Dagblaðið - 11.07.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 11.07.1978, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLt 1978. Réttarhöldiní Sovétnkjunum: LÝSfl YFIR SAKLEYSI Sovézku andófsmennirnir Anatoly Shcharansky og Alexander Ginzburg komu fyrir rétt i gær. Þeir lýstu báöir yfir sakleysi sínu við ábornum sökum. Gyðingurinn Shcharansky á yfir sér dauðadóm ef hann verður sekur fund- inn. ^RéuaiJiol^þessniaf^valdi^nikilli andúð á Vesturlöndum, sérstaklega i Bandaríkjunum. Talið er að mál þessi geti skaðað verulega tengslin á milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Shcharansky, þrítugur tölvusér- fræðingur kom fyrir rétt i Moskvu, ákærður fyrir að afhenda Banda- ríkjamönnum leyndarmál. Ginzburg, sem er 41 árs að aldri, kom fyrir rétt í Kaluga, sem er um 190 km suður af Moskvu. Hann er sakaður um and- sovézkan áróður og á yfir sér dvöl í fangabúðum, allt að tíu árum. Carter Bandaríkjaforseti fylgist vel með réttarhöldunum og í gær sagði hann að þau sýndu veikleikamerki Sovétríkjanna. Mótmæli hafa einnig borizt víða annars staðar að, m.a. frá Bretlandi og Frakklandi, þar sem franski kommúnistaflokkurinn mót- mælti slíkri kúgun og hvatti sovézk stjórnvöld til þess að láta Ginzburg og Shcharansky lausa. John D. Rockefeller fórst í bílslysi Auðmaðurinn John D. Rockefeller III, elzti af Rockefell- erbræðrunum, fórst i bilslysi I gær. Rockefeller, sem var 72 ára að aldri, var bróðir Nelsons Rocke- fellers fv. varaforseta Bandaríkj- anna. Hann var faðir John D. (Jay) Rockefellers IV, rikisstjóra I Vestur-Virginíu. Starfskraftar óskast Óskum að ráða kjötafgreiðslumann, af- greiðslustúlku í kjörbúð, lagermann (með bíl- próf) og ræstingarkonu. Kaupfélag Kjalarnessþings, Mosfellssveit. Sími 66450 Vantar mann til starfa í sveit, ekki yngri en 15 ára. Bygg- ingavinna og landbúnaðarstörf, eða eftir sam- komulagi. Ásgeir Eiríksson Klettur gegnum Ása. Iðnaðarhúsnæði óskast til leigu Iðnaðarhúsnæði óskast til leigu í Reykjavík eða Kópavogi, ca 400 ferm. Lofthæð ekki undir 3.60 m, helzt2 innkeyrsludyr eða fleiri. Húsnæðið skal vera fullfrágengið. Lágmarks leigutími 5 ár. Tilboð óskast sent afgreiðslu Dag- blaðsins Þverholti 11 merkt: „Iðnaðar- húsnæði óskast”. 28311 SÍMI 28311 Fasteignasalan Eignavör Hverfisgötu 16 A. Til sölu: 5 herb. fbúð með bílskúrsrétti við Miklubraut. 5 herb. íbúð með sér svefnálmu, við Álfaskeið. 4 herb. sérjarðhæð við Álfhólsveg. 3 herb. risíbúð við Karfavog. Mjög falleg lóð. 3 herb. risfbúð við Kópavogsbraut í tvíbýli. 3 herb. íbúð við Njálsgötu í steinhúsi. 2 herb. íbúð neðarlega í Hraunbæ, laus strax. Úrval af sumarbústöðum. Opið til klukkan sjö i kvöld en heimasimar eru: Einar Óskarsson 41736. Pétur Axei Jónsson 74035 lögfræðingur. ------------------ Lausar stöður forstöðumanna Við skóladagheimilið Skipasundi 80, dagheim- ilið Sunnuborg og leikskólann Lækjaborg. Laun samkvæmt kjarasamningi borgarstarfs- manna. Umsóknarfrestur til 23. júlí, umsóknir skilist til skrifstofu Dagvistunar Fornhaga 8 en þar eru veittar nánari upplýsingar. V________________________________________ Félagsmala^tofnun Feykjavíkurborgar Rennibraut sem slær allar aðrar út y Það eru ekki margir sem kannast við v-þýzka smábæinn Wetter. íbfiar þessa bæjar i Ruhrhéraðinu eru um 30 þúsund og V-Þjóðverjar sjálfir vita varla hvar hann er. En allar líkur eru á þvi að menn gefi bæ þessum meiri gaum I framtiðinni. Það er eingöngu þessu frábæra mann- virki að þakka. Þetta er margsnúin rennibraut, sem iiggur út i sundlaug hæjarins. Sundlaugargestir renna fimmtíu metra i hringi, áður en þeir þeytast út i laug. Þeir sem reynt hafa segja að þetta sé mikil skemmtun. En allt sem er skemmtilegt kostar peninga og það þarf að borga sérstak- iega fyrir hverja bunu. Laugareigand- inn þarf líka að hafa eitthvað fyrir snúð sinn, þvi þessi reynslubraut kostaði 300 þúsund v-þýzk mörk. Nú er verið að kanna hvort brautin sé ekki alger- lega örugg og einnig hvort hagnaður verði af rekstri hennar. Danmörk: Rauðar pylsur áf ram á markaði — a.ntk. til 1. júlí 1980 Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa frestað banni við notkun litarefna í kjötvörur fram til 1. júli árið 1980. Þetta þýðir það m.a. að danskir kjötframleiðendur geta fram að þeim tíma selt og flutt út rauðar pylsur og spægipylsur. Áður hafði verið krafizt algers banns við notkun þessara litarefna í matvæli. Frestun bannsins er tilkomin vegna kröftugra mótmæla bæði frá dönskum kjötframleiðendum og forráðamönnum landbúnaðarins. Danir geta tvö næstu árin skroppið í pyisuvagninn og fengið sér rauöa pylsu. En hvað gerist eftir 1. júlí 1980 er enn óljóst.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.