Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Side 31
ekki bundinn neinum klíkum eöa hópum. Mér er mjög eðlislægt að ganga að öllum sem jafningjum mínum og þar er enginn undan dreginn; ég hef ekki skoðanir á því fyrir fram hvernig fólk sé. Allir hafa jöfn tækifæri gagnvart mér.“ Það var stór ákvörðun að flytja, segi ég og Ámi svarar: „Það þykir mörgum að þetta hafi verið stór ákvörðun. Áhættan er fyrst og fremst fólgin í því að fara á ákveðið svæði og vera ekki öruggur með starf á því svæði. Hin hliðin, og sú stærri, er að ákveða hvar maður vill búa sér heimili og allir i fjölskyld- unni verða að vera með þegar sú ákvörðun er tekin. Störf geta komið og farið en hvar heimilið er byggt upp og hvar maður vill vera er meira mál. Við erum sannfærð um að hér sé gott að búa og nú munum við sannfæra fleiri um það. Tvær fullyrðingar um Reykjanesbæ eru þekktar - önnur varðar Reykjanesbrautina og hin rok og rign- ingu. Nú er verið að heija framkvæmdir við tvöfóld- un Reykjanesbrautar og ég er mjög ánægður með að byrjað skuli vera á hættulegasta kaflanum. Ég held að það verði fljótt hægt að kveða niður óttann við Reykjanesbrautina þótt auðvitað geti alltaf orðið slys. Varðandi veöurfarið þá er oft logn á morgnana, síð- degis og á kvöldin. Hljómar sungu um að kvöld í Keflavík væru engu lík. Vegna legu bæjarins er þar oft fallegt veður. Ég hef ekki upplifað logn í jafn lang- an tíma á nokkrum stað. Það kann að vera andlegt en ég trúi því að auövelt verði að sýna fram á að fullyrð- ingar varðandi veðurfarið séu alrangar. Það er meiri úrkoma í Reykjavík." - Þannig að þú telur Reykjanesið verða fyrir veður- farslegum fordómum? „Já, fólk þekkir það,“ segir Árni. „Nálægð bæjarins við alþjóðaflugvöll hefur mikla kosti fyrir íbúana. Reykjanesbær er sá bær á íslandi sem er næstur heimsborgunum og það má telja Reykjavík með þeim. Þeir allra hörðustu hérna í bæn- um segjast velja á milli Reykjanesbæjar, Reykjavíkur, New York og London þegar fara á i leikhús." - Það voru ekki allir ánægðir með aðkomumanninn í efsta sæti lista Sjálfstæðisflokksins: „Það voru aðaflega framsóknarmenn. Og það er ekki þeirra að ákveða hver er í forystu sjálfstæðis- rnanna." - Þú hefur ekki heyrt þessa gagnrýni frá sjálfstæð- ismönnum? „Það var einróma samþykkt á einum fjölmennasta fundi sem haldinn hefur verið í fulltrúaráði Sjálfstæð- isflokksins hér að ég yrði efsti maður á lista. Þeir sem stóðu að talningu í kosningunum segjast sjaldan hafa séð jafn fáar útstrikanir og i þessum kosningum. Það gefur til kynna að þeir sem studdu Sjálfstæðisflokk- inn studdu mig og voru ekki með neinar athugasemd- ir við veru mína á listanum.“ Við erum ungt fólk - Hvað réð úrslitum varðandi ákvörðunina um að taka sæti á listanum og flytja suður eftir? „Upphaflega hafði Þorsteinn Erlingsson, fyrrver- andi skipstjóri og nú útgerðar- og athafnamaður, sam- band við mig í lok október og spurði hvort ég vildi skoða þann möguleika að vera bæjarstjóraefni Sjálf- stæðisflokksins. Ég hafði alls ekki hugleitt slíkt; hafði i raun verið með hugann við aðra kosti. Ég féllst á að koma við hjá honum og hann fór með mig „sparirúnt- inn“ um bæinn og mér þótti mikið til koma. Eins og borgarhagfræðin segir vildi ég fyrst og fremst skoða hvaða möguleika þetta bæjarfélag hefði varðandi ný- byggingarsvæði. Grunnskólarnir hérna eru einnig mjög vel búnir og boðið upp á heitar máltiðir í þeim öllum en það var einmitt stefnumál í mörgum bæjar- félögum í kosningunum núna. Ég reyndi á sínum tima að fá tónlistarskólana inn í grunnskólana í Reykjavík en það er búið hér, íþróttaaðstaða er til fyr- irmyhdar og svo mætti lengi telja. Allt þetta jók áhuga minn á bænum og svo skipti líka máli að ég vildi veita bömum mínum góða mnönnun og mennt- un. Reykjanesbær hefur líka margar sterkar stoðir í atvinnulífmu. Þessi faglega skoðun á bæjarfélaginu varð til að auka áhuga minn á verkefninu. Fjölskylda mín fann fyrir mikilli hlýju: fólk tók vel á móti okkur. Bryndís, eiginkona mín, stóð meö mér eins og hún hefur alltaf gert og var mjög áhugasöm um að við tækjum þetta skref. Enda erum við ungt fólk. Ég hitti vin minn, Áma Helgason frá Stykkis- hólmi, fyrir nokkrum mánuðum. Hann stendur á ní- ræðu, er helmingi eldri en ég og rosalega hress. Þeg- ar ég horfði á hann hugsaði ég um öll þau tækifæri sem maður hefur ef heilsan er góð: við erum ungt fólk!“ Haukamir í flokknum Árni var borgarfulltrúi í Reykjavík frá árinu 1986. Þegar Davíð Oddsson hætti sem borgarstjóri töldu margir að ungi maðurinn Árni Sigfússon væri hæfast- ur í embættið. Lending flokksins var hins vegar að kafla til Markús Örn Antonsson. Skömmu fyrir kosn- ingar 1994 var gerð skoðanakönnun sem sýndi að flokkurinn hafði einungis rúmlega þriðjungs fylgi. R- listinn var þá nýtt afl og lagði mikla áherslu á að breyta frá 12 ára valdatíð sjálfstæðismanna. Níutíu dögum fyrir kosningar var Árni Sigfússon kallaður til. Flokkurinn jók fylgi sitt um 50% frá skoðanakönn- Eg hélt mig við mínar áherslur í skólamálum sem þýdcii að ég var sem oddviti minnihlutans ekki óþekkur við meirihlutann í skólamálum. Þá kom upp gagnrýni frá haukunum í Sjálf- stœðisflokknum um að ég sýndi óþarfa mýkt og linkind að geta ekki snúist til andstöðu í öllum málum. Eg get ekki verið á móti því sem ég er sammála; þess vegna er ég ekki góður í stjórnarandstöðu ef verkefnið er að vera á móti öllu sem meiri- hlutinn gerir. LAUGARDAGUR I. JÚNÍ 2002 HelQCirblaö 13'V 3i LAGER- SALA uninni og endaði með 47% atkvæða. Stríðið tapaðist engu að síður. Árni var oddviti minnihluta sjálfstæð- ismanna næstu fjögur ár en boðaði fyrir kosningam- ar 1998 að ef þær töpuðust myndi hann stíga niður og láta öðrum eftir sæti oddvitans. Þá bað R-listinn um frekara umboð til að halda um stjórnartaumana og fylgja eftir stefnumálum sínum. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þá 45,1 prósent atkvæða. - í kringum borgarstjórnarkosningarnar núna var mikið rætt um að það sem sumir vildu kalla mjúkar áherslur i málflutningi Sjálfstæðisflokksins væri arf- leifð Árna Sigfússonar. „Mönnum er að skiljast að ég er mjög harður á þessum mjúku áherslum; ég gef ekkert eftir í þeim lífsgildum sem ég vil að við herðum upp í samfélag- inu okkar. Það var athyglisvert þegar ég tók við sem borgarstjóri 