Dagblaðið - 29.06.1977, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVÍKUDAGUR 29. JUNl 1977.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 29. JUNÍ 1977.
13
Geturekki tekið
við 4000 sterlings-
punda verðlaunum
—18 ára áhugamaður kominn
í undanúrslit á Wimbledon
Atján ára piltur, John McEnroe, hefur
komió mjog á óvart i tenniskeppninni í
VVimbledon. Honum var ekki raðað fyrir
keppnina, en í gær vann hann það afrek að
tryggja sér rétt í undanúrslit. Sigraði þá Phil
Dent, Astralíu, (i-4, 8-9, 4-6, 6-3 og 6-3. Hann
hefur því þegar unnið til 4000 sterlings-
punda verðlauna, en getur ekki veitt þeim
viðtöku þar sem hann er áhugamaður i iþrótt
sinni.
McEnroe leikur í undanúrslitum við landa
sinn Jiinmy Connors, sem í gær sigraði
Byrom Bertram, Suður-Afríkú, með 6-4, 3-6,
6-4 og 6-2.
Meistarinn frá í f.vrra, Björn Borg, en
Wimbledon-keppnin er hin óopinbera heims-
meistarakeppni í tennis.vann mjög sannfær-
andi sigur í gær á Rúmenanum fræga, Ilie
Natase. Borg sigraði í þremur lotum, 6-0, 8-6
og 6-3, og lék fráhærlega vel. í undanúr-
slitum leikur Björn Borg við Vitas
Gerulaitis, USA, en hann sigraði ianda sinn
Bill.v Martin i gær með 6-2, 8-9, 6-2 og 6-2.
Það eru ungir menn, sem leika í undanúr-
slitunum. John McEnroe Í8 ára eins og áður
segir, Björn Borg 21 árs, Gerulaitis 22ja ára
og Connors „gamli“ maðurinn í hópnum,
24ra ára. Nú reikna allir með „óskaúrslita-
leiknum" á Wimbledon—úrslitaleik Björns
Borg og Jimm.v Connors, þeirra tveggja, sem
hikiaust eru fremstu tennisleikarar hcims
*:ú.
Fosterá 13.2sek.
Bandaríkjamaðurinn Charles Forster
hljóp 110 m grindahlaup á 13.3 sek. á móti i
Mainz i Vestur-Þýzkalandi í gær. Það var
bezti árangurinn á mótinu, og bezti tími
ársins í grcininni. Houston McTear, USA,
hljóp 100 m á 10.1 sek. Landi hans Steve
Williams varð annar á 10.2 sek. Steve
Riddick USA sigraði í 200 m hlaupi á 21.0
sek. og Francie Larrieu-Lutz setti nýtt
bandarískt met i míluhlaupi kvenna. Hljóp
vegalengdina á 4:28.2 mín.
Basel meistari
Basel varð svissneskur meistari í knatt-
spyrnu í gær og leikur því í Evrópubikar-
keppninni næsta keppnistimabil. í aukaúr-
slitum í Bern í gær sigraði Basel Servette
Genf með 2-1. Liðin voru jöfn að stigum með
29 stig eftir 1. deildarkeppnina í Sviss, sem
lauk á laugardag.
Bezti árstíminn
í200mhlaupi
Olympíumeistarinn Don Quarrie,
Jamaíka, náði bezta tíma ársins í 200 m
hlaupi á Bislet-leikunum í Osló i gærkvöld.
Hljóp á 20.1 sek. þrátt fyrir kulda og
rigningu. Annar varð Clancy Edwards, USA,
á 20.4 sek. og Tony Garden, USA, þriðji á 20.7
sek.
Verðlaunamennirnir frá Montreal í há-
stökkinu kepptu í Osló. Olympíumeistarinn
pólski komst ekki á blað — en heimsmethaf-
inn Dwight Stones, USA, sigraði með 2.14 m.
