Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 25. MARS 2002 DV Fréttir Viltu vinna milljón? á Stöð 2: Skúmurinn skóp prestinum milljónir - gefur hluta ágóðans til kirkjubyggingar í Tálknafirði DV-MYND HAR! Sóknarpresturinn sigursæli „Ég á eftir aö bíöa og sjá hvaö skatturinn vill taka," segir sr. Sveinn Vaigeirsson. Hann var í Reykjavík í gær viö emb- ættisstörf. Vestur héit Sveinn meö fimm miiljónir í vasanum sem hann vann á Stöö 2 í þættinum Viitu vinna milijón? „Ég gaf upphaflega kost á mér til þátttöku af þvt ég er alltaf blankur. Ég hef lengi ekki séð núllið á yfir- drætti ávísanareikningsins nema þá í blámóðu fjarskans," sagði sr. Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur á Tálknafirði, í samtali við DV. Óhætt er að segja að hann hafi ver- ið maður gærkvöldsins. Hann var keppandi í þætti Þorsteins J. Vil- hjálmssonar, Viltu vinna milljón? á Stöð 2, og svaraði þar kórrétt hverri spurningunni á fætur annarri. Og stöðugt lagði hann meira undir. Komin var ein milljón króna í pott- inn þegar Sveinn var spurður þeirr- ar spumingar hverrar ættar skúm- urinn væri. Skúmurinn er af kjóaætt Sóknarpresturinn tálknfirski ákvað að taka slaginn enda fjórar milljónir króna i viðbót í boði. Hefði hann hins vegar svarað þessu rangt hefði potturinn hrapað niður í íjög- ur hundruð þúsund krónur. „Ég fékk þá möguleika að skúmurinn væri annaðhvort af kjóa-, svart- fugla-, máva- eða skarfaætt. Ég var nokkuð viss um fyrsta möguleikann en til að taka af allan vafa hringdi ég í Jóhann Einarsson sem er þaul- vanur í þessum þáttum og veit svör við ýmsu. Við vorum báðir sam- mála um kjóaættina og ég gaf það svar upp,“ segir Sveinn - og milljón- imar fimm vora hans. Hann er að vonum sæll með ár- angurinn. Hann gat þess þó í sam- tali við DV í gærkvöld að margar spumingamar hefðu beinlíns verið á sínu sviði. Það hefði létt sér róður- inn. Þannig hefði hann, guðfræðing- urinn, til dæmis vitað mætavel og upp á sina tíu fingur að fiskurinn var tákn kristinna manna í frum- kristninni fyrir um tvö þúsund árum. Skattur og kirkja En þótt milljónirnar fimm séu komnar í höfn er ekki allur sigur- inn unninn. „Ég á eftir að bíða og sjá hvað skatturinn vill taka. En síðan þarf ég líka aö grynnka á skuldunum, svona rétt eins og ger- ist á öðrum bæjum,“ segir séra Sveinn. Að hætti manna í sinni stöðu ætlar hann þó líka að láta eitt- hvað af hendi rakna til eflingar starfsins úti á akrinum, það er til byggingar nýrrar kirkju í sókn sinni í Tálknafirði. Hún hefur verið í byggingu undanfarin ár en verður vígð nú á vordögum. -sbs Konur hvatt- ar til prests- starfa Tvö prestsembætti eru laus til umsóknar. Annaö er Selfosspresta- kall en því þjónaði sr. Þórir Jökull Þorsteinsson sem er orðinn prestur safnaðarins í Kaupmannahöfn. Sr. Gunnar Bjömsson, fyrr- um sóknarprest- ur að Holti í Ön- undarfirði og Bólungarvík auk Frikirkjunnar í Reykjavík, hefur þjónað því síðan sr. Þórir hélt til Kaupmannahafnar. Skipað verður í embættið frá 1. júní nk. en umsókn- arfrestur rennur út 27. mars nk. Hitt er nýtt prestakall, Linda- prestakall í Kópavogi, en skipaður verður sóknarprestur þar 1. júlí nk. íbúar nýs Lindaprestakalls til- heyrðu áður Hjallaprestakalli í Kópavogi en þar voru um 10 þúsund íbúar. Umsóknarfrestur er til 26. apríl nk. Valnefnd velur sóknarprest en heimilt er að æskja almennra prestskosninga ef minnst þriðjung- ur atkvæðisbærra sóknarbarna í prestakallinu æskir þess eigi síðar en að hálfum mánuði liðnum frá þeim degi er kallið var auglýst laust til umsóknar. Það vekur athygli að Biskups- stofa hvetur konur til aö sækja um ofangreind embætti með vísan til jafnrar stööu og réttar karla og kvenna. -GG Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson. Krapaflóð í Mýrdal um helgina: Vegir skemmdust og flytja þurfti fé Mikil úrkoma var í Mýrdalnum á laugardaginn. Tvö stór krapaflóð féllu í illviðrinu, annað úr Reynisfjalli, rétt innan Lækjarbakka, þar sem snjóflóð féll á bæinn um síðustu helgi. Hitt flóð- ið féll 100 metra frá bænum Suður-Göt- um. í hvoragu tilvikanna urðu teljandi skemmdir; helstar á gróðri og girðing- um. Jón Hjaltason, bóndi á Suður-Göt- um, segir að ekki sé óalgengt að flóð falli úr gilinu við bæinn. í þetta skipti hafi verið um óvenjustórt flóð að ræða. Krapaflóðið sem féll úr Reynisfjalli var líka stórt. Það náði niður undir veginn fram í Reynishverfi en lokaði honum þó ekki. Ólafúr Bjömsson, bóndi á Reyni, varð að flytja fé