Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Síða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2002, Síða 61
LAUGARDAGU R I. JÚNÍ 2002 H e / c) (i rb la c) JOV 61 V* Jón Þorsteinn Gíslason bifreiðastjóri í Hafnarfirði verður 60 ára í dag Jón Þorsteinn Gíslason bifreiðastjóri, Þúfubarði 13, Hafnarfirði, er sextugur í dag. Starfsferill Jón Þorsteinn fæddist í Litla-Hvoli á Hvolsvelli og ólst þar upp. Hann stundaði gagnfræðaskólanám í Hvolsskóla, síðar nám í bifvélavirkjun í Iðnskóla Sel- foss og loks starfsnám í sömu grein hjá Heklu hf. í Reykjavík 1961. Jón Þorsteinn starfaði á bifvélaverkstæði og við uppbyggingu sláturhússins á vegum Kaupfélags Rang- æinga á Hvolsvelli næstu misserin, vann við pípu- lagningar með föður sínum í Rangárþingi 1963-66 og kom jafnframt að verslunarrekstri fjölskyldunnar í versluninni Hagkjörum hf. á Hvolsvelli. Jón Þorsteinn flutti með fjölskyldu sinni til Hafnar- fjarðar 1966. Hann hóf þá rekstur vörubíls hjá Vöru- bílastöð Hafnarfjarðar og sinnti jafnframt verslunar- störfum við fjölskyldufyrirtækið, Verslunina Hraun- ver í Hafnarfirði, frá 1967. Jón Þorsteinn hóf leigubílaakstur 1976 hjá BSH og hefur starfað þar síðan. Hann hefur verið gjaldkeri BSH frá 1996, framkvæmdarstjóri stöðvarinnar frá 2001, situr í stjórn Frama og gegnir þar trúnaðarstörf- Fjölskylda Jón Þorsteinn kvæntist 15.12. 1963 Sveinveigu Guð- mundsdóttur (Lillu), f. 22.12. 1942, nú starfskonu á Hrafnistu í Hafnarfirði og húsmóður í Garðabæ. Þau skildu 1975. Foreldrar hennar: Guðmundur Sigfússon, f. 16.5. 1913, d. 28.3. 1996, lengi bóndi í Fljótsdal í Fljótshlíð og síðar verkamaður I Þorlákshöfn, og Þor- björg Pálsdóttir, f. 15.12. 1915, húsmóðir. Börn Jóns Þorsteins og Sveinveigar eru Gísli, f. 7.5. 1960, dýralæknir í Hafnarfirði, kvæntur Guðrúnu Dagmar Rúnarsdóttur og eiga þau tvö börn; Kolbrún, f. 13.5 1961, tækniteiknari og snyrtir í Hafnarfirði, gift Guðlaugi Laufdal og eiga þau tvö börn; Þórunn, f. 7.10. 1963, húsmóðir í Hafnarfirði, í sambúð með Michael Jan Roberson og eiga þau eitt barn en fyrir á Þórunn þrjú börn; Guðmundur Sævar, f. 20.7. 1968, smiður í Hafnarfirði, í sambúð með Guðnýju Viktor- íu Másdóttur og eiga þau tvö börn. Jón þorsteinn á eina dóttur frá fyrri sambúð með Sigrúnu Hansen, f. 10.6. 1957, Sigrúnu Margréti, f. 29.11. 1979, nú búsett á Bretlandseyjum ásamt dóttur sinni Katrínu Tinnu. Jón Þorsteinn hefur verið í sambúð frá 1982 með HLlifHHK'HjJ 11111H b HIHfe • Katrín Sæmundsdóttir húsmóðir í Garðabæ Katrín Sæmundsdóttir, Kirkjulundi, Garðabæ, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Katrín fæddist í Stóru- Mörk undir Vestur-Eyjafjöll- um og ólst þar upp. Hún var húsfreyja og bóndakona í Stóru-Mörk en auk þess ráðs- kona hjá vegavinnuflokki og síðan starfsstúlka við Landspítalann. Katrín og maður hennar stunduðu siðan búskap að Brú í Austur-Landeyjum. Fjölskylda Eiginmaður Katrínar: Eysteinn Einarsson, f. 12.4. 1904, vegavinnuverkstjóri. Foreldrar hans voru Einar Þórðarson, bóndi í Hvítuhlíð í Bitrufirði á Ströndum, og Steinunn Jónsdóttir húsfreyja. Börn Katrínar og Eysteins: Hrafnhildur Eysteins- dóttir,' f. 17.6. 