Dagblaðið - 16.04.1980, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. APRIL 1980.
f\eira w
FOLK
Heimsókn til Kára, Sigríðar, Guðjóns, Steingríms, svínsins Magnúsar, páfagauksins Jakobs,
kattanna Rósu og Runólfs, tíkarinnar Pílu og allra hinna:
„MANNILÍÐUR MIKLU
BETUR / S VEITINNr
— segir Kári Steingrímsson sem flutti úr Garðabœnum í Reykjadal
„Okkur finnst allt annað líf aðbúa
1 sveitinni. Manni líður mun betur
þrátt fyrir að stressið og erillinn sé í
sjálfu sér ekki minni hér en var fyrir
sunnan,” sagði Kári Steingrimsson
bóndi í Pálmholti í Reykjadal í
Suður-Þingeyjarsýslu, þegar DB
heimsótti hann og fjölskylduna fyrir
skömmu. Kári býr í Pálmholti ásamt
konu sinni Sigríði Guðjónsdóttur og
sonunum Guðjóni og Steingrími. Þau
bjuggu áður i Garðabænum og Kári
vann við húsasmíðar 4J*eykjavíkur-
svæðinu. Þau fengu meira en nóg af
verunni i þéttbýlinu og fóru að
svipast um eftir jörð til að búa á.
Jörðina fundu þau í Reykjadalnum
og þá var pakkað niður í snarheitum
og farið norður í land.
Bústofninn er aðallega svín. Ótrú-
legur fjöldi af svínum þrífst bærilega
í stíum í rúmgóðu húsnæði í Pálm-
holti. Gömul svín, miðaldra, ung og
allt niður í nýfædda smágrisi. Öll
framleiðsla búsins er seld á Húsavík.
Mun meirihluti þess svínakjöts sem
Húsvíkingar láta í sig vera kominn
frá Pálmholti. Slátrað er 40—50 grís-
um í hverjum mánuði. Þeim er
slátrað hálfs árs gömlum og þá hafa
þeir hundraðfaldað þyngd sina frá
fæðingu!
Ólíkt
skemmtilegra
, ,,Við erum sjálfsagt ekki álitin al-
vörubændur af ýmsum fyrir að búa
aðallega með svín,” sagði Kári og
kímdi. ,,Ég hef aldrei haft eins lélegt
tímakaup fyrir nokkra vinnu. En
þetta er ólíkt skemmtilegra. Auðvitað
þekktum við lítið til búskapar með
svín þegar við byrjuðum. Við leit-
uðum eftir reynslu frá öðrum og
lásum okkur til fróðleiks. Danir hafa
til dæmis skrifað og gefið út mjög
góðar bækur og blöð um svínarækt.
Svo þurfti að taka til hendinni hérna
við að útbúa aðstöðu fyrir dýrin. Það
hefur kostað mikinn tíma og fjár-
muni.”
Greinilegt var að þau höfðu „tekið
til hendinni” svo um munaði. Miklar
innréttingar úr járni og tré þurfti að
smiða og setja niður. Og Kári vann
það að mestu einn — með aðstoð
fjölskyldunnar. í kjallara undir
svinahúsinu hefur hann komið fyrir
alls kyns trésmíðavélum og aðstöðu
til smiða. Hann var önnum kafinn
við að ganga frá nýjum hurðum sem
Kári gefur svinunum kvöldmatinn. Þau urðu fijótt vör viö þegar fór aö skrjéfa i pokunum með fóðrinu. Ekki
þurfti meira tilað aiit yrði vitiaust i húsinu. Dýrin vækiu og góiuðu hvert í kapp við annað. Á bak við Kira grillir í
Guðjón yngri soninn. Si er búmaður mikill og sér um hænsnabúskapinn i Páimhotti.
DB-myndir: Evert Kr. Evertsson
orðið hafa til í svínakjallaranum
þegar DB bar að garði.
,,Eg hleyp í að smíða glugga og
hurðir fyrir nágrannana þegar tími og
tækifæri gefst til. Það er ágætt að
geta dútlað á verkstæðinu t.d. þegar
ég bíð eftir að gylta gjóti uppi. ”
Þar að auki hefur Kári hjálpað
bændum í nágrenninu við byggingar
á hlöðum og gripahúsum. Það á sér
þvi ekki margar frístundirnar heim-
ilisfólkið í Pálmholti.
Meira
félagslrf
Auk svinanna eru nokkrar kindur
á bænum, hænur, kálfar og hestur.
Að ógleymdum köttunum Rósu og
Runólfi, tíkinni Pílu og páfagaukn-
um Jakobi sem býr í rimlabúri í eld-
húsinu. Þá má nefna það að Pálm-
holt á land að Reykjadalsá og heim-
ilisfólk nýtir þau hlunnindi talsvert.
Kári gizkaði á að búsílag Reykjadals-
ár sé nálægt einu tonni af silungi ár-
lega. Munar sannarlega um minna.
En er virkilega ekkert sem hann
saknar úr þéttbýlinu?
„Fyrst þegar við komum 1974
saknaði ég bíóanna. Og Vísis saknaði
ég lika. Hér er reyndar miklu meira
félagslíf en við þekktum fyrir sunn-
an. Alltaf eitthvað að gerast. Við
förum miklu oftar í leikhús hér en
áður. Okkur líður vel og höfum ekki
hugsað um að gefa búskapinn upp á
bátinn.” -ARH
Sjöfn, dóttir Everts Ijósmyndara
og fróttaritara DB á Húsavík, tók
nokkurra daga gamlan gris i
fangið. Hann var rúmlega sparigrís
að stærðl Sigriður Jensdóttir
móðir Sjafnar er til vinstri.