Silfurmaðurinn frá Montreal, Kanada-
maðurinn Greg Joy, varð annar með 2.10 m
og Terje Totland, Noregi, stökk sömu hæð.
í kringlukastinu var olympíumeistarinn
og heimsmethafinn Mac Wilkins, USA,
aðeins fjórði. Kastaði 62.92 m. Landi hans
John Powell sigraði með 65.84 m. Ken Stadcl,
USA, varð annar með 65.68 m og Knut
Hjeltnes, Noregi, þriðji með 63.90 m. 1 800 m
hlaupinu sigraði Mike Boit, Kenýa, á 1:45.9
mín. Mark Belger, USA, varð annar á 1:46.6
min og Samuel Kipkurgat, Kenýa, þriöji á
1:47.3 mín.
Irena Szewinska, Póllandi, hafði mikla
vfirburði í 200 m hlaupi kvenna og náði
fráhæruin tíma 22.4 sek. Michael Misyoki,
Kenýa, sigraði í 5000 m hlaupi á 13:43.7 mín.
rétl á undan Norðmanninum Jan Fjorestad
13:44.5 mín. Olympíumeistarinn í spjótkasli,
Ungverjinn Miklos Nemeth. hafði vfirburði í
sinni grein. Kastaði 88.32 m. I 1500 m hlaupi
kvenna sigraði Grela Waitz, Noregi, á 4:06.5
min. og Janos /emen í 1500 m hlaupi karla á
3:39.4 inín. Wilson Waigwa, Kenýa, varö
annar á 3:39.8 inín. Dick Quax, Nýja-
Sjálandi, þriðji á 3:40.4 mín. og Malinowski.
Póllandi. I'jórði á 3:40.5 mín.
Fulltrúar Reykjavíkurfélaganna, Fram, KR, Vals og Víkings á fundinum í gær. Talið frá vinstri, Þér
Símon Ragnarsson, Víking, Baldur Jónsson vallarstjóri, Sveinn Björnsson, formaður Iþróttaráðs, Sveinn
Sveinsson, Fram, Kristinn Jónsson, KR, Stefán Kristjánsson iþróttafulltrúi. A myndina vantar Pétur
Sveinbjarnarson, Val. DB-mynd Hörður Vilhjálmsson.
Einfaldasta lausnin að
fá gervigras á völlinn
— sagði Baldur Jónsson, vallarst jóri en fundur var í gær
með Reykjavíkurfélögunum um aðstöðuna í Laugardal
— Reykjavíkurfélögin fjögur, í 1.
deild, Fram, KR, Vaiur og
Víkingur, héldu fund með Baldri
Jónssyni vallarstjóra, Sveini
Björnssyni, formanni íþróttaráðs
Reykjavíkur og Stefáni Kristjáns-
syni, íþróttafulltrúa Reykjavíkur,
sagði Kristinn Jónsson, formaður
knattspyrnudeildar KR en
fundurinn var haldinn í Laugar-
dal í gær.
— Okkur voru gefnar skýringar á
því hvers vegna leikir í 1. deild
gætu ekki farið fram á Laugar-
dalsleikvangi — og við fyrir
okkar leyti samþykktum þær, hélt
Kristinn áfram. Það kom fram að
grasrót í neðri vellinum er enn
ekki nógu styrk — því yrði að
leika á efri vellinum. Þó fara
síðustu heimaleikir Reykjavíkur-
félaganna í sumar fram á Laugar-
dalsleikvangi, KR-Fram og
Víkingur-Valur.
Vissulega væri æskilegt að hafa
stúku fyrir áhorfendur og vissu-
iega er óæskilegt að áhorfendur
utan vallar geti fylgzt með leikj-
um 1. deildar en grasið á efri
vellinum er mjög gott. Verði sú
hvíld, sem Laugardalsleikvangur-
inn á að fá, til hagsbóta þá er
biðin ekki til einskis.
