Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Side 27
Háskólinn í Reykjavík TOLVUNARFRÆÐI Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík býður krefjandi nám sem tekur mið af alþjóðlegri tækniþróun og fræðilegu rannsóknarstarfi. Mikil áhersla er lögð á að tengja fræðin við raunhæfa verkefnavinnu og í lok hverrar annar vinna nemendur viðamikil hópverkefni I samstarfi við fyrirtæki. Námið veitir nemendum því menntun sem býr þá jöfnum höndum undir störf og framhaldsnám, enda eru fræðilegar kröfur í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru hjá erlendum háskólum. Námsleiðir og kjörsvið IMotenda- hugbúnaður sem kjörsvið Nám 1 tölvunarfræðideild en þriggja ára (6 anna) nám til BS prófs 1 tölvunarfræði (90 einingar) og er hægt að velja á milli tveggja kjörsviða: Kerfishugbúnaðar og notendahugbúnaðar. Að auki er hægt að útskrifast með viðskiptafræðival eða val í tæknigreinum eða raunvísindum. Eftir tveggja ára nám býðst nemendum að útskrifast sem kerfisfræðingar-HR (60 einingar). Lögð er áhersla á að nemendur læri hagnýtar og viðurkenndar aðferðir við gerð notendahug- búnaðar. Nemendur taka stærðfræðinámskeið á seinni önnum (4.-6. önn) námsins. Á þessu kjörsviði er hægt að útskrifast með viðskíptaval og að auki er hægt að sækja um að útskrifast með val í tæknigreinum eða raunvísindum. Kerfis- hugbúnaður sem kjörsvið J Megináhersla er lögð á gerð hugbúnaðar fyrir tölvukerfi eins og stýrikerfi, netkerfi, dreifð kerfi og gagnagrunnskerfi. Nemendur taka stærðfræðinámskeið fyrr í náminu og jafnframt er um fleiri skyldunámskeið í stærðfræði að ræða. Hægt er að sækja um að útskrifast með val i tækni- greinum eða raunvisindum. Rannsóknir í tölvunar- fræðum Tölvunarfræðideild HR leggur mikla áherslu á uppbyggingu rannsókna enda eru þær forsenda nýsköpunar. Nemendum gefst kostur á að vinna að rannsóknum með kennurum deildarinnar á ýmsum sviðum. t.d. netkerfum og netþjónustu, gagnasafnskerfum, viðmótshönnun og fjarkennslu. í sumar munu fjórir nemendur starfa að rannsóknum í samstarfi við kennara deildarinnar. „ Við ætlum okkur stóra hluti og erum þegar að vinna að rannsóknum sem setja Háskólann í Reykjavík, Reykjavík og ísland í fremstu röð i rannsóknum á netkerfum og netþjónustu. ’ Gísli S. Hjálmtýsson, prófessor við tölvunarfræðideild. Sjá viðtal við Gísla á vuvuw.ru.is/td/rannsoknir Verkleg námskeið í lok 1 ,-3. annar eru unnin viðamikil 3ja vikna hópverkefni. Tilgangurinn er að samþætta námsefni annarinnar í stóru hugbúnaðarverkefni þar sem reynir á fræðilega undirstöðu og skapandi hugsun. í lokaverkefnum er mikið samstarf við fyrirtæki í atvínnulffinu og meöal verkefna sem nemendur unnu nú í vor má nefna sérhæföa eDisk afritunarlausn í samstarfi við Skýrr, Date Trak for Nokia 7650 í samstarfi við Landmat og Babel Fish vefþjónustukerfi í samstarfi við Mens Mentis. Fjarnám Með fjarnámi Háskólans í Reykjavík geta nemendur um allt land stundað háskólanám í tölvunar- fræði. Hægt er að Ijúka fyrstu þremur önnunum i fjarnámi og er fjarnámið tekið á hálfum hraða. Framúrskarandi aðstaða í skólanum eru 1 □ tölvuver, samtals 235 tölvur. Nemendur fá aðgangskort að skólanum og geta nýtt sér aðstöðuna í skólanum hvenær sem er sólarhringsins alla daga ársins. Námsstyrkir I haust munu 25 nýnemar við tölvunarfræðideild HR hljóta námsstyrki í formi niðurfellingar eða afsláttar af skólagjöldum. Jafnframt fá þeir nemendur, sem ná 8,5 eða hærra í meðaleinkunn á hverri önn, felld níður skólagjöld að fullu eða að hálfu. Nemendur sem ná afburða góðum árangri geta því lokið BS námi án þess að þurfa að borga skólagjöld. Hörpu- námskeið J - róbótar - gervigreind - gagnasafnsfræði I lok hverrar annar eru í boði sérhæfð 3ja vikna námskeið. Til að kenna á námskeiðunum eru fengnir sérfræðingar frá erlendum háskólum og rann- sóknarstofnunum. Vorið 2001 var námskeið um gervigreind í umsjá dr. Ara Kr. Jónssonar en hann starfar við NASA Ames Research Center, sem er rannsóknarstofnun á vegum Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna. Vorið 2002 voru tvö námskeið: Róbótafræði („Robotics") sem kennd var af dr. Robin Murphy frá University of South Florida og doktorsnema hennar, Aaron Gage. Gagnanám („Data mining") sem kennt var af dr. Jarek Gryz frá York University, Ontario í Kanada Stuðningur Bandamanna Háskólans í Reykjavík hefur gert tölvunarfræðideild HR kleift að efla kennslu og stórauka rannsóknir í tölvunarfræði. BAUGUR & ISLENSK f.HI ÐAC.RMNINC. OPIN KERFIHF í samotarfi wð Skýrr og Teymi islandssími Q EIMSKIP Umsóknarfrestur er til 5. júní • \AI1AIW. PU. IS v HÁSKÓLIIMN í REYKJAVÍK BEYKJAVIK UNIVEBSITY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.