Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.07.1978, Qupperneq 3

Dagblaðið - 11.07.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. JULÍ 1978. 3 SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN HEFÐI ÁTT AÐ TAKA MIÐ AF SKODANA- |/r AM||| P MIM MI — Þá hefðuúrslitkosninganna HUNNUNmNl orðið önnur Ásmundur S tef- ánsson verði næsti borgarstjóri Almennur kjósandi skrífar. Upp á síðkastiö hefur i blöðum ver- ið stungið upp á hinum og þessum manninum í embætti borgarstjóra Reykjavíkur. Einkum hefur Magnús Torfi Ólafsson verið nefndur. Ég er eindregið á móti því að hann verði borgarstjóri og hef þá i huga stjórn menntamála á ráðherratímabili hans 1971—74. Hann var slæmur ráðherra og yrði enn verri borgarstjóri. Ég vil leyfa mér að stinga upp á Ás- mundi Stefánssyni, hagfræðingi Al- þýðusambandsins, sem borgarstjóra. Menn í öllum stjórnmálaflokkum eru sammála um hæfileika hans og ósér- hlífni í störfum. Hví ekki að gera hann að næsta borgarstjóra? Lækjargötu 8 Reykjavikurvegi 60 Hf. Þ.H. skrifan Markús örn Antonsson hugsar upphátt í Mbl. 6. júlí. Mig langar til að gera athugasemd við tvö atriði í grein hans. Prófkjör Prófkjör eru vitanlega eina lýð- ræöislega leiðin til að velja frambjóð- endur og meira máli skiptir að velja hæfa menn í framboð þótt ósammála séu, heldur en að stilla upp lista halelúja flokksmanna. En það var annað í spilinu í próf- kjöri sjálfstæðismanna, þ.e.a.s. fáeinar spurningar til að kanna hug fólks til nokkurra mála sem á döfinni hafa ver- ið. Ég held að orsaka fylgistapsins sé ekki sízt að leita þar. Sú niðurstaða sem fékkst i téðri skoðanakönnun benti eindregið til að ca 80% þátttakenda væru andvígir kaupum á Víðishúsinu og sami hundr- aðshluti væri hlynntur að varnarliðið tæki að sér vegagerð hérlendis. Flokksforinginn, Geir Hallgrims- son, sagðist ekki vilja setja verðmiða á landið. Hvílík hræsni! Sami maður kemur gleiðbrosandi frá Washington á dögunum með flug- stöð upp á milljarða í vasanum. Þaðer ekki verðmiði á landið! Það hlýtur að vera skýlaus krafa okkar Islendinga að svo lengi sem hér er her þá borgi herinn öll þau hin sömu gjöld og við. Á ég þar við tolla, söluskatt og vörugjald af öllum sínum innflutningi, að ógleymdu vegagjaldi af bensíni. Ef flokksforinginn kallar það landsölu að íslenzk lög gildi um veru þessara dáta í Miðnesheiðinni þá má sá frómi maður gera það. Sjálfstæðisflokkurinn sem gekk til kosninga án nokkurs baráttumáls og með skugga fjögurra ára stjórnar og athafnaleysis yfir sér, hefði átt að taka meiri mið af niðurstöðum skoðana- könnunarinnar og þá hefði ekki farið sem fór. Flokksforystan Markús Örn Antonsson talar um klofning og sundurlyndi flokksforystu og má það mikið rétt vera. Einnig spyr hann „hver annar” en Geir geti verið formaður Sjálfstæðis- flokksins. Sem betur fer þá er því ekki svo illa farið að aðeins einn valdi þessu hlut- verki. Edward Heath tapaði 4% af fylgi íhaldsflokksins og sagði af sér. Geir Hallgrímsson tapar 20% eða fimmtungi fylgis sjálfstæðismanna og Markús telur hann sjálfsagðan for- mann áfram. Auðvitað þarf að skipta um forystu i flokknum, sem allra fyrst. Mín hugmynd er sú