Dagblaðið - 11.07.1978, Síða 13

Dagblaðið - 11.07.1978, Síða 13
Mitt í öllum látunum á vellinum er vindubrúin felld og baróninn flýr i kraftmiklum sportbil UAUBLAUIU. PKIUJ UUAUUK 11. J ULl IV16. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 3. DEILD - 3. DEILD - 3. DEILP - 3. DEILD AFTURELDING TAPAÐI SÍNU FYRSTA STIGI — í Stykkishólmi—Hörð barátta í C-riðli 3. deildar íslandsmótsins Afturelding úr Mosfellssveit hefur átt mikilli velgengni að fagna I C-riðli I 3. deild íslandsmótsins i knattspyrnu. Á laugardag missti Afturelding hins vegar sitt fyrsta stig I C-riðli er liðið lék við Snæfell i Stykkis- hólmi. Það var hörkuleikur á Hólminum, sann- kallaður baráttuleikur. Snæfell lék sinn bezta leik i sumar og sótti mun meir. Staðan í leikhléi var 0-0 en Afturelding náði forustu í síðari hálfleik með marki Jóhanns P. Sturlusonar eftir mikil varnarmistök, mis- skilning varnarmanns og markvarðar. Eftir það sótti Snæfell mjög og Hólmarar fengu umbun erfiðis síns á síðustu mínútu leiksins, er Lárus Svanlaugsson skallaði í netið — hörkuleikur i Hólminum. Helztu andstæðingar Aftureldingar, Vík- ingur frá Ólafsvik lék í Breiöholti gegn Leikni. Víkingar höfðu yfirburði gegn Leikni, sem alls ekki hefur náð að fylgja eftir velgengni síðasta árs, sigruðu með 5 mörk- um gegn 1. Staðan í leikhléi var 4-1 Víking í vil. Jónas Kristófersson 2, Sigurþór Þórólfs- son, Atli Alexandersson og Logi Úlfljótsson skoruðu mörk Víkings. Þá fór fram í Reykjavik leikur Óðins og Skallagríms frá Borgarnesi. Óðinn, sem fengið hefur slæma útreið, vann óvæntan stórsigur og hefndi tapsins — 10-1 — i Borgarnesi. Stórsigur Óðins, 5-1. Skalla- grímur náði þó forustu með marki Ævars Rafnssonar en Jóhann Sævarsson náði að jafna fyrir leikhlé. 1 síðari hálfleik höfðu leikmenn Óðins öll tök og skoruðu fjögur mörk, Valur Bragason 2, Unnar Valdimarsson og Ingimundur Magnússon skoruðu mörk Óðins. Baráttan í C-riðli er nú mjög hörð — Afturelding hefur aðeins tapað einu stigi, vann Víking Ólafsvík 3-1 í Mosfellssveit. Víkingar hafa einungis tapað tveimur stig- um, ósigur gegn Aftureldingu. -Sig. Kr. D-riðill Tindastóll, helzti keppinautur Sigl- firðinga í D-riðli 3. deildar, beið nokkuð óvænt lægri hlut á Ólafsfirði, 2-1. Tindastóll frá Sauðárkróki hafði áður beðið lægri hlut á Siglufirði svo möguleikar liðsins hafa minnkað verulega um úrslitasæti en Tinda- stóll var í úrslitum 3. deildar í fyrra. Staðan í hálfleik á Ólafsfirði var 0-0 en í síðari hálfleik náði Leiftur að tryggja sigur. Kolbeinn Ágústsson og Guðmundur Sigurðsson skoruðu fyrir Leiftur en mark- hæsti leikmaður Tindastóls, Karl Ótafsson svaraði fyrir Tindastól. Á Dalvík unnu heimamenn öruggan sigur gegn Hofsós, Höfðstrendingum, 5-2. Staðan í leikhléi var 3-1. Mörk Dalvikinga skoruðu Jóhann Bjarnason, Albert Gunnlaugsson, Óskar Kristófersson, Gestur Matthíasson og Björn Friðþjófsson, en þeir Þröstur Gunn- arsson og Björn Sigurðsson