Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1968, Side 122
122
JORIS CAROLUSOG ÍSLANDSKORT HANS
bindi við hið forna kortasafn með 95 nýjum kortum. Ekkert íslandskort er þar að
finna, en í þýzkri heildarútgáfu frá sama: Gerardi Mercatoris et I. Hondii Atlas. Das
ist Abbildung der gantze Welt.. . Amsterdam Bey Johan Jansson und Henricus Hond-
ius, er komin eftirmynd af korti Joris Carolusar í kortasöfnum Blaeus. Munar sára-
litlu á gerðunum. Helzt mætti nefna, að á Blaeus-kortunum stendur heitið Grimsey
fyrir norðan eyna, en sunnan hennar á kortum Hondiusar og öðrum þeim kortum, sem
frá þeim eru runnin að beinu liandsali. Fleiri einkenni koma til greina eins og mis-
munandi staða og gerð leturs. Ekki er að sama skapi auðvelt að sannreyna, úr hvaða
útgáfum einstök kort eru, sem ganga manna á milli á lausum blöðum og hafa verið
rifin upp úr heildarsöfnum. Mismunandi blaðsíðutal kemur stundum til hjálpar, en
hrekkur þó ekki alltaf til, því að stundum eru engin blaðsíðutöl. Pappír getur líka
gefið bendingar, ef fróður maður fjallar um. Það var mikill siður kortagerðarmanna
um þessar mundir að selja hin ýmsu kort í lausasölu. Þau má oftast þekkja á því,
að ekkert lesmál er prentað á bak þeirra. Þegar tímar liðu fram, færðust landlýsingar
í aukana, og fornar skekkjur voru leiðréttar. Getur það stundum hjálpað við aldurs-
ákvarðanir.
Henricus Hondius andaðist árið 1634, og tók þá Janssonius við útgáfustarfi þeirra
og gaf út nokkrar útgáfur af kortasafninu og jók það að sama skapi. Er Islands-
kort Joris Carolusar prentað í þeim öllum. Þegar Janssonius andaðist árið 1664, voru
tvær dætur hans einkaerfingjar. Onnur þeirra var gift Jchannesi Waesberger, og rak
hann fyrirtækið um skeið undir heitinu Janssonius-Waesbergii. Var þá íslandskort
Joris Carolusar prentað að nýju, en með nýju heiti, þar sem nafni Carolusar er sleppt.
Síðar kcmust kortamótin til Lundúna og í hendur Moses Pitt, sem prentaði þau að
nýju í kortasafni sínu: The English Atlas Volume I—IV . . . Oxford. Printed at the
Theatre for Moses Pitt . . . MDCLXXX-MDCLXXIII. Hér birtist íslandskort Joris
Carolusar í síðasta sinni, að ég bezt veit, og enn er það prentað eftir hinu forna
myndamóti, en með breyttu nafni: Novissima Islandiœ Tabula. Sumptibus ]anssonius-
Waesbergiorum, Mosis Pitt et Stephani Sivart. Útgáfan varð Pitt lítill auðnuvegur.
Hann þraut gjald að ljúka verkinu, og mér er ókunnugt, hvað varð um myndamótin.
Þótt sögunni af íslandskorti Joris Carolusar ljúki hér, verður annan uppi á teningn-
um, þegar kemur að áhrifum þess á kortagerð samtíðarinnar og komandi ára.
VI.
Kunnasti kcrtagerðarmaður Frakka á 17. öld var Nicolas Sanson d’Abbeville (1600-
1667). Eftir hann og síðar syni hans, Nicolas, Guillaume og Adrien, eru til allmörg,
en nokkuð sundurleit kortasöfn, sum jafnvel titilblaðslaus og án ártals. Það er því
töluverðum erfiðleikum bundið að átta sig á kortagerð þeirra feðga og fátt til heim-
ilda um hana, sem mér hefur borið fyrir augu eða er kunnugt um. Talið er, að elzta
kortasafn hans hafi komið út árið 1645,1 en 1658 birtist hið raunverulega kortasafn
1 L. Bagrow und R. A. Skelton, Meister der Kartographie, Berlin 1963, 270.