Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1968, Side 9
LANDSBÓKASAFNIÐ 1967
9
MYNDADEILD Af meiri háttar verkefnum, er unnið var að í myndadeild safns-
ins, má einkum nefna nokkurt framhald myndatöku dagblaða á
mjófilmu - og endurgerð kirkjubóka í Þjóðskjalasafni. Eru þessi verkefni bæði mjög
brýn, en fjárfrek, ef þoka á þeim verulega áleiðis á skömmum tíma.
Unnið var að ýmiss konar myndagerð fyrir handritadeild safnsins, svo sem töku
fjölmargra rithandar- og skriftarsýnishorna, en safn slíkra dæma er notendum hand-
rita til mikils hagræðis.
Haraldur Sigurðsson bókavörður var frá störfum sex mánuði (nóv. 1966 - apríl
1967) og vann þá á eigin vegum að verki sínu um íslenzka kortasögu allt frá öndverðu.
Tveir stúdentar, Indriði Hallgrímsson og einkum Einar G. Pétursson, er báðir
leggja m. a. stund á nám í bókasafnsfræðum við Háskólann, unnu störf Haralds í safn-
inu í fjarveru hans.
AÐSÓKN
Hér fer á eftir skýrsla um notkun bóka og handrita, um lesenda-
fjölda, útlán og tölu lántakenda:
Flokkur
000 .......
100 .......
200 .......
300 .......
400 .......
500 .......
600 .......
700 .......
800 .......
900 .......
Samtals
Handrit . . .
Lesendur . . .
Útlán . ~
Lántakendur
1967
7.560 bindi
128 —
502 —
1.692 —
1.014 —
483 —
261 —
301 —
3.147 —
3.940 —
19.028 bindi
5.770
14.732
809
183
ÍSLENZK RIT Forráðamenn Endurprents sf., Þorgrímur Einarsson og Olav
í FRUMGERÐ Hansen, leituðu eftir samvinnu við Landsbókasafn um útgáfu á
nokkrum merkum íslenzkum ritum í frumgerð þeirra, og varð
að ráði, að vér veldum rit til slíkrar útgáfu og önnuðumst uin formálagerð, en út-
gáfan væri að öllu öðru leyti á vegum þeirra Endurprentsmanna.