svöruðu fyrir Hofsós. -St,A. E-riðill Nýliðar HSÞ I 3. deild gerðu jafntefli við Árroðann, efsta liðið í E-riðli, 2-2, i Mý- vatnssveit. Staðan í leikhléi var 1-1. Mörk HSÞ skoruðu þeir Kristján Ingvason og Jónas Pétursson en fyrir Árroðann svöruðu Garðar Hallgrimsson og Rögnvaldur Jóns- son. Reynir Árskógsströnd, sem i fyrrahaust féll úr 2. deild, hefur átt erfitt uppdráttar i E- riðli. Reynir fékk Dagsbrún i heimsókn og Dagsbrún sigraði 1-0. Staðan i leikhléi var 0-0 en Valdimar Freysson skoraði eina mark leiksins, sigurmark Dagsbrúnar í síðari hálf leik. • St.A. A-riðill í Vík áttust við á laugardag USVS og Þór, Þorlákshöfn. Þór vann sinn annan sigur í 3. deild, 1-0. Eina mark leiksins skoraði Eyþór Björgvinsson með skalla í fyrri hálfleik. Jafntefli hefði verið réttlát úrslit — leikur- inn var jafn og hvergi gefið eftir. Sagt var frá í DB að Víðir hefði sigrað USVS 5-1 — er enginn dómari mætti. Það var í sjálfu sér rétt, forustuliðið í A-riðli vann stóran og góðan sigur i Vik en leikurinn var einungis æfingaleikur þar eð dómari mætti enginn en ekki liður í 3. deild. - St.G. Víðir-Hekla, 7:1 (6:1). Þrátt fyrir mikil forföll í Heklu-liðinu tókst því að ná forustunni með marki Kjart- ans Magnússonar snemma í fyrri hálfleik. Þessi óvænta bytjun setti Víðismenn greini- lega út af laginu. Hekla lagði þá meira í sóknarleikinn og ætlaði að knýja fram ann- að mark en við það opnaðist vörnin eins og flóðgátt. Á skömmum tíma skoraði Víðir sex mörk. Þar af skoraði Guðmundur Jens Knútsson þrennu, fyrstu tvö mörkin og það sjötta, öll á svipaðan hátt — smeygði sér í gegnum vörnina og skoraði. Jónatan Ingi- marsson sendi knöttinn af marksúlu og í net- ið, þriðja markið. Fjórða skoraði Guðjón Guðjónsson, með fallegri kollspyrnu og Daníel Einarsson það fimmta með þrumu- fleyg. Heklupiltarnir sáu að við svo búið mátti ekki standa — þéttu vörnina í seinni hálfleik og tókst þá að halda sóknarmönnum Víðis í skefjum að undanskildu einu sinni að Guðjón stakk þá af og skoraði sjötta markið. Með þessum sigri hefur Víðir tekið forust- una í A-riðlinum. emm. Grindavík-Selfoss 3:2 (0:2). Grindvíkingar léku undan sterkum kalda fyrri hálfleikinn. Eigi að síður voru Selfyss- ingar, sem léku án Sumarliða Guðbjartsson- ar, mun sterkari aðilinn í hálfleiknum og skoruðu tvivegis, reyndar eftir mjög gróf mistök Grindavíkurvarnarinnar. Voru þar að verki þeir Eiríkur Ingvarsson og Heimir Bergsson. Varla mátti því ætla annað en að Selfyssingar héldu austur fyrir fjall með bæði stigin, en það var eins og Haukur Hafsteins- son þjálfari Grindvíkinga hefði gefið þeim vitamínsprautu í hléinu. Liðið var óþekkjan- legt í þeim seinni. Snemma í hálfleiknum skoraði Sigurgeir Guðjónsson, úr vítaspyrnu og skömmu siðar jafnaði Einar Jón Ólafsson með kollspyrnu. Eftir mikla baráttu tókst Guðmundi Ármannssyni að skora fyrir Grindvíkinga, 3:2, — nokkuð sem menn ór- aði ekki fyrir í hálfleik. Selfyssingar