Alþýðublaðið - 01.07.1989, Side 7
Laugardagur 1. júlí 1989
7
„Ýmsar búgreinar svo sem ioðdýrarækt, sem rikið hefur mokað í
peningum, eru gjörsamlega gjaldþrota. íslenska ríkið hefur ekkert
efni á þessu.“
MEnn eitt dæmi um vitleysuna í rikisfjármálunum er samningsgerð
við læknasérfræðinga, sem sækja sér laun upp á tíu til tuttugu
milljónir nánast sjálfvirkt niðrí Tryggingastofnun.“
, ,Koma þarf í veg fyrir æviráðningar ríkisstarfsmanna. Það er kerfi
í stíl við 19. aldar lénsfyrirkomulag.“
, pVið höfum reynslu af þvi að um þessar aðgerðir þýðir ekki að tala
við Sjálfstæðisflokkinn, öfugt við það sem hann heldur fram á tylli-
dögum.“
Formaður Alþýðuflokksins í viðtali um
ríkisstjórnina, Alþýðuflokkinn, samein-
ingarhugmyndir flokka og dagblaða og
stöðu þjóðmála í dag.
, ,Þegar þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kemur saman við Austur-
völl, þá eru þar svo öflugir málsvarar hefðbundins landbúnaðar að
þeir eru framsóknarmegin við Framsókn.“
,,Þjóðviljinn er eitt leiðinlegasta blað á jarðríki, af því að hann er
alltaf með andarteppu af ofstæki og getur aldrei gert greinarmun
á frétt og pólitískum áróðri.“
,,Unga fólkið í Alþýðubandalaginu er að átta sig á því að það er
enginn hugmyndagrundvöllur fyrir íslenska vinstri hreyfingu annar
en hugmyndagrundvöllur lýðræðisjafnaðarmanna.“
MAlþýðuflokkurinn hefði t.d. ekki átt að taka þátt i viðreisn, því
að Ingólfur frá Hellu var mesti framsóknarmaður sem uppi hefur
verið.“
Alþýðuflokkurinn er____________
tilbúinn
— Hvar stendur AlþýAuflokk-
urinn í þessum málum?
„Allt eru þetta aðgerðir sem allir
sem til þekkja vita að verður að gera
og þá var komið að þvi að krossa
við þar sem stóð: Það sem ég og
minn flokkur treystum okkur til að
gera. Ég get sagt fyrir hönd míns
flokks: Við erunr tilbúnir til að gera
þetta allt saman. Þetta eru aðgerðir
sem við boðuðum fyrir kosningar,
þetta eru aðgerðir sem við erum
málsvarar fyrir. Hvað er um aðra að
segja?
Við höfum reynslu af því úr fyrri
ríkisstjórn að um þessar aðgerðir
þýðir ekki að tala við Sjálfstæðis-
flokkinn, öfugt við það sem hann
heldur fram á tyllidögum.
betta eru stórar ákvarðanir, um
kerfisbreytingar í stjórnsýslu og
stjórnarfari, og þetta gerist ekki
sársaukalaust. Þetta mundi þýða
það að Framsóknarflokkurinn yrði
að átta sig á því að það er ekki hægt
að framvísa öllunr reikningum
landbúnaðarkerfisins á skattgreið-
endur, allra síst ef þeir á sama tíma
tala um það að lækka matvöruverð
á íslandi.
Stöldrum aðeins við matvöru-
verðið. Matvöruverð á Islandi er
mjög hátt. Af hverju er það svona
hátt? Það er í fyrsta lagi vegna þess
að við höfum komið okkur upp
kerfi utan um landbúnaðarfram-
Ieiðsluna þar sem engin tengsl eru
milli framleiðslu og eftirspurnar.
Þar sem öllum framleiðslukostn-
aði, hvernig sem hann er tilkominn,
er velt yfir á neytendur. Engin
hvatning til þess að halda kostnaði
i skefjum, hvort heldur í fjárfest-
ingu eða rekstri. Þess vegna er
kostnaðurinn svona hár.
Það er aðeins tvennt hægt að
gera til að lækka matvöruverð á ís-
iandi til samræmis við það sem ger-
ist með öðrum þjóðum. Það er að
afnema þetta lokaða kerfi og opna
það fyrir meiri samkeppni, og jafn-
framt að opna fyrir innflutning á
matvælum.
Það hefur nú verið svoleiðis
hingað til að a.m.k. fjórir þing-
flokkar hafa litið á það sem tabú að
svo mikið sem orða þessar leiðir.
Það eru Framsóknarflokkurinn,
Sjálfstæðisflokkurinn, Alþýðu-
bandalagið og Kvennalistinn. Jafn-
framt eru það þessir flokkar sem
hrópa hæst um lækkun mat-
vöruverðs".
Sveitamenn___________________
Sjálfstæðisflokksins
„Af reynslu minni úr fyrri ríkis-
stjórn þýðir ekki að ræða þetta við
Sjálfstæðisflokkinn að óbreyttu.
Hvers vegna ekki? Er ekki Sjálf-
stæðisflokkurinn stærsti flokkur
neytenda í þéttþýli? Hefur hann
ekki mest fylgi hér i Reykjavík? Jú,
en þegar þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins kemur saman við Austur-
völl þá kemur á daginn að þar eru
svo öflugir fulltrúar hins hefð-
bundna landbúnaðarkerfis, að þeir
eru ef nokkuð er framsóknarmegin
við Framsókn. Það er auðveldara
að þoka þessum málum áleiðis i
samstarfi við Framsóknarflokkinn,
heldur en við Sjálfstæðisflokkinn.
Ef ríkisstjórn eins og nú situr,
getur ekki leyst þessi mál eru þá ein-
hverjar líkur á að einhverjir aðrir
gætu það? Kvennalistinn? Nei.
Þá erum við komin að þeirri nið-
urstöðu að við erum með pólitískt
vandamál sem núverandi flokka-
kerfi virðisi ekki geta leyst. Og það
er meginskýringin á því hvernig
kornið er. Það er ekki á þessu landi
nægilega öflug stjórnmálahreyfing
sem fyrst og fremst styðst við fylgi
launþega, neytenda og skattgreið-
enda í þéttbýli til þess að tryggja
þeirra hagsmuni. Það vantar í þetta
land sósíaldemókratíska fjölda-
hreyfingu, sem hefur nægilegt fylgi
og nægan styrk til þess að tryggja
hagsmuni meirihluta þjóðarinnar
fyrir framleiðsluhagsmunum