1949, aðstoðarmaður tannlæknis í Garðabæ, gift Jónasi Ragnarssyni tannlækni og eru börn þeirra Ragnar, f. 29.5. 1971, lögfræðingur í Kópa- vogi, Katrín Hildur, f. 24.2.1975, leiðbeinandi við leik- skóla, Hrönn, f. 10.5.1977, hárgreiðslukona í Garðabæ, Edda Rán, f. 29.12. 1979, nemi við MK, og Eysteinn, f. 5.1. 1985, nemi við FG; Hilmar Eysteinsson, f. 2.9.1951, forstjóri Fínverks, búsettur í Reykjavík, kvæntur Sig- ríði Magnúsdóttur húsmóður og er dóttir þeirra Ingi- björg, f. 26.11. 1981, nemi í Borgarholtsskóla, auk þess sem Sigríður á tvo syni frá því áður, Óskar og Stefán. Systkini Katrínar: Valtýr, f. 16.12. 1907, látinn, bú- settur í Hafnarfirði; Árni, f. 30.11. 1909, látinn, hrepp- stjóri í Stóru-Mörk; Kristín, f. 13.11. 1912, látin, hús- freyja í Mið-Mörk; Einar, f. 15.10. 1914, látinn, bóndi i Stóru-Mörk; Sigurður, f. 7.3. 1916, látinn, verkstjóri í Reykjavík; Guðmundur, f. 14.5. 1920, látinn, bóndi á Gíslastöðum á Völlum; Guðlaug, f. 6.11. 1921, húsmóð- ir í Reykjavík; Þóra, f. 21.5. 1925, látin, húsmóðir í Hafnarfirði; Kristján, f. 20.8. 1926, látinn, verkamaður á Torfastöðum í Fljótshlíð; Sigurbjörg, f. 10.7. 1928, húsmóðir í Reykjavik; Bergur, f. 24.3. 1923, fyrrv. sérleyfishafi, búsettur á Hvolsvelli. Foreldrar Katrinar voru Sæmundur Einarsson, hreppstjóri í Stóru-Mörk, og k.h., Guðbjörg María Jónsdóttir húsmóðir. Katrín ver afmælisdeginum með ættingjum sínum. Aðalheiður Guðmundsdóttir húsmóðir í Garðabæ Aðalheiður Guðmundsdótt- ir húsmóðir, Garðatorgi 17, Garðabæ, verður áttræð á morgun. Starfsferill Aðalheiður fæddist við Laugaveginn í Reykjavík og ólst upp í Reykjavík. Hún stundaði nám við verslunar- skóla í Kaupmannahöfn og söngnám á íslandi, við Mozartteum i Salzburg í Aust- urríki, í Múnchen i Þýskalandi og í New York. Aðalheiður hefur búið í Danmörku, Þýskalandi, E1 Salvador, Nicaragua, Costa Rica, Honduras og Banda- ríkjunum. Aðalheiður hefur sungið með ýmsum kórum og haldið tónleika hér heima og erlendis. Hún var fyrsti formaður söngsveitarinnar Filharmoníu og var for- maður sjálfstæðiskvennafélagsins í Kópavogi í nokk- ur ár. Fjölskylda Aðalheiður giftist 17.5. 1941 Sveini Sigurði Einars- syni, f. 9.11.1915, d. 19.6.1988, yfirverkfræðingi hjá SÞ í Miö-Ameríku og í New York. Hann var sonur Einars Sveinssonar, bónda á Leirá í Borgarfirði, og k.h., Þór- dísar Guðmundsdóttur húsfreyju. Böm Aðalheiðar og Sveins eru Einar, f. 28.3. 1945, framkvæmdastjóri i E1 Salvador, kvæntur Beatriz Zarco Sveinsson og á hann tvær dætur; Anna Júlíana, f. 7.10. 1949, óperusöngkona í Garðabæ, gift Rafni Sig- urðssyni viðskiptafræðingi og eiga þau þrjú börn. Kjördóttir Aðalheiðar og Sveins og jafnframt syst- urdóttir Aðalheiðar er Margrét Heinreksdóttir, f. 1.4. 1936, forstjóri Mannréttindastofu íslands og á hún tvær dætur. Hálfbróðir Aðalheiðar, sammæðra: Sveinn Jónsson, f. 9.10. 1910, látinn, skrifstofumaður í Reykjavík. Alsystini Aðalheiðar: Ástríður Anna, f. 7.3. 1917, d. 18.2. 1944, húsmóðir í Reykjavík; Guðmundur Svavar, f. 11.5. 1918, d. í apríl 1974, skákmeistari; Þórey Krist- ín Guðmundsdóttir, f. 18.10. 1919, húsmóðir í Reykja- vík; Fanney Lilja, f. 16.10. 