gátu náð öðru stiginu þegar þeir fengu vítaspyrnu rétt fyrir lokin en skotið geigaði. emm: B-riðill Bolungarvík-Stjarnan, 3:2 (3:1). Bolvíkingar náðu sér í tvö stig á heima- velli um helgina þegar þeir fengu Stjörnuna frá Garðabæ í heimsókn. Samt blés ekki byr- lega fyrir þeim í upphafi þegar einn leik- manna sló knöttinn innan vítateigs og Ing- ólfur Ingólfsson skoraði örugglega úr spyrn- unni. Bolvíkingar létu samt ekki deigan síga. Hjörleifur Guðfinnsson jafnaði þegar um hálftími var liðinn af leiknum með faliegu skoti frá vitateig eftir glæsilegt gegnumbrot. Hermann Þórisson bætti öðru markinu við skömmu siðar með hörkuskoti en Hjörleifur var aftur á ferðinni rétt fyrir hlé og skoraði þriðja markið. Bolvíkingar höfðu tögl og hagldir í fyrri hálfleik, en i þeim seinni misstu þeir tökin og Stjörnupiltarnir sóttu í sig veðrið. Fengu meðal annars þrjú mjög opin færi á að skora, en Kristján Jónatans- son, stóð sig eins og hetja i markinu. Ingólfi Ingólfssyni tókst að minnka muninn fyrir Stjörnuna með marki eftir óbeina auka- spyrnu á markteig. Beztu menn liðanna voru þeir Kristján markvörður, Hjörleifur og Hermann, hjá Bolvíkingum en Ingólfur Ingólfsson bar nokkuð af hjá Stjörnunni. emm. Léttir-UMFN, 0:2 (0:0). Leikur Léttis og UMFN hafði mikla þýð- ingu fyrir liðin. Léttismenn gátu náð Njarð- víkingum að stigum með þvi aðsigra en færi öfugt mátti heita að UMFN væri búið að tryggja sér sæti i úrslitunum. Ekki virtust menn kunna beint vel við sig á mölinni á Háskólavellinum og dró leikurinn nokkurn dám af þvi — var fremur lélegur. Njarðvík- ingar voru öllu meira með knöttinn en Léttir átti opnari færi. Markvörður UMFN varði vel. Jafntefli blasti við þegar um stundar- fjórðungur var til loka. Því virtust Léttis- menn ekki una og Gunnar Gunnarsson, áður lA og KR, sem flest upphlaup höfðu brotnað á, blandaði sér i sóknina en við það opnaðist Léttisvörnin svo að Hauki Jó- hannssyni, hinum marksækna tókst tvivegis að skora fyrir UMFN og tryggja þeim sigur inn rétt fyrir leikslok. emm. Tony Knapp — fagnaði mjög. r Þu ert minn maöur! Þú ert minn maður, hrópaði Tony Lilleström 11 6 4 1 21-10 16 Knapp, þjálfari Vtking, eftir að Magnus Viking 11 5 5 1 18-11 15 Flatestöl hafði skorað jöfnunarmark Valerengen 11 5 3 3 19-10 13 Viking í 2—2 jafntefli gegn nágrönnum Bryne 11 4 4 3 17-17 12 sínum Bryne. Flatestöl skoraði með Brann 11 4 3 4 17-11 11 þrumuskoti og naumara gat vart veríð Moss 11 4 3 4 19-16 11 þvi liðnar voru þrjár mínútur fram yfir Skeid 11 4 3 4 16-15 11 venjulegan leiktima. Lyn 11 3 4 4 11-17 10 Viking hlaut þvi dýrmætt stig í barátt- Steinkjer 11 1 5 5 9-22 7 unni um norska meistaratitilinn. Bryne Bödö/Glimt 11 0 3 8 11-24 3 hafði yfir 2—0, í leikhléi en Viking kom Molde 11 1 1 8 12-28 3 sterkt til síðari hálfleiks og tókst að jafna á síðustu sekúndunum, sérstaklega ánægjulegt fyrir Viking því ávallt er mikil barátta þegar þessi lið mætast. „Dýrmætasta