Dagblaðið - 16.04.1980, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980.
Norræna húsið
Píanóleikarinn
EVA KNARDAHL
frá Noregi heldur tónleika í samkomusal
Norræna hússins miðvikudaginn 16. apríl,
kl. 20:30, og leikur verk eftir Grieg,
Oddvar Kvam, Hallvard Johnsen, Dag
Wirén og Johs. M. Rivertz.
Aðgöngumiðar í kaffistofu hússins og við
innganginn.
Allir velkomnir
Hjúkrunarfræðingur —
Egi/sstaðir
Hjúkrunarfræðingur óskast að Sjúkrahúsinu á
Egilsstöðum sem fyrst.
Húsnæði til reiðu. Uppl. á skrifstofu í síma 97-
1386.
Starfsmaður (karl eða kona) óskast til sendi-
mannsstarfa allan daginn fyrir fjármála-, félags-
mála- og dómsmálaráðuneyti.
Æskilegt er að starfsmaðurinn hafi umráð yfir
bifreiðeða bifhjóli.
Skriflegar umsóknir sendist fjármálaráðuneyti
fyrir 22. apríl nk. Fjármálaráðuneytið,
15. apríl 1980.
Tiikynning
um lóðahreinsun í Reykjavík
voríð 1980
Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar er
lóðaeigendum skylt að halda lóðum sínum hrein-
um og þrifalegum og að sjá um að lok séu á sorp-
ílátum.
Umráðamenn lóða eru hér með minntir á að
flytja nú þegar brott af lóðum sínum allt sem
veldur óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því eigi
síðar en 14. maí nk.
Að þessum fresti liðnum verða lóðirnar skoðaðar
og þar sem hreinsun er ábótavant verður hún
framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseigenda, án
frekari viðvörunar.
Þeir sem kynnu að óska eftir sorptunnum og lok-
um, hreinsun eða brottflutningi á rusli, á sinn
kostnað, tilkynni það í síma 18000 eða 13210.
Urgang og rusl skal flytja á sorphauga við
Gufunes á þeim tíma sem hér segir:
Alla virka daga frá kl. 8.00 — 21.00
Á helgidögum frá kl. 10.00—18.00
Rusl sem flutt er á sorphauga skal vera í umbúð-
um eða bundið.
Ekki má kveikja í rusli á sorphaugunum og hafa
ber samráð við starfsmennina um losun.
Sérstök athygli skal vakin á því, að óheimilt er að
flytja úrgang á aðra staði í borgarlandinu. Verða
þeir látnir sæta ábyrgð sem gerast brotlegir í því
efni.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík.
Hreinsunardeild.
Verkamannaflokkurinn norski ísókn samkvæmt
skoðanakönnun:
HÆGMBLADR-
ANSPRUNGIN?
,,Hægri blaðran sprakk,” segir
norska Dagbladel í fyrirsögn á frétl
um úrslii i skoðanakönnun um fylgi
flokkanna |rar i landi i marzmánuði.
Helstu niðurslöður eru þær að
Hægri flokkurinn tapar 2.7% al-
kvæða á aðeins einum mánuði, fær
nú 26.6% sem er það lægsla sem
mælzt hel'ur i könnunum síðan i
kosningunum 1977. Þá fékk Hægri
flokkurinn mikið fylgi kjósenda. I
febrúar 1979 komsl flokkurinn i
35.2%, þannig að svo virðist sem
600.000 manns hafi snúið við
honum baki a ekki lengri
tima.Ástæðurnar eru einkum laldar
deilur forystumanna flokksins um af-
stöðuna til frjálsra fóstureyðinga,
mikils hitamáls i Noregi. Kristilegi
þjóðarflokkurinn og Verkamanna-
Krling Norvik fráfarandi formaður
Hægri flokksins í þungum þönkum
yflr úrslilunum.
flokkurinn eru hins vegar i sókn.
