig mjög fram um að hafa framleiðslu sína ómengaða. Niðurstöðurnar sýna að mest mældist mengunin í eldishúsunum í 25,4 prósentum kjúklinga á tímabilinu ágúst og fram í október 1999. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hefur mengun í eldishúsum mælst að meðal- tali í 1,5 prósentum kjúklinga. í byrjun sl. árs kom í ljós að veru- leg krossmengun átti sér stað við slátrun. Með því að raða kjúklinga- hópunum til slátrunar hefur tekist að koma í veg fyrir slíka mengun að verulegu leyti. Mjög strangt eftirlitskerfi er notað nú. Tekin eru sýni af öllum eldishóp- um kjúklinga. Þá eru tekin stroksýni um leið og fuglanir koma í sláturhús. Loks er tekið sýni úr hálsaskinni þeg- ar slátrun hefur farið fram. „Við höfum ekki náð að halda alveg utan um að hreinu hópunum sé slátr- að fyrst,“ sagði Jarle. „Ef menguðum hóp er slátrað í upphafi dags þá er stórhætta á að þeir hópar sem á eftir koma þann daginn krossmengist einnig. Okkur hefur þó að mest tekist að ná tökum á krossmenguninni, þótt einhver tilvik kunni að koma upp endrum og sinnum. Það segir sína sögu að sýkingar af innlendum upp- runa í fólki hafa minnkað um 72 pró- sent á milli ára 1999 og 2000.“ Jarle sagði að erlendir aðilar undr- uðust hversu hrátt hefði tekist að ná campylobactermenguninni í kjúkling- um niður hér á landi. Þar munaði ekki minnst um þá góðu samvinnu sem náðst hefði milli eftirlitsaðila og framleiðenda. Framleiðendur hefðu margir hverjir lagt í mikinn kostnað til að endurbæta bú sín í því skyni að verjast campylobactermengun. Jarle sagði að tæknilega væri erfitt að ná campylobactermenguninni nið- ur á núllið. Hann kvaðst þó vonast til að enn betri árangur næðist í barátt- unni við bakteríuna. Ekki væri full- komlega vitað hvernig campylobacter dreifðist, t.d. hvort bakterían bærist með drykkjarvatni. Nú væri í gangi samstarfsverkefni íslenskra eftirlits- aðila og stofnunar innan bandaríska landbúnaðarráðuneytisins, eins og DV sagði frá, þar sem leitað væri að uppruna og dreifingu bakteríunnar. Markmiðið væri að framleiða ein- göngu kjúklinga sem lausir væru við campylobacter. -JSS Fuglaspá á Kolumbamessu: Hrossagaukar spá ágætis veöri Kolumbamessa var laugardaginn 9. júní sl. og þá var gerð vikuleg veðurspá Þorsteins Þorsteinssonar á Akureyri sem byggir á atferli fugla. Á athugunardegi sungu fugl- ar af hjartans lyst eftir þann aftur- kipp sem gekk yfir á dögunum. Hrossagaukar spá að fyrsta kastið verði ágætis sumarveður í öllum sínum fjölbreytileika. Þá sýndu stelkar með at- ferli sínu að þess eru lítil merki að snöggar veðrabreyt- ingar verði á næstu dögum, því þótt spíknefurinn gefi til kynna að loft gæti korgað sig þegar á líður og smáskúraslettur gangi yfir munu lauka lindir og sverða meiðar verða þokkalega sátt við veðurfar- ið í vikunni. En brandugl- an gamla á Moldhaugna- háli lét sig engu skipta hverjar veðurhorfurnar væru. Hún ýfði aðeins fjaðrirnar og flaug hljóðlausum vængjatökum í átt til hins forna Gásakaupstaðar þar sem fornleifafræðingar munu brátt hefjast handa við uppgröft á hinum merku rústum sem þar eru. Gróa á hjalla grösin smá, grœnka vallarböröin. Nú er falleg sjón aö sjá sól um allan fjörðinn (Magnús Gíslason). Skráð hefur G.J., aöalritari og trúnaðarmaður. -GG - Kemísk WC L - frá 10.900 L, r > EVRÓ Grensásvegi 3 s: 533 1414 Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560 / / / / / / / / / / / ! / / / / / / / / / / / / / / /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.