mark sem ég hef skor- að,” sagði Magnus Flatestöl eftir leikinn og hinir sex þúsund áhorfendur á Bryne- Stadion gátu verið á sama máli. Fallegt var markið líka, þrumuskot af 30 metra færi. Tony Knapp var ánægður með leik sinna manna. „Fólk hefur sagt að þetta Vikingslið hafi ekki karakter. En strák- arnir sönnuðu í leiknum gegn Bryne að þeir hafa karakter, með baráttu sinni og óeigingirni,” sagði Knapp. Staðan í I. deildinni í Noregi er nú, eftir að fyrri hluta mótsins er lokið, 11 umferðum, þessi: Start 117 3 1 16-5 17 Buckley tilDerby Derby County hefur fest kaup á mið- herja Waísall, Mick Bukley, fyrir um 250 þúsund pund. Buckley hefur undan- farin ár verið einn markhæsti leikmaður i deildakeppninni á Englandi. Hann hafði nýlega gert 10 ára samning við Walsall er Derby festi kaup á honum. Tottenham kaupir Ardiles og Villa úr HM-liði Argentínu! Argentínumenn þegar byrjaðir að missa leikmenn sína til útlanda, nú til Englands Tottenham Hotspur, Lundúnaliðið fræga, hefur fest kaup á tveimur leik- mönnum Argentinu. Þeir eru Ricardo Villa og Sovaldo Ardiles. Tveir lykilleik- menn i HM-liði Argentinu er sigraði Holland 3-1 i úrslitum Heimsmeistara- keppninnar. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Buenos Aires í nótt en það var Keith Burkinshaw, framkvæmdastjóri Totten- ham er tilkynnti kaup Lundúnaliðsins. Tottenham Hotspur ávann sér í vor rétt til að leika í 1. deild og er greinilegt að Tottenham ætlar sér stóra hluti í 1. deild. Söluverð hvors leikmanns var um 150 milljónir krónaogerþar innifalið mikið gjald til milliliða. Ricardo Villa hefur leikið með Racing og Sovaldo Ardiles hefur leikið með Huracan i Argentinu. Tottenham var ekki eina félagið er reyndi að fá þá félaga. Sheffield United reyndi að kaupa Ardiles og Manchester City reyndi að fá Villa i sínar raðir en samningaviðræður fóru út um þúfur, meðal annars vegna þess að fulltrúar félaganna tilkynntu að þeir væru á förum til Englands. Þeir félagar, Villa og Ardiles, eru fyrstu erlendu leikmennirnir til að leika í ensku deildunum utan samveldislanda, núverandi eða fyrrverandi. 'Argentínumenn urðu heimsmeistarar og mikil gleði greip um sig i Argentínu. En það er ekki tekið út með sældinni — nú sækja erlend félög mjög í leikmenn Argentinu. Hér fagna þeir Mario Kempes og Ardiles marki — Ardiles mun leika með Totten- ham, Kemper með Spáni. Villa — hann leikur f framtiðinni með Tottenham. Masson og Macari í bann Flest bendir nú til að þeir Don Masson og Lou Macari verði útilokaðir frá frekari landsleikjum fyrir Skotland. Don Masson sagðist ekki vilja leika framar fyrir Skotland eftir HM og einnig að fyrir leikinn gegn Perú hefði hann notað örvandi lyf. Skozka knattspyrnusambandið gaf út tilkynningu þar sem sagði, að „Masson skuli verða að ósk sinni að leika ekki framar fyrir Skotland.” Þá sagði f tilkynningu sambandsins að það legði til að Lou Macari léki ekki með, varaði við þvf og teldi