Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2001, Blaðsíða 24
32 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 HiUÍSUS ■ ■ ■ ■ I wfl ■ tölvui t*kni og vísind Japanir rannsaka áhrif mataræðis á heilsu reykingamanna: Sushi gegn lungnakrabba Reykingamenn sem vilja halda áfram að reykja en jafnframt gera það sem þeir geta til að koma í veg fyrir að fá lungnakrabba ættu að borða mikiö af sushi og ferskum fiski, ef marka má niðurstöður rannsóknar japanskra vís- indamanna. Harðsvíraðir reykingamenn ættu að fjöl- menna á sushi- veitingastaði. Það hefur sem sé komið í ljós að þetta japanska lostæti, sem hefur notið vaxandi vinsælda á Vestur- löndum hin síðari ár, kunni að draga úr hættunni á því að reyk- ingamenn fái lungnakrabba. Visindamenn við Aichi-krabba- meinsrannsóknarstöðina í Nagoya i Japan telja að sushi og ferskur fisk- ur séu ástæðan fyrir því að tíðni Vfsíndamennimír komust að því að fólk sem borðaðí mlkið af ferskum flskí eða sushí var ekki jafnlfklegt til að fá lungnakrabba, Fleiri deyja af hans völdum en nokkurs annars krabbameins, amí»ta»iiiitnffim'naww lungnakrabba er umtalsvert lægri í Japan en í Bandaríkjunum og Bret- landi enda þótt Japanir reyki ekki minna en Vesturlandabúar. Þeir segja frá rannsókn sinni í British Journal of Cancer. „Japönum finnst ferskur fiskur góð- ur, einkum þó sushi,“ segir Toshiro Takezaki prófessor. „Við teljum það vera ástæðuna fyrir því að tíðni lungnakrabba er aðeins tveir þriðju af því sem hún er á Vesturlöndum jafnvel þótt Japanir reyki jafnmikið og fólk í Bretlandi.“ Takezaki og samstarfsmenn hans rannsökuðu matarvenjur íjögur þús- und heilbrigðra manna og eitt þúsund manna með lungnakrabba til að kanna hve mikO áhrif mataræði hefði á sjúk- dóminn. Vísindamennirnir komust að því að fólk sem borðaði mikið af ferskum fiski eða sushi var ekki jafnlíklegt til að fá lungnakrabba. Fleiri deyja af hans völdum en nokkurs annars krabba- meins. Líkumar á að fá lungnakrabba reyndust um helmingi lægri hjá þeim sem borðuðu mest af ferskum fiski og sushi en hinum sem létu minnst af þessari fæðu ofan í sig. Saltaður eða þurrkaður fiskur virðist ekki gera sama gagn. Jafnvel þvert á móti, að því er fram kemur í nokkrum rannsókn- um. Talið er að fjölómettaðar fitusýrur í fiskinum séu ástæöan fyrh lægri tíðni lungnakrabba hjá miklum fiskætum. Þeir félagarnir Ástríkur og Steinríkur, sem kunnir eru úr teiknimyndasögunum, bjuggu víst ekki á Bretagneskaga í Norövestur-Frakklandi heldur í því suðvestanverðu, nánar tiltekið í héraðinu Lot. Nýjar vísbendingar um lokaorrustu Sesars og Gaulverja: Ástríkur og Steinríkur fluttir um set Ástríkur hefur fulla ástæðu til að vera miður sin. Þvert á það sem almenningur hefur talið til þessa, kannski ekki síst vegna teiknimyndasagnanna af ævintýrum og hreystiverkum þeirra félaga Ástríks og Steinríks, bjuggu þeir hraustu Gaulverjar sem lengst stóðu upp i hárinu á hersveit- um Rómverja í Lot-héraði í suðvest- anverðu Frakklandi en ekki á norð- urhluta Bretagne-skagans. Tveir franskir fornleifafræðingar greindu frá því í síðasta mánuði að með kolefnisaldursgreiningu hefði tekist að finna þann stað þar sem Júlíus Sesar háði lokaorrustu sína gegn Gaulverjum árið 51 fyrir Krist. Og sá staður reyndist vera við útjað- ar þorpsins Puy d’Issolud, norður af borginni Cahors. í endurminningum sínum kallar Sesar staðinn Uxellodunum. Annar fornleifafræðinganna, Girault segir að fíóm- verjar hafi setið um þorpið og knúið and- stæðinga sfna tíl upp- gjafarmeð þvíað beina einu vatnsupp- sprettu þorpsbúa f nýj- an farveg - frá þorp- inu. Jean-Pierra Girault, segir að aftur verði grafið á staðnum til að finna frekari vísbendingar um það sem hann kallar „táknræna orrustu" milli tuttugu þúsund rómverskra hermanna og fimm þúsund Gaul- verja. Girault segir að Rómverjar hafi setið um þorpið og knúið andstæð- inga sína til uppgjafar með þvi að beina einu vatnsuppsprettu þorps- búa í nýjan farveg - frá þorpinu. Þjóðsagan segir að rómverski keis- arinn hafi látið höggva hægri hönd- ina af fóngum sínum áður en hann sneri sigursæll aftur heim til Róm- arborgar. Hinar vinsælu teiknimyndasögur um Ástrík og Steinrík snúast um hetjudáðir íbúa lítils þorps á Bretagne-skaga sem með aðstoð töfradrykkjar tekst að hrinda inn- rás Rómverja. Nýjar rannsóknir á kettlingum: Svefninn flýtir fyr- ir þroska heilans Svefninn