Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1998, Page 20

Frjáls verslun - 01.05.1998, Page 20
TIL FRÓÐLEIKS A. Yfir 700 erlendir fjölmiölamenn komu hingaö til lands á síöasta ári ■ enda er lögö áhersla á aö fá hingaö erlenda blaöamenn. Á síð- asta ári komu sextán sjónvarpsstöðvar eingöngu til að fjalla um trú okkar á álfa og huldufólk. B. Sú breyting hefur oröiö á aö jafnmargir útlendingar koma hingað yfir vetrarmánuðina og á sumrin. Skýringarnar eru þrjár: 1. Aukin tiðni ferða Flugleiða og bætt netkerfi þeirra varöandi ýmsar fiug- leiöir stórborga. 2. Verðlækkanir i feröaþjónustunni yfir vetrarmánuöina til að standast samkeppni á svonefndum borgarmarkaði. 3. Bætt vöru- þróun. Þróaðar hafa verið stuttar ferðir til íslands þannig að fólk geti kynnst sem mestu á nokkrum dögum - en áður var mest lagt upp úr tveggja til þriggja vikna ferðum. C. Flugleiðir eyða um 1,2 milljörðum í auglýsingar og sölustarf er- lendis, þ.e. að halda úti sölukerfinu. hversu stóran þátt þær eiga í árangri her- ferða og sölu vara. Hvað var auglýsingarinn- ar og hvað var vörunnar sjálfrar? Menn deila um hvað sé hvors en hvorugt getur þó án hins verið. Reglan er þó þessi: Góð aug- lýsing byrjar á góðri vöru. Því má segja að góð íslandskynning Bjarkar heijist á góðu ís- landi sem er þess virði að sækja heim - og sem er í stakk búið til að taka á móti gestum og veita þeim þá þjónustu sem þeir sækjast efdr. í FYLGDARLIÐI FORSETANS? Þetta leiðir hugann að því hvort íslensk ferðaþjónusta geti ekki nýtt sér frægð og frama Bjarkar enn frekar með því að fá hana beint í lið með sér. Hún gætí auglýst beint fyrir Flugleiðir, Ferðamálaráð, sölufýrirtækin í sjávarútvegi, hugbúnaðarfyrirtækin og svo framvegis. Hún gætí þess vegna verið annað veifið í fylgdarliði forsetans í opinberum heimsóknum; haldið tón- leika í tengslum við ferðir hans. Auðvitað myndi þetta kosta stórfé því Björk er alþjóðleg stjarna. Það er svo önnur saga hvort hún hafi áhuga á - eða tíma tíl - að vera í slíkri beinni sölumennsku. Stóra málið er að sýna framsækni og stórhug og gera meira úr Islandi í heild sinni. Eða eins og einn viðmælandi Fijálsrar verslunar orðaði það: „Við erum lítil eining. Þess vegna eigum við að stækka hljómsveitina og spila öll sama lagið. Því stærri hljómsveit - þeim mun meiri kraftur; meiri samhljómur. Við eigum að vinna með öllum þeim einstaklingum sem „meika það” á erlendum vett- vangi.” Minna má á að það er gamalt og gott bragð í auglýsingum að láta þekkta einstaklinga auglýsa vörur og fyrirtæki. Erlend stór- fyrirtæki nýta sér þetta út í ystu æsar - og hafa líka fé til þess. Yf- irleitt sækjast fyrirtækin eftír afburðafólki tíl að auglýsa vörur sín- ar, ekki síst poppstjörnum, leikurum og íþróttamönnum. Breska hljómsveitin Spice girls aug- lýsir tíl dæmis Pepsi - og tók raunar þar við af poppstjörn- unni Mikael Jackson. Sömu- leiðis hefur fyrirsætan Cindy Crawford auglýst Pepsi. Og svona mætti áfram telja. Þessi aðferð er notuð ótrúlega mik- ið í auglýsingum erlendis. Hvers vegna ekki að semja við Björk um að koma fram í auglýsingum og auglýsa ferðir til Islands og íslenskar vörur?! Þótt Björk sé líklegast orðin þekktastí íslend- ingurinn á erlendri grund frá upphafi er hún langt í frá að vera eini Frónbúinn sem orðið hefur þekktur erlendis - og útlendingar tengja við ís- land. Að sögn manna í viðskiptalífinu, sem í áraraðir hafa ferðast mikið til útlanda, virðist Björk þó toppa alla aðra íslendinga - og fslensk nöfh - í frægð. Af öðrum þekktum íslendingum erlendis má nefna Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness. Bækur hans hafa verið þýddar á fjölda tungumála og munu Halldór og bækur hans lifa um ókomna tfð. Snorri Sturluson og aðrir sagnaritarar íslendingasagnanna munu lifa um aldur og ævi vegna þess hve íslendingasög- urnar hafa verið þýddar víða. Hingað koma útlendingar til að sækja heim söguslóðir ís- lendingasagna. Leifur heppni Eiríksson er þekktur í Bandaríkjunum sem maðurinn sem fann Ameríku fyrir rúmum þúsund árum. Ekki mun draga úr frægð hans þegar haldið verður upp á landafundinn með tilheyrandi hátíðahöldum í Bandaríkjunum. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, varð skyndilega mjög þekkt í Evrópu og Banda- ríkjunum árið 1980 þegar hún var kjörin forseti - og ísland komst þá á kortið sem þjóðin sem varð fyrst til að kjósa sér kvenforseta. íþróttamennirnir Ás- geir Sigurvinsson og Alþert Guðmundsson urðu verulega þekkt- ir í Evrópu þegar frægðarsól þeirra reis sem hæst í knattspyrnu; sérstaklega í þeim löndum þar sem þeir spiluðu. Ásgeir mun til dæmis hafa auðveldað mjög markaðsherferð íslenskra ferðaskrif- stofa í Þýskalandi í kringum árið 1984 en þá kom f ljós að á ákveðn- um svæðum í Þýskalandi vissu ótrúlega margir um Sigurvinsson og ísland - og eftirleikurinn við að selja ferðir hingað varð fyrir vik- ið auðveldari. Sterkasti maður heims, Magnús Ver, er nokkuð þekktur á Bretlandseyjum sem jötuninn frá Islandi. Þá var Jón Páll Sigmarsson þekktur á Bretlandseyjum. Islensku stór- meistararnir í skák urðu um tíma þekktir á meðal skáká- hugafólks i Norður-Evrópu og Bandaríkjunum undir for- Gjaldeyristekjur af feröaþjónustu ir 205 þúsund erlendir rðamennkomutillandsms Vrra og skiluðu þeiryfir21 mLrði í gjaldeyristekjum. £r af hvÍrjum erlendum srðamanni ; 00 þúsund JsLTIri til kynningar BjarkarúlandinunemamP HAPPDRÆTTISVINNINGUR Eitt helsta vandamál smáþjóöa, eins og íslands, í alþjóölegri feröamennsku er að halda nafni sínu stööugt á lofti. Þess vegna er það nánast happdrættisvinningur aö eiga alþjóölega poppstjörnu sem minnir stöðugt á nafn landsins í heimspressunni. 20

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.