Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1968, Page 132
SKRÁRLANDSBÓKASAFNS
132
birzt reglulega í Árbók Landsbókasafns, lengst af eftir Ásgeir Hjartarson. Skrá um
erlendan ritauka hvers árs frá 1944 til 1966 hefur verið vélrituð, en erlend ritauka-
skrá frá 1967 er fjölrituð.
ÍSLENZK BÓKASKRÁ
Á fjárlögum 1944 var í fyrsta skipti veitt nokkurt fé til samningar og útgáfu full-
kominnar íslenzkrar þjóðbókaskrár, og hefur verið unnið að henni öðru hverju síð-
an. Lengst hafa sinnt því verki Þórhallur Þorgilsson og Pétur Sigurðsson, fyrrv. há-
skólaritari, en síðustu ár Ólafur Pálmason.
I skránni verða talin öll rit íslenzkra höfunda, rit erlendra höfunda prentuð á ís-
lenzku og rit erlendra höfunda á erlendum tungum, ef prentuð hafa verið hér á landi.
Ætlað er, að skráin komi út í áföngum og nái hinn fyrsti fram til 1844, þegar
prentsmiðja er flutt til Reykjavíkur, og hinn næsti þaðan til 1944, er ritaukaskrá
Árbókar tekur við. I fyrsta áfanga skrárinnar, sem vænta má, að senn verði full-
búinn, verður lögð sérstök rækt við bókfræðilýsingu rita frá 16., 17. og 18. öld. I
handriti Þórhalls Þorgilssonar er þegar kominn drjúgur stofn til annars áfanga
verksins.
SKRÁ UM ÍSLENZK BLÖÐ OG TÍMARIT
Geir Jónasson hefur unnið um árabil að nákvæmri skrá um íslenzk blöð og tíma-
rit frá upphafi, þar sem vandlega er gætt að tölumerkingu og afbrigðum öllum. Skrá-
in er enn í handriti.
PRENTAÐARSÉRSKRÁR
Útgefin sérstaklega:
Þórhallur Þorgilsson: Drög að skrá um ritverk á íslenzku að fornu og nýju af
latneskum eða rómönskum uppruna.
I. Frakkland. Rv. 1954.
II. Ítalía. Rv. 1958.
Birtar í Árbók Landsbókasafns:
íslenzk leikrit
Lárus Sigurbjörnsson: íslenzk leikrit 1645-1946, frumsamin og þýdd. (Árbók
1945).
— Viðbótarskrá 1946-49. Leiðréttingar, viðaukar og heitaskrá leikrita 1645-1949.
(Árbók 1948-49).