Vísbending


Vísbending - 18.12.1997, Blaðsíða 26

Vísbending - 18.12.1997, Blaðsíða 26
^sbending Auðvitað fólst í þessari fjárfestingarstefnu ákveðin íhalds- semi en þó fyrst og fremst viðleitni til að tryggja fjármuni sína sem best. Landbúnaður var hið sanna haldreipi kynslóðanna sem fjáraflamenn kappkostuðu að setja peninga sína í. Sálubræður þeirra á 20. öld hafa undanfarin ár keppst við, af engu minni ákafa, að fjárfesta í sjávarútvegi sem sýnir vel hvað tímarnir hafa breyst. Hjá því getur ekki farið að hugmyndafræði manns er elur allan sinn aldur í fá- breytilegu umhverfi sveit- arinnar, þar sem engir eru vegirnir, engir bankar, ekkert pósthús, enginn sími, ekkert útvarp eða sjónvarp, ekkert rafmagn, ekkert rennandi vatn í húsum, eng- ir bílar og engar fiugvélar, hlýturaðveraönnurenokk- ar sem lítum á þetta sem sjálfsagðan hlut. Við eigum greiðan að- gang að lánastofnunum er brýna okkur til góðra verka. Nefndir af mörgu tagi ieggja á ráðin um alls- konar verkefni á sviði ný- sköpunar, hvatt er til efl- ingar viðskiptatengsla við erlend ríki og auglýsingar um margvísleg kjarakaup dynja á okkur daginn út og inn. Við erum beinlínis hvött til að eyða um efni fram. Forfeðurokkartrúðu því hins vegar að það gerði hvern góðan að geyma vel sitt — og höfðu þeir þó flestir næsta lítið að gey ma. Að þessu öllu sögðu mætti haldaað Islendingar hefðu ekki stundað neina útgerð sem orð er á gerandi fyrr en á öndverðri 20. öld. Þetta er þó rangt og því ntiður flækist nú málið all- mjög. Sannleikurinn er nefnilega sá að Islendingar hafa um aldir lagt stund á fisk- veiðar, ekki einasta til að eiga í soðið heldur einnig til útflutnings. Lengi vel var þetta árabátaútgerð en á 19. öld ruddu þilskipin, eða skúturnar, sér til rúms. Og hvort sem við getum fellt okkur við það eða ekki þá tóku bændur þátt í þessari þróun og voru jafnvel forvígismenn hennar. Bændur brutu leið s IEyjafirði, þar sem þilskipaútgerð stóð lengi með hvað mestum blóma, voru það bændur sem brutu henni leið og áttu skipin lengi vel. Það var ekki fyrr en undir lok 19. aldar og í byrjun þeirrar 20. að kaupstaðarbúar og danskir kaupmenn tóku að fjárfesta í þilskipum við Eyjafjörð. Staðreyndir sem þessar l'lækja vissulega söguskilning endurskoðunarsinnaog til þessahafaþeireinfaldlegakosið að horfa fram hjá þeim. En fræðilegur stjarfi verður seint talinn mönnum til teknaog stundum er liann beinlínis hættu- legur. Má þar taka rasisma sent dænti. A þessu stigi málsins hljóta allir að geta orðið sammála um að þeir bændur fyrirfundust á 19. öld sem höfðu fullan hug á því að stunda út- gerð og græða á henni. Við getum svo deilt um það hvort að þeir hefðu ekki átt að gera enn betur. í þeirri umræðu verð- um við þó sem fyrr að gæta sanngirni. Við hvað var að etja? Höld- um okkur enn um sinn fyrir norðan, í Eyjafirði. Tökum dæmi af Grýtu- bakkahreppi. Árið 1859 áttu bændur þar í sveit fimm þilskip og voru í fjórða sæti yfir helstu þilskipaútgerðarstaði (hreppi) á landinu. Þrátt fyrir að mikið lán fylgdi þessari útgerð missti hreppurinn nokkur skip, það fyrsta árið 1868. Eftir tórðu ekkjur og föðurlaus börn í landi. Og þvert ofan í það sem sumir endurskoðunar- sinnar hafa haldið fram þábarhreppurinn ábyrgð á þessu fólki færi það á vonarvöl. Þetta þýddi með öðrum orðum að þ ví fleiri sem ómagarnir voru því hæni gjöld varð að leggja á aðra hreppsbúa. Þetta er furðu sam- bærilegt við þá umræðu sem á sér stað í þjóðfél- aginu einmitt um þessar mundir, nema hvað núna eru það fóstrur og grunnskólakennarar sem hóta að hækka út- svarið með launakröfum sínum. Og hvað sem hver segir þá hefur þessari yfirvofandi ógn sem hækkun útsvarsins er verið beitt gegn þessum hópum í því skyni að vekja upp almenna andúð á heimtu- frekju þeirra -— og hver veit nema það takist senn. Svipull sjávarafli / Al 9. öld, og fyrr, fólst ógnin í hinum svipula sjávarafla og grályndum veðrum er gátu svo hæglega leitt til ljölgunar ómaga og þá um leið til hækkunar útsvars. Og það hefur ekkert breyst að Islendingar voru skattsárir þá sem nú. Þetta var ein ástæða þess að landbúnaður var allt fram á 20. öld sá atvinnuvegur er tíðarandinn kenndi að íslenskt samfélag grundvallaðist á, hvað sem leið raun- veruleikanum. En ástæðurnar voru vissulega fleiri. Endurskoðunarsinnar Iíunngjörir fiýslvmaðvr í $zafjarbarsýdu bœjarfógeti á <9safirdi nft til lumniju-- JL?"*11 or faMld Iiofur tjáö mór, UÖ ... óski að loysa sig undun vistar.dcyldunni, og Iiofur boiðst lcyfis- brófs í þvi skyui, þú voitisb liór nieö leyli til lausainennslui inoð þoim i-óttiudum og skylduiu, soin stöðu þossari fylgja optir þoiiu lögum, soin uó gilda oða siðar kunna gotiu að vorða. Skylt or að liafa fast árshoimili, og tilkynna Ulutaðeigandi lirapp- stjóra cða basjaríógcta á vori hvorju, eigi síðar on 20. júniin. Iijá Uvorjum Uúsráðumla Iioiinilið or, og of krafist cr sanna það inoð skýrtoiui Irá Uúsráðandanum, að viðlagðri ábyrgð. Lögboðin gjöld skal groiða þar, sma úrsUeimilið or. Mytji hrrrrty.... i aunað lögsagaarurndæmi þá vorður að loysa nýtt leyíisbréf lijá Ulutaðoigandi lögreglusljóra. /n Skrifstofu ísafjarðar og ísafjarðarsýslu, ....j Gjald fyrir ioyfisbréfið kr. llitlaun i laudssjóðinn — 2.00 Samtals kr. '4S^r’ ýffii 'f Lausamonnukuleyíisbréi* Q íyrir Samkvæmt bréfinu hér fyrir ofan fékk Guðmundur Halldórsson lausn undan vistarbandi fyrir 17 krónur. Árslaun Guðmundar námu 60 krónum á þessum tíma. Birt með góðfúslegu leyfi Guðmundar L.Þ. Guðmundssonar 26

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.