Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Blaðsíða 10
10 Útlönd MÁNUDAGUR 25. MARS 2002 DV REUTER-MYND Lionel Jospin Franski forsætisráöherrann í páska- skapi þrátt fyrir váleg tíöindi. Græningjar hóta að hætta stuðn- ingi við Jospin Franskir græningjar hótuðu í gær að styðja ekki Lionel Jospin, forsætisráðherra og forsetaefni sósí- alista, í kosningunum eftir mánuð fallist hann ekki á að binda enda á notkun kjarnorku til raforkufram- leiðslu. Noél Mamére, frambjóðandi græningja, veittist að Jospin fyrir það sem hann kallaði „stríðsyfirlýs- ingu“ forsætisráðherrans. Haft var eftir Jospin í viðtali að sósíalistar hefðu aldrei fallist á kröfur græn- ingja um að hætta notkun kjarn- orku í áfóngum. Ef græningjar láta verða af hótun sinni gæti það komið sér afar illa fyrir Jospin. Skoðanakannanir benda til að hann og Jacques Chirac forseti njóti svipaðs fylgis í síðari umferð forsetakosninganna. SLEÐADAGAR 15-50% afsláttur af fatnaði og fylgihlutum Karpað um skilyrði fyrir ferð Palstínuforseta til Beirút: Óvíst hvort Arafat situr leiðtogafund Palestínumenn og ísraelar héldu í gær áfram að karpa um skilyrði fyr- ir ferð Yassers Arafats, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, til leiðtogafundar arabaríkja sem hefst i Beirút, höfuðborg Libanons, á mið- vikudag. Búist er við að þar verði samþykktar tillögur Sádi-Araba um að taka að nýju upp friðarviðræður fyrir botni Miðjarðarhafs. Ekki er annað vitað en að banda- rískir embættismenn styðji eindreg- ið setu Arafats á fundinum og flest- ir arabar telja þátttöku hans nauð- synlega til að tillögur Sádi-Araba beri einhvem árangur. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að hann von- aðist eftir árangri á fundinum. „Fyrir liggja drög að mjög já- kvæðri yfirlýsingu sem ég held að geti orðið mikilvægt skref í átt til þess að tilveruréttur Ísraelsríkis REUTERWYND Með friöartákn í hendi Kristinn drengur meö palestínskt höfuöfat heldur á olíuviöargrein, tákni friöar, viö komuna til Jerú- salem í gær, páimasunnudag. verði viðurkenndur og i átt til stuðnings við palestínskt ríki við hlið ísraels," sagði Powell. Háttsettur palestínskur embættis- maður sagði i gær að Arafat ætlaði sér að sækja fundinn í Beirút. ísra- elsk stjórnvöld segja aftur á móti að hann fái ekki að fara nema hann fari að tillögum Bandaríkjamanna um að binda enda á ofbeldisverk undanfarinna átján mánaða. Arafat mun vera reiðubúinn að hætta við ferð til fundarins í Beirút frekar en að ganga að ósanngjömum skilyrð- um ísraela fyrir vopnahléi. ísraelskir hermenn skutu átta manns til bana í átökum í gær en Palestinumenn urðu landnemakonu að bana i árás á langferðabíl. Deilendur funduðu í gærkvöld með sendimanni Bandaríkjastjórn- ar og sváfu í nótt á málamiðlunartil- lögum hans um vopnahlé. REUTER-MYND Slegist um bestu bitana Tugir íbúa tveggja fátækrahverfa i Rosario, næststærstu borg Argentínu, keppast um bestu bitana af kú sem þeir slátruöu eftir aö gripaflutningaþíl, sem var aö flytja 22 kýr, hvolfdi á nærliggjandi þjóövegi. 