Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Blaðsíða 16
JS.28 MÁNUDAGUR 25. MARS 2002 Skoðun DV gMj Spurníng dagsins Ætiar þú út úr bænum um páskana? Oddný Garöarsdóttir: Nei, enda langbest að vera heima í faömi fjölskyldunnar. Sævar Sigurjónsson: Kannski viö félagarnir leigjum okkur sumarbústaö og skellum okkur. Dóra Björk Guðjónsdóttir: Nei, ég ætla bara aö vera heima og slappa af. Ragnar Hálfdánarson: Nei, ég býst nú bara viö aö vera heima. Kristján Oskarsson: Það veröur sennilegast ekkert úr því. Ég ætlaði aö fara á Fitness-mótið á Akureyri en ég verö sennilega aö sleppa því. Ragnheiður Einarsdóttir: Ég verö í Vestmannaeyjum þar sem ég á heima. Uppsveifla í sýndarveruleika Geir R. Andersen blm. skrifar: Fyrir nokkrum árum sýndi Sjón- varpið stundum mUli dagskráratriða ítalska teiknimynd sem nefndist Línan (La linea). Þar var á ferð teiknimynda- fígúra sem gekk á mjórri línu. Hún sýndi mikil geð- brigði eftir því hvort hún varð fyrir hindrun eða gat gengið óáreitt eftir línunni. - Þessi táknræna teiknimyndasería minnir á geðbrigði íslensku þjóðarinnar, svona almennt. Hér á landi er ýmist uppsveifla eða niðursveifla, sem greinilega gengur mjög nálægt fólki. Menn taka ýmst dýfu eða hoppa hæð sína af gleði þeg- ar þeir telja góðu tíðindin nálgast. Fréttin þarf ekki að vera nema úti við sjóndeildarhringinn - ekki endi- lega í höfn - til þess að geðshræring- arinnar gæti. Talsmenn atvinnulífsins hafa lengi krafist vaxtalækkunar og segja hana lífsspursmál fyrir fyrirtækin og heimilin, en meina bara fyrirtækin. Heimilin og einstaklingar í borg og bæ hafa mátt búa við vaxtastig of- þenslunnar og verðbætur í ofanálag í takt við verðbólguna. Enginn fjarg- viðrast út af verðbótunum, En verð- bætur munu þó ekki lækka þótt verð- bólgan verði hamin. Ekki fremur en endranær. í lítilli verðbólgu - eins og t.d. árin 1998 og ‘99 - voru verðbætur á vexti og afborganir í fullu fjöri, líkt og verðbólgudraugurinn gangi laus í öllum íslenskum innlánsstofnunum. Forystumenn atvinnulífsins, beggja vegna borðsins - skráðir eig- í Seðlabankanum Blaðamannafundur um vexti. „Talsmenn atvinnulífsins hafa lengi krafist vaxta- lcekkunar og segja hana lífsspursmál fyrir fyrirtæk- in og heimilin, en meina bara fyrirtækin. Heimilin og einstaklingar í borg og bœ hafa mátt búa við vaxtastig ofþenslunnar og verðbœtur í ofanálag í takt við verðbólguna. “ endur fallíttfyrirtækja, jafnt og launaþrælar hrópa „hósíanna", yfir 0,25-0,45% vaxtalækkun (sem auðvit- að bjargar engu) og krefjast meiri vaxtalækkana strax. Seðlabankann sé ekkert að marka, hann sjái bara verðbólgu, þótt mánuð eftir mánuð komi í ljós að hér sé engin þensla. Seðlabankastjóri og hans fólk hefur hins vegar lög að mæla; að verðbólg- an verði að sanna sig að fullu áður en vaxtalækkun verði umtalsverð. Eyðsluklærnar verða bara að hafa biðlund. Skammtímalán á háum vöxtum verða þær að þola enn um sinn. Það mun því þrengja að, fari sem nú horfír í atvinnu- og efnahags- lífinu. Verði af frestun virkjunar- framkvæmda, eldsneytishækkunum og hækkun verðbólgunnar mun það bitna illilega á afkomu fjölda verk- færra manna í atvinnulífinu. Það hrannast upp svört ský á himni efnahagslífsins þessa stund- ina, 0,25%-0,40% vaxtalækkun, og þótt meiri væri, bjargar engu. — Nú eru formennn stjórnarflokkanna þó loks sammála um að ESB-aðiId sé ekki í sjónmáli