úr fjárhúsum við bæ sinn. Þar myndaðist stífLa af snjó og krapa sem olli því að flæddi inn í húsið svo flytja varð 60 kindur i annað hús á næsta bæ. Lögreglan í Vík sagði að mikið hefði rignt í Mýrdalnum um helgina, mest á Fénu bjargað Fjárhúsiö á Reyni var rýmt vegna vatns sem flæddi inn i þaö. laugardag, vegir hefðu spiflst töluvert en vegagerðarmenn hefðu staðið vakt- ina og haldið þeim opnum. Veðrið hafði heldur gengiö niður í gærdag og flóðahætta að mestu liðin hjá. Mikið af snjónum, sem féll um siðustu helgi, hefúr tekið upp á láglendi í vatnsveðr- inu en mikið er enn í ám og lækjum sem víða flæða upp úr farvegum sin- um yfir tún og engjar. -NH DVAAYNDIR SIGURÐUR HJÁLMARSSON Vegur en ekkl farvegur Vegurinn fram i Reynishverfi var eins og fljót á laugardag. Hér sést heim aö bæjunum Lækjarbakka og Reyni. Rekstrarþrot landsbyggðarhafna blasir við Bæjarstjóm Grindavíkur hefur mótmælt harðlega frumvarpi til hafnarlaga sem liggur nú fyrir Al- þingi, flutt af samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssyni. Telur bæjar- stjórn að verði það samþykkt sé rekstrargrundvellinum kippt und- an rekstri hafnarinnar, sem og fleiri hafna á landsbyggðinni. í samþykkt bæjarstjórnar segir m.a.: „Nauðsynlegt er að ítarleg rannsókn fari fram á afleiðingum fmmvarpsins áður en til sam- þykktar komi. Alger lágmarks- krafa hlýtur að vera að kynna mótvægisaðgerðir í einhverju formi til að koma í veg fyrir rekstrarþrot landsbyggðarhafna með tilheyrandi byggðarvanda. Bæjarstjóm skorar á Alþingi og ríkisstjóm að afgreiða frumvarpið ekki á því þingi sem nú stendur en gefa sér tíma til að undirbúa mun betur breytingar á framtíðarskip- an hafnarmála í landinu.“ -GG Borgarafundur um hættumat. Seyðisfjörður: Hættumat vegna ofanflóða Á fjölmennum borgarafundi í Herðubreið 20. mars síðastliðinn var kynnt hættumat vegna snjóflóða á Seyðisfiröi. Framsögumenn voru Snjólfur Ólafsson, formaður hættu- matsnefndar, Þorsteinn Amalds, verkfræðingur á Veðurstofu ís- lands, og Esther Hlíðar Jensen, jarð- fræðingur á Veðurstofunni. Bæjarbúum hafði áður verið kynnt hættumat vegna ofanflóða en framsögumenn fóru vandlega yfir þetta og gáfu fundargestum tæki- færi til að spyrja nánar út í málið. Seyðisfjörður er einn af þeim stöð- um þar sem talin hefur verið mikil hætta á snjóflóðum og skriðufollum en samkvæmt nýjum rannsóknum er þetta þó skárra en talið var. Búið er að skipta bænum í hættusvæði og er kjami byggðarinnar í fjarðar- botninum utan hættusvæðis en þeg- ar komið er út með ströndinni eykst hættan._____________-KÞ Réðstá konu og beit Lögreglan í Reykjavik leitaði í gær- kvöld manns eða manna sem bratust inn i kaffihús við Vitastíg um tvöleyt- ið aðfaranótt sunnudags. Stolið var skiptimynt úr peningakassa. Þá vora tveir menn handteknir á sunnudags- nótt en þeir höfðu brotist inn í bíl við Sóltún og haft á brott með sér hljóm- flutningstæki. Líkamsárás varð í Þingholtsstræti um þrjúleytið á sunnudagsnótt þegar karlmaður réðst á konu, beit hana og kastaði henni í götuna. Hún hlaut áverka á höfði en árásarmaðurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að garði. Lögreglan á landsbyggðinni átti fremur náðuga daga um helgina og taldi einn lögregluvarðstjórinn á landsbyggðinni, sem DV ræddi við, aö skýringa á því væri helst að leita til þess annars vegar að landsmenn væra að spara kraftana fýrir páskana og hins vegar væri víða verið að ferma, kirkjur fullar af fólki og landsmenn á ferðalagi þvers og kruss um landið til að samfagna fermingarbömunum og fjölskyldum þeirra. -GG Gott ár hjá Norrænu Aðalfundur Smyrfl Line var haldinn í Færeyjum fyrir skömmu. Rekstrarár- ið var gott en auk Norrænu gerir félag- ið 'út skipið Clair, sem siglir mflli Hanstholm og Þórshafnar. Hagnaður félagsins á síðasta ári var 250 milljónir króna. Mikil ánægja var á fundinum með rekstur Norrænu og ákveðið var að bæta við einni ferð í haust. Bókan- ir fyrir næsta ár lofa góðu. -KÞ Eldur í spóna- geymslu í Víðidal Eldur varð laus í spónageymslu á hesthúsasvæði Fáks í Víðidal í Reykjavik á laugardag. Eldurinn uppgötvaöist tiltölulega snemma, þar sem margt fólk var á svæðinu að sinna hrossum, og tókst því aö ráða niðurlögum eldsins að mestu áöur en slökkviliðið kom á svæðið. Rannsóknarlögreglan rannsakar upptök eldsins en varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins neitaði því aðspurður aö grunur léki á íkveikju. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.