1994 að helstu árásirnar voru á viðsnún- ing Sjálfstæöisflokksins í hinum ýmsu málum. Það var taktík andstæðinganna þá því þeir óttuðust að mín nálgun hirti af þeim fylgi. Það var hins vegar enginn viðsnúningur. Ég hélt mig við mínar áherslur i skólamálum sem þýddi að ég var sem oddviti minni- hlutans ekki óþekkur við meirihlutann í skólamálum. Þá kom upp gagnrýni frá haukunum í Sjálfstæðis- flokknum um að ég sýndi óþarfa mýkt og linkind að geta ekki snúist til andstöðu í öllum málum. Ég get ekki verið á móti því sem ég er sammála; þess vegna er ég ekki góður í stjórnarandstöðu ef verkefnið er að vera á móti öllu sem meirihlutinn gerir. Ég átti fleiri andstæðinga inni i flokknum en menn gerðu sér grein fyrir og þeir voru tilbúnir að fara gegn mér bak við tjöldin þegar flokkurinn tapaði í kosningunum. Það er ekkert óeðlilegt og það er engin kergja í mér gagnvart þeim. Ég er bara að lýsa stað- reyndum. Svona er lífið. Ég er ekki að tala um forystu Sjálfstæðisflokksins því þegar ákvörðunin um fram- boð mitt var tekin þá stóð hún heilshugar með mér.“ Aftur í hringinn Þrátt fyrir háværar óánægjuraddir innan flokksins fékk Árni afgerandi umboð í prófkjöri 1998. - Síðan steigst þú úr stóli oddvitans: „Ég sagði að ef ég næði ekki settu marki myndi ég stíga út úr borgarmálunum og gefa öðrum eftir sæti mitt.“ - En má ekki segja að þú rísir upp núna í pólitisk- um skilningi? „Það kann að vera að sigur minn í Reykjanesbæ og ósigur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik kalli á endurrit- un sögunnar varðandi mitt framlag í Reykjavík. Björn Bjarnason er öflugur stjórnmálamaður, hreinn og beinn og kraftmikill, og það er ágætt að sjá að ég hafi ekki skilað verri niðurstöðu en hann. Ég tel mig mjög dóm- bæran á þá miklu vinnu sem Björn lagði fram; hann tók að sér erfitt verkefni og barðist eins og hetja.“ - Af hverju tapaði Sjálfstæðisflokkurinn í borginni? Mín skoðun er og hefur alltaf verið sú að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sé einfald- lega mjög öflugur stjórnmálamaður. Ég færi henni heillaóskir. Það er mikið í hana spunnið. Engum öðrum hefur tek- ist að sameina ólík stjórnmálaöfl að baki sér eins og hún hefur gert. Engin kona hefur náð slíkri forystu- stöðu í íslenskum stjómmálum. Ég spáði því alltaf að undir lok kosningabaráttunnar í Reykjavík myndi Ingibjörg Sólrún stíga fram sem einstaklingurinn sem sameinar ólik öfl. Og þá skiptir engu hvað Alfreð eða einhverjir sprikla. Ég vissi að hún myndi ná þessu fylgi svo lengi sem henni yrði ekki alvarlega á.“ - Hún hefur nú farið illa með ykkur? „Ég get ekki annað en brosað að því hvernig hún hefur raðaö okkur þremur körlunum upp, mér, Mark- úsi og Birni, kippt okkur inn í hringinn og fleygt okk- ur út úr honum. En úr því Tyson fær tækifæri aftur hlýtur það að gilda um okkur líka. Svo bítum við ekki dömur.“ -sm Sýningarhúsgögn og líti& útlitsgölluð húsgögn á 20-80% afsl«»tti i IKEA um helgina fyrstir fá Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 wlrl'fcl Laugardaga kl. 10:00 ____kl. 10:__ Sunrtudaga kl. 12:00 17:00 17:00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.