Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1996, Blaðsíða 14
LIFANDI GERVITRÉ
um félögum úr skáldahópnum sem slæddust
úr hringsólinu um höllina með mér inn í þenn-
an sal, og fínn þau aftur fyrir framan fuglinn
á svörtu stönginni sem eitt sinn gat látið hann
snúast með tónum úr dósinni undir, svo sá sem
tregaði hann fékk aðhlynningu fyrir minning-
amar, og gat aftur farið að hugsa sér það
hvemig það var þegar hann var lifandi í sínu
gyllta búri, og jafnvel söng. Jafnvel söng hann
stundum. Og bærði vængina þá svo einkenni-
lega, einsog það titraði allt af þrá, viðraði
stundum vængina varlega til að slá þá ekki í
fínlegu gylltu rimlana svo þeir færu að titra
af bældum tóni. Og það var hægt að seilast
með einum fíngri milli rimlanna og ýfa fiðrið
á bringu hans, meðan hann kúrði sig hrædd-
ur. Kannski alltaf hræddur. í þessu iíka fallega
búri, og svo dáður; að eigandinn barst lítt af
þegar hann lá einu sinni dauður, einsog spmng-
inn af ofþéttum tóni, af vannærðri þrá. Og iá
á gólfínu.
Þau vora frá Caracas í Venezuela, skáld-
konan kennd við kóng og hinn dularfulii tálg-
aði fylgdarmaður hennar úr einhverri eyði-
mörk, úr einhveijum heili innan við kaktusa
þar sem langar grænar eðlur skruppu um
gólf skutust um veggi meðan skegg mannsins
lengdist og andlitið togaðist á langinn og
augnalokin hvelfdust yfir hin dökku innsæju
augu að leita að einhverju haldbæru í djúpi
sín sjálfs í stormum tíðarinnar og hverfulleik;
og notaði síðan sjaldnast orð nema í kurteisis-
skyni þegar hann hvarf frá verki að reyna
aftur og aftur að ná einhveiju fram á dúka
sína sem gæti lifað nóttina af og hann þyrfti
ekki að þurrka burt að morgni. Og við bætt-
ist þýzk-ítölsk skáldkona úr iðnskrölti og
mengun Ruhr-héraðsins sem faldi sitt netta
andlit bak við stór skyggð gleraugu í horn-
spangaumgerð sem bar það ofurliði sam-
kvæmt öryggisleysi og með hellensk meand-
ros-mynstur svartteiknuð á hvítri treyju ein-
sog völundarhús án útkomuleiðar og hafði
klippt af sér síða svarta hárið til að dyljast
frekar og bundið aftan í það sem leifðist í
hnakkanum einhveija glerperlufesti sem féll
með marglitum kúlum niður á herðablöðin sem
hennar einkanlega Glasperlenspiel í stað þess
sem hún fann ekki sem síyrkjandi skáld innra
með sér þrátt fyrir einlægan ásetning og elju
í heimi sem breyttist of hratt til þess að hún
næði að koma sér upp heimsmynd eða varan-
legri sýn fyrir skáldskap.
Fuglinn stóð á sinni mjóu svörtu stöng og
vængjunum hafði verið lyft einsog nú væri
honum látið eftir að þykjast vera á flugi líkt
og væri annars heims; en Beethoven kom
miklu seinna en þær tónafiéttur sem voru
tamar hans tíð, og tók ekki í vængi hans né
tókst þessum tvíefldu skáldkonum að anda
honum á flug.
Þegar út kom vora bara örsmáir fuglar á
snöggum fiugþeytingi. Kanarífuglar. Skyldi
vera búið að éta alla hina?
