Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1968, Page 111
HARALDUR SIGURÐSSON
JORIS CAROLUS
OG ÍSLANDSKORT HANS
i.
Engin gerS íslandskorta átti sér jafnlanga sögu og Tabvla Islandiæ, auctore Georgio
Carolo Flandro. ÞaS birtist fyrst nálægt lokum þriSja tugs 17. aldar og vék ekki úr
sessi fyrr en kort, byggS á mælingum Thomas Hans Henrich Knopfs komu til sögunn-
ar. Knopf hóf hér mælingar 1730, og var þeim lokiS aS mestu 1734. Ekki voru kort
hans birt aS sinni, enda skoSuS nánast sem hernaSarleyndarmál, og sáu ekki dagsins
ljós fyrr en 1752 í Tilforladelige Efterretninger om Island eftir Niels Horrebow.
Um höfund kortsins, Joris Carolus frá Flæmingj alandi eSa Georgius Carolus
Flandrus eins og hann nefndi sig stundum aS latneskum hætti, er í rauninni ekki
margt vitaS. Hann mun hafa veriS frá Enkhuizen, smábæ í NorSur-Hollandi viS
Zuiderzee, aS minnsta kosti kenndi hann sig gjarnan viS þann bæ. Hann er líklega
fæddur nálægt 1566, því að í hollenzku réttarskjali, rituSu í Enkhuizen 12. des. 1630,
segir, aS kominn sé til vitnisburSar „Eersame Joris Carolus Schoolmaster van de
groote zeevart ende burger deser stede, out omtrent 64 jaren“.1 Á yngri árum var
Carolus hermaSur og missti annan fótinn í umsátri um Ostende og gekk síSan á tré-
fæti, „Mastur Juris Tréfótur“ eins og Jón lærSi kallaSi hann.1 2 Sneri Carolus sér þá aS
farmennsku og siglingafræSi og gerSist leiSsagnarmaSur eSa stýrimaSur, er sjá skyldi
um siglingu skipsins og leiSarreikning og gekk þannig næstur skipstj óranum aS völd-
um. Carolus dvaldist árum saman í Indlandi í þjónustu Oostindische Compagnie.3
Hollendingum þótti leiSin suSur fyrir Afríku löng og fóru aS litast um eftir annarri
styttri. Kom mönnum þá helzt til hugar aS leita hennar norSan Ameríku og Asíu eSa
jafnvel beinustu leiS yfir heimskautiS. Um sama leyti voru hvalveiSar aS hefjast í
NorSurhöfum, og gerSu þær sitt til þess aS beina hugum manna norSur á bóginn. í
Hollandi var stofnaS nýtt félag, Noorsche Compagnie, til hvalveiSa og landaleita á
þessum slóSum. ÁriS 1614 sendi félagiS tvö skip, De goude Cath og Den Orangien-
1 L. Bobé, Opdagelsesrejser til Gr0nland (Medd. om Gr0nl. 55), Kbh. 1936, bls. 39).
2 H. Hermannsson, Islandica XV, Ithaca, New York 1920, bls. 3.
3 M. Conway, Joris Carolus of Edge Island (Geogr. Joum. XVII, bls. 623-32).