'Verð 90 cm 35.600,- Saml: 30.600 100 cnv39.000,- Saml: 34.000 105 cm42.800,- Samt; 37.800 120 cnv 49.900,- Samt; 44.900 RRGnRR BJÖRIlSSOn««. Dalshrauni 6 Hnfnarfirði Slmi: 555 0397 www.rbrum.is IKJS jeriniri^mrúriri Fermingargjöf sem innborgun á rúmi Barnaníðingshneyksli vindur upp á sig: Hvatti kardínálann í Boston til aö hætta Bamaníðingshneykslið innan kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkjun- um tók nýja stefnu í gær þegar að- stoðarprestur einnar áhrifamestu sóknar kirkjudeildarinnar í Wash- ington hvatti kardínálann í Boston, Bernard Law, til að segja af sér embætti. Hundruð kirkjugesta risu á fætur og klöppuðu fyrir þessari kröfu Percivals D’Silva aðstoðarprests. Mjög óvenjulegt er að almennir kirkjugestir rísi upp gegn æðstu yf- irmönnum kirkjunnar þegar þeir eiga í vök að verjast. „Law kardínáli er ekki yfir lögin hafinn," sagði D’Silva við söfnuðinn í pálmasunnudagsræðu sinni. Law hefur sætt mikilli gagnrýni að undanförnu eftir að málefni Johns Geoghans, fyrrum prests, komst í hámæli. Geoghan var sak- aður um að hafa áreitt kynferðis- lega 130 manns á þrjátíu árum á meðan hann var prestur í Boston og nágrenni. Gögn sem voru lögð fram í réttar- Law kardínáli í Boston Vissi um kynferðislega áreitni prests viö unga drengi en geröi ekkert til aö stööva guösmanninn. höldum yfir Geoghan sýndu fram á að Láw og fimm aðrir háttsettir inn- an kirkjunnar höfðu vitneskju um athæfi Geoghans en héldu áfram að senda hann á milli sókna. Geoghan afplánar nú níu til tíu ára fangelsis- dóm fyrir að leita á 10 ára dreng. Óvissa með kónginn Óvissa virðist ríkja um hvort Zahir Shah, fyrrum konungur í Afganistan, geti snúið aftur til heimalands- ins. ítölsk stjórnvöld frestuðu för hans af öryggisástæðum á laugardag en Hubert Védrine, utanríkisráðherra Frakk- lands, sagði i gær að afganskir emb- ættismenn hefðu fullvissað sig um að engin vandkvæði væru á heim- komu kóngs. Tvennt dó í sprengingu Ung stúlka og prestur létu lífið þegar handsprengju var varpað að hópi fólks sem var við útimessu í Goma í Kongó í gær. Ósammála um aöstoð Leiðtogar Evrópuríkja og Banda- ríkjaforseti eru ósammála um hvemig auka beri aðstoð ríkra landa við hin fátækari, að því er fram kom á ráðstefnu SÞ í Mexíkó. Evrópulönd vilja aukna ríkisaðstoð en Bandaríkjamenn vilja að mark- aðurinn sjá fyrir þessu. Gengissig ekki stöðvað Eduardo Duhaldo, forseti Argen- tínu, segir að ekki verði gripið til sérsakra aðgerða til að stöðva geng- issig pesans, þrátt fyrir ótta við óða- verðbólgu eða þjóðfélagsólgu. Segir Blair hafa brugðist Iain Duncan Smith, leiðtogi breska íhalds- flokksins, sagði á vor- þingi flokksins í gær að Tony Blair forsætis- ráðherra og Verka- mannaflokkurinn hefðu brugðist þeim sem minnst mega sín og skoraði á samflokksmenn sina að takast á við það verkefni að koma hinum verr settu til aðstoðar. írakar fagna sendinefnd Stjórnvöld í írak sögðust í gær vera reiðubúin að taka á móti bandarískri sendinefnd til að rann- saka örlög bandarísks flugmanns sem var skotinn niður í Persaflóa- stríðinu 1991. Dauðarefsing íhuguö John Ashcroft, dóms- málaráðherra Banda- ríkjanna, sagði í gær að hann hefði ekki enn gert upp við sig hvort farið yrði fram á dauða- refsingu yfir Zacarias Moussaoui, frönskum manni sem hefur verið ákærður fyrir tengsl við árásarmennina 11. september. Ash- croft hefur frest til fóstudags. Geta ekki staðfest Bandarískir embættismenn sögð- ust í gær ekki geta staðfest fréttir um að Yasser Arafat, forseti Palest- ínumanna, hefði myndað bandalag við írana og neituðu að spá í slíkt. Ekki andvígir árás á írak Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, sagði í sjónvarpsviötali í gær að arabaleiðtogar sem hann hitti í ferð sinni til Mið-Austur- landa hefðu ekki lagst gegn hugsan- legum árásum Bandaríkjamanna á skotmörk í írak.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.