Undir hátíðarlokin var veizla í boði forseta
landsins, Soares sem kom á móti okkur, fas-
mjúkur maður með mjúkar hendur og mildi-
legur. Hann hélt ræðu yfir okkur og talaði
um skáldið Sengor sem var eitt sinn forseti
Senegal, skáld í mikum metum og Nóbelshöf-
undur ásamt því að vera frelsisleiðtogi. Hon-
um var hugleikið ásamt öðram skáldum svo
sem Aimé Césare og fleiri skáldum sem ortu
með ágætum á frönsku að hefja til nýrrar
virðingar afrískan anda undir merkjum nég-
ritude sem hann orðaði svo að sínu lyndi hvað
myndi búast í sál blökkumanna, og vinna
þeim bókmenntum þegnrétt í franskri menn-
ingu líka, í menntafágun franskri ásamt
tryggð við auðugan menningararf sem þeir
höfðu þegið með þjóðum sínum. Sengor nýtur
hvarvetna virðingar. Hann kom til Frakkiands
ungur og menntaðist þar og varð svo mikils
metinn sem skáld hjá Frökkum að hann var
kosinn í Frönsku akademíuna fyrir hversu
mikið hann hefði auðgað franskar bókmenntir.
Og Soares vitnar í rit eftir Theilhard du
Chardin sem eitt sinn var kallaður bannaði
Jesúítinn, heimspekingur og vísindahyggju-
maður sem sætti kárínum og umvöndunum
frá páfastóli á sinni tíð fyrir skarpskyggni
og andríki í skrifum, Sengor hefur eftir honum
orð hans um mystére de la condition huma-
ine, um leyndardóminn í hlutskipti manns,
dul þess að vera til, (leyndardóma tilverann-
ar) - mystére de l’étre. Soares mælti á fínni
frönsku, enda var hann alllengi í útlegð í
Frakklandi meðan fasistar réðu Portúgal og
Doktor Salazar ríkti. Hann minntist hlýlega
þess hve vistin hefði verið góð í Frakklandi.
Og talaði síðan um það hve brýnt væri að
forystumenn þjóða, les hommes d’état, þjóðar-
leiðtogar, hve brýnt væri að þeir hlustuðu á
skáldin og leituðu þangað leiðsagnar og hlust-
uðu eftir vitnisburði skálda um hvað mönnun-
um líður. Ég hitti Soares á eftir _að máli og
hann talaði af hrifningu um hvað Island væri
máttugt og fagurt, og talaði af mikilli hlýju
og hrifningu um þáverandi forseta okkar Vig-
dísi og hve vel hún kynnti sína þjóð.
FYRIR þijátíu og sjö árum stóð
jólatré í búðarglugga suður með
sjó. Beint á móti búðarglugga-
num var sjórinn að mála fjöru-
gijótið hvítt. Hann var búinn að
hamast allt haustið og þegar
jólatréð kom í gluggann var allt
gijótið orðið hvítt, þannig að
jólatréð vissi ekki nema að fjörugijót væri
alltaf hvítt. Ef til viil vissi tréð ekki neitt eða
hugsaði en ef það gæti hugsað þá myndi það
geta sagt okkur sögu sína. Það er hins veg-
ar óþarfi því að ég þekki sögu þess.
Þar sem það stóð nú þarna og horfði á
gijótið og reyndi að skilja heiminn varð því
skyndilega bragðið því að eitthvað þaut fram
hjá glugganum. Fyrst kom það frá hægri en
svo kom það frá vinstri og var aldrei eins á
litinn. Jólatréð fór að velta því fyrir sér hvað
þetta gæti verið.
Ef við hefðum staðið þarna hjá trénu þá
hefðum við getað sagt því hvað var að ger-
ast. Þetta voru nefnilega bílar. Stórir fjöl-
skyldubílar. Fyrir svona mörgum árum síðan
voru fjölskyldubílar risastórir, þeir voru eigin-
lega eins og litlar stofur á hjólum, því að
framsætið var sófi og aftursætið var sófi og
í hvoru sætinu fyrir sig hefði fullorðin kona
geta sofið.
Sumir bílar á þessum tíma voru stórir af
því að þeir höfðu verið smíðaðir stórir en
aðrir virtust vera stórir af öðrum ástæðum.