kann að gegna mikil- vægu hlutverki i þroska heilans hjá ungbörnum ef marka má niðurstöður rannsóknar sem gerð var á kettlingum og sagt var frá í tímaritinu Neuron fyrir stuttu. Tengsl milli taugafruma í heila i mjög ungum kettlingum, sem höfðu íéngið örvun frá umhverfinu, þrosk- uðust tvisvar sinnum betur í þeim kettlingum sem höfðu fengið að sofa i um það bil sex klukkustundir á eft- ir en í hinum sem ekki fengu að sofa. Geta heilans til að mynda tengsl milli taugafrumnanna er grundvöll- urinn að þroska þessa líffæris. Þetta heldur áfram fram á fullorðinsárin en þá gengur það miklu hægar fyrir sig en hjá baminu. ilíilliliiliU tifdtiiia Geta heilans til að mynda tengsl milli taugafrumnanna er grundvöllurinn að þroska þessa Ifffæris. Þetta heldur áfram fram á fullorðinsárin en þá gengurþað miklu hægar fyrir sig en hjá barninu, „Þetta er fyrsta beina sönnun þess að svefninn breyti áhrifum örvunar umhverfisins á þróun nýrra tengsla milli taugafrumna," segir Marcos Frank, prófessor við háskólann í San Francisco, aðalhöf- undur rannsóknarinnar. i . Vísindamenn i Bandaríkjunum hafa rannsakað áhrif svefns ungra kettlinga á myndun tengsla milli taugafrumna bóta. Á meöan á tilrauninni stóð mynduðu kettlingarnir sem ekki höfðu fengið að sofa engu að síður ákveðin tengsl milli taugafrumna sem sýnir að örvun frá umhverf- I \ Í ’ » . ? r " * i . í heila þeirra. Svefninn er þar bara til inu er nauðsynleg til að heilinn geti þroskast. Niðurstöður rann- sóknarinnar undirstrika hins veg- ar aö svefninn eflir þessa getu heil- ans. j r?i w ; 8K?r‘ f l ;.ir-W 8 ! mmmomsm Brjóstamyndatökur betri en taliö var Bijóstamyndatök- ur gagnast betur í baráttunni gegn brjóstakrabba- meini en hingað til hefur verið haldið. Rannsókn sem birtist nýlega í tímaritinu Cancer, j þar sem farið var yfir árangur brjóstamyndatöku sem var hafin í tveimur sýslum í Svíþjóð seint á áttunda áratugnum, leiddi þetta í ljós. Vísindamenn komust að því að hættan á að deyja af völdum brjóstakrabba var 63 prósentum minni meðal kvenna í aldurshópn- um 40 til 69 ára sem fóru í brjósta- myndatöku en var í upphafi átt- unda áratugarins þegar brjósta- myndatökur voru ekki daglegt brauð. Niðurstöður rannsóknar sem gerð var í Bretlandi á áhrifum brjóstamyndatöku sýndi fram á að hún dró um nærri tuttugu prósent úr dauðsfóllum af völdum brjóstakrabba. Færri söngfuglar í enskum görðum Vinsælustu söng- fuglarnir á Bret- landi sjást nú æ sjaldnar í görðum landsins að því er fram kom í talningu á vegum Kon- unglega fuglavemdarfélagsins fyrir skömmu. Niðurstaðan gefur tilefni til að hafa áhyggjur af umhverfis- málum í Bretlandi. Fimmtíu þúsund félagsmenn fuglavemdarfélagsins fóru á stúf- ana í janúar og töldu fugla. Þá kom í ljós að stara og gráspör hefur fækkað um helming á undanfórn- um tíu ámm. Þannig vom að með- altali 9,2 starar í hverjum garði árið 1991 en á þessu ári reyndust þeir ekki nema 4,2 að meðaltali. Á sama tíma fækkaði gráspörvum úr 7,8 að meðaltali í hverjum garði í fjórar. Fuglaverndarmenn telja að breytingar á landbúnaði eigi sinn þátt í þessari öfugþróun. „í hnotskurn er nútímalandbún- aðui’ óhagstæður fuglunum," segir Mike Everett, talsmaður fugla- verndarsamtakanna. Hann bætir við að fuglar séu góður mælikvarði á ástandið í umhverfmu og ef þeim fækki sé rík ástæða tO að kanna það nánar. Líkamsrækt heldur sykursýki í skefjum Tiltölulega lítil líkamsrækt og breyting á matar- æði geta tafið fyrir þróun sykursýki meðal fullorðinna að því er sagði i New England læknablaðinu fyru skömmu. Rannsóknir sem höfðu áður verið gerðar í Kína og Svíþjóð fengu svipaðar niðurstöður en efa- semdir voru um aðferðimar sem beitt var við rannsóknimar. Nýja rannsóknin var gerð í Finnlandi og tóku 523 sjálíboðalið- ar þátt i henni sem allir voru of þungir. Þátttakendumir vom beðn- ir um að reyna að ná fimm mark- miðum: Að losa sig við að minnsta kosti fimm prósent likamsþyngdar sinnar, takmarka fitu í mataræð- inu, draga úr neyslu mettaðrar fitu, auka neyslu trefja og stunda líkamsrækt í að minnsta kosti 30 mínútur á dag. Þá fékk helmingur hópsins einstaklingsbundna nær- ingarráðgjöf. Skemmst er frá því að segja að þessar breytingar á lífsstíl urðu til þess að draga verulega úr líkunum á því að fá sykursýki, jafnvel þótt menn næðu ekki nema tveimur markmiðum af fimm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.