Reykjavíkurfélögi'n hafa vissu-
lega orðið fyrir tekjumissi vegna
þess að leikirnir fara fram á efri
vellinum — því er ekki að leyna.
Aðstæður fyrir áhorfendur eru
bágbornar á efri vellinum og fólk
veigrar sér við að fara á völlinn,
ef til að mynda rigning er — og
engin stúlkan, sagði Kristinn
Jónsson að lokum.
— Við viljum að sjálfsögðu allt
fyrir Reykjavíkurfélögin gera og
útskýrðum málin fyrir félögun-
um. Völlurinn er enn ekki
tilbúinn til notkunar. Fjármagn
er ekki ótakmarkað til
ráðstöfunar í framkvæmdir og
uppbygging svæðisins í Laugar-
dal tekur tíma, sagði Baldur Jóns-
son, vallarstjóri.
— Einfaldasta lausnin væri að
setja gervigras á Laugardalsleik-
vanginn — þá væri hægt að leika
þar 24 tíma á sólarhring. Það væri
ódýrasta lausnin er fram í sækir.
En eins og málin standa verðum
við að taka mið af aðstæðum —
uppbygging í Laugardal er í full-
um gangi. Landsleikir fara fram á
Laugardalsleikvanginum í sumar,
Evrópuleikir einnig svo og úrslit
bikarsins og tveir síðustu heima-
leikir Reykjavíkurfélaganna.
A DB-mynd SVÞ er hið sigursæla KR-lið, með alia verðlaunagripi leiktímabilsins fyrir lelkinn við
Armann i gær. Efri röð frá vinstri: Þorsteinn Hjálmarsson, þjálfari, Þórður Ingason, Jón Þorgeirsson,
Sigmar Björnsson, Vilhjálmur Þorgeirsson, Einar Þorgeirsson og Stefán Andrésson. Fremri röð:
Erlingur Þ. Jóhannsson, Ólafur Þ. Gunnlaugsson, Sigursteinn Gunnarsson og Hafþór Guðmundsson,
f.vrirliði.
KR varð Islandsmeistari í
sundknattleik i gær. Vann mik-
inn yfirburðasigur á mótinu og í
gær Arinann með 3-0. Hafþór
Guðmundsson, fyrirliði KR-
liðsins, skoraði tvö af mörkunum,
Ólafur Gunnlaugsson eitt. Þetta
er í fvrsta skipti um langt árabil
hér á landi, að lið fær ekki á sig
mark í sundknaltleik. KR hlaul
átta stig i mótinu. Vann alla leiki
sina. Arinann varð í öðru sæti
með þrjú stig og Egir hlaut eitt
stig. Leikin var tvöföld umferð.
KR-liöiö hefur sigrað í öllum
mótum í sundknattleik á keppnis-
timahilinu. Revndar unnið alla
lciki sina nema einn. Þá varð
jafntefli. Það leynir sér ekki hver
er þjálfari KR — auövitað enginn
annar en Þorsteinn lljálmarsson,
sá inaðurinn, sem þjálfað hefur
öll beztu sundknattleikslið
íslands.
Nær öruggt að Bubbi
leikur gegn Noregi
—sagði Tony Knapp eftir landsliðsæf ingu f gærkvöld
UVERPOOL BYRJAR
í MIDDLESBROUGH
Regnið buidi á islenzku lands-
iiðsmönnunum í knattspyrnu á
efri Laugardalsvellinum i gær-
kvöld. Það var beinlínis skýfall,
og stórir regndroparnir lömdu og
börðu grassvörðinn, sem hætti að
taka við þessum vatnsaga og
pollar mynduðust. En það var
ekki gefið eftir á landsiiðs-
æfingunni. Vatnið spýttist úr
skóförum landsliðsmannanna,
þegar þeir hlupu um völlinn með
knöttinn eða án hans — og Tony
Knapp, landsliðsþjálfari stjórn-
aði piltunum með myndugleik.
Sóknarmenn léku gegn varnar-
mönnum — rennblautir með
vatnstaumana niður úr hárinu.