Til dæmis voru skódar þannig að það var
eins og þeir hefðu verið smíðaðir litlir en síð-
an breytt í stóra bíla. Það hefði mátt ímynda
sér að fyrir utan verksmiðjuna sæti risi sem
tæki hvern og einn og blési í púströrið á
þeim, þannig að þeir stækkuðu þangað til
að þeir urðu stórir og bústnir. Þessir skódar
voru þess vegna aldrei kallaðir annað en
blöðruskódar því að þeir voru eins og útblásn-
ar blöðrur á hjólum.
Blöðruskódi renndi nú upp að búðar-
glugganum og skyggði á útsýni trésins og
langleitur maður í þykkri peysu kom í stað-
inn. Hann horfði upp og niður eftir trénu i
glugganum. Svo kom gustur þegar maðurinn
opnaði hurðina og með gustinum kom vetrar-
kuldinn og hríslaðist um tréð.
Trénu var lyft upp á toppnum og það bor-
ið inn að afgreiðsluborðinu. Höndin sem hélt
um tréð var þykk af vinnubólgu og af henni
lagði óþægilegan þef. Það vora hvítir kristall-
ar á hönd mannsins sem hrundu nú niður
eftir trénu. Þessir hvítu kristallar voru litlir
saltmolar. Maðurinn sem var að kaupa tréð,
vann í saltfiski. Hann hafði lítinn tíma og
var fljótur að kaupa tréð.
Hann flýtti sér með tréð á blöðruskódanum
heim í húsið sitt. Þetta var lítið hvítt hús og
það var alveg nákvæmlega eins og hús sem
krakkar teikna þegar þau byija að teikna
hús. Öll húsin við þessa götu voru eins. Sem
betur fer rataði maðurinn í húsið sitt þó
hann hefði mikið að gera. Inni beið dökk-
hærð myndarleg kona ásamt þremur börnum
sínum með jólabros á vörum. Þetta vora tveir
drengir og ein stúlka. Seinna kom einn hrokk-
inhærður drengur til viðbótar en þá vora þau
flutt í annað hús sem hafði gleymt þakinu
heima hjá sér. Drengirnir vora dökkhærðir
og hrokkinhærðir eins og mamman en stúlk-
an var ljóshærð eins og pabbinn.
Þau skreyttu tréð með jólaseríu og marglit-
um perum, bréfpokum, öskjum og körfum.
Dökkhærða konan, mamman, setti stundum
sælgæti í pokana. Fótur jólatrésins var
klæddur með snjóhvítri bómull.
Allt líf jólatijáa gerist á jólum. Þau muna
því ekkert og vita ekkert um það sem gerist
á milli jóla. Jólatréð sá börnin vaxa, verða
fullorðin og fara að heiman eins og í hraðspól-
aðri kvikmynd á myndbandi.
Allt í einu var jólatréð statt inni í lítilli
íbúð. Hún var ekki nema eitt herbergi. Veg-
gimir vora ljósbrúnir og gólfið blátt. Eldhús-
ið var inni í stofunni og svefnherbergið var
hólfað frá með hálfum steinvegg. Lítil patt-
araleg stelpa með hnöttóttan koll vappaði í
kringum tréð berrössuð. Hún brosti út að
eyrum. Tréð var alveg hlessa því að pattara-
lega stelpan var næstum alveg eins og stelp-
an í hvíta húsinu suður með sjó. Tréð vissi
ekki hvort það ætti að trúa sínum eigin
barmálum, sem voru reyndar úr plasti. Vír-
inn sem hélt plaststrimlunum var úr ekta
járni og plastið úr ekta jarðolíu. Greinamar
voru og eru þannig gerðar að plaststrimlun-
um hafði verið komið inn á milli víra sem
síðan voru vafðir saman.
SMÁSAGA EFTIR
ÁSGEIR BEINTEINSSON
Allt líf jólatrjáa gerist á jól-
um. Þau muna því ekkert og
vita ekkert um þaó sem ger-
ist milli jóla. Jólatréó sá
börnin vaxa, veróa fulloróin
og fara aó heiman eins og
í hraðspólaðri kvikmynd
á segulbandi.
