Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Qupperneq 19
LAUCARDAGUR I. JÚNÍ 2002 Helcfctrbla<3 Ty\T 19 Páll á Húsafelli er merkilegur. Hann er enginn venjulegur maður. Hann er ekta eins og grjótið sem hann heggur myndir sínar í. Hann dýrkar nivndir út úr grjóti, málar myndir á svell og töfrar tóna úr steinum. Tíminn líður eins og honuin þóknast á Húsafelli. „Ég er aldrei með klukku, tíminn skiptir eiginlega ekki máli. Stundum vinn ég lengi fram eftir; byrja kannski ekki fvrr en tíu á morgnana. Ég er nátthrafn." DV-mvndir Hari vísar okkur inn. Við setjum okkur niður við eldhús- borðið og fylgjumst með Páli taka til málsverðinn og hita kaffi. Síðan hverfur hann smástund út úr eldhús- inu og kemur til baka með rjúkandi brauð. Það er asskoti gott, enda uppskrift Páls sjálfs. Hvað ertu gamali, Páll, spyr ég. „Ég er 43 ára, fæddur 1959.“ Er ekki dálítið einmanalegt að vera einn héma á Húsafelli? ,|Nei, ég er aldrei einn, ég er alltaf eitthvað að bauka. Neinei.“ Þú hefur ekki dregið neina konu hingað upp eftir? „Nei, það myndi taka tima frá listinni. Þá hefði ég ekki lokið því sem ég hef gert.“ Svo listin kemur i staðinn fyrir konu? „Já.“ Hvað gerirðu héma á veturna þegar ailt er á kafi í snjó? „Þá vinn ég í höggmyndunum og geri líka svell- þrykk. Það er ekki hægt á sumrin." Svellþrykk, þá málarðu myndir á svell og leggur síöan pappír ofan á. Hvernig datt þér þetta í hug? „Það er kalt í jarðhýsinu og það kom einhvern tíma svell á góffið. Þá byrjaði ég að nota þessa aðferð og hún er ansi hreint sniðug.“ Var ekki búskapur héma á Húsafelli? „Jú, faðir minn var með kindur. Þegar mest var þá var hér þúsund fjár.“ Lá einhvem tíma fyrir þér að verða bóndi? „Nei.“ Hvað hugsaði lítill drengur sem ólst upp á Húsa- felli? Þaö hlýtur að hafa verið mikil einangrun hér um vetur? „Það var alltaf mikil myndlist á Húsafelli. Hingað komu margir málarar. Þegar ég var tólf ára komu hingað Pétur Friðrik og Veturliði Gunnarsson. Ég fékk að fara með þeim. Þannig kviknaði áhugi minn á myndlist. Ég byrjaði því að mála olíumyndir löngu áður en ég byrjaði að teikna. Svo fór ég í Myndlistar- skólann árið 1982 og fór svo til Þýskalands í nám í eitt ár.“ Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú varst barn? „Ég held ég hafi alla tíð ætlað að verða listamað- ur.“ Það er enginn draugagangur hérna? „Ef svo er þá eru það góðir draugar." Þeir hafa líklega verið kveðnir niður fyrir löngu. „Einmitt." Hvenær byrjaðirðu að vinna með steina? „1982 eða 1983. Ég var þá kennari í Borgarnesi og heimsótti Hallstein Sveinsson, bróður Ásmundar. Árið 1985 hélt ég síðan stóra sýningu á verkum min- um á Kjarvalsstöðum." Manstu eftir fyrstu höggmyndinni? „Það voru steinhrútur og steinrós. Það er merkileg saga með steinrósina. Ég sá rauðan stein úti í garði og fór aö athuga hann. Þá var það steinrós. Mér þótti tilvalið að gefa hana strákunum í Sigur Rós.“ Hvernig er dagurinn hjá þér? „Ég er aldrei með klukku, tíminn skiptir eiginlega ekki máli. Stundum vinn ég lengi fram eftir; byrja kannski ekki fyrr en tíu á morgnana. Ég er nátt- hrafn." Finnurðu mikið fyrir sköpunarkraftinum á Húsa- felli? „Já, það er eins og Aðalsteinn Ingólfsson hefur sagt að Húsafell er vagga íslenskrar myndlistar. Hingað komu Ásgrímur, Jón Stefánsson, Júlíana, Þorvaldur Skúlason og Muggur til að mála.“ Páll sker brauðið. „Það er kostur þegar maður bak- ar brauðið sjálfur að þá veit maður hvað er í því,“ segir Páll og deilir brauðinu. Heldurðu að þú hafir erft galdra frá séra Snorra? „Kannski smá.“ í hverju birtist það helst? „Það borgar sig ekki að fara út í þá sálma." Páll er enginn beljaki að sjá og því verður að viðurkennast að það gœtti nokkurrar vantrúar á að þessi þeni maður gœti lyft 190 kílóa steinhellu. Sú vantrú fór fyrir lítið því Páll reif hana upp og spurði Ijós- myndarann hvernig hann œtti að snúa sér svo hann næði góðri mynd. „Ég var nítján ára þegar ég lyfti henni fyrst, “ svarar Páll. „Þetta er allt spurning um hugarástand. “ Hefurðu orðið vitni að einhverju yfirnáttúrulegu hérna? „Landið er magnað og það er ótrúlegt hvað maður nær að gera vissar myndir á stuttum tíma.“ Eru steinarnir góðir við þig? „Jájá.“ Þú hefur aldrei lent í neinum vandræðum með þá? „Ég var einu sinni að höggva í stein við draugarétt- ina og þá sprakk hann. Það er í eina skiptið sem steinn hefur sprungið hjá mér.“ Eru steinamir lifandi? „Já, ég ber virðingu fyrir þeim; ég horfi á þá og sé hvað býr í þeim, kalla það svo fram án þess að skemma steinana." Hvert telurðu að hlutverk þitt sem listamanns sé? „Það er erfltt að svara svona spurningum. Það er eiginlega bara að vinna; að vera alltaf að. Þá gerist eitthvað. Maður verður að berjast fyrir hlutunum og því sem maður gerir.“ Og baráttan er þess virði? „Já.“ -sm
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.