Verkamannaflokkurinn bælir við sig
3.2%, fær sem svarar 41.4% at-
kvæða ef nú væri kosið í landinu.
Krislilegi þjóðarflokkurinn bætir við
sig 2.2%, fær sem svarar 13.3% at-
kvæða. Miðflokkurinn tapar 1.3%,
fær alls 5.9%. Vinstri flokkurinn
tapar 1.2%, fær alls 4.5%.
Framfaraflokkurinn fær 0.7%
aukningu, Norski kommúnista-
llokkurinn (Moskvusinnaður) fékk
0.1% nú á móti 0.2 í febrúar og
Rauða kosningabandalagið (marx-
leninistar og óháðir) hlaut 0.8% nú
en 0.4% i febrúar.
Dagbladet segir að svo virðist sem
ungir kjósendur hafi almennt forðazt
Hægri flokkinn nú, en halli sér frekar
að Verkamannaflokknum.
Indverska lögreglan lamdi
á blindu fólki í kröfugöngu
l.ögreglan i Nýju Delí á Indlandi
beitti hrottalegum aðferðum til að
sundra mótmælaaðgerðum á þriðja
hundrað blindra manna sem safnazl
höfðu saman til að krefjast betri
aðbúnaðar af stjórn Indiru Gandhi.
Lögreglumenn létu kylfuhögg dynja á
þeim blindu. Að sögn sjónarvolta
særðust margir og skelfing greip um sig
meðal fólksins. Ekki færri en 100 mót-
mælendur voru handteknir. Þingmenn
stjórnarandstöðunnar i Indlandi mót-
mæltu meðferðinni á fólkinu allir sem
einn. Þeir gengu svo að segja allir á dyr
i þinginu i mótmælaskyni. Gandhi
hefur fyrirskipað opinbera rannsókn
málsins.
Maó formaöur
ekki algóður
—segir kínverskur ríthöfundur sem var neyddur til að moka
skft f rá svínum í menningarbyltingunni
„Lýðræði er ekki það sama og
rógburður og lygar. Nafnlaus
veggspjöld birtu rógburð um mig og
gróusögur um fortíð mína. Fólk
hefur auðvitað áhuga á að lesa þetta
og segir þá gjarnan: „Þetta er nú
aumi maðurinn.” Ég er fylgjandi þvi
að hætta að nota hinn svokallaða
l.ýðræðisvegg og finna í staðinn
raunverulegan vettvang fyrir
almenning að tjá skoðanir sinar,”
sagði kínverski rithöfundurinn Cao
Yu nr.a. í viðtali við bandariska
vikuritið Newsweck. Cao Yu sætti
harðri gagnrýni i menningar-
byltingunni fyrir að vilja al'vcgaleiða
alþýðuna frá „réttri stefnu”. Hann
var neyddur til að leggja frá sér
pennann og vinna við að hreinsa
svinastiur. Nú er hann frjáls maður á
ný og var i heimsókn i Banda-
Cao Yu: Áður fyrirlitinn, nú borinn i
gullstól í Kína.
rikjunum nýlega.
„Hann var mikilhæfur leiðtogi en
ekki algóður,” svaraði hann
spurningu um hverl væri mat hans á
Mao Tse' tung fyrrum formanni í
Kína. ,, Við gátum byggt upp hið nýja
Kina vegna tilveru hans. En þrátt
fyrir mikla forystuhæfileika hans var
ekki allt sem hann gerði góðra gjalda
vert. Menningarbyltingin var ekki
gott skref. Hún var mistök.”
Cao Yu sagði við Newsweek að
það eina sem hann skrifaði á tímurp
menningarbyltingarinnar hafi verið
endalaus sjálfsgagnrýni. Ennfremur
að hann hafi orðið fyrir áhrifum fyrr
á ævinni frá verkum ýmissa vest-
rænna rithöfunda. Til dæmis nefndi
hann Henrik Ibsen, Charles
Dickens, Oscar Wilde og Eugene
O’Neill.