Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1998, Síða 70

Frjáls verslun - 01.05.1998, Síða 70
Stefán Örn Þórisson, hótelstjóri á Hótel Selfossi. □ ið brúarsporðinn á syðri bakka Ölfusár tekur Hótel Selfoss á móti gest- um, jafnt í Betri stofunni, glæsilegum, endurnýjuðum veitingasal, og koníaksstofu hótelsins, sem og til gistingar á nýuppgerðum hótelher- bergjum þaðan sem gestir geta notið útsýnis yfir hina magnþrungnu Ölfusá. Stefán Örn Þórisson hótelstjóri er nýtekinn við daglegum rekstri hótelsins en hann hefur numið hótelrekstur í Sviss og Bandaríkjunum og starfað á hótelum bæði hérlendis og erlendis. an 22:00. í Betri stofunni er a la carte mat- seðill með stórsteikum og humar jafnt sem ódýrari réttum. Á kvöldin er boðið upp á þriggja rétta kvöldverð, rétt kvöldsins. Eft- ir kvöldverðinn geta menn notið þess að setjast niður í koníaksstofunni en þar er glæsilegt úrval af koníaki á boðstólum og einnig margar tegundir af viskíi, meðal annars sérinnfluttu fyrir Hótel Selfoss. í hádeginu geta gestir kynnst ýmsum óvenjulegum fisktegundum því þá leikur yfirmatreiðslumaðurinn, Tómas Þórodds- son, sér að því að töfra fram rétti úr kynja- fiskum á borð við stórkjöftu og fleiri furðu- fiska. í Betri stofunni er rúm fyrir 60 mat- argesti samtímis. Vel búin gistiherbergi Tuttugu og eitt gestaherbergi eru á Hót- el Selfossi og hafa herbergin öll verið end- urnýjuð að undanförnu. Tvö herbergjanna eru þriggja manna en önnur eru tveggja manna. Vönduð og þægileg rúm eru í her- bergjunum og þar er sími, smábar og sjón- varp þar sem gestum gefst kostur á að fylgjast með fjölmörgum erlendum sjón- varpsstöðvum um gervihnött. Baðherbergi eru rúmgóð og út frá öllum herbergjum eru svalir sem flestar snúa að Ölfusá þaðan Vel búið hótel og veglegar natinn til sín upp a herbergi Hótel Selfoss er vel í sveit sett þar sem Selfoss er kjarni í 15 þúsund manna byggð á Suðurlandi. Á sumrin vex þessi byggð þegar fólk streymir tíl sumarhúsabyggð- anna [ nágrenninu. Það er því hentugt að heimsækja Hótel Selfoss og fá sér gómsæta máltíð, hvort heldur er í há- degi eða á kvöldin, tylla sér niður í koníaksstofunni eða Ifta við og fá sér kaffi og meðlæti um miðjan dag- inn. Stefán Örn segir að í Betri stofunni sé fram- reiddur matur af matseðli frá klukkan 11:30 til klukk- IJIMM.HM.fJ! sem gestir geta horft á ána streyma fram og dáðst að útsýninu í átt að Hellisheiði, Ingólfsfjalli og uppsveitum Árnessýslu. Hótel Selfoss rekur auk þess Hótel Þór- istún þar sem má fá ódýra gistingu í 17 herbergjum. Gestir á Hótel Þóristúni snæða morgunmat á Hótel Selfossi. Þrír ráðstefnusalir eru á Hótel Selfossi og þar rúmast milli 400 og 500 manns. Hægt er að opna milli salanna svo úr verði einn stór salur. Þegar Hótel Selfoss var reist var gert ráð fyrir fimm hundruð manna kvikmyndahúsi í hluta hússins. Kvikmyndasalurinn stendur enn ófrágeng- inn en nú bendir margt til þess að því verki verði lokið. Horfa menn fram til þess tíma 70

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.