Vísbending


Vísbending - 18.12.1997, Blaðsíða 12

Vísbending - 18.12.1997, Blaðsíða 12
hann í fjárhagsvandræðum og var kominn á fremsta hlunn með að láta munstra sig á farskip sem stefndi til Kína. Þá varð honum til bjargar danskur prófessor, Hans Gram að nafni, sem fékk Skúla í vinnu við að skrifa upp gömul handrit. Gram átti einnig afburðabókasafn og Skúli sagðist aldrei hafa átt skemmtilegri stundir en í bókastofu prófess- orsins. Þar urðu fyrir honum rit um „stjórnarfars- og þjóð- hagsfræði“ sem gagntóku hann. Aðalfag Skúla við skólann var guðfræði en hann snerist frá því að verða prestur því að nú áttu efnhagsmál hug hans allan, eins og segir í Veðurvita, kvæðinu góða: Þá vöruprangarinn sigldur var; þá fékk hann smekk og þekking fyrst á þeirri dýrmætu handel list. Skúli lagði sig eftir fræðum sem landar hans kölluðu „handel list“, sem var líklega samheiti yfir viðskipta- og hagfræði í þeirra munni, og þótti til lítilla nytja. A þeim tíma lærðu Islendingar helst guðfræði og lögfræði, en fæstir reyndu að kynna sér atvinnuhætti erlendra þjóða. Lands- menn höfðu löngum fylgst allnákvæmlega með hlutum eins og fatatísku en virtust kæra sig kollótta um nýjungar í verktækni. Sú trú var auk þess rótgróin að erlendar hag- fræðikenningar gætu ekki náð yfir íslenskar aðstæður og hefur sú meinloka reyndar lifað góðu lífi allt fram á þennan dag. Skúli sjálfur taldi fáfræði í hagrænum efnum vera eitt svartasta myrkrið yfir landinu og eitt af baráttumálum hans var að landsmenn myndu læra „handel list“. Hvað kunni Skúli í hagfræði? Sú hagfræði sem Skúli las nefndist kaupskaparstefna og lagði áherslu á menntun, viðskipti og iðnað sem grundvöll auðmyndunar. Kaupskaparstefnan hefur ekki hlotið sérlega góð eftirmæli vegna slæmra stjórnvaldsað- gerða sem af henni hlutust, t.d. hafta á frjálsri verslun. Hvert ríki átti að hafa sem myndarlegastan vöruskiptaaf- gang þannig streymdu góðmálmar inn í landið og auðsæld jókst. Þettaminnirummargtáviðskiptastefnumargraþjóða heimsins nú á tímum og var reyndar fátt annað en viður- kenning á því að aukið peningamagn örvaði hagkerfið, án þess að gæta að verbólguáhrifum sem hlutu að fylgja. Breski hagfræðingurinn G.M. Keynes tók upp hanskann fyrir kaupskaparstefnuna í riti sínu „The General Theory of Money and Employment“ frá árinu 1936. Hann lýsti því að hagfræðingar þess tíma hefðu verið á réttu róli um sam- hengi hagrænna hlutanna og að mörgu leyti var sá „Key nes- ismi“ sem á eftir þeirri bók fylgdi endurbætt útgáfa á kaup- skaparstefnunni. Stefnurnar eiga það sammerkt að leggja mikið upp úr „margföldurum“ eða keðjuverkandi áhrifum á hagkerfið í heild. Það er með þessum keynesísku for- merkjum sem líklega er auðveldast fyrir nútímamenn að skilja tillögur og hugsun Skúla í efnahagsmálum. Hann áleit að besta leiðin til þess að umbylta íslenska hagkerfinu væri að fá fyrirtæki og kaupskap inn í landið sem síðan margfaldaði út frá sér og þéttbýli myndaðist og landshagur blómgaðist. Það eru ekki efni til annars en að álíta að Skúli hafi verið allgóður hagfræðingur. Hann dvaldi langdvölum erlendis og lagði sig örugglega eftir nýjustu straumum í hagvísind- um. En rit hans „Sveita bóndi“ (útgefið árið 1784) ber það t.d. með sér að Skúli hafði lesið Auðlegð þjóðanna eftir Hvað gerði Skúli rangt? Þróunarstarf vantaði að hefði verið betra að stofnafœrrifyrirtæki í byrjun, standa beturað þeim og stunda rannsóknir áður en lagt var út í framkvœmdir. Sígandi lukka er best en framsókn Skúlafólst í einum stórsigri í byrjun og síðan hægfara undanhaldi næstu 30 árin. Meira aðhald í rekstri kúli var frægur af rausnarskap og það er Ijóst af reikningum innréttinganna að hann greiddi mun hœrri laun en tíðkast á Islandi. Það var m.a. hluti af stolti hans að sýnafram á að nýir hættir gæfu betur af sér en gömul vinnubrögð. Stofnanirfengu orð á sigfyrir óhófog betra hefði verið að sýna meiri ráðdeild í rekstri. Röng stefnumótun ótt nýjungar Skúla hafi mœtt miklum eifiðleikum hefðu fyrirtœkin kannski náð að sigla í gegn ef áherslan hefði verið lögð á útgerð og fiskvinhslu í stað ullarvinnslu. Fljótlega eftir 1760 var útgerðin gefin upp á bátinn eftir taprekstur en allurþungi lagður á vefnað. Hlutfallsyfirburðir Islands voru á sviði fiskveiða en vart í ullarframleiðslu og sérstaklega ekki eftirað ullarkyn- bœturnar misheppnuðust með fjárkláðanum. Adam Smith sem út kom átta árum áður. (Sveita bóndi fjall- aði um framleiðslukostnað og rekstrarhagkvæmni í land- búnaði.) Auk þess átti Skúli mjög gott bókasafn (urn 1200 bindi) þar sem án efa hafa verið margar hagfræðibækur. Rann- sóknir hans á íslensku efnhagslíft eru stórmerkar og með bestu heimildum um hagkerfið á 18 öld. Hann var einnig talnaglöggur, skrifaði skýrslur og áætlanir með svo góðu hagfræðilegu innsæi aðdanskirembættismenn kiknuðu íhnjá- liðunum. Það varþessi eiginleiki sem óvinirhans sneiddu að þegar þeir kölluðu hann „prosjectmakara“. Skúli verður sýslumaður egar Skúli hafði dvalið tvö ár í Kaupmannahöfn varð hann sýsluinaður A-Skaftfellinga árið 1734, þá 22 ára að aldri. Ári síðar heppnaðist honum að ná Skagafjarðar- sýslu eftir miklar deilur við amtmann landsins. Skúli var í Skagfirði í þrettán ár eða fram til vorsins 1750 og þótti standa sig vel í embætti að áliti Dana. Hann tók snöfur- mannlega á launverslun í héraðinu og einnig urðu stöif sem ráðsmaður yfir biskupsstólnum á Hólum í Hjaltadal frá 1741 til 1746 til þess að mæla með honum. Þá vardanskur maður, Loðvík Harboe, Hólabiskup og þeim Skúla virðist hafa samið vel, en þeir voru jafnaldrar og höfðu báðir lært guðfræði við Hafnarháskóla. Skúli sagði sjálfur í skýrslu til Landsnefndar árið 1770 að upphaf innréttinganna megi rekja lil komu Harboe. Þá fyrst hafi Danir farið að veita málefnum íslands athygli þegar biskupinn flutti stjórninni skýrslu um landið af raunsæi og hefur þar vafalaust mælt með ráðsmanni sínum við yfirvöld ytra. Svo þegar land- 12

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.