Lesbók/Kristinn.
JÓLATRÉÐ sem gengið hefur í endurnýjun
lífdaganna. Nú átti fyrir því að liggja að
vera dregið fram í dagsljósið snemma í
desember, flutt niður á Morgunblað þar
sem því var stillt upp með kertaljósum
inni Ijósmyndastúdíói.
Allt í einu kom ljóshærð kona og tók
berrössuðu stelpuna upp og klæddi hana í
náttföt, það voru jólanáttföt. Fólkið í íbúð-
inni litlu átti ekki peninga fýrir lifandi jóla-
tré þess vegna hafði fólkið í hvíta húsinu
suður með sjó gefið því tréð. Ljóshærða kon-
an sem nú var orðin mamma hafði einu sinni
verið lítil stúlka hjá þessu tré og fengið sér
gotterí úr pokunum sem dökkhærða konan,
hafði sett í þá. Þetta rifjaðist nú upp fyrir
trénu. Þegar hér er komið sögu er dökk-
hærða konan og langleiti maðurinn sem
keypti tréð orðin amma og afi.
Fyrir jólatijám þá sérstaklega gervijólatij-
ám sem lifa að eilífu eru áratugir eins og
einn dagur. Eins og allir vita þá er ein eilífð
jafnlöng og það tekur spörfugl að mylja gijót
sem er á stærð við blokk, með því að brýna
gogginn á því, þess vegna er eins og gervi-
jólatré séu alltaf ný alveg sama hvað þau
verða gömul.
Það versta sem getur komið fyrir gervitóla-
tré er að þau hætti að vera í tísku. Þegar
ljóshærða konan og dökkhærði maðurinn með
skeggið og síða hárið fengu jólatréð þá var
ekkert sérstaklega fínt að vera með gervijóla-
tré en af því að þau vora af hippakynslóð-
inni þá fannst þeim það fínt og sniðugt. Hipp-
arnir elskuðu nefnilega allt sem hafði sál og
átti sér sögu.
Það var sem sagt ekkert í tísku hjá venju-
legu fólki að hafa gömul gervijólatré heim
hjá sér á jólunum. En mikið var tréð ánægt
að það skyldu vera til hippar. í mörg ár var
tréð alveg sérstaklega hamingjusamt, en svo
fór það að taka eftir því að fólkið á heimilinu
breyttist smátt og smátt í venjulegt fólk. Það
hætti að vera hippar, hárið á dökkhærða
manninum varð stutt og skeggið líka, það
hætti að vera í háskólanum að læra að verða
eitthvað, því að það var orðið eitthvað. Ljós-
hærða konan og dökkhærði maðurinn urðu
kennarar og fóru að vinna fyrir sér.
Alveg eins og tréð hafði óttast mest þá
urðu þau venjulegt fólk. Hvað haldiðið að
þá hafi heyrst á heimilinu?
„Pabbi, við viljum ekki eiga gamalt lítið
og druslulegt gervitjólatré sem er alveg eins
og stutt kústskaft sem einhver hefur stungið
grænum flöskuburstum inn í.“
Fyrst voru það bara stelpurnar sem sögðu
þetta, því að nú voru þær orðnar þijár, svo
kom mamman líka og þá var fokið í flest
skjól hjá trénu.
„Nú hættum við að nota tréð frá mömmu
og pabba og kaupum lifandi tré, jú , ekkert
múður, þau eru hvort eð er svo ódýr.“ Sagði
ljóshærða konan.
„En mér finnst tréð svo fallegt og það
hefur sál og það hugsar.“ Sagði þá dökk-
hærði maðurinn, það var ennþá lítill hippi
inni í honum. Stelpurnar og mamman litu nú
á pabbann eins og hann væri eitthvert viðr-
ini, var hann kannski orðinn vitlaus að halda
annað eins og að gömul gervijólatré gætu
hugsað. I nokkra daga reyndi pabbinn að
halda því fram að það væru ekki til neinir
peningar til þess að kaupa jólatré fyrir en á
endanum varð hann að gefast upp. Því að
þau vora löngu orðin venjuleg fjölskylda og
hætt að vera hippar.
