Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1974, Qupperneq 15
LANDSBÓKASAFNIÐ 1973
15
Talið var, að þjóðbókasöfn þyrftu að geta friðað sem mest eitt eintak, en haft ann-
að til afnota, og rætt var um nauðsyn þess að varðveita jafnframt bækur í þeim bún-
ingi, sem þær bera, þegar þær koma á markað.
Vegna mikilla breytinga, sem orðið hafa á hvers konar tækni til margföldunar rit-
aðs máls, þótti einsýnt, að sú aðferð, sem beitt væri hverju sinni, réði ekki úrslitum
um lögbundin skil slíks efnis.
Loks var rætt um hljómplötur, segulbönd og þess háttar og hversu tryggja mætti,
að þjóðbókasöfn eða einhver annar aðili í hverju landi varðveitti efni af þvi tagi.
Meðal annarra umræðuefna fundarins voru bókaskipti safnanna, en slík skipti eru
veigamikill þáttur í starfsemi rannsóknarbókasafna, þar eð margvíslegt efni verður
naumast dregið að nema í bókaskiptum. Rætt var sérstaklega um, hversu söfnum á
Norðurlöndum yrði greiðast að afla íslenzkra bóka, og áttu þátttakendur m. a. fund
um það mál með stjórn Bóksalafélags Islands.
Rætt var um Scandia-áætlunina svonefndu, en það er áætlun um verkaskiptingu
milli rannsóknarbókasafna á Norðurlöndum um aðdrætti til þeirra. Er þá litið á
Norðurlönd sem eina heild og einstökum efnisflokkum síðan skipt milli safna, þann-
ig að tryggt sé eftir föngum, að rit, sem ætla má að nægi Norðurlandasvæðinu í einu
eintaki, séu ekki keypt til margra safna.
Að lokum var rætt um samvinnu norrænna rannsóknarbókasafna á sviði skráningar
og gagnkvæmrar upplýsingaþjónustu. Með samræmdum aðgerðum væri unnt að ná
ótrúlegum árangri, og riði á, að íslenzk bókasöfn gætu í senn notið góðs af slíkri
samvinnu og lagt sitt af mörkum til hennar.
Stjórn Deildar bókavarða í rannsóknarbókasöfnum skipuðu á árinu 1973: Finnbogi
Guðmundsson formaður, Einar Sigurðsson ritari og Halldór Þorsteinsson gjaldkeri.
Formaður Norræna sambandsins var John Brandrud yfirbókavörður í Björgvin.
Forstöðumenn bókasafna þjóðþinganna á Norðurlöndum sóttu í júnímánuði norr-
ænan embættismannafund í Reykjavík. Islenzkir starfsbræður áttu nokkrar stundir
með þeim einn daginn og sýndu þeim Alþingi, Landsbókasafn, Háskólabókasafn og
Árnastofnun.
ABRIR FUNDIR Brezka bókavarðafélagið bauð fulltrúum frá 20 Evrópulöndum
til ráðstefnu í Banbury á Englandi dagana 10.-15. marz, þar sem
fjallað skyldi um bókalán milli landa, hversu ástatt væri um þau nú og hverjar umbæt-
ur væru vænlegastar til þess að gera þær enn greiðari. AS ráðstefnu þessari stóðu jafn-
framt British Council og Samtök þjóð- og háskólabókasafna á Bretlandi, SCONUL.
Undirritaður sótti þenna fund af Islands hálfu og gerði þar grein fyrir samskiptum
íslenzkra bókasafna við erlend söfn, að því er tæki. til bókalána milli þeirra. Var þann-
ig flutt skýrsla frá hverju landi, en þær síðan ræddar, ef ástæða þótti til.
Aðalniðurstaða ráðstefnunnar var sú, að hver þjóð yrði að búa svo um, að hægt