Dagblaðið - 28.06.1979, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1979.
3
„Terroristar” íumferðinni
Þaðeru
--- *
hættulegir menn
Spurning
dagsins
Bréfritarí varar við þvi að menn láti skapofsa hlaupa með sig í gönur i umferðinni. Þessir bílstjórar sýnast hinir geðprúð-
ustu og spjótum bréfrítara þvi varla beint gegn þeim. DB-mynd Sv. Þ.
„Mig langar til að segja ykkur frá
reynslu minni af „terroristum” i
umferðinni og láta ykkur svo dæma
um hvað gera eigi við slíkt fólk.
Um tvö atvik er að ræða; lenti ég i
öðru en kona mín i hinu. Fyrra at-
vikaðist þannig að ég þurfti að
snögghemla vegna bifreiðar sem
hægði snögglega á sér fyrir framan
mig. Slíkt gerist mjög oft í
umferðinni en í þetta skipti vindur
sér að mér kona, titrandi af bræði og
eys yfir mig vænum skammti af
óprenthæfum blótsyrðum og
skömmum. Þegar hún var orðin
uppiskroppa með skammirnar þá
benti ég henni vinsamlegast á að
líklega þyrfti hún að rifja upp
umferðarkunnáttu sína.
Seinna atvikið átti sér stað sl.
laugardag á Suðurlandsbrautinni og
átti kona mín þar í hlut. Atburða-
rásin var sú sama og í fyrra tilviki
nema að bíllinn sem á eftir konu
minni var kom upp að hliðinni á
henni, svínaði fyrir hana og snar-
stoppaði, þannig að hún þurfti aftur
að snarhemla til að forðast árekstur.
Vatt sér þá niaður um þrítugt úr
bílnuni, eys yl'ir hana svívirðingum
og fullyrðir að billinn hafi ekki sýnt
bremsuljós o.s.frv. Konu minni varð
orða vant, svo mikið brá henni við
óbótaskammir mannsins, en fór
siðan beint niður á lögreglustöð og
bað um að bíllinn, sem er
nýskoðaður og í fullkpmnu lagi, yrði
athugaður þvi ekki myndi hún treysta
sér til að vera á bíl sem ekki væri í
fullkomnu lagi. Lögreglan brást
mjög vel við og reynslukeyrði bílinn
en fann ekkert athugavert og kom
með þá tilgátu að liklega hefði
umræddur bílstjóri verið með hug-
ann við eitthvað annað en umferðina
fyrir framan sig.
Tók einhver
hestímis-
gripum
á Kjalamesi?
i siðustu viku fór jarpur átta
vetra hestur úr girðingu að Hofi á
Kjalarnesi, en eigandi hans er 12 ára
stúlka. Hvarfið uppgötvaðist sl.
sunnudagskvöld og komst stúikan að
þvi að hesturinn hafði verið á ferli
um helgina við þjóðveginn á Kjalar-
nesi i nánd við Sjávarhóla. Eftir há-
degi á sunnudag var hesturinn við tún
á Skrauthólum er þar bar að bifreið
og frá henni kom krakki eða
unglingur sem beizlaði hestinn, lagði
á hann og reið í norðurátt með
veginum. Má telja fuilvíst að þetta
hafi verið hestur stúlkunnar og hann
hefur því verið tekinn i misgripum.
Skorar hún á þá sem vita hvar hest-
urinn er niðurkominn að hafa
samband við DB.
Hesturinn er rauðjarpur, frekar
smávaxinn, nokkuð úfinn á hár, vel
svartur á tagl og fax, klipptur og
járnaður.
Hringið
ísíma
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið
Mér er spurn hvort svona
„terroristar” geri sér grein fyrir því
að með skapofsa sínum geta þeir
hæglega komið öðrum bilstjórum
það mikið úr jafnvægi að hættulegt
sé annarri umferð? Ég vona að þú(
sem þarna áttir hlut að máli, kunnir
að skammast þín, og til að ekkert fari
á milli mála, þá varst þú á ljósbrún-
um Bronco með hvítum toppi með
fjögurra stafa R-númeri sem byrjaði
á 9.
Það minnsta sem þú getur gert er
að hringja til konu minnar (Jóhanna)
og biðja hana afsökunar á dónaskap
þínum, (sem ég efast reyndar um að
þú gerir).
Mér þætti vænt um að þessar línur
yrðu birtar, ekki aðeins okkar vegna,
heldur einnig allra hinna sem daglega
Enn einu sinni minna lesenda-
dálkar DB alla þá, er hyggjast
senda þœttinum línu, að láta fylgja
fullt nafn, heimilisfang, símanúmer
(ef um það er að rœða) og nafn-
númer. Þetta er lítil fyrirhöfn fyrir
bréfritara okkar og til mikilla
þœginda fyrir DB.
Lesendur eru jafnframt minntir
verða fyrir barðinu á óprúttnum
„terroristum” í umferðinni.
„Ökumaður” sími 30504”.
á að bréf eiga að vera stutt og skýr.
Áskilinn er fullur réttur til að
stytta bréf og umorða til að spara
rúm og koma efni betur til skila.
Bréf œttu helzt ekki að vera lengri
en 200—300 orð.
Símatimi lesendadálka DB er
milli kl. 13 og 15 frá mánudögum
til föstudaga.
Reykjavík — Grundartangi — Akrar á
Mýrum — Deildartunga — Geldinga-
dragi — Reykjavík
Sumarferó Varóar er á sunnudaginn
Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishúsinu, Háaleitisbraut 1 kl. 8. Verð
farmiða er kr. 7000.- fyrir fullorðna og kr. 5000.- fyrir börn. Innifalið í
verði er hádegis- og kvöldverður.
* Varðarferðir bjöða upp á traustar ferðir í góðum félagsskap.
* IMotið tækifærið og ferðizt um fagurt landslag undir góðri
leiðsögn Einars Guðjohnsen.
* Allir eru velkomnir í sumarferð Varðar.
* Tryggið ykkur miða.
* Innrfalið í fargjaldi er hádegis- og kvöldverður.
* Miðasala alla daga frá kl. 9—21 í Sjáffstæðishúsinu, II. hæð.
* Pantanir teknar í síma 82900.
Athugið að rúta fer frá Breiðholti, húsi Kjöts og Fisks. Seljabraut 54 kl.
7.30.
Frá Sjálfstæðishúsinu Hafnarfirði kl. 7.30.
Frá Sjálfstæðishúsinu Garðabæ kl. 7.40.
Frá Hamraborg 1 Kópavogi kl. 7.55.
Landsmálafélagið Vörður,
ferðanefnd.
Stuttogskýrbréf
Á að friða
hvalinn?
Krístin Einarsdóttir: Já, það finnst
mér, alla vega minnka vciðarnar.
Guðlaug Halldórsdóttir: Já, það held
ég, annars veit ég ekkert hverju ég áað
svara.
Guðný Pálsdóttir: Já, ég er með þvi að
hann verði friðaður en á ég er á móti
Greenpeace-samtökunum.
Pálmar Sigurgeirsson: Vissulega. Ég er
alls ekki með þvi að hann verði of-
veiddur, það er alls ekki rétta leiðin.
Georg Sigurðsson: Já, ætli það ekki.
Annars má ég ekki vera að þvi að
svara, ég er að flýta mér í vinnuna.
Stefán Friðfinnsson: Já, það finnst
mér, mér þykir vænt um hvalinn.