1923, látin, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Aðalheiðar voru Guðmundur Jónsson, f. 1.9. 1888, d. 18.7. 1955, kaupmaður í Brynju, búsettur í Reykjavík, og k.h., Júlíana Sveinsdóttir, f. 30.1. 1886, d. 4.11. 1967, húsmóðir. Ásdísi Ingólfsdóttur, f. 28.5. 1961, húsmóður í Hafnar- firði. Foreldrar hennar eru Ingólfur Ólafsson, f. 22.3. 1935, bifreiðastjóri og Auður Marísdóttir, f. 10.08. 1939, starfskona á Sólvangi í Hafnarfirði. Fyrir á Ásdís dótturina Ingu Þóru Böðvarsdóttur, f. 31.7. 1980. Systkini Jóns Þorsteins: Svava, f. 21.2. 1936, hús- móðir í Reykjavík; Jón Þorsteinn, f. 14.1. 1940, dó af slysförum 19.8. 1941; Ágúst, f. 3.4. 1949, húsasmíða- meistari á ísafirði. Foreldrar Jóns Þorsteins voru Gísli Jónsson, f. 5.2. 1912, d. 3.12. 1993, pípulagningameistari frá Ey í Vest- ur-Landeyjum, og Guðrún Þorsteinsdóttir, f. 13.6. 1917, d. 12.3. 1998, húsmóðir. Ætt Gísli var sonur Jóns Gíslasonar, f. 5.10. 1871, d. 27.4. 1956, bónda og oddvita i Ey í Vestur-Landeyjum og Þórunnar Jónsdóttur, f. 27.7. 1876, d. 2.7. 1964, ljós- móður í Rangárþingi. Guðrún var dóttir Þorsteins Ágústssonar, f. 8.10. 1874, d. 24.10. 1938, húsgagna- smiðs í Reykjavík og Guðrúnar Hermannsdóttur, f. 23.1. 1891, d. 1.2. 1972, húsmóður frá Fremstuhúsum í Dýrafirði. Jón Þorsteinn er að heiman. Það að ljóða lof á mig lýsir góðu viti Skagfirsk skemmtiljóð komu út í þremur bindum á árunum 1997 til 1999. Bjarni Stefán Konráðsson safn- aði. Þar má finna margan góðan kviðling. Ég fletti gegnum bindin þrjú og tíndi úr örfá sýnishorn af kveðskap þeirra Skagfirðinga. Kristján Árnason á Skálá orti um ónefndan tækni- fræðing: Lítiö gengur að lœra að skrimta af lífsins daglega gerningi. Hann er ennþá aö hanna fimmta hornið á sínum ferningi. Birgir nokkur Hartmannsson orti lofvísu um Sigur- jón Runólfsson. Sigurjón svaraði með þessari vísu: Vaski bróðir, vermi þig vísnaglóðar hiti. þaó að Ijóða lof á mig lýsir góöu viti. Þorbjörn Kristinsson orti í hita kjarabaráttunnar: Að geta ekki lifað á loftinu hér er líklega bölvaður galli, því vaxandi kreppa og veróbólga er og víxlarnir komnir aðfalli. í öðru bindinu rakst ég á þekkta vísu. Hana orti Ei- ríkur Kristinsson þegar hann var ungur drengur: Bjarnastaðabeljurnar þœr baula mikió núna, þœr eru að verða vitlausar þaö vantar eina kúna. Bœndur hafa bruggið þekkt og bragöió góða af landanum. þaö er djarft og drengilegt aö drekka sig út úr vandanum. Á hagyrðingamóti í Varmahlíð í október 1993 var spurt að því hvað menn hugsuðu daginn eftir Laufskálarétt. því svaraði Sig- urður Hansen svona: Það sem oft er sungið á eftir vísunni, um að þetta geri ekkert til o.s.frv. er seinni tíma viðbót eftir ann- an höfund. Hilmir Jóhannesson kom að umræðu þar sem það bar á góma að réttast væri að selja bjór til að leysa efnahagsvanda þjóðarinnar. Hann gerði þá þessa vísu: Umsjón Ragnar Ingi Aðalsteinsson ria@ismenntis Ef menn hugsa yfirleitt er mér nœst að gruna að menn sem ekki muna neitt megi best við una. Að lokum er hér ein sem Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka orti um ástina: Margir hæla ást um of ýmsum var hún byrói. Nái hún aðeins upp í klof er hún lítils viröi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.