fyrir okkur íslend- inga. Það lofar góðu. Heilbrigt eða sjúkt efnahagslíf? Oiafur Stefánsson skrifar. Fyrir bráðmn ári síðan sendi ég inn nokkrar línur í þennan dálk DV um ofangreint efni. Nú er málið enn í brennidepli. Nú er líka full þörf á að íslendingar kryfji þessa spurningu vegna sviptinga í gengis- og vaxta- málum undanfarnar vikur. Enn er spuming hvað stjómvöld hyggist fyr- ir nú þegar verulegur samdráttur er að skella yfir landsmenn. Og enn þá alvarlegri verður hann ef raunin verður sú að ekkert verður úr stór- virkjunum í bOi vegna álversbygg- ingar á Austfjörðum. íslenskur gjaldmiðiil á undir högg að sækja hjá forsvarsmönnum hinna stærri atvinnugreina og má vitna til „Evran stendur okkur hins vegar ekki til boða í bráð og því fátt til bjargar ann- að en að kanna sem fyrst möguleika á aðild að hinu nýja, stóra tollabandalagi í Ameríku, NAFTA, og taka upp dollara, sem tengjast þeim bandaríska.“ ummæla forráðamanna Samtaka iðn- aðarins og forsætisráðherra um við- horf landsmanna til ESB. Evran stendur okkur hins vegar ekki til boða í bráð og því fátt til bjargar annað en að kanna sem fyrst möguleika á aðild að hinu nýja, stóra tollabandalagi í Ameríku, NAFTA, og taka upp dollara sem tengjast þeim bandaríska. Það bjargar okkur ekki að sækja um inngöngu í ESB því biðtíminn get- ur orðið allt að 10 ár og þá verður löngu hrunið það efhahagskerfi sem við notumst við nú. Og markaðsmögu- leikar okkar verða ekki lengur á Evr- ópusvæðinu eftir að ESB hefur gengið að EES-efnahagssvæðinu dauðu. Spurningin er hvort við sættum okkur mikið lengur við sjúkt efna- hagslíf á flestum sviðum eða sækjum fram á þeim vettvangi einum sem við getum vænst að búa við heilbrigt efnahagsástand - og halda sjálfstæð- inu án afarkosta. Guðjón bítur frá sér Guðjón Þórðarson, knattspymustjóri Stoke City í Englandi, á ekki sjö dagana sæla. Liðinu * hans gengur ekkert allt of vel. Eins og staðan er nú er engan veginn öruggt að liðið komist í um- spil um sæti i næstu deild fyrir ofan. En það er ekki nóg með að liðið spili á tíðum afleitlega og tapi leikjum sem eiga að heita unnir á pappím- um heldur hafa Guðjón og liðið orðið fyrir óvæg- inni gagnrýni stuðningsmanna. Og ekki nóg með það. Heldur hafa blaðamenn á The Sentinel, stað- arblaðinu í Stokeborg, verið óvægir í gagnrýni sinni. Hafa þeir nánast misst áhugann á Stoke og beint sjónum sínum að hinu liði borgarinnar, Port Vale. Og til að bæta gráu ofan á svart hafa óánægðir stuðningsmenn Stoke viðrað skoðanir sínar á lesendasíðum umrædds dagblaðs. Verið með skitkast úr i Guðjón og liöið á pappímum. > Og ritstjórinn gerir ekkert til að stöðva þessa vitleysu. Gengur ekki lengur Við þetta verður ekki unað. Því ákvað Guðjón að taka íþróttaritstjóra blaðsins og einn blaða- mann þess á teppið. Það gengur auðvitað ekki að vera með leiðindi í blaðinu þó illa gangi. Leið- . indin í blaðinu geta spillt fyrir liðinu svo það tapi fleiri leikjum og eigi enn síöur von um að komast í hóp útvalinna liða, þeirra sem flytjast upp um deild í vor. Og þá munu leiðindin halda áfram og gera liðinu enn erfiðara fyrir. Getm- svo farið, ef blaða- menn The Sentinel sjá ekki að sér, að Stoke verði ekki einasta um kyrrt I 2. deildinni ensku heldur falli niður í þá þriðju. Við slíkt yrði ekki unað. Þennan ósóma verður að stöðva. Fréttabann Því hefur Guðjón sett The Sentinel, staðarblaðið