Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1998, Side 28

Frjáls verslun - 01.05.1998, Side 28
verði náð á næstu 3 árum. Þetta eru þær spár sem bæði Tal hf og Lands- síminn byggja sínar útbreiðsluspár og markaðssókn á. Þannig má segja að samkeppni símafýrirtækjanna snúist um 50-60 þúsund óselda farsíma. Það er álit Tals hf að til þess að fyrirtækið geti þrifist í því fákeppnisumhverfi sem hér ríkir á símamarkaðnum verði það að hafa a.m.k. 30% markaðshlutdeild. Það þýðir væntanlega miðað við gefn- ar forsendur að eftir 3 ár verði áskrif- endurTals orðnir 30 þúsund. Það þýð- ir um 10 þúsund áskrifendur á ári eða um 200 á viku hverri. Fyrstu vikuna sem fyrirtækið starfaði fékk það 500 áskrifendur þannig að segja má með góðum vilja að það hafi fengið fljúg- andi start. Á síðasta ári mun farsímanotend- um á Islandi hafa fjölgað um 16 þús- und þannig að þróunin er í raun trú- lega hraðari en spáð er. I Evrópu er áætlað að nú séu um 50 milljónir farsíma í notkun og talið að sá fjöldi nái 140 milljónum á næstu fimm árum. Því er spáð að í Mið-Evr- ópu og Austur-Evrópu aukist notkun einkum á fyrirtækjasviði en í vestur- hluta álfúnnar, sérstaklega Skandinav- íu aukist einkum einkanotkun. Þannig er augljóslega litið á þann heimshluta sem Island tilheyrir sem mesta vaxtar- svæði fyrir símanotkun á næstu árum. Arnþór Halldórson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Tals hf. Hann segir fyrirtífikið þurfa að minnsta kosti 30% markaðshlutdeild til að lifa. um hylli þeirra sem nota GSM síma. Tal hefúr reyndar lýst því yfir að það komi til með að víkka út starfsemi sína. GSM er samskiptamáti nútímans. Þessir litlu handhægu símar, sem eru léttari en fis og rúmast í vasa, hafa breiðst með eldingarhraða út meðal þjóða undanfarin ár. Þarna er ísland engin undantekning en nú eru um 47 þúsund GSM númer í notkun á ís- landi og þeim fiölgar hröðum skref- um. Það eru reyndar nágrannar okk- ar, frændur og vinir í Finnlandi, Nor- egi, Svíþjóð og Danmörku sem eiga met í GSM notkun. Á heimsvísu erum við íslendingar í 6.-7. sæti hvað varðar útbreiðslu farsíma. Út frá þessum tölum hafa menn reiknað út að líklegt væri að 100 þús- und Islendingar vildu eiga GSM síma ef þeir fengju hann á góðu verði. Flest- ir eru sammála um að þessu marki Samkeppnin er þegar farin af stað hérlendis og birtist neytendum í ýmis konar tilboðum. Landsíminn býður upp á afslátt fyrir pör eða hjón og aug- lýsir GSM pör. Tal hefur svarað með því að bjóða lægra fastagjald og hag- stæðari kjör þó varlega sé farið í fyrstu. Fulltrúar Tals hafa lýst því yfir að þeir muni einkum keppa með því að bjóða betri og fiölþættari þjónustu en muni ekki undirbjóða verðið fyrir notkun símanna. Tal býður neytendum fimm mis- munandi leiðir í gjaldskrá á móti þremur valkostum Landssímans. ALLIR í SÍMANUM! Þaö eru reyndar nágrannar okkar, frændur og vinir í Finnlandi, Noregi, Svíþjóö og Danmörku sem eiga met í GSIVI notkun. Á heimsvísu erum við íslendingar í 6.-7. sæti hvaö varðar útbreiðslu farsíma. 28

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.