En það var gleði —ánægja,
hlátur, því ekki tókst öllum vel að
fóta sig. Og æfingin stóð hátt á
aðra klukkustund. Ekkert gefið
eftir, þegar venjulegt fólk hefði
haldið sig innan dyra.
— Jú.'það er nær öruggt, að
Jóhannes Eövaldsson leikur gegn
Norðmönnum á fimmtudag nema
éinhverjar eftirstöðvar komi í
ljós eftir æfinguna, sagói Tony
Knapp, þegar hann hélt inn í
Laugardalshöllina. Það var ekki á
Búbba að sjá — og hann hafði
hamazt og hlaupið um allan völl
eins og ekkert væri á æfingunni.
Síðan drifu strákarnir sig í bað —
og fyrir utan Höllina beið rútubíll
til að aka þeim austur á Þing-
velli. Þar verður æft fram að
landsleiknum — og í morgun
voru strákarnir byrjaðir að æfa í
ausandi rigningu.
Það voru allir á æfingunni
nema Ólafur Sigurvinsson, sem
ekki fékk frí frá vinnu sinni í
Vestmannaeyjum. Hann kemur
beint í landsleikinn á fimmtudag.
Matthías Hallgrímsson kom frá
Svíþjóð á mánudag og þessi leik-
reyndasti leikmaður íslenzka
landsliðsins leit vel út. „Ég lék
með Halmia í bikarkeppninni á
sunnudag gegn 1. deildarliði
Derby. Halmia sigraði með 2-0 í
Halmstad og það var mikill
fögnuður í borginni. Mér gekk
vel eins og liðinu í heild", sagði
Matthías, en hann hefur nú jafn-
að ágreining sinn við Halmia.
Náði því fram að fá að leika lands-
leiki íslands verði þess óskað —
en forráðamenn Halmia vildu
ekki sleppa honum í HM-leikinn
gegn írum. Þá hætti Matthías að
leika ineð liðinu — og forráða-
mennirnir gáfu sig eftir að hann
hafði ekki leikið með þrjá leiki.
I gærmorgun voru atvinnu-
mennirnir fimm á æfingu hjá
Knapp á Laugardalsvellinum.
Þeir æfðu þar stift Matthías,
KR-ingar
íslands-
Teitur Þórðarson, Guðgeir Leifs-
son, Marteinn Geirsson og Jó-
hannes. Síðan var æft aftur um
kvöldið. Það er ekki gefið eftir —
og greinilega mikill hugur í öllum
íslenzku landsliðsmönnunum að
sigra Norðmenn á fimmtudag á
Laugardalsvellinum í 19. lands-
leik þjóðanna i knattspyrnu.
Möguleikar á því eru góðir — og í
fyrrasumar sigruðu þeir Norð-
menn í Osló.
Leikirnir næsta leiktímabil í
ensku knattspyrnunni hafa ver-
ið ákveðnir — og að venju verð-
ur byrjað um miðjan ágúst.
Meistarar Liverpool leika á úti-
velli í fyrsta leiknum — leika í
Middlesbro, en þar er Jackie
Charlton hættur við stjórnvöl-
inn. Bikarmeistarar Manch.
Utd. leika einnig á útiveili í
fyrsta leik — gegn Birming-
ham. Liðin þrjú, sem unnu sér
sæti i 1. deild í vor, Wolver-
hampton, Chelsea og Nottm.
Forest leika á útivöllum í
fyrstu umferð.
Nýja deildaliðið, Wimble-
don, frá samnefndri smáborg í
suðurjaðri Lundúnaborgar,
leikur sinn fyrsta deildaleik á
heimavelli. Mætir þá Halifax 1
Town og það ætti að verða held-
ur léttur leikur fyrir nýliðana
því Halifax varð i fjórða neðsta
sætinu í 4. deild i vor.