í borginni, í viðtals- og fréttabann. Öllum starfsmönnum Stoke City er bannað að tala við blaðamenn frá þessu blaði. Vogi þeir sér að ganga í ber- högg við bann Guðjóns eiga þeir yfir höfði sér sektir og aðrar refsingar. Knatt- spymumenn Stoke City verða að átta sig á því að það er ekki nóg að standa sig gegn liðum sem eru verri á pappímum heldur verður að vinna baráttuna á pappímum. Sigur vinnst ekki aðeins inni á knattspymuvellinum. (\xffl Peningar flæöa um þjóðfélagiö Mest frá skattgreiöendum. Meiri og meiri fjárveitingar Friðrik Halldórsson skrifar: Hvernig getur ríkið staðið undir öllum þeim fjárveitingum, sem farið er fram á ár eftir ár, þ.e. fjánnögnun á alisendis óþörfum verkefnum eða styrkjum. Þingmenn draga ekki úr kröfunum um fjárframlög, og ailt er þetta tekið af skattgreiðendum án þess að þeir fái rönd við reist. Ekki minnsta tilraun gerð til að koma til móts við þá í skattalækkunum, þeir mega greiða næstum 40% í tekju- skatt, þótt fyrirtækin njóti lækkunar frá Alþingi (greiða nú 18% tekju- skatt!). Fasteignaskattur og eignar- skattur einstaklinga er alveg fyrir borð borinn og engin lækkun sýnileg þar enn. Aðeins hefur verið tæpt á því að afnema hinn „sérstaka eignar- skatt“ en það er auðvitað ekkert fast í hendi fyrr en það er orðið. Þannig er rúllað yfir einstaklinga, yngri sem eldri. - Og síðan rúllar þjóðfélagið á hausinn með sama áframhaldi. Olían í Öxarfirði Benedikt Jónsson skrifar: Loks er farið að huga að þvi að hér við land kunni að finnast olía eða gas. Ekki veitir nú af ef allt bregst með frekari virkjanir og álversbygg- ingu. En hvers vegna í Eyjafirði, ég bara spyr? Er ekki búið að sanna að mestu mögurleikarnir á vinnanlegri olíu séu í Öxarfirði eða Skjálfanda (m.a. undir Flatey)? Ég tala nú ekki um vitleysuna sem felst í því að leita lengst norður í rassgati, á Jan Mayen-hryggnum. Viljum við kannski ekki fá olíuna? Á þetta eftir að verða sama deiluefnið og virkjun á hálendinu þar sem engu má við hrófla? - Leitum strax il erlenda fé- lagsins sem fann setlögin fyrir norð- austan og leyfum þeim að finna olí- una. Síðan getum við samið við þá. Sleppum Norðmönnum alveg úr myndinni að þessu leyti. Við höfum ekkert nema samningatuðið út úr þeirri samvinnu. Og við eigum enga afgerandi samningamenn hér í dag, líkt og við áttum þegar landhelgis- málin voru leyst svo farsællega. Lagskiptur mið- bæjarprestur? Hulda Þórisdðttir skrifar: Þeir eru búnir að raða upp hjá sér, R- lista menn. Þar kennir margra grasa og misgóðra, að minu mati. Þeir eru líka búnir að koma sér upp presti, Jónu Hrönn Bolladóttur, sem starfar sem miðbæj- arprestur að jafn- aði. Finnst R-lista framboðinu þetta sterkt framboð? Hvernig getur prest- ur sem gegnir opinbenun trúnaðar- störfum verið lagskiptur, eins og ég vil kalla það? Læknir getur verið í framboði í borgarstjóm, líka lög- fræðingur, en ekki prestur, að mínu mati. Mér finnst starf prests vera þannig að það samrýmist ekki póh- tískum átökum. Nóg em nú átökin í miðbænum að næturlagi þótt prest- ur blandi sér ekki í önnur átök sam- hliða áfalla- og samhjálp sem verður þá alltaf pólitísk í eðli sínu. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11, 105 Reylgavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang. Jóna Hrönn Bolladóttir. - Tilbúin í blönduð átök?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.