Það ár var jólatréð ekki tekið innan úr
gulnuðum Morgunblöðunum sem það var
vafíð inní. Pabbinn fór samt upp á háaloft
til að spyija tréð hvort hann mætti ekki nota
fótinn undan því til að hafa lifandi tré í hon-
um um jólin. Gamla gervijólatréð hafði nefni-
lega haft afnot af járnfót sem venjulega eru
notaðir fyrir lifandi tré. Upprunalegi fóturinn
hafði brotnað í litla húsinu suður með sjó.
Það var auðfengið að fá fótinn lánaðan.
Pabbinn sagðist ætla að borga trénu ein-
hvern jóladaginn fyrir greiðasemina. Hver
jólin á fætur öðrum reyndi pabbinn að halda
því fram að þau jólin ættu þau að nota gamla
gervitréð. En allt kom fyrir ekki. Blöðin utan
um tréð héldu áfram að gulna og rykfalla í
skúmskoti upp á háalofti. Sumir á heimilinu
héldu meira að segja að tréð væri týnt eða
jafnvel ónýtt.
Svo kom sorgardagur í lífi trésins. Pappír-
inn var tekinn utan af því og það voru ekki
jól. Það voru ekki jól. Tréð var lafhrætt og
hélt saman greinunum sínum. Það hafði aldr-
ei séð heiminn öðruvísi en skreyttan og í
jólaskapi. Þennan dag brotnuðu síðust leif-
arnar af fætinum sem það hafði.
„Hentu trénu, það er hvort eð er ónýtt og
engum til gagns, við flytjum ekki rusl á
milli húsa.“ Sagði mamman við pabbann.
Já, fjölskyldan var að flytja og tréð hafði
lent á milli húsganga í flutningabílnum. Tréð
beið nú þess að lenda ofan í ruslatunnu fyr-
ir utan nýja húsið. Af því að tré muna aldr-
ei neitt, sérstakelga gervitré, þá varð það
alveg gapandi hissa núna í fyrra.
Það var tekið mjög varlega utan af því
og fótbrotið skoðað í krók og kring. Jú, þetta
er hægt hugsaði dökkhærði maðurinn sem
nú var kominn með grátt í skeggið. Mikið
líður tíminn hratt hugsaði tréð.
Tréð sá hvernig maðurinn smíðaði, boraði
og límdi. Tréð gat ekki vitað hvað maðurinn
var að gera því að gervitré hafa ekkert vit
á smíðum en þegar því var stungið ofan í
gullfallegan hvítan furafót og gat staðið
sjálft, þá skildi það vel hvað maðurinn hafði
verið að gera.
Síðan skreytti maðurinn gamla gervijóla-
tréð með nýrri seríu, setti tréð á góðan stað
á efri hæðinni heima hjá sér. Nú átti fjölskyld-
an ekki bara heima í einu herbergi eins og
forðum heldur í íbúð sem var á tveimur
hæðum.
„Komið." Hrópaði pabbinn.
Mamman og stelpumar komu hlaupandi
upp stigann því að þær héldu að himinn og
jörð væru að farast, en það var nú öðru
nær. Þær táruðust við að sjá hvað gamla
tréð var orðið fallegt. Allir urðu sammála
um það að tréð fengi að vera á þessum stað
á heimilinu til eilífðar, það fengi að ráða ríkj-
um á efri hæðinni.
Nú er öllum boðið að sjá tréð og öllum
er sagt hvað það á sér merkilega sögu.
Sagan er byggð á sönnum atburðum og
hefur verið lesin fyrir sögupersónurnar sem
gerðu að henni góðan róm.
Höfundur er skólastjóri.
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. DESEMBER 1996