FRÁBÆRT SUNDFÓLK í
STRAUMUM TIL ÍSLANDS
—og forustumenn Sundsambands íslands standa í strSngu vegna
átta landa keppninnar, sem verður um helgina
Erlenda sundfólkið, sem tekur
þátt í 8-landa keppninni um
næstu helgi í Laugardaislaug, er
farið að streyma tii landsins. í
þeim hópi er stórsnjallt sundfólk
— sundfóik frá Spáni, Noregi,
Sviss, ísrael, Beigíu, Skotiandi og
Wales, sem getið hefur sér frá-
bæran orðstír sumt hvert í alþjóð-
legri keppni. í gær komu kepp-
endur israels og Sviss — i dag
koma Spánverjar, siðan Walesbú-
ar og Skotar, Norðmenn og Belgar
til að etja kappi við bezta sund-
fólk islands.
Það er mikið fyrirtæki hjá
Sundsambandi Islands að taka á
móti öllum þessum fjölda. Og for-
ustumenn þess standa í ströngu. í
Snorrabúð við Snorrabraut hefur
verið komið upp matstað fyrir erl-
enda sundfóikið — og þar munu
forustumenn íslenzkrar sundi-
þróttar elda ofan í mannskapinn
undir stjórn formannsins, Birgis
V. Halldórssonar, sem er lærður
matsveinn. íslenzkt sundfólk
verður til aðstoðar í eldhúsinu við
matreiðslu og uppvask — og einn-
ig við að framreiða matinn fyrir
keppendur. Þetta framtak mun
spara fátæku sambandi stórpen-
ing.
Fyrirtæki hafa tekið okkur
mjög vel og gefið mat í eldhúsið.
sagði Guðjón Ölafsson, stjórnar-
maður Sí við blaðið í morgun —
og við erum þeim mjög þakklátir.
Undirtektir hafa verið hreint frá-
bærar og allir virðast skilja hve
stórmikil framkvæmd þetta mót
er fyrir sundsambandið, bætti
Guðjón við.
Átta-landa-keppnin hefst í
Laugardalslaug á laugardag og
eitt er víst að þar verða mörg góð
afrek. íslenzka sundfólkið hefur
ekki mikla möguleika á sigrum —
en nokkur Islandsmet ættu að
falla og sundfólk okkar í góðri
æfingu. 1 fyrra var keppt í Car-
diff í Wales. Noregur sigraði þá
með 217 stigum. Skotland varð i
öðru sæti með 158 stig. Síðan
kom Spánn með 153 stig, Belgía
Fótboltaskór
Æfingaskór
íþrótta-
töskur
tslenzku atvinnumennirn-
ir í knattspyrnu á æfingu
hjá Tony Knapp á Laugar-
dalsvelli í gærmörgun. Frá
vinstri Marteinn Geirsson,
Matthías Hallgrímsson,
Teitur Þórðarson, Guðgeir
Leifsson og Jóhannes Eð-
valdsson — ásamt Knapp.
Leikmenn, sem leikið hafa
samtais 150 landsleiki fyrir
ísiand. DB-mynd Hörður
Vilhjálmsson.
151, Wales 148, Sviss 138, Israel
88 og Island rak lestina með 57
stig.
Þessi keppni, sem síðar Jjró-
aðist upp í 8-Ianda-keppni, hófst
1961 í Belgíu með þátttöku
Belgíu, Sviss og Spánar. Næsta ár
bættist Portúgal við, en hætti
þátttöku 1968. Wales kom inn
1963, Noregur 1964, Skotland og
ísrael 1969 og ísland 1971.
meistarar
Stutt-
Sundfólkið frá Israel «g Sviss vid matborðið í Snorrabúð í gærkvöld, þegar fyrsta máltíðin var reidd fram
fyrir erlenda sundfólkið. Það er verið að byrja á að bera fram súpuna. DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
erma- '
bolir
Sweater-
peysur, þykkar
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44,
Reykjavik, sími 11783
Póst
sendum