Varamenn hóp-
ast á Alþingi
Mikið er um að varamenn taki sæti
á Alþingi um þessar mundir. Enn
bættust fjórir slikir við í fyrradag.
Böðvar Bragason sýslumaður
Rangæinga tók þá sæti Þórarins
Sigurjónssonar alþingismanns sem er
fjarstaddur vegna anna heima fyrir.
Böðvar er 1. varamaður framsóknar-
manna í Suðurlandskjördæmi.
Sigurður Óskarsson framkvæmda-
stjóri Verkalýðsfélagsins Rangæings
tók sæti Steinþórs Gestssonar sem er
sjúkur. Sigurður er varaþingmaður
sjálfstæðismanna í Suðurlandskjör-
dæmi.
Einnig tók Einar K. Guðfinnsson
námsmaður sæti i stað 'Matthíasar
Bjarnasonar sem boðar fjarvistir „af
heilsufarsástæðum”, sem þingmaður
sjálfstæðismanna fyrir Vestfirði.
Loks kom Jón Sveinsson lögfræð-
ingur á þing fyrir framsóknarmenn á
Vesturlandi i stað Alexanders
Stefánssonar sem fer utan í opinber-
um erindagerðum.
- HH
Einar K. Guðfinnsson, einn hinna
nýju varaþingmanna. Einar er Boi-
vikingur, sonarsonur og alnafni
mesta framk væmdamanns pléss-
ins i marga áratugi, Einars Guð-
finnssonar útgerðarmanns. hlýi
varaþingmaðurinn er ritstjóri mál-
gagns SjáHstæðisfíokksins i kjör-
dæminu.
Ekki
prenthœft
Campomanes, einn af varaforset-
um FIDE, var á blaðamannafundi
fyrir skömmu spurður að því hvort
hann kynni að segja einhverjar fréttir,
af Bobby Fischer fyrrum heimsmeist-
ara í skák.
Campomanes hugsaði sig um
stund, brosti og sagði síðan: ,,Að
minnsta kosti ekkert sem er prent-
hæft.”
Þá eru innlendu áfengisauglýsing-
arnar farnar af stað — þetta er bak-
hliðin á matseðli Þórskabaretts, sem
haldinn er i Þórscafé þessar vikurnar.
Athugasemdir hafa ekki verið gerðar
við þessa auglýsingu.
Rauðagerðis-
lóðirnar á
20 milljónir?
Lóðaúthlutanir Reykjavikur vekja
alltaf umtal og hefur viða verið
skeggrætt um þær úthlutanir sem ný-
lega eru afstaðnar. Strangar reglur
gilda um sölu á nýjum lóðum og ska)
allt brask útilokað. Stórt skref var
raunar stigið í þá átt þegar punkta-
kerfi nýja meirihlutans var tekið í
notkun.
Einhverjir eru þó að spekúlera um
málin sin á milli og meðal annars
það, að ekki þýðir að ræða um kaup
á nýrri lóð við Rauðagerðið — fyrir
minna en tuttugu milljónir. Þar var
úthlutað 20 dýrustu lóðunum. Það er
fjórfalt verð, gatnagerðargjöld eru
nær fimm milljónir. Talsvert lægra
verð er nefnt í sambandi við lóðir sem
úthlutað var i Breiðholti og á Eiðs-
granda. Hinir „heppnu” sem fengu
lóðir á Eiðsgrandanum eru reyndar
ekki allir vissir um að þeir hafi orðið
svo heppnir — þar eru 6—8 metrar
niður á fast sem er talsvert fyrir
neðan sjávarmál! Ef miðað er við að
hver metri niður kosti milljón, þá er
útlit fyrir blóm í haga hjá skurð-
gröfufyrirtækjum i borginni — og
jafnvel hjá dýpkunarskipinu Gretti.
áfengis-
auglýsing
Innlend
KAHLÚA...
kaffilíkjörinn
heimsfrœgi,
nokkuð sem
er ómissandi
með kaffinu.
Hljómeykið
Staðnað
laumuspil
Við sögðum frá skemmtilegri
músíkgrúppu hér á síðunni fyrir
nokkrum dögum og sögðum hana
heita Laumuspil. Þar varð okkur
heldur betur á í messunni, því rétt
nafn hópsins er Hljómeykið Staðnað
laumuspil.
Höfuðpaurar hljómeykisins og
stofnendur eru þeir Friðrik Erlings-
son og Bragi Ólafsson. Þeir semja öll
lög og texta sem hljómeykið flytur og
annast útsetningar þeirra.
Þeir Friðrik og Bragi eru ekki sam-
mála þeirri skoðun sem sett var
fram, að Hljómeykið Staðnað
laumuspil sé skemmtileg blanda af
Spilverki þjóðanna og Diabolus in
Musica. Þeir reyni þvert á móti að
líkjast þeim ekki, heldur ráði eigin
slill.
Ásamt með hinum helming hljóm-
eykisins, Hönnu Steinu og Evu
Mjöll, gerðu Bragi og Friðrik storm-
andi lukku á skemmtikvöldi Klúbbs
25 fyrir páskana og hafa gert það
víðar.
-ÓV
ATLI RUNAR
HALLDÓRSSON
FOLK