að Birgir Ís- leifur Gunnarsson verði kjörinn for- maður Sjálfstæðisflokksins og Albert Guðmundsson og Friðrik Sophusson verði honum næstir að virðingu í flokknum. Niðurstaða kosninganna sýnir skýrt að flokksforystan er seki aðilinn en Magnús Torfi er virtur maður og ábyrgur — Gerum hannað borgarstjóra Flokksbundinn Alþýðubandalagsmað- ur skrifar: Ég vil leyfa mér að taka undir skrif „borgarbúa”í DB 4. júlí, þar sem bent er á Magnús Torfa Ólafsson í embætti borgarstjóra í Reykjavik. Ég er sammála „borgarbúa” í því efni og vil eindregið hvetja okkar nýja og góða borgarstjórnarmeirihluta til að ræða við fyrrverandi menntamála- ráðherra og ég skora á M.T.Ó. að sækja um stöðuna. Það eru orð að sönnu hjá bréfritara að Magnús Torfi er maður sem þjóðin öll treystir og virðir og veit að er ábyrgur maður. Vinstri meirihlutinn i borgarstjórn hlýtur að sjá að með Magnúsi Torfa er á ferðinni vinstri maður, virtur og ábyrgur. Því er ég sannfærður um að enginn borgarbúi yrði svikinn af Magnúsi Torfa Ólafssyni. — Og þó að hann hafi verið ráðherra er ekki þar sem sagt að hann yrði pólitískur borg- arstjóri. Gerum heiðarlegan mann að borgarstjóra — gerum Magnús Torfa að borgarstjóra! Bréfritari leggur til að Birgir Ísleifur Gunnarsson verði kjðrínn næsti for- maður Sjálfstæðisflokksins. — DB- mynd Hörður. ekki stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks- ins, sem eiga heimtingu á að nýir menn og ný viðhorf komist að. Raddir lesenda Edward Heath tapaði 4% af fylgi Íhaldsflokksins f Bretlandi. Geir Hall- grímsson tapar 20% fylgis Sjálfstæðis- flokksins. Samt telur Markús örn Antonsson sjáifsagt að hann verði áfram formaður. GUDMUNDUR MAGNÚSSON Magnús Hörður. Torfi Ólafsson. DB-mynd Skallinn, -það er staðurinn Ótal tegundir af ís. Gamaldags ís, shake og banana-split. Mjólkurís meó súkkulaói og hnetum. Ummm.... Gamaldags ís Ferðu oftí kirkju? Liesel Becker einkarítarí: Nei, ég fer ekki oft í kirkju. Hins vegar er ég i Baháísöfnuðinum. Við trúum á einn guð og einingu allra trúarbragða og áfram- haldandi opinberun. Arnhildur María Reynisdóttir: Ekki oft en pabbi minn spilar í kirkju. Ég fer þó alltaf á jólunum og einstöku sinnum þar fyrir utan. Ég fór oft í sunnudagaskóla þegar ég varminni. Spurning dagsins Þorsteinn Richter, spilar fótbolta: Nei, ,ég fer aldrei. Það er alveg pottþétt. Ég fór reyndar þegar ég fermdist en núna er ég trúleysingi. Gísli Sveinsson, vinnur hjá BÚR: Ég fer í kirkju á stórhátíðum, þ.e. jólum, páskum og hvitasunnu. Annars fer ég sjaldan. Trúin er ágætishugmynd en unglingar sækja yfirleitt litið kirkju í dag. Allir hafa allt af öllu og telja sig því ekki eins þurfa á trúnni að halda. Bjarngerður Ölafsdóttir ekkja: Ég geri nú heldur lítið að því en ég tel það mér ekki neinn sóma. Ég er alls ekki frábitin trúnni og mundi segja að ég væri trúuð. En ég hef engan bil og erfitt er að Jiomast til kirkju með strætisvögnum. a.m.k. á hátíðisdögum. Guðmundur Guðvarðarson bifreiðar- stjóri: Ég geri lítið af því nema á stórhá- tíðum. Ég er þó trúaður maður en mér finnst að kirkjuganga hafi litinn tilgang I sjálfu sér.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.