Vísbending


Vísbending - 18.12.1997, Blaðsíða 20

Vísbending - 18.12.1997, Blaðsíða 20
yjsbending_________________________ þetta sé vegna þess að heiti yfir ástand þess fái smám saman á sig blæ skammaryrðis og verði neikvæð. Þess vegna þurfi að finna upp ný. Slíkur merkingarflótti undan meintum fordómum al- mennings er vonlaus. Argir? Annar hópur fólks á við sama vanda að etja en það voru þeir sem kallaðir voru argir til forna, karlar og konur sem leggja ást á sitt eigið kyn. Til skamms tíma mátti ekki segja hommi eða lesbía í útvarpi allra landsmanna og kynvillingur sem er fornt orð og skýrt var álitið hreinasta skammaryrði svo að ekki sé minnst á öfugugga. Þetta leiddi til merkingarflótta og orð eins og hýr, samkyn- hneigður og tvíkynhneigður rugluðu venjulegt fólk svo í ríminu að fæstir þorðu að tjá sig um málið af ótta við að styggja einhvern. Þeir sem sjálfir tilheyra þessum hópum virðast nú orðið gera sér grein fyrir tilgangsleysi merk- ingarflóttans og hafa tekið upp markvissa orð- notkun og tala um sjálfa sig sem homma, lesbíur eðajafnvel kynvillinga. Skjólstæðingarnir Stutt er síðan einhver talaði í útvarpi um skjólstæðinga Fangelsismálastofnunar. Ég býst við að það séu einkum fangar og afbrotamenn. Börnin Einhverjir muna eftir því þegar samheitið óþekkt var látið duga yfir hegðun barna sem ekki þótti nógu góð. I dag eru engin óþæg börn til en fjöldi barna þjáist af ofvirkni, misþroska, félagslegum aðlögunarvanda, andstöðuþroska- röskun og fjölmörgum öðrum heilkennum sem þarf háskólapróf til að nefna. Kúplingsmóðirin Hnípin stjúpmóðir kvartaði á síðum Morgun- blaðsins í haust um skort á samheiti sem ekki hefði eins neikvæða merkingu og vonda stjúpan. Konan stakk upp á orðinu tengslamóðir í staðinn. Tengsli var í upphafi bílaaldar notað í stað kúpl- ingar en enginn vildi kaupa. Kannski farnast því betur í þessari nýju samsetningu. Þó ætti konan kannski að endurmeta gildi orðsins stjúpmóðir. Verðfelling orðanna að er sannfæring mín að þeir sem nota móð- urmál sitt á opinberum vettvangi og ávarpa samborgara sína til góðs eða ills eigi að forðast verðfellingu orða af því tagi sem hér er lýst og tjá sig skýrt og skorinort. u.: : -- ^ r 7 gert merkingarflótta og útvötnun orða in í nafni pólitískrarrétthugsunar. Nokk- af þessu hér á landi og nú þykir vel óviðkunnanlegt að tala um negra og tað fólk og frumbyggja Ameríku. írti til þess fallin að vekja kátfnu. irepared = fátœkur = lágtekjufólk lenged = offeitur = yfir kjörþyngd = búðarhupl = rýrnun i = útigangsmaður = dvergur = hœðarheftur dl = eldri borgari = fíkill = stríðir við námsörðugleika 20

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.