það ekki ráð- legt. Lou Macari skrifaði greinari brczk blöð meðan á HM stóð þar sem hann kvartaði undan aðstæðum, höteli, mat og málefnum innan liðsins. Ally McLeod veröur áfram stjðri Skota en það þurfti langan fund skozka sambandsins til að ákveða að svo yröi. < Don Masson á ekki einungis í deilum við skozka knattspyrnusambandið. Hann hefur sagt að hann muni ekki framar leika fyrir félag sitt, Derby Lou Macari leikur með Man-Unitcd. SVIARI NEÐSTA SÆTI í MÁLMEY — íþriggja landa keppni í frjálsum Frakkar hafa forustu i þriggja landa keppni í frjálsum iþróttum, sem nú fer fram í Malmö eftir fyrri dag. Frakkar hafa 86 stig, Sviss 64 og Svíar 57. Hjá konunum eru þær frönsku einnig i for- ustu með 50 stig, Sviss i öðru sæti með 48 og þær sænsku hafa hlotið 42 stig. Ricky Bruch keppir í kringlukasti fyrir Svía og hann gerði sér lítið fyrir og sigraði í kringlunni en árangur ef ti! vill ekki til að hróp§a húrra fyrir, 58.68. Frakkinn Phillippe Deroche stökk 8.03 í langstökki en Svíinn Ulf Jarfelt varð annar, 7.92. í 10000 metra hlaupinu sigraði Svisslendingurinn Marcus Ryeffel á 28:21.55. Frakkinn Francis Demarthon sigraði i 400 metra hlaupi á 46.66. í hástökki sigraði Roland Dalhauses frá Sviss. stökk 2.19, sömu hæð og Paul Poanieva frá Frakklandi og Jacues Aletti, einnig Frakklandi, en Dal- hauser notaði færri tilraunir. í 100 metra hlaupinu sigraði Frakkinn Her- man Panzo á 10.34. í 110 metra grinda- hlaupi sigraði Beat Pfister, Sviss, á 13.96. Franci Gonazales, Frakklandi, sigraði í 1500 metra hlaupinu á 3:31.31. 1 3000 metra hlaupi kvenna sigraði Liabi frá Sviss á 9:16.6. Linda Haglund Sviþjóð sigraði í 100 metra hlaupi kvenna á 11.26. í langstökki sigraði Jaculine Curtet, stökk 6.52. Buerki frá Sviss sigraði í 800 metra hlaupi kvenna á 2:03.25 og í 400 metra hlaupi sigraði Darbonville frá Frakklandi á 54.09. HNAKKAR 1. íslenzkir 2. Enskir 3. ÞýzkJargentínskir (Sjá mynd) Einnig öll reiðtygi— Póstsendum. kr. 98.000.-m/öllu. kr. 117.000.- m/gjörð kr. 79.500.- m/gjörð Hólasport, Lóuhólar 2—6, sími 75020. Ekkert fær nú stöðvað KR — KR vann stórsigur á Reyni, 6-1 — KR hefur nú sett stef nuna á 1. deild KR stefnir nú aftur í 1. deild. Vestur- bæjarliðið er leikur nú i fyrsta sinn i 2. deild hefur örugga forustu i 2. deild, hefurl4stigað loknum 8 leikjum. KR gjörsigraði Reyni Sandgerði í gærkvöld, 6-1 í Laugardal og fátt fær nú stöðvað vesturbæjarliðið. KR lék oft laglega úti á vellinum og mörkin sum hver mjög falleg. En hætt er við að leikmenn KR fái ekki sama rúm til að athafna sig í 1. deild og þeir fá nú gegn liðum í 2. deild. Sverrir Herbertsson skoraði þrjú af mörkum KR og hefur nú skorað sex mörk í átta leikjum. Hann er nú mark- hæstur í 2. deild ásamt Þráni Ásmunds- syni. Vilhelm Fredriksen skoraði tvi- vegis í sigii KR .jg, sjötta mark KR skoraði Börkur Ingvarsson, raunar fyrsta mark leiksins. Ari Haukur Arason skoraði eina mark Reynis. Dýrmæt stig til Hauka — Haukar sigruðu Ármann 2-0 Haukar úr Hafnarfirði sigruðu Ár- mann 2-0 á Hvaleyrarholti i 2. deild ts- landsmótsins i knattspyrnu i gærkvöld. Með sigri sínum eygja Haukar því enn von um sæti i 1. deild — hafa nú hlotið niu stig en baráttan i 2. deild er ákaflega hörð, senn barátta i raun um efstu sætin og fallbarátta. Það sést bezt af því að með sigri sínum þokuðu Haukar sér af hættu- svæði 2. deildar. Leikur Hauka og Ármanns var harður, hvergi gefið eftir og bæði lið greinilega staðráðin í að vinna sigur. Haukar náðu forustu i fyrri hálfleik er Ólafur Jóhannesson skoraði úr vitaspyrnu. í síðari hálfleik bætti Lárus Jónsson við öðru marki Hauka, 2-0, og sigur Hafnfirðinga í höfn. Skömmu síðar var Kristni Pedersen vikið af leikvelli fyrir slæmt brot. Ármann er nú aðeins tveimur stigum á undan botnliðinu, Völsungi, svo hörð er baráttan. Drengir á NM í Danmörku — drengjalandsliðið 14-16 ára á Norðurlandamótið — Þeir verða í eldlínunni í kvöld lslenzka drengjalandsliðið — 14—16 ára — hélt til Danmerkur i gær og leikur í Norðurlandamóti drengja i knatt- spyrnu. Liðið leikur i kvöld við Dani í Nyköbing og á morgun við V-Þjóðverja sem leika sem gestir. Á laugardag verður siðan leikið um sætin á NM. Eftirtaldir leikmenn voru valdir til far- arinnar: Stefán J óhannsson K R Hafþór Sveinjónsson Fram Ástvaldur Jóhannesson í A Gísli Bjarmason KR Benedikt Guðmundsson UBK Jón G. Bjarnason KR Jón Þór Brandsson Þór Jóhann Þorvarðarson Víking LárusGuðmundsson Viking Helgi Bentsson UBK SigurðurGrétarsson UBK Elvar Gottskálksson ÍBK Sigurjón Kristjánsson UBK ValurValsson FH Ragnar Margeirsson ÍBK GuðmundurTorfason Fram Fararstjórar eru: Ellert B. Schram form. KSÍ, Helgi Daníelsson form. unglinganefndar KSÍ, Jóhann Ólafsson stjórnarmaður KSÍ, Lárus Loftsson þjálfari. SJOTTISIGURINN GEGN FÆREYJUM? — íslenzka unglingalandsliðið leikurí Færeyjumá morgun Unglingalandsliðið sem skipað er leik- mönnum 16-18 ára mun leika landsleik við Færeyinga og fer hann fram í Þórs- höfn miðvikudaginn 12. júli nk. Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir til fararinnan Bjarni Sigurðsson ÍBK, Árni Dan. Einarsson UBK, Skúli Rósantsson ÍBK Ágúst Hauksson Þrótti, Heimir Karlsson Viking, Halldór Ólafsson ÍBÍ, Ómar Jóhannsson ÍBV, Heimir Bergsson UMF Selfoss, Sigurður Harðarson í A, Smárí Guðjónsson í A, Arnljótur Arnarson FH, Brynjar Nielsson Val, Sæbjörn Guðmundsson KR, Gunnar Gislason KA. Liðsstjóri verður landsliðsþjálfarinn Yourí Ilitchev en fararstjóri Bergþór Jónsson. Þetta verður 50. unglingalandsleikur íslands og sjötti landsleikur okkar við Færeyjar en við höfum unnið þá alla og skorað alls 14 mörk gegn 3. Af þeim leikmönnum, sem nú eru vald- ir hafa þessir leikið i unglingalandsliði: Bjarni Sigurðsson 1 leik, Ágúst Hauks- son 4 leiki, Skúli Rósantsson 4 leiki, Ómar Jóhannsson 3 leiki en